Morgunblaðið - 08.05.1998, Qupperneq 60
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Safnaðarstarf
Vorfundur
Hjallasóknar -
aðalfundur
safnaðarfélags
VORFUNDUR Hjallasóknar verð-
ur haldinn sunnudaginn 10. maí að
lokinni messu og hefst kl. 11. Á
fundinum verða birtar skýrslur
hinna ýmsu starfsþátta kirkjunnar
og farið yfir starfs- og fjárhagsá-
ætlanir næsta vetrar. Aðalfundur
Safnaðarfélagsins hefst strax í
kjölfarið en þar verða m.a. kynntar
, hugmyndir að nýjum og endur-
.skoðuðum lögum félagsins. Boðið
' er upp á léttan hádegisverð meðan
j fundimir standa yfír. Safnaðarfólk
1 er hvatt til að mæta.
I Tom Hess
í Fíladelfíu
j SUNNUDAGINN 10. maí varður
' Tom Hess ræðumaður í Fíladelfíu.
Tom Hess er Bandaríkjamaður
( sem fyrir 10 árum var kallaður frá
) heimaborg sinni, Washington, til
j að verða brautryðjandi fyrirbæna-
! þjónustu í Jerúsalem í Israel sem í
dag er tengd alheimshreyfingu fyr-
irbiðjenda. Hugsjón hans var að fá
j’’sem flesta kristna frá öllum þjóð-
í um til að koma upp til Jerúsalem
og upplifa blessun bænarinnar.
Honum tókst að fá eitt fallegasta
húsið efst á Olíufjallinu á stað sem
: heitir Beit Fage, húsið fékk nafnið
House of Prayers for All Nations.
Þangað koma árlega hundrað
kristinna einstaklinga og hópa til
hvíldar og endurnæringar fyrir sitt
andlega líf. Tom Hess er þekktur í
mörgum löndum fyrir bænaþjón-
ustu sína og hefur skrifað margar
greinar og bækur. I húsi bænar-
innar í Olíufjallinu er reglulega
beðið fyrir Islandi. Það eru allir
hjartanlega velkomnir að hlusta á
Tom Hess hér í Fíldelfíu sunnu-
daginn 10. maí kl. 16.30.
Langholtskirkja. Opið hús ki. 11-
16. Kyrrðar- og fyrirbænastund kl.
12.10. Fyrirbænaefnum má koma
til prests eða djákna. Súpa og
brauð á eftir. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja. Mömmumorg-
unn kl. 10-12.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía.
Unglingasamkoma kl. 20.30. Allir
hjai'tanlega velkomnir.
Sjöunda dags aðventistar á ís-
landi: Á laugardag: Aðventkirkj-
an, Ingólfsstræti 19. Biblíufræðsla
kl. 10.15. Guðsþjónusta kl. 11.15.
Ræðumaður Björgvin Snorrason.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík. Guðsþjónusta kl.
10.15. Biblíufræðsla að guðsþjón-
ustu lokinni. Umsjón Suðurhlíðar-
skóli.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi. Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumað-
ur Kristján Friðbergsson.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17,
Vestrnannaeyjum. Hvfldardags-
skóli kl. 10.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn-
arfírði. Biblíufræðsla kl. 11. Ræðu-
maður Sigríður Kristjánsdóttir.
f
T
CCUcCiUé
Síðbuxur
Ný sending
Opið laugardag kl. 10-14
tískuverslun
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077
TILB0D
Sumarúlpur, stuttkápur kr. 7.900.
Stuttar og
síðar kápur
Sumarhattar
Opiö laugardag 10-16
FESTIN GAJ ÁRN
p■ OGKAMBSAUMUR
Þýsk gseðavara — traustari festing
HYERGI MEIRA URVAL
Ármúla 29-108 Reykjavík - simar 553 8640 og 568 6100
í DAG
VELVAKAM)!
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Jákvæð
umfjöllun
OFT og tíðum kemur sú
staða upp í samskiptum
fólks að árekstrar verða.
Slæm reynsla fólks af við-
skiptum við fyrirtæki og
stofnanir verða oft hvatinn
að neikvæðum skrifum í
blöðum eða umfjöllun í út-
varpi. Jákvæð umfjöllun er
oft látin liggja milli hluta,
enda má segja að góð þjón-
usta ætti að vera sjálfsögð.
