Morgunblaðið - 08.05.1998, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998 6^-
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Regnboginn sýnir kvikmyndina An American Wer-
ewolf in Paris sem er hryllingsmynd með gamansömu ívafí. Leikstjóri
myndarinnar, framleiðandi og höfundur handrits er Anthony Weller,
en með aðalhlutverkin fara Tom Everett Scott og Julie Delpy.
ANDY (Tom Everett Seott) hittir draumadisina
sína, Serafine (Julie Delpy), á ferðlagi í París.
Hrollvekja
í París
Frumsýning
UNDARLEG afföll verða á ferðamönnum
og heimilislausum í París.
ÓVÆTTURINN kominn undir manna hendur
og rannsakaður.
EITTHVAÐ er ekki eins og
það á að vera í næturlífí
Parísarborgar og óvættur af
einhverju tagi virðist hafa lagt undir
sig fomar neðanjarðarhvelfingar
undir borginni. Erlendir ferðamenn
og þeir sem enginn saknar hverfa
hver á fætur öðrum á mjög dularfull-
an hátt í hvert sinn sem tungl er fullt
og Parísarlögreglan stendur ráð-
þrota gagnvart þessum uppákomum.
Þrír bandarískir félagar sem fara í
háskaferðalag til Evrópu að aflokn-
um háskólaprófum komast í kynni
við óvættina sem leikur lausum hala
í borginni en einn þeirra, Andy (Tom
Everett Scott) hittir draumadísina
sína, Serafíne (Julie Delpy), þegar
hún virðist vera um það bil að fremja
sjálfsmorð með því að stökkva ofan
úr Eiffeltuminum. Andy bjargar
henni með því að sýna einstakt hug-
rekki, en hann og félaga hans gmnar
hins vegar alls ekki hvaða afleiðingar
það hefur í för með sér.
Leikstjóri An American Werewolf
in Paris er Anthony Waller sem
fæddur er árið 1959 í Beirut í Lí-
banon. Hann stundaði nám í kvik-
myndagerð í London og í Þýska-
landi, en þar starfaði hann íyrst um
sinn sem klippari. Hann hefur gert
um 200 sjónvarpsauglýsingar, þar á
meðal fýrir stórfyrirtæki á borð við
IBM, Coca Cola og TDK, og árið
1991 hlaut hann gullverðlaun í New
York fyrir auglýsingu sem hann
gerði fyrir Pizza Hut. Árið 1995
gerði hann kvikmyndina Mute Wit-
ness, en það er spennumynd sem
gerist i Moskvu. Hann segir að þeir
sem séð hafí myndina American
Werewolf in London á sínum tíma
eigi von á svipaðri hrollvekju og
gríni í mynd sinni, en í henni em
tæknibrellurnar háþróaðar líkt og í
fyrri myndinni sem hlaut ósk-
arsverðlaun fyrir brellurnar. Þeir
sem sjá um þessa hlið mála í An
American Werewolf in Paris em
heldur engir aukvisar, því þar em á
ferðinni þeir sömu og sáu um tölvu-
grafík og aðrar brellur í myndum
eins og Jurassic Park, Star Trek -
Generations og The Retum of the
Jedi.
Tom Everett Scott lék aðalhlut-
verkið í fmmraun Toms Hanks sem
leikstjóra, That Thing You Do, og
var það fyrsta aðalhlutverkið sem
hann fór með í kvikmynd í fullri
lengd. Aður hafði hann leikið í fjöl-
mörgum sjónvarpsþáttum í Banda-
ríkjunum, en meðal þeirra era þætt-
irnir Grace Under Fire og Law and
Order.
Franska leikkonan Julie Delpy
lék í sinni fýrstu kvikmynd þegar
hún var aðeins 14 ára að aldri, en
það var í myndinni Leynilögreglu-
maðurinn sem Jean Luc Goddard
leikstýrði. Síðan hefur hún meðal
annars leikið í myndunum Hvítur
eftir Kieslowski, Skyttumar þrjár,
Killing Zoe og Before Sunrise, þar
sem hún lék á móti Ethan Hawke.
Einnig hefur hún leikið i fjölda
mynda sem evrópskir leikstjórar
hafa gert, t.d. Carlos Saura,
Agnieska Holland og Volker
Schlondorff.
Megane Upera
Hljómflutningstæki
með fjarstýringu í stýrinu
RENAULT
- þokktur fyrír þæglndl Armúla 13
Edda Borg, túnlistarkona, er ein af fjölmörgum sem hafa valið bílasamning
Lýsingar til að koma sér upp gúdum og traustum einkabfl.
Láttu dæmið
ganga upp!
Með því að velja bflasamning Lýsingar þarftu ekkl
að greiða bilinn upp á nokkrum árum eins og tíðkast
í hefðbundnum bílaviðskiptum. Þú velur, innan vissra
marka, hverjar mánaðar-
greiðslurnar verða og
ákveður hver eftirstöðva-
upLp1,|ýSingar um hann- greiðslan á samningnum
verður eftir 12-48 mánuði.
blóða
0,1 • bítasamrí>n9
upp a
3.1-«
Hver segir að þú þurfir aö mynda hreina eign I bílnum
á meðan þú notar hann? Þegar að eftirstöðvunum
kemur geturðu skipt upp í nýjan bíl og haldið áfram
að greiða lágar mánaðargreiðslur eða framlengt
samningnum og verið áfram á sama bílnum.
Dæmið gengur upp með bilasamningi Lýsingar.
Kaupverð 1.700.000 kr. Samningstimi 48 mánuðir
Innborgun Greitt á mánufli i 48 skipti Eftirstöðvar eftir 48 mán.
340.000 36.087 O
340.000 25.864 485.000
340.000 1 9.806 825.000
Samningstfmi 36 mánuðir
Innborgun Greitt á mánuði í 36 skipti Eftirstilðvar eftir 36 mán.
240.000 32.263 O
240.000 20.579 428.000
240.000 1 4.640 668.000
%\m «
• w w w.' y
LÝSING HF. • SUÐURLANDSBDAUT 22 • SlHI 533 1500 • FAX 533 1505