Morgunblaðið - 08.05.1998, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998
UR VERINU
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/ÞorgeirBaldursson
SVO virðist sem þorskur sé um allan sjó. Trillukarlar hafa ekki farið varhluta af því og hafa þeir verið að fá
góðan fisk inni á Eyjafirði. Hér eru þeir að athafna sig í Sandgerðisbót á Akureyri.
„Svo mikið að botninn
sést ekki fyrir torfunum“
„HÉR UM 22 mílur undan eru ein-
hver ósköp af fiski. Svo mikið, að
botninn sést ekki fyrir torfunum á
leitartækjunum. Þetta er svoleiðis
að maður hefur aldrei séð annað
eins og á línunni hefur ekki fallið úr
öngull," segir Óli H. Ólason, trillu-
karl í Grímsey, í samtali við Morg-
unblaðið.
Samdóma álit fiski- og löndunar-
manna allt í kringum landið er að
mikil uppsveifla hafi verið í þorsk-
stofninum og veiðum samhliða því í
vetur og sumir tala um síðustu tvö
árin. Þá er víða sláttur á stein-
bítsveiðimönnum og á stöku stað
hefur grásleppuveiði verið til muna
meiri en hin seinni ár. Mælingar
Hafrannsóknastofnunar á sjávar-
hita hafa bent til hagstæðs árferðis í
hafinu, en þær raddir heyrðust
einnig er Morgunblaðið ræddi við
menn vítt og breitt um landið að ef
til vill væri styttra í hrun en margur
ætlaði.
Guðmundur Þórðarson á Rifi og
Arni Sigurpálsson, hafnarstjóri í
Sandgerði, voru samdóma um upp-
sveifluna í þorskstofninum. Árni tal-
aði um „bullandi þorsk“ og Guð-
mundur bætti við að fiskurinn hefði
verið sérlega feitur og fallegur eftir
að loðnan kom í vetur. Árni sagði
um aðrar tegundir, að steinbítsveiði
hefði verið góð, sérstakiega fyrír
mánaðamótin, og trúlega væri um
meiri veiði en í meðallagi að ræða.
Ýsuveiði taldi hann vera í meðallagi,
en erfitt væri fyrir veiðimenn að
henda reiður á hversu mikið væri af
kola á miðunum þar sem snurvoðar-
bátar sem færu á kola kæmust ekki
að honum fyrir þorski. „Þá byrjaði
grásleppuveiðin ágætlega á dögun-
um, en nú eru allir hættir," sagði
Árni.
Guðmundur tók í sama streng
með steinbít á miðunum, þar hefði
gengið vel, og hann taldi af reynslu
sinni í vetur að kolaveiðin væri í
meðallagi. Það sem frést hefði af
rækjuveiðum væri hins vegar ekki
gott. „Það sem ég hef heyrt er að
veiðin sé ekki mikil“, sagði Guð-
mundur.
Minna af ýsu
Jóna Engilbertsdóttir á Hafnar-
voginni í Þorlákshöfn hafði eftir sjó-
mönnum í plássinu að þorskgengd
hefði verið mikil í vetur og vor þó
eitthvað hefði dregið úr aflabrögð-
um allra síðustu daga. En á sama
tíma og mikið væri af þorski, virtist
vera mun minna af ýsu heldur en
Blöðruselur tekur
lifur úr þorski í
netum og á línu
mörg undanfarin ár. „Hún gefur sig
oft héma hjá okkur á vorin og menn
hafa reynt sérstaklega við hana.
Það hefur oftast gefið vel, en ekki í
vor. Núna kemur hún aðeins sem
reytingur, sem aukaafli. Hins vegar
hef ég séð stærri tölur af steinbít og
grásleppu sem aukaafla hjá bátun-
um í vor heldur en oft áður,“ bætti
Jóna við.
Ágætis vor en selur spillir afla
„Þetta hefur verið ágætis vor, en
að undanfömu hefur þó verið erfitt
að sækja sjóinn vegna veðurs,"
sagði Áíd H. Guðmundsson trillu-
karl á Bakkafirði í samtali við
Morgunblaðið. „Það hefur verið fín
veiði og greinilega mikill þorskur á
ferðinni. Þó má segja að veiðin hafi
heldur dofnað að undanförnu. Gall-
inn við þetta svæði okkar er, að um
aukafisk er ekki að ræða nema grá-
sleppan. Hún mokveiddist í byrjun,
en vegna óhagstæðs verðlags hefur
mjög dregið úr veiðum. Greinilegt
er þó að mikið er af henni,“ sagði
Áki.
