Morgunblaðið - 08.05.1998, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ
____________________________________FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998 6««
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Bíóborgin sýnir gamanmyndina Out to Sea með þeim Jack Lemmon og Walter
Matthau í aðalhlutverkum. I þetta sinn leika þeir heldur ólíka mága sem hafa það að atvinnu að dansa
við auðugar konur um borð í skemmtiferðaskipi á Karíba hafinu.
Ævintýraleg sjóferð
Frumsýning
CHARLIE (Walter Matthau)
hefur komið sér á vonarvöl
fjái-hagslega vegna ástríðu
sinnar sem fjárhættuspilari, en hann
hefur eytt nánast hverjum eyri sín-
um á veðhlaupabrautinni. Hann er
hins vegar ekki lengi að láta sér
detta í hug aðferð til að rétta við
fjárhaginn og fær hann mág sinn
Herb (Jack Lemmon), sem reyndar
er fullur efasemda, til að fara með
sér um borð í skemmtiferðaskip á
Karíba hafínu þar sem Charlie lofar
að þeir muni upplifa glæsilegustu frí-
daga sem þeir hafí nokkru sinni átt.
Charlie hefur hins vegai’ ekki minnst
á nokkur minniháttar smáatriði sem
óhjákvæmilega fylgja ráðabruggi
hans. í fyrsta lagi eru vistarverur
þeirra um borð eins langt neðanþilja
og hægt er að komast, og reyndar er
þar varla nægilegt rými fyrir þá til
að standa uppréttir hvað þá annað. I
öðru lagi hefur Charlie skráð þá fé-
laga sem dansherra um borð í skip-
inu til að fá fargjaldið ókeypis. Gall-
inn er hins vegar sá að Charlie kann
alls ekki að dansa, og því verður
Herb, sem er fótafimur í meh’a lagi,
að standa augliti til auglitis við
kvennaskarann um borð. Skemmt-
anastjórinn um borð í skipinu (Brent
Spiner) verður þeim félögum til mik-
illar armæðu, en hann telur þá
Charlie og Herb þvælast fyrh’ sér á
framabrautinni. Carlie lætur hins
vegai- lítið sjá sig á dansgólfínu því
hann er á þönum eftir hinni stórauð-
HERB verður einn að sjá um
dansmenntina þar sem Charlie
eyðir öllum stundum með hinni
stórauðugu Liz LaBreche (Dy-
an Cannon).
ugu Liz LaBreche (Dyan Cannon),
og þrátt fyrir að það hafi ekki verið
ætlun hans að leita eftir rómantik
um borð þá er ekkjumaðurinn Herb
fyrr en varir kominn í eldheitt sam-
band við Vivian (Gloria DeHaven)
sem neydd var í ferðina af dóttur
sinni og tengdasyni.
Þeir félagar Walter Matthau og
Jack Lemmon slógu óvænt í gegn á
nýjan leik þegar myndin Grumpy
Old Men varð með vinsælustu mynd-
um ársins 1993, en þeir höfðu á árum
áður leikið saman í fjölda gaman-
mynda sem náðu miklum vinsældum.
Þrjátíu ár voru þá liðin frá því þeir
léku fyrst saman í gamanmyndinni
The Fortune Cookie sem Billy Wild-
er gerði, og framleiðandinn John Da-
vis veðjaði svo sannarlega á réttan
hest þegar hann fékk þá til að leika
fúlu fjandvinina, og aftur slógu þeh’
félagar í gegn árið 1995 þegar þeir
leiddu saman hesta sína á nýjan leik
í sömu hlutverkum. Það var því skilj-
anlegt að Davis vildi ólmur grípa
tækifærið þegar það gafst honum í
þriðja sinn að fá þá Lemmon og
Matthau til að leika saman í kvik-
mynd á hans vegum. Þetta er níunda
myndin sem þeir leika saman í, en
auk þeh-ra þriggja mynda sem Davis
hefur framleitt og The Fortune
Cookie léku þeir í myndunum The
Odd Couple, The Front Page,
Buddy, Buddy, JFK og The Grass
Hai-p.
