Morgunblaðið - 08.05.1998, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998 5*:
Játum synd-
ir okkar
Frá Árna Birni Guðjónssyni:
JESÚS sagði: Ég er ekki kominn til
að kalla réttláta, heldur syndara til
iðrunai-. Lúkas 5-32.
Jóhannes ski-ifar, 1-8-10: Ef við
segjum: Vér höfum ekki synd, þá
svíkjum vér sjálfa oss og sannleikur-
inn er ekki í oss.
Ef vér játum syndir vorar, þá er
hann trúr og réttlátur, svo að hann
fyrirgefur oss sundirnar og hreinsar
oss af öllu ranglæti.
Ef vér segjum: Vér höfum ekki
syndgað þá gjörum við hann að
lygara og orð hans er ekki í oss.
Við höfum öll syndgað og Jesús
gerh’ ki’öfu til okkar um að við játum
syndir og iðrumst í hjarta okkar. Öll
íslenska þjóðin þarf þess með að
hreinsast af syndum sínum.
Við getum kappkostað að lifa
hreinu lífi eins og Jesús gerði, þá
kemur blessun inn í líf okkar og
þjóðin verður hamingjusöm.
Spilling er að upplýsast í stjórn-
kerfi íslensku þjóðai’innar, þar vitn-
ast um syndir stjórnvaldsins.
Það sem er mikilvægast fyrir alla
sem að því koma er að þeir játi og
iðrist, hreinsi hjai-ta sitt fyrii’ guði og
mönnum.
Siðbylting er vonandi í vændum
hjá þessari þjóð, engu skal leyna, allt
skal upplýsast, bitlingar stjórnmála-
manna, eiginhagsmunapot, gjafir til
vina og flokksmanna, allt sem ekki
er heiðarlegt vegna þjóðarinnar og
réttlætis, vegna Guðs.
En sá sem hefur iðrast synda
sinna og játað föðurinn sem sinn
leiðtoga er ekki í heiminum heldur
hefur hann verið settur undir vald
Guðs almáttugs.
Er þá einhver von til að stjórn-
málamenn geti snúið við blaðinu og
játað syndir sínar?
Því í Biblíunni stendur: Sá sem
elskai’ heiminn á ekki í sér kærleika
til fóðurins. Því allt það sem í heim-
inum er, fýsn holdsins og fýsn augn-
anna og auðæfaoflæti, það er ekki
frá fóðurnum, heldur er það frá
heiminum.
Hver sem synd drýgir heyrir
djöflinum tíl, því að djöfullinn syndg-
ar frá upphafi.
Það verður engin blessun yfir ís-
lensku þjóðinni fyrr en hún hefur
snúið sér frá syndum sínum.
Efth’ höfðinu dansa limirnir, segir;
máltækið. Það er því nauðsynlegt að
stjórnmálamennirnir opinberi syndir
sínar og hreinsi hjarta sitt, síðan
gerir öll þjóðin það sama og við verð-
um öll Guðs börn og lifum blessuðu
hreinu lífi.
Guð blessi íslensku þjóðina.
ÁRNI BJÖRN GUÐJÓNSSON,
Rristilegri stjórnmálahreyfingu,
Síðumúla 13, Reykjavík.
Gangi þér vel í
landsmálunum
Ingibjörg Sólrún
Frá Theodóri Sveinjónssyni:
UM nokkurt skeið hefur verið Ijóst
að Ingibjörg Sólrún er leiðtogaefni
vinstri manna í landsmálunum.
Forystumenn vinstri flokkanna
hafa margir nefnt að þeir teldu
æskilegt að Ingibjörg leiddi vinstri
menn til sigurs í alþingiskosning-
unum vorið 1999. Þeir hafa hins
vegar haft hljótt um þetta á undan-
fomum mánuðum. Astæðan er sú
að það styttist í borgarstjórnar-
kosningar. Til að tryggja R-listan-
um sigur vilja menn ekki að það
spyrjist út að Ingibjörg Sólnín ætli
einungis að vera borgarstjóri í eitt
ár nái R-listinn meirihluta.
Ótrúlegt er að ekki skuli vera
meiri umræða um þetta mikilvæga
mál. Borgarbúa skiptir miklu máli
hver er borgarstjóri. Guðrún Pét-
ursdóttir, frambjóðandi Sjálfstæð-
isflokksins, vakti athygli á þessu í
Dagsljóssþætti á dögunum og
spurði Ingibjörgu Sólrúnu að því
hver væri varaborgarstjóraefni R-
listans. Ingibjörg svaraði því ekki
og sneri út úr með hroka og fyrir-
litningu. Borgarbúar hafa hins veg-
ar rétt á skýru svari við þessari
spurningu. Við verðum að vita
hvaða borgarstjóraefni við erum að
greiða atkvæði okkar ef við kjósum
R-listann.
Stikkfrí!
Ingibjörg ætlar sér að vera
stikkfrí ef R-listinn tapar. Hún er
enn í áttunda sæti listans og kemst
því ekki inn í borgarstjórn nema R-
listinn nái meirihluta. Ingibjörg
hefur engan áhuga á að leggja
borgarmálunum lið nema sem
borgarstjóri. Borgarbúar eiga líka
rétt á að vita hver á að vera leiðtogi
R-listans í minnihluta. Hver á að
vera talsmaður þeiri’a ef sjálfstæð-
ismenn vinna meirihluta?
Vinnubrögð Ingibjargar Sólrún-
ar einkennast af slíkri tækifæris-
mennsku að henni er vel trúandi til
að kveðja á hvaða stundu sem er til
að komast til æðri metorða. Ég
vona að henni gangi vel á þeim
vettvangi sem hún velur sér. En
það sem skiptir máli núna er að
borgarbúar fái svar við spui-ningu
um hvert hið raunverulega borgar-
stjóraefni R-listans er.
THEODÓR SVEINJÓNSSON,
Laufrima 5, Reykjavík.
Stærðir: 25,5-38,5
Sumartilboð
kr. 3.990
PÓSTSENDUIVI SKÚVERSLUN
SAMDÆGURS KOPfll/OGS
HAMRABORG 3 • SfMi 554 1754
H ver bn hrl betur?
Tilboð í eina viku
Hrífa kr. 198 Kringlunni - Laugavegi - Keflavík
Skófla kr'. 598 ALLT UNDIR 1000 KR.
LANCÖME
°g Hygea Kringlunni
bjóða þér á kynningu í dag og á morgun.
Nýttu þér einstakt tilboð:
Ef keyptar eru vörur fyrir 4.000 kr.
eða meira fylgir taska með
gjafastærðum
LANCÖME
Le Gift
5 glæsilegum
frá
H Y G E
a ny r t ivö r uverj lu
A
Kringlunni, sími 553 4533
Topptilboð
kðit íþróttaskór
Ath. Mikið úrval af sumarskóm
Póstsendum samdægurs
r oppskórinn „ Veltusundi v/lngólfstorg, sími 552 1212
STEINAR WMGE
SKÓVERSLUN
Barnatísku skór
f'
Teg. 68060
Verð: 2.995,-
Litir: svartir og hvftir
Stærðir: 24—35
ALLA FJÖLSKYLDUNA
MIKIÐ ÚRVAL AF SUMARSKÚM
5% staðgreiðsluafsláttur - Póstsendum samdægurs
STEINAR WAAGE H P,nnrMr- STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN ^ Sfmi 551 8519 <# J \0ppsk01 UUl SKÓVERSLUN ^ L V/INGÓLFSTORG SlMI: 552 1212 Sími 568 9212^