Það er með þjónustu eins
og annað að hana má alltaf
bæta og í allri fyrir-
tækjaflórunni er ekkert
eins. Að mínu áliti mætti
oftar hljóma jákvæð um-
fjöllun ft-á fólki um sér-
staklega góð samskipti við
fyrirtæki, það gæti virkað
sem meðmæli fyrir fyrir-
tækið fyrir okkui- hin.
Þetta er einmitt ástæða
þessara ski’ifa minna. Þar
sem nýlega varð fjölgun í
fjölskyldunni var komið að
því að stækka við sig hús-
næðið. Þar stóðum við fyr-
ir því við hjónin að setja
íbúðina á sölu og leituðum
við til sölumanna á Fast-
eignasölunni Brú. Þar var
okkur tekið með opnum
örmum og jafnframt því að
sjá um sölu íbúðarinnar
hafa þeir unnið mikið og
gott verk í því að finna
okkur framtíðarhúsnæði.
Þessi persónulega og frá-
bæra þjónusta losaði okk-
ur hjónin við mikla auka-
vinnu sem annars hefði
tekið drjúgan tima frá
okkar störfum og börnum,
því eins og margir vita þá
dugar nú ekki oft dagurinn
í þessari erilssömu borg.
Vona ég að fleiri sjái sér
fært að skrifa á jákvæðan
hátt um sína eigin reynslu
af sérstaklega góðri þjón-
ustu þar sem það myndi
hjálpa okkur hinum í
ákvarðanatöku um hvert
við beinum viðskiptum
okkar hverju sinni.
Þorsteinn Pétursson,
Kríuhólum 6.
Hver á myndir
af húsum frá 1973?
HEFUR einhver undir
höndum litskyggnur
teknar 1973 af húsum í
Reykjavík? Ljósmyndar-
ar voru Björn og Karl
Roth. Um er að ræða
myndir af húsum við:
Válastíg, Faxaskjól,
Kaplaskjólsveg, Grana-
skjól og Frostaskjól.
Þeir sem hefðu þessar
myndir undir höndum
eru beðnir að hafa sam-
band við Eggert Einars-
son í síma 897 6929.
Fyrirspum
VELVAKANDA barst eft-
irfai'andi fyrirspurn:
„í Grafarvogi og á fleiri
stöðum í borginni eru
göngustígar og á þeim eru
tröppur með brautum þar
sem hægt að fara upp með
t.d. barnavagna og hjóla-
stóla, en gallinn við þessar
tröppur er að þær eru
alltof brattar. Þarna kemst
enginn maður upp án
hjálpar með t.d. barna-
vagn. Væri ekki hægt að
láta laga þetta eða hverj-
um er þetta ætlað?“
Halldóra.
Tapað/fundið
Gullúr týndist
VANDAÐ gullúr með
brúnni skífu og leðuról
týndist aðfaranótt 26. apríl
í eða við Danshúsið í
Glæsibæ eða upp að Dal-
seli. Skilvís finnandi er vin-
samlega beðinn að hafa
samband í síma 557 4954
eftir kl. 18. Fundarlaun.
Dýrahald
Læða óskar
eftir heimili
LÆÐA þriggja ára, falleg,
bllð og góð, óskar eftir
góðu heimili vegna
breyttra aðstæðna. Upp-
lýsingar i síma 424 6601.
Köttur týndur
í Breiðholti
HVÍTUR og gulbröndótt-
ur köttur týndist frá Þver-
árseli 8 um sl. mánaðamót.
Þeir sem hafa orðið varir
við kisu láti vita í sima
557 5122.
Kettlingar óska
eftir heimili
4 KETTLINGAR óska
eftir heimili. Upplýsingar í
síma 565 5101 eða á Merk-
urgötu 2b, Hafnarfírði.
38. Hxe2! _ Rxe2 39. De5 og
hvítur vinnur) 38. Dxf6
Bxe4+ 39. Kgl _ Rh3+ 40.
Kfl _ Bd3+ 41. He2 _ Dhl
Umsjón IWargeir niát!
Péflliv.voil Hamdouchi frá Marokkó
vann óvæntan sigur á
Staðan kom upp á opnu mótinu.
móti í Dos
SKAK
Hei-manas á Spáni í
síðasta mánuði.
Serbinn
Komljenovic (2.425)
var með hvítt, en
Jan Ehlvest (2.610),
Eistlandi, var með
svart og átti leik.