ÁM greindi frá nýju vandamáli
sem fiskimenn á Bakkafirði eiga við
að etja: „Hér er kominn blöðmselur
að ég tel. Þetta er að minnsta kosti
heljarstór skepna, skjótt á lit með
feikilegan hrosshaus. Það hefur að-
eins borið á þeim í gegn um árin, en
nú em þeir til algerra vandræða.
Þeir skemma svo aflann að það er
alveg voðalegt, sérstaklega þegar
þeir fara í netafiskinn. Þeir þræða
netin, taka hvern fiskinn af öðmm,
rista upp kviðinn og sjúga lifrina úr.
Halda svo að næsta fiski. Algengt
er að aðeins 30-50 fiskar af kannski
150 í netinu séu heilir sem hráefni
þegar selurinn er búinn að ljúka sér
af. Verst er þegar menn komast
ekki til að vitja í einn eða tvo sólar-
hringa vegna brælu. Þá er stundum
nánast allt ónýtt. Ef við væram að
flaka fiskinn slyppi þetta fyrir hom,
en við fletjum út í saltfisk og hengj-
um upp í skreið. Fyrir þess háttar
vinnslu eyðileggur selurinn fiskinn
algerlega. Við höfum drepið fjóra í
vor sem hafa flækst í netunum. Lík-
lega þurfum við að fara að skjóta
þá, bara verst hvað þeir geta verið
lengi í kafi. Maður sér þá eiginlega
aldrei heldur veit bara af þeim og
sér ummerkin," sagði Áki.
„Einhver ósköp af fiski...“
- en lítið af rækju
Óli H. Ólason, trillukarl í Gríms-
ey tók í sama streng með vandamál
vegna blöðmsels sem hann sagði
sérlega aðsópsmikinn í vor. Nefndi
hann dæmi um 86 af 100 fiskum
ristum eftir selinn og í því tilviki
kom allur fiskurinn lifandi úr sjó.
„En hér um 22 mílur undan em
einhver ósköp af fiski. Svo mikið, að
botninn sést ekki fyrir torfunum á
leitartækjunum. Þetta er svoleiðis
að maður hefur aldrei séð annað
eins, og á línunni hefur ekki fallið úr
öngull. En hvað fiskurinn er að gera
þarna og hve mikið er af honum er
erfitt að segja, hundruð tonna, þús-
undir tonna, ég bara veit ekki en
þetta er rosalegt magn. Það er ekki
æti í honum nema ein og ein rækja.
Hann liggur þarna í einhverjum
straumskilum og það er þetta fín-
asta fiskerí á meðan.“
Þorskurinn fullur af þorski
„Aftur á móti sér maður áhyggju-
efni hér nær eyjunni, þar sem stór
þorskur er að veiðast í net, eina
ætið í honum er smákóð. Og þó
kannski varla kóð, því í hverjum
stórþorski eru upp í 2-3 smærri
þorskar, allt að 60 sentimetra lang-
ir. Á línunni koma oft inn stórir
þorskar sem hafa gleypt smærri
þorska sem hafa orðið á undan á
öngulinn. Ég er búinn að vera í sjó-
sókn í sextíu ár og búinn að sjá
þessa hringrás aftur og aftur. Þetta
er líka það sama og þeir hafa horft
upp á í Barentshafinu. Hringrás
náttúmnnar er með þessu komin á
lokasprettinn og það næsta sem
gerist er að þorskurinn hrynur og
allt byrjar upp á nýtt. Þess vegna er
miður að geta ekki veitt meira af
öllum þessum þorski á meðan hann
er hér, stór og feitur," sagði Óli.
Óli sagði að uppsveifla næði ekki
aðeins til þorsks, mikið virtist t.d.
vera af steinbít á miðunum og vel
hefði veiðst og sama væri að segja af
grásleppu. „Agætisveiði" hefði verið
í byrjun, en síðan hefði veiði bæði
dofnað og dregið úr sókn. „Aftur á
móti er rækjuveiði enn mjög léleg,"
sagði Óli. „Ég hef verið að heyra í
mönnum og þetta er lélegt, kannski
ekki nema 15 til 18 tonn á viku. Þeir
segja að næst sé að reyna að fara
bara nógu djúpt og nógu langt og
sjá hvort ekki rætist eitthvað úr.“
: N
V
f k ■jjjV
Ék v - - smMLrn
\ \ '-X!
