Morgunblaðið - 21.05.1998, Síða 13

Morgunblaðið - 21.05.1998, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998 13 FRÉTTIR Morgunblaðið/Kristinn SEX skólastofur í Austurbæjarskóla eru tölvutengdar og verið er að nettengja þær. Alján tölvur í viðbót þarf til að uppfylla kosningaloforð R- og D-lista um tölvu í hveija skólastofu. Fræðslumál Samanburður á rekstri allra grunnskóla Reykjavíkurborgar og þriggja annarra bæjarfélaga Úr ársreikni Rekstur (nettó) þús. kr. ngum 1997 Hlutfall af heildar rekstrarkostn. Reykjavík 3.087.686 25,01% Akureyri 567.802 33,76% Kópavogur 724.389 33,42% Reykjanesbær 381.759 28,59% menn vilji að samningur verði gerð- ur við skólastjómendur um fjárveit- ingar til skólanna en sérstakar stjórnir skólanna ráði síðan stefn- unni innan þeirra marka sem lög og reglugerðir ákvarða. Þannig geti skólarnir nýtt sér sérstöðu sína og lagt eigin áherslur í skólastarfínu. „Það má nefna grunnskólann á Kjalarnesi sem dæmi. Hann býður kannski upp á allt aðra möguleika en aðrir skólar í borginni vegna tengsla sinna við landbúnaðinn og getur nýtt sér þá reynslu sem til er í umhverf- inu. Það á ekki að vera neitt sem hindrar skólana í slíku, til dæmis það að þurfa að sækja um sérstaka heim- ild hjá Fræðslumiðstöðinni sem kannski er eitt ár að hugsa sig um áður en leyfi er gefið.“ Inga Jóna segir að R-listinn hafi í verki sýnt algera andstöðu við þess- ar hugmyndir. „Þeir hafa verið að fella tillögur okkar og hafna skoðun- unum en rétt mánuði fyrir kosningar birtust þessar hugmyndir engu að síður í stefnuskrá þeirra. I skólamál- um, eins og í öðram málaflokkum, eru þeir að reyna að elta uppi okkar hugmyndir." Samkvæmt lögum eru nú starf- andi ráðgefandi foreldraráð í öllum grunnskólum. D-listinn vill auka vald foreldra