Morgunblaðið - 21.05.1998, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
-
Kvennafundur Sjálfstæðisflokksins
Morgunblaðið/Golli
SJÁLFSTÆÐISKONUR fjölmenntu á kvennakvöld kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Skipholti í
fyrrakvöld.
Efnahagserfiðleikar
bitna verst á konum
AFSTAÐA Sjálfstæðisflokksins til
jafnréttismála, málefna barna og
aldraðra ætti að höfða sérstaklega
til kvenna. Þetta kom fram á konu-
kvöldi kosningaskrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins í Skipholti í fyrra-
kvöld.
Á konukvöldinu leituðust fram-
bjóðendur Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík við að svara spurning-
unni: „Af hverju ættu konur að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn?" Árni
Sigfússon, oddviti framboðslista
sjálfstæðismanna, sagðist telja
kosningamál flokksins snúast jafnt
um konur og karla.
„Kosningamál okkar snúast um
einstaklinga og um borgina okkar,“
sagði hann. „Ég geri mér hins vegar
fulla grein fyrir því að í þjóðfélagi
okkar mæða ákveðin mál oftar á
konum en körlum og trúi því að þau
mál sem við leggjum fram í þessari
kosningabaráttu séu jafnréttismál.
Ég vil minna á þá stefnu okkar að
gera góða leikskóla enn betri og á
fjölskyldugreiðslumar sem koma til
með að skapa foreldrum nýja mögu-
leika. Fjölskyldugreiðslumar era
bylting í hugsun og engu síður
spennandi kostur fyrir karla en
konur.“
Ámi sagðist einnig telja geysi-
lega mikilvægt að vel yrði staðið að
málefnum aldraðra og benti á að
Sjálfstæðisflokkurinn vilji byggja
upp 130 hjúkrunarrými á næsta
kjörtímabili en til samanburðar
hefði R-listinn einungis skilað tæp-
um 70 rýmum á síðasta kjörtímabili.
Þá sagði hann Sjálfstæðisflokkinn
hafa við lýst því yfir að hann myndi
leggja niður 25% hækkun fasteigna-
gjalda og kæmi það sérstaklega til
með að nýtast eidri borguram.
Útrýma landasölu
á skólalóðum
Inga Jóna Þórðardóttir sagði
ekki erfitt fyrir sig sem sjálfstæðis-
mann að svara því hvers vegna kon-
ur ættu að kjósa Sjálfstæðisflokk-
inn. „Það er fyrst og fremst vegna
sjálfstæðishugsjónarinnar," sagði
hún. „Sjálfstæðisflokkurinn byggir
alla sína stefnu á einstaklingum og
einstaklingsfrelsi og jafnréttis-
barátta karla og kvenna hlýtur að
grandvallast á því að einstakling-
arnir séu sterkir og sjálfstæðir og
hvorki gjaldi né njóti kynferðis síns.
Sjálfstæðisflokkurinn hugsar auk
þess til framtíðar, sem er meira en
Reykjavíkurlistinn gerir,“ sagði
hún. „Það ætti, út af fyrir sig, að
nægja til þess að konur styddu
Sjálfstæðisflokkinn enda er alveg
ljóst að verðum við fyrir efnahags-
legum áföllum á næstu árum muni
það fyrst og fremst bitna á konurn."
Jóna Gróa Sigurðardóttir sagðist
vilja benda á fyrirhugaða hverfa-
byltingu Sjálfstæðisflokksins sem
m.a. fælist í því að tekin yrði upp
samvinna við foreldrafélög í skólum
og við lögreglu um hverfavaktir.