Meðal meðleikara þeirra félaga í
Out to Sea er Dyan Cannon sem
leikið hefur í kvikmyndum allt frá
árinu 1960, en hún var tilnefnd til
óskarsverðlauna fyrir hlutverk sín í
myndunum Bob & Carol & Ted &
Alice (1969) og Heaven Can Wait
(1979), en auk þess hlaut hún tilnefn-
ingu til verðlaunanna árið 1976 fyrir
stuttmyndina Number One sem hún
leikstýrði og skrifaði handritið að.
Meðal annaira mynda sem hún hef-
ur leikið í eru Author! Author!, De-
athtrap, The Anderson Tapes og
Shamus, og nýlega lék hún aukahlut-
verk í 8 Heads In a Duffel Bag sem
nú er verið að sýna í Stjörnubíói.
EKKJUMAÐURINN Herb er fyrr en varir kominn í eldheitt
samband við Vivian (Gloria DeHaven).
ÞEIR félagar Herb (Jack Lemmon) og Charlie (Walter Matthau)
ráða sig til starfa sem dansherra um borð í skemmtiferðaskipi
á Karíbá hafinu.
Carly Simon með
brj óstakrabbamein
SÖNGKONAN
Carly Simon
greindist með
krabbamein í
brjósti og þurfti að
láta fjarlægja ill-
kynja æxli í októ-
ber síðastliðnum.
Þetta kemur fram í
frétt dagblaðsins
New York Daily
News, en þar segir
ennfremur að
söngkonan sé í
lyfjameðferð og
„sterkari og líf-
legri en nokkru
sinni fyrr“. Carly
Simon verður 53
ára í júní og á að
baki farsælan feril
í tónlistinni.
Meðal þekktustu
laga hennar eru
„You’re so Vain“, „That’s the
Way I’ve Always Heard It
Should Be“ og „Anticipation“.
Árið 1995 kom hún öllum á
óvart með því að leggja upp í
tónleikaferðalag um Bandarík-
in þver og
endilöng, en
sviðsskrekkur
hafði haldið
henni fjarri
tónleikahöllum
í 15 ár.
Carly Simon
ákvað að gera
veikindi sín op-
inber eftir að
hún hafði fregnir af því að
slúðurblað eitt væri með frétt í
vinnslu þar sem ástand hennar
væri mjög orðum aukið. „Ég
eyddi einni nótt á sjúkrahúsi,"
sagði Carly um fyrrnefnda að-
gerð. „Hún gekk mjög vel og
batahorfur eru góðar, en í ör-
yggisskyni ákvað ég í samráði
við lækninn minn að fara
einnig í lyfjameðferð.“
Haft er eftir söngkonunni að
hún hafí verið
„eyðilögð" þeg-
ar vinkona
hennar Linda
McCartney lést
af völdum
brjóstakrabba-
meins. „Þessi
sjúkdómur er
næstum eins og
faraldur. Við
þurfum miklu meira fé til
rannsókna. Maður hefur á til-
finningunni að ef þetta væri
sjúkdómur sem legðist á karl-
menn væri búið að finna lækn-
ingu,“ sagði Carly í viðtalinu.
Söngkonan Carly
Simon söng á sam-
komu skömmu áður
en hún greindist með
brjóstakrabbamein
og illkynja æxli var
fjarlægt.
Víkingaveislur að
hætti Fjörugoðans
Víkíngasveitin
ásamt syngjandi
valkyrjum
skemmta
matargestum
ÍDansleikir
Föstudagur:
Færeyska
stuðhljómsveitin
Twilight
leikur fyrir dansi
Laugardagur:
Víkingasveítin
leikur fyrir dansi
I veir
veítíngastaðír
á sama stað
Fjaran
Jón Möller leikur
rómantíska
píanótónlíst fyrir
matargestí um
gi
Borðapantanir í síma 5651213
Velunnarar og heiOurvíkingar!
10. maí verOur 19.júní í ár
r
9\(æturgaRnn
Smiðjuvegi 14, Rópavogi, sími 587 6080
Opið föstudags- og laugardagskvöld
Galabandið ásamt Önnu Vilhjálms
^ Sunnudagskvöld Hljómsveit Hjördísar Geirs r