Sjö andlit Hitlers
ÞÝSKA tímaritið Der
Spiegel hefur birt sex
myndir sem sýna
livemig Adolf Hitler
hefði hugsanlega get-
að litið út ef hann
hefði reynt að kom-
ast undan í dular-
gervi eftir síðari
heimsstyrjöldina.
Bandaríska leyni-
þjónustan OSS lét
vinna myndimar
skömmu fyrir innrás-
ina í Normandí þar
sem hún óttaðist að
Hitler myndi reyna
að flýja.
Leyniþjónustan fól Eddie Senz,
förðunarmeistara í New York, að
vinna myndimar með hliðsjón af
ljósmynd af Hitler
eins og hann var í
raun og vem.
Á myndunum er
Hitler ýmist sköllótt-
ur eða með breytta
hárgreiðslu, skeggj-
aður eða skegglaus.
Á nokkmm mynd-
anna er hann með
gleraugu og Senz
sagði á þessum tíma
að ef Hitler reyndi að
flýja væri erfiðast
fyrir hann að hindra
að hvöss augun
kæmu upp um hann.
Þetta er í fyrsta sinn sem
myndimar sex em birtar og á
neðstu myndinni er Hitler eins
og hann var.
Flugslysið í Perú
Orsökin enn óljós
ENN er óljóst hvað olli brotlend-
ingu Boeing 737- þotunnar í Perú á
miðvikudagskvöld, en samkvæmt
upplýsingum Boeing-verksmiðj-
anna var um að ræða 15 ára gamla
þotu af undirtegundinni 737-200.
Þotan fórst í aðflugi að flugvellin-
um í Andoas á Amazonsvæðinu og
þykir kraftaverk að 14 manns af 87,
sem um borð voru, komust lífs af.
Samkvæmt upplýsingum Boeing-
verksmiðjanna var þotan afhent frá
verksmiðjunum í júní 1983 og hafði
að baki 23.000 flugtök. Hafði hún
verið á lofti í 37.000 flugstundir sem
talsmaður verksmiðjanna segir
ekki sérlega mikla notkun.
Þotuna keypti perúski flugher-
inn í síðasta mánuði en hún var að
flytja starfsmenn bandaríska olíu-
félagsins Occidental er hún fórst.
Talsmenn Occidental segja að veð-
ur til flugs hafi verið í lagi er þotan
lagði af stað og vildu þeir því ekki
tjá sig um hvort hún kynni að hafa
farist af völdum veðurs, sem breyst
hafði er þotan nálgaðist áfanga-
stað.
Fregmr af nýjum krabbameinslyfjum
Watson segir rangt
eftir sér haft
Washington. Reuters.
JAMES Watson, nóbelsverðlauna-
hafi í læknisfræði, neitar því að
hafa látið falla orð sem höfð voru
eftir honum í The New York Times
um að ný lyf muni lækna krabba-
mein innan tveggja ára. Segir Wat-
son að þótt rannsóknir Judah Folk-
mans og samstarfsmanna hans séu
mikilvægt skref fram á við sé
ógemingur að vita með vissu hvort
lyfin tvö, angiostatin og endostatin,
muni virka á fólk fyrr en tilraunir
hafi verið gerðar.
Rannsóknir Folkmans hafa leitt
í ljós að lyfin lækna krabbamein í
músum með því að stöðva blóðrás
til krabbameinsæxla og koma í veg
fyrir að þau vaxi aftur. Watson
bendir á í bréfi sínu, að saga
krabbameinsrannsókna sé full af
dæmum um að þótt eitthvað hafi
gefist vel við rannsóknir á músum
hafi það ekki reynst virka á menn.
Eftir að frásögn af lyfjunum
nýju birtist í The New York Times
sl. sunnudag hefur fyrirspurnum
rignt yfir fyrirtækið EntreMed,
sem framleiðir lyfin, Bandarísku
krabbameinsstofnunina (NCI) og
Folkman sjálfan. Hann hætti við
fyrirhugaðan fyrirlestur á ráð-
stefnu um blöðruhálskirtils-
krabbamein sl. miðvikudag eftir að
í ljós kom að fjöldi sjónvarps-
fréttamanna og myndavéla var í
salnum.