„Við viljum styðja foreldra sem vilja
taka upp foreldravaktir og nýta
samkennd íbúa í hverfum til góðs
fyrir börnin okkar og fullorðna
fólkið sem er hætt að fara út á
kvöldin,“ sagði hún. „Þá ætlum við
okkur að ná þvi marki að útrýma
landasölu og sölu fíkniefna á skóla-
lóðum.“
Kosningar í út-
varpi og sjónvarpi
Á NÆSTU dögum mun mikið fara
fyrir umfjöllun um sveitarstjórnar-
kosningarnar í útvarpi og sjónvarpi
þrátt fyrir að lítið verði um sérstaka
kosningaþætti. Ef frá era taldar
kosningavökur á laugardag, kosn-
ingafundir Ríldsútvarpsins og Rás-
ar 1 á Akureyri og í Reykjavík og
þátturinn Kosningaskjálfti á Rás 2
mun umfjöllun, fram að kosningum,
fara fram innan fréttatíma og fastra
þátta.
Stöð 2 og Bylgjan
Á Bylgjunni munu flestir þættir á
föstudag- og laugardag litast af
kosningaumræðunni en þó sérstak-
lega Morgunþátturinn og Þjóð-
brautin.
Á laugardag klukkan 20:00 hefst
sameiginleg kosningavaka Stöðvar
2 og Bylgjunnar og stendur hún þar
til úrslit liggja fyrir. Á hádegi á
sunnudag senda síðan stöð 2 og
Bylgjan út sérstakan fréttaþátt um
úrslit kosninganna.
Ríkismiðlarnir
í dag klukkan 13.00 mun Ævar
Om Jónsson ræða við fulltrúa
flokkanna um kosningarnar í þætt-
inum Kosningaskjálfti á Rás 2.
Ríkissjónvarpið og Rás 1 standa
fyrir beinni útsendingu frá kosn-
ingafundi á Akureyri í dag klukkan
14.00 og frá Reykjavík á föstudag
kl. 20.45.
Á laugardag hefst kosningavaka
Ríkissjónvarpsins og Rásar 1 kl.
21:30 og á Rás 2 hefst kosningavakt
með léttara móti kl. 21:30.
Á sunnudag verður síðan farið yf-
ir úrslit kosninganna á Rás 1 kl.
16:08 og á Rás 2 kl. 10.00-12.00 (end-
urtekið klukkan 22.10). Einnig verð-
ur fjallað um úrslit kosninganna í
svæðisútvarpi Austur- og Norður-
lands kl 13.00-14.00 á sunnudag.
Skólamál
framar í
forgangsröð
R- og D-listi vilja báðir auka hlutfallslega
framlög til skólamála. Þeir eru sammála
um að aukið sjálfstæði skóla sé æskilegt
og að tölvu- og netvæðingar sé þörf.
Helgi Þorsteinsson sér þó mun á því
hversu hratt listarnir tveir vilja fara í
breytingar, hversu langt eigi að ganga
______og frambjóðendurnir deila um
hver eigi hvaða hugmyndir.
SIGRÚN Magnúsdóttir, fulltrúi
R-listans í Fræðsluráði Reykjavíkur,
segir að samstaða hafi ríkt um flest
fræðslumálefni á yfirstandandi
kjörtímabili. Inga Jóna Þórðardóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, seg-
ir að grundvallarmunur sé á stefnu
flokkanna í reynd, en að rétt fyrir
kosningar hafi R-listinn tekið upp
mörg stefnumál D-listans.
I auglýsingum og málflutningi
Sjálfstæðisflokksins um menntamál í
kosningabaráttunni hefur einkum
borið á því stefnumáli að lengja
skólaái-ið í tíu mánuði. Inga Jóna
leggur einnig ríka áherslu á grund-
vallarmun á afstöðu framboðslist-
anna til sjálfstæðis skólanna sem
hafi komið fram á kjörtímabilinu.
Sjálfstæðismenn hafi ítrekað lagt
fram tillögur sem miði að auknu
sjálfstæði en þeim hafi verið hafnað
af R-listamönnum.
Það sem einkum virðist skilja
listana að í þessum málum ef marka
má stefnuskrár og auglýsingar er að
sjálfstæðismenn vilja ganga hraðar í
átt til sjálfstæðis skólanna og lengra
hvað varðar rekstrarlegt sjálfstæði
og áhrif foreldra.
