Morgunblaðið - 10.03.1998, Síða 60
JjO ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998
FOLK I FRETTUM
MORGUNBLAÐIÐ
Að deila l ilíinniugiim
MADS Mikkelsen og Kim Bodnia í hlutverkum sínum sem vinirnir Tony og Frank í „Pusher".
Danska kvikmyndin
„Pusher“ þykir með at-
hyglisverðari dönsku
myndum síðari ára.
Hildur Loftsdóttir
spjallaði við leikstjór-
ann Nicolas Winding
Refn á skrifstofu fram-
leiðslufyrirtækis hans
Power Films.
LEIKSTJÓRINN hafði ekki túna
til að raka sig meðan á upptök-
um „Pushers" stóð. Á milli hans
og Bruce Lee glittir í Kim.
hann stórgræddi ekki á henni. Eg
held að það sama eigi við mig, en
vona um leið að það sé ekki framtíð-
arstefna hjá sjóðnum. Uthlutunar-
nefndin gaf peningana í barnamynd
og svo í eina mynd til viðbótar með
Ólsen-genginu. Það er mikil
stemmning hér fyrir þeirri mynd og
fólk er þegar byrjað að panta miða á
hana, þótt framleiðslan sé ekki hafin!
Ég mun auðvitað sjá hana líka.“
Góðu leikararnir og skilaboðin
„Pusher“ er í svokölluðum heim-
ildamyndastíl og þeim sem hafa þeg-
ar séð myndina fmnst yfirleitt per-
sónusköpunin minnisverðari en sögu-
þráðurinn. Enda er hún mjög sterk
og leikurinn einstaklega raunsær, og
lagði leikstjórinn mikla áhersla á
þann þátt. „Bleeder" verður eins að
þessu leytinu til, en nú vill Nicolas
ganga skrefinu lengra í að endur-
skapa raunveruleikann. Leikararnir
eru þegar byrjaðir að undii-búa hlut-
verkin með því að lifa eins og persón-
urnar dags daglega í tvo til þrjá mán-
uði og sjá hver árangurinn verður.
-Eru sterkar persónur það sem
skiptir sköpum í góðri kvikmynd?
„Það sem skiptir mestu máli í list-
rænum myndum, eins og ég vil segja
að mín mynd sé, er það sem leik-
stjórinn er að reyna að koma á fram-
færi. Áhorfendur koma hinsvegar í
bíó tii að sjá góða leikara að verki, ef
það bregst þá finnst fólki myndin
einfaldlega ekki góð. Sögufléttan
verður að vera einstaklega spenn-
andi og ófyrirsjáanleg eins og í
„Usual suspects" eða „Seven“ til
þess að leikararnir fari að skipta
minna máli. Að gera kvikmynd er
bara eins og hvert annað listform
þar sem listamaðurinn reynir að
koma skilaboðum til heimsins. Það
getur hins vegar verið erfitt fyrir
áhorfendur að skilja hvað leikstjór-
inn er að fara, þannig að til að fá þá
til að koma í bíó verður að lofa þeim
tveggja tíma ótrúiegri upplifun.“
-Hver eru þín skilaboð?
IDAG gefur Háskólabíó út á
myndbandi kvikmyndina „Pus-
her“. Hún segir frá eiturlyfja-
salanum Prank sem er mjög
góður í sínu fagi. Hann lendir hins-
vegar í vondum málum þegar Milo,
króatískur eiturlyfjakóngur í Kaup-
mannahöfn, tekur hann á beinið fyrir
að skulda sér peninga.
Áhorfendur skipta mestu
„Ég verð að segja þér hreinskilnis-
lega að ég fékk ekki góða dóma í öll-
um blöðum. En Extrabladet, Berl-
ingske Tidende og Politiken voru
mjög hrifin af myndinni og ég virði
þeirra álit. Það sem skiptir máli er
að 200 þúsund manns eru búin að
sjá myndina í bíó hér í Danmörku
auk þess sem hún er vinsælasta
danska sölumyndbandið til
margra ára. Það ætti að segja
sitt,“ segir Nicolas um vinsældir
Pushers.
