Morgunblaðið - 08.05.1998, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Tala látinna í skriðuföllunum í suðurhluta ftalíu komin í 55
„Eins og allt sé orðið að
risastórum kirkjugarði“
Fullyrt að skógarhögg og miklar byggingarframkvæmdir séu orsök hamfaranna
Sarno. Reuters.
BJ ÖRGUN ARMENNibænum
Sarno fylgjast með örvæntingar-
fullri konu leita fjölskyldu sinnar í
rústum húss síns. Sarno varð verst
úti í skriðuföllunum, að minnsta
kosti 32 létu lífið þar. Hvarvetna
mátti sjá eyðileggingu í bænum,
ekki síst í kirkjugarðinum, þar sem
steinar af leiðum lágu eins og hrá-
viði, grafhvelfingar höfðu tæst upp
og vfða glitti í bein þeirra sem þar
hvfldu. Sum húsin voru á kafi í aur,
önnur hálfiúll eða rústir einar, og
bflar stóðu á hvolfi upp úr skriðun-
um. Skriðuföllin eru einar mestu
náttúruhamfarir sem dunið hafa
yfir ítalfu svo árum skiptir.
TALA látinna í aurskriðunum í suð-
urhluta Ítalíu hækkar enn og komst
í gær í 55 manns. 125 er enn saknað
og eru mörg böm þar á meðal. Ótt-
ast er að flestir þeirra sem saknað
er hafi grafist lifandi undir aur-
skriðunum er féllu í kjölfar mikils
úrhellis fyrr í vikunni. Þó var veik
von til þess að einhverjir væru á lífi
í afskekktum þorpum sem einangr-
uðust í aurskriðunum og komu aust-
urrískir björgunarmenn með leitar-
hunda til svæðisins. í gær hafði
stytt upp og sóhn skein en talið var
að það kynni að gera björgunarstarf
enn erfiðara er leðjan harðnaði.
íbúar bæjanna Samo, Qindici,
Bracigliano og Siano, sem em
skammt frá vinsælum ferðamanna-
slóðum, m.a. Amilfi-ströndinni, em
enn skelfingu lostnir enda aðkoman
skelfileg.
Aurskriðumar eirðu engu. „Það
er eins og allt hérna sé orðið að
risastómm kirkjugarði," sagði kona
ein í Samo. Hvarvetna mátti sjá
eyðileggingu, ekki síst í kirkjugarð-
inum, þar sem steinar af leiðum
lágu eins og hráviði, grafhvelfingar
höfðu tæst upp og víða glitti í bein
þeirra sem þar hvíldu. Sum húsin
vom á kafi í aur, önnur hálffull eða
rústir einar. Bflar stóðu á hvolfi upp
úr skriðunum.
Stórvirkar vinnuvélar vom notað-
ar við leitina auk þess sem hermenn
með skóflur leituðu að fómarlömb-
um. Svo virðist sem fáir hafi not-
fært sér ástandið og rænt hús og
verslanir en lögregla kvaðst hafa
handtekið átta manns vegna þess.
Hefði mátt komast hjá
hamförunum
Skriðufólhn eru einar mestu
náttúmhamfarir sem dunið hafa yf-
ir Ítalíu svo árum skiptir. Æ meiri
reiði gætir nú á Suður-Italíu vegna
skriðufallanna, sem fullyrt er að
komast hefði mátt hjá. Bæjarstjór-
inn í Qindici, Antonio Siniscalchi,
segist undanfarin tvö ár hafa reynt
að vekja athygh á yfirvofandi hættu
á skriðufóllum en talað fyrir dauf-
um eyram. Héraðstjórinn í
Kampaníu, Antonio RastreUi, segir
ábyrgðina liggja hjá stjómvöldum
sem hafi skorið niður framlög til
héraðanna.
Fjölmiðlar segja orsök skriðufall-
anna stjómlausar byggingarfram-
kvæmdir, skógarhögg, skógarbmn-
ar og rányrkja á landinu, sem valdi
því að æ minni gróður sé til að
binda jarðveginn. Sáralítið þurfi til
að hhðamar skríði af stað. Á síðustu
fimmtíu ámm hafa rúmlega 3.000
ítalir farist í skriðufóllum.
Þá era íbúar reiðir vegna við-
bragða við skriðunum, sem þeir
segja hafa verið sein og skipulag
björgunaraðgerða lélegt. Saka íbú-
ar stjómvöld um að sýna svæðinu
takmarkaðan áhuga, þar sem þar sé
ekki að finna jafn merkar sögulegar
minjar og í Umbríu þar sem basil-
íka heilags Frans frá Assisi er en
skammt er liðið frá því að jarð-
skjálftar kostuðu ellefu manns lífið
þar. Heill sólarhringur hefði liðið
áður en yfirvöld gerðu sér grein
fyrir umfangi hamfaranna. Tjónið
er metið á um 30 billjón lírar, um
1.300 milljarða ísl. kr.
AURSKRIÐURNAR Á ÍTALÍU
Að minnsta kosti 55 hafa látið lífið og 125 er saknað
eftir að aurskriður féllu á nokkra bæi og þorp
í suðurhluta Ítalíu í kjölfar úrhellisrigningar.
Skriðurnar voru ailt að tveggja metra háar og báru
með sér aur, grjót, tré og annað sem á vegi þeirra varð.