Fulltrúar beggja lista segja að
þeir vilji auka hlutfallslega fjáifram-
lög til skólamála. Þegar spurt er
hvar eigi að draga saman í staðinn
forðast þeii- að veita skýr svör. Inga
Jóna bendir þó á að sjálfstæðismenn
hyggist auka tekjur borgarinnar
með því að fá fleiri fyrirtæki og
skattgreiðendur til að flytja til borg-
arinnar. Með aukinni atvinnustarf-
semi muni einnig draga úr atvinnu-
leysi og þannig sparist útgjöld sem
geti gengið til skólamála.
Sigrún segir að þar sem á síðasta
kjörtímabili hafi verið lögð mikil
áhersla á leikskóla megi draga
nokkuð úr uppbyggingu þeirra nú og
þar með skapist svigrúm til meiri
áherslu á grunnskóla.
Inga Jóna segir að Sjálfstæðis-
„Litlu“ framboðin í Reykjavík
Segja þeim mis-
munað í kosn-
ingabaráttunni
MAGNUS Skarphéðinsson, efsti
maður á L-lista í Reykjavík, segir
umhugsunarvert hveraig fjárhagur
framboðslista ráði aðgengi þeirra
að fjöldanum. Metúsalem Þórisson,
efsti maður á lista húmanista í
Reykjavík, tekur undir gagnrýni
hans og segir fjölmiðla hafa mis-
munað framboðslistum í Reykjavík.
Magnús Skarphéðinsson sagði, í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
sveitarstjórnarkosningarnar á
laugardag legðust vel í sig enda
hlytu góð mál að sigra að lokum. R-
listinn hefði ekki tekist að losa fólk
úr fátæktargildranni og því hefði
skapast augljós þörf fyrir L-list-
ann, sem hefði enn frekari félags-
legar og vinstri áherslur.
„Það hefur í-íkt mikill áhugi og
stemmning í okkar herbúðum þrátt
fyrir að niðurstöður skoðanakann-
ana mættu vera okkur hliðhollari,"
sagði hann. „Enda er erfitt að
koma skoðunum á framfæri í
nútímaþjóðfélagi og það kostar
mikla peninga. Við höfum ekki yfir
tugum milljóna að ráða eins og
kosningavélar R- og D-listanna og
tel ég það umhugsunarvert fyrir
lýðræðisunnandi fólk í landinu
hversu erfitt er, fyrir þá sem ekki
eiga peninga, að koma skoðunum
sínum á framfæri við fjöldann."
Magnús sagði aðstandendur L-
listans hins vegar hvergi bangna.
Þeir hefðu ekki haft opna kosn-
ingaskrifstofu en einbeitt sér að
því að koma málstað sínum á fram-
færi á vinnustöðum og götum úti.
Barist fyrir þátttöku
í sjónvarpsþætti
Metúsalem Þórisson sagði kosn-
ingarnar leggjast vel í sig, ei'
Morgunblaðið náði tali af honum í
gær. Hann hefði reyndar fundið
fyrir því að „litlu“ framboðin í
Reykjavík ættu ekki jafn mikið
upp á pallborðið hjá fjölmiðlum og
þau stóru. Þetta væri bagalegt
enda veitti þeim sem væru að koma
fram með nýjar stefnur ekki af því
að fá að kynna stefnumál sín. „Það
sem er viðurkennt fær mun meira
pláss en það sem er óhefðbundið,“
sagði hann. „Og það hlýtur alltaf að
vera dragbítur á framfarir."
Metúsalem sagði húmanista t.d.
hafa þurft að berjast fyrir því, með
hjálp lögfræðinga, að fá að taka
þátt í sjónvarpsþætti Ríkissjón-
varpsins á föstudag.
Húmanistar verða í Kolaportinu
frá klukkan 12.00-16.00 í dag. Þeir
mundu spjalla við fólk auk þess
sem Júlíus Valdimarsson, sjötti
maður á lista þeirra, flytur tónlist.