Eistinn hafði átt
undir högg að
sækja í skákinni, en
bjargaði sér nú með
laglegri leikfléttu:
36. _ Hxd6! 37.
cxd6 _ Bf5! (37. _
Be2? gekk hins
vegar ekki vegna
SVARTUR leikur og vinnur.
Víkverji skrifar...
FRÉTTIR vikunnar um nýtt lyf
sem haldið geti aftur af krabba-
meinsæxlum og jafnvel læknað fólk
af krabbameini vekja sannarlega
vonir. Sambærilegar fréttir hafa
áður borist og þó merkar uppgötv-
anir hafi ekki leitt til lækninga á
þessu illræmda meini hafa þær lin-
að þjáningar og lengt ævi margra
krabbameinssjúklinga.
Fyrir fólk sem berst við krabba-
mein skipta störf hifina merkustu
vísindamanna um allan heim öllu
máli og eru sannarlega uppörvandi.
XXX
KRÖFUR kennara um bætt
kjör aðeins nokkrum mánuð-
um eftir að kjarasamningar voru
gerðir vekja athygli. Nú beinist
þunginn í kröfugerðinni beint að til-
teknum sveitarfélögum enda er
grunnskólinn farinn frá ríki til
sveitarfélaga. Tímasetning kröfu-
gerða með hótunum um uppsagnir
vekur einnig athygli og sannarlega
herðist þumalskrúfan að sveitar-
stjórnarmönnum nú aðeins rúmum
tveimur vikum fyrir kosningar.
Það vekur líka athygli að skóla-
menn í sveitarstjórnum eru sums
staðar nátengdir kröfugerðinni og
því beggja vegna borðsins. Kannski
eru svona vinnuaðferðir árangurs-
ríkar, en skrifara dagsins fínnst
þær heldur ógeðfelldar. Með þessu
er þó ekkert sagt um réttmæti
sjálfra krafnanna og það sjálfsagða
atriði að kennarar njóti mannsæm-
andi kjara.
xxx
VERULEGAR breytingar hafa
verið gerðar í Leifsstöð á síð-
ustu mánuðum. Á 2. hæð í brottfar-
arsal eru nú komnar fjölmargar
verslanir og úrval verður örugglega
mun meira heldur en áður var.
Möguleikarnir eru orðnir miklu
meiri ætli fólk sér á annað borð að
versla í Leifsstöð. Með fleiri stöð-
um verða innkaupin hins vegar
flóknari en áður, en þar ræður van-
inn miklu.
Varningur í flugstöðvum er oft
dýrar merkjavörur en að sama
skapi vandaðar og ódýrari heldur
en annars staðar. Sem dæmi skulu
nefnd gleraugu sem skrifari keypti
þar nýlega og reyndust nokkram
þúsundum króna ódýrari en í bæn-
um. Þessi viðskipti voru reyndar
hin þægilegustu; seðli frá augn-
lækni var framvísað, afgreiðslu-
stúlkan mældi bil á milli augna og
slíkt, umgjörð var valin og síðan
var beðið á barnum hinum megin
við ganginn - með kókglas í hendi -
þær 15 mínútur sem tók að gera
gleraugun tilbúin.
XXX
VERT er að vekja athygli á frá-
bærum lestri Ái-nars Jónsson-
ar leikara á Sjálfstæðu fólki Hall-
dórs Laxness í þættinum Víðsjá á
Rás 1 á sjötta tímanum hvern virk-
an dag. Gaman er að lesa bókina
sjálfur en ekki veraa að fá Bjart og
aðrar persónur sögunnar leiklesnar
á þann hátt sem Arnar býður upp á.
XXX
ANNAR liður í dagskrá Rásar 1,
sem Víkverji missir helst
aldrei af, er djassþáttur Lönu Kol-
brúnar Eddudóttur, fimm fjórðu.
Hann er á dagskrá eftir fréttirnar
kl. 16 á föstudögum, þegar Víkverji
hefur reyndar sjaldnast tíma til að
sitja við útvarpið, en annað tæki-
færi gefst; þátturinn er sem betur
fer endurtekinn strax eftir fréttir á
miðnætti. Það er ekki heppilegasti
hlustunartími sem hugsast getur,
en mikið er leggjandi á sig fyrir
góðan þátt.