Gífurleg gammageislasprenging fyrir 12 milljörðum ára
MYND, sem NASA, bandaríska geimferðastofnunin, hefur látið gera
af sprengingunni eins og gammageislunin sýnir hana. Vísindamenn
telja hana vera mestu hamfarir í geimnum frá Störa hvelli.
Bandaríkjamenn reyna að fá Netanyahu
til að ræða við Arafat
Segir það óráðið
hvort hann fari
til Washington
Jerúsalem, Washingloii. Reuters.
Birtan jafn
mikil og allt
ljósmagn í
alheimi
London. The Daily Telegraph.
STJ ARNFRÆÐIN G AR hafa orð-
ið vitni að mestu sprengingu,
sem orðið hefur í geimnum frá
því hann varð til með Stóra
hveili. Er um að ræða gífurlega
geislun, gammageislun, en við
sprenginguna leystist úr læðingi
jafn mikil orka og allar stjörnur í
alheimi gefa frá sér.
Sextán stjarnfræðingar frá
Bandaríkjunum, Indlandi og ítal-
íu segja frá þessu í vísindatíma-
ritinu Nature og tveir aðrir hóp-
ar vfsindamanna frá sömu lönd-
um lýsa „glæðunum" eftir
sprenginguna eins og þær birtast
i stjömumerkinu Stóra bimi.
George Djorgovski, prófessor
við Tækniháskólann í Kalifomíu,
segir, að birtan frá sprenging-
unni hafi verið jafn mikil og alls
alheimsins að öðm leyti. „Á
svæði, sem er um 150 km breitt,
voru aðstæðuraar eins og þær
vora í upphafi eða þegar aðeins
ein miilisekúnda var liðin frá
Stóra hvelli," sagði hann.
Sprengingarinnar varð fyrst
vart 14. desember sl. frá ítölsk-
hollenskum gervihnetti og öðram
bandarískum og tókst þá hvort
tveggja að mæla birtumagnið frá
henni og staðsetja hana. Innan 12
klukkustunda hafði tekist að
taka mynd af sprengingunni með
2,4 metra breiðum sjónauka á
Kitt Peak við Tucson í Arizona
en nóttina eftir var aðeins að sjá
glæðurnar eftir þessar gífurlegu
hamfarir.
Dauf stjörnuþoka
Þegar tvær vikur vora liðnar
frá sprengingunni var 10 metra
breiðum sjónauka, Keck II á
Mauna Kea á Hawaii-eyjum, beint
að staðnum og þá fannst þar afar
dauf stjörnuþoka. Reiknað hefur
verið út, að sprengingin hafi átt
sér stað fyrir 12 milljörðum ára
eða átta milljörðum ára áður en
jörðin varð til.
Vísindamenn segja, að við
þessar hamfarir hafi trúlega ým-
islegt gerst, sem enginn hafi látið
sér detta í hug fram að þessu.
Hingað til hafa menn ekki orðið
vitni að meiri atburðum í geimn-
um en endalokum sprengistjarna
en birtan frá þeim er eins og
hver önnur týra í samaburði
þessi ósköp.
BENJAMIN Netanyahu, forsæt-
isráðherra ísraels, kvaðst í gær
ekki hafa ákveðið hvort hann færi
til fundar við Yasser Arafat, for-
seta Palestínumanna, í Wash-
ington á mánudag. Bill Clinton
Bandaríkjaforseti hefur boðið leið-
togunum tveim til fundarins í
framhaldi af fundum þeirra með
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, í London í
byijun vikunnar.
„Ég veit ekki hvort ég fer til
Washington á mánudag vegna þess
að mörg mál era enn óljós,“ sagði
Netanyahu.
David Bar-Illan, ráðgjafi forsæt-
isráðherrans, sagði fréttastofu
Reuters í gær að það væri „mjög
ólíklegt" að Netanyahu færi til
Washington á mánudag. Israelskir
heimildarmenn sögðu að forsætis-
ráðherrann vildi fá meiri tíma til að
jafna ágreining Israela við Banda-
ríkjamenn um brottflutning ísra-
elskra hersveita frá landi á Vestur-
bakkanum áður en hann ætti fund
með Arafat.
Sögðu heimldarmennimir líklegt
að Netanyahu myndi fara fram á i
að fundinum yrði frestað. Hann
gæti ekki hugsað sér að koma til
fundar á mánudag ef það þýddi að
hann yrði einfaldlega að láta undan
því sem hann hefur kallað „einræð-
istilburði Bandaríkjanna um ísra-
elsk öryggismál".
Hillary hlynnt
Palestínuríki
Hillary Rodham Clinton sagði á
miðvikudag að hún væri því fylgj-
andi að í fyllingu tímans yrði stofn-
að sjálfstætt ríki Palestínu. Tals-
maður forsetafrúarinnar sagði að |
hún hefði þama verið að tjá sína
persónulegu skoðun en ekki stefnu
Bandaríkjastjórnar.
Fox-sjónvarpsstöðin hafði eftir
Hillary að hún teldi það í þágu frið-
ar í Mið-Austurlöndum að Palest-
ínumenn myndu stofna eigið ríki
og sjá ríkisborguram þess far-
borða. Fréttaskýrendur telja að
þessi orð forsetafrúarinnar geti
gert Bandaríkjamönnum erfiðara >
fyrir að hafa milligöngu í deilu '
Israela við Palestínumenn.