„Eftir velgengni fyrstu kvik-
-(myndar minnar sé ég framtíðina í
mjög björtu ljósi. Það er kannski
gömul tugga, en ég held að mað-
ur verði að vera bjartsýnn yfir
höfuð til að takast ætlunarverk sín,
sama hvers eðlis þau eru.“
Pusher hefur farið á margar kvik-
myndahátíðir og var í keppni í San
Sebastian. En þótt tvö ár séu liðin
frá gerð myndarinnar er dreifingin
rétt að komast á fullt núna og er ver-
ið að frumsýna hana í kvikmynda-
húsum í HoÚandi, á Spáni, í Frakk-
landi, í Póllandi og hún hefur þegar
fengið mikla aðsókn í Englandi.
„Því miður hafa fyrrverandi Jú-
góslavar ekki efni á myndinni svo ég
ætla að gefa þeim sýningarréttinn.
Milo og aðstoðarmaður hans í mynd-
- -inni eru stór hlutverk og eru bæði
leikin af leikurum þaðan, og það væri
gaman að sýna þeim myndina,“ segir
þessi ungi hugumstóri leikstjóri.
„Ég og félagi minn Thomas í
Power Films erum fullir af eldmóði,
þrátt fyrir að við höfum ekki fengið
úthlutað úr kvikmyndasjóðnum til að
gera næstu kvikmynd sem mun heita
Bieeder. Eftir að Lars von Trier
gerði „Element of Crime“ sem vakti
athygli um allan heim, fékk hann
ekki úthlutað úr sjóðnum þar sem
Vatnsheld og vindþolin
Allar stærðir og gerðir
Margir litir - gott verð
JbOfnasmiðjan
Verslun Háteigsvegi 7 • Sími 511 1100
Verksmiðja Flatahrauni 13 • Sími 555 6100
Morgunblaðið/Rúnar Þór
NICOLAS Iítur framtíðina björtum augum í gegnum myndavélarlins-
una.
FRANK þekkir vel til nektarbúllna Kaupmannahafnar.
„Að það er ekki hægt að lifa lífinu
án þess að deila tilfinningum með
öðru fólki.“
Aftur til fortíðar
-Er eitthvert atriði í bíómynd sem
þú manst eftir að hafa séð sem
strákur, sem hefur mögulega haft
áhrif á þig sem leikstjóra ?
„Já, alveg hiklaust. Það er byrjun-
in á mynd John Hustons „Fat City“
þegar leikarinn Stacy Keach vaknar
á hótelherbergi. Líka hvernig per-
sóna Roberts De Niro er kynnt til
sögunnar í „Mean Streets" sem
Martin Scorsese gerði 1973. Atriðið
er allt sýnt hægt, það gerist á bar og
lagið „Jumping Jack Flash“ með
Rolling Stones er spilað undir. Sú
mynd kenndi mér að nota tónlist í
kvikmyndum. Pyndingaatriðið með
Marilyn Burns í „The Texas Chain
Saw Massacre“ hafði mikil áhrif á
mig, og svo víða skotið þegar
Charlie Chaplin hittir konuna á göt-
unni í „City Lights". Þetta eru ein-
staklega sterkar myndir sem ég
mun örugglega alltaf geyma í höfð-
inu.“
-Og varstu búinn að ákveða að verða
kvikmyndaleikstjóri á þeim tíma?
„Mig hefur alltaf langað að gera
kvikmyndir, en fyrst vildi ég sér-
hæfa mig í tæknibrellum. Ég var 14
ára þegar ég sá „The Texas Chain
Saw Massacre" og það varð til þess
að ég vissi hvað ég vildi.“
-Heldurðu að það hafi haft áhrif á
þig að pabbi þinn er kvikmyndaleik-
stjóri?
„Nei, að minnsta kosti ekki jafn-
mikið og halda mætti. Það sem skipti
sköpum var að ég átti heima í New
York í mörg ár og var þar í algjörri
kvikmyndaparadís. “
-Geturðu horft á kvikmyndir með
augum almennings og gleymt að þú
sért leikstjóri?
„Já, þótt það sé sífellt að verða
flóknara fyrir mig. En þegar ég fer í
bíó þá er það til þess að láta
skemmta mér og njóta stundarinnar.
Hver einasta mynd sem ég sé minnir
mig á eitthvað í lífi mínu og gefur
mér jafnvel nýja tilfinningu fyrir
vissum atvikum sem ég hef upplifað.
Ég mundi vilja að áhorfendur „Pus-
hers“ gætu sagt hið sama.“
-Ef þú værir ekki kvikmyndaleik-
stjóri, hvað værirðu þá?
„Tónskáld."
-Svo þú býrð yfír tónlistarhæfíleik-
um líka?
„Nei, alls engum.“
LEONARDO DiCaprio ásamt
Randall Wallace, leikstjóra
Mannsins með járngrímuna, á
frumsýningunni.
DiCaprio
setur upp
járngrímu
► NÝJASTA kvikmynd
hjartaknúsarans Leonardo DiCa-
prio var frumsýnd á dögunum í
New York. Þetta er myndin „The
Man in the Iron Mask“ eða
Maðurinn með járngrímuna sem
byggð er á sígildri sögu Alexandre
Dumas um franskan kóng og tví-
burabróður hans en DiCaprio leik-
ur bæði hlutverkin. Með önnur
hlutverk fara John Malkovich, Jer-
emy Irons, Gerard Depardieu og
Gabriel Byrne.
Um tvö hundruð æstir aðdáend-
ur söfnuðust saman fyrir utan Zi-
egfeld leikhúsið á Manhattan þeg-
ar myndin var frumsýnd og greini-
legt að DiCaprio er kominn í guða-
tölu meðal kvenkyns aðdáenda
sinna. Leo, eins og DiCaprio er
kallaður, þurfti að troða sér inn í
leikhúsið með aðstoð lögreglunnar
vegna grátandi og öskrandi aðdá-
GERARD Depardieu og John
Malkovich leika tvær af skytt-
unum þremur í myndinni.
enda sem vildu nálgast goðið.
Þess má til gamans geta að um
þessar mundir er verið að sýna í
Bandaríkjunum gamanmynd sem
einnig heitir Maðurinn með
járngrímuna og hefur það ruglað
áhorfendur. ítrekað hafa borist
kvartanir frá áhorfendum um að
Leonardo DiCaprio væri hvergi
sjáanlegur í myndinni og ákvað
leikstjórinn að hengja upp skilti í
kvikmyndahúsum þar sem sagt
var að Leo væri ekki í þessari til-
teknu mynd. Að sögn voru það
helst miðaldra konur sem kvört-
uðu en ekki unglingsstúlkur.
Af Leonardo DiCaprio er það
annars að frétta að kappinn mun
að öllum líkindum ekki verða við-
staddur Óskarsverðlaunaafhend-
inguna síðar í mánuðinum. Að sögn
móður hans, Irmeiin DiCaprio, er
engin ástæða fyrir Leo að mæta
þar sem Akademían sniðgekk hann
í tilnefningu sinni á bestu karlleik-
urum ársins 1997. Sjálfur segist
Leo ekki vera búinn að ákveða sig
en telur litlar líkur á því að hann
fari í betri fötin og hitti starfsfé-
laga sína á hátíðinni. Myndin „Tit-
anic“ sem gerði DiCaprio að goði
meðal kvenna er tilnefnd til 14
Óskarsverðlauna, þar á meðal er
mótleikkona hans Kate Winslet til-
nefnd sem besta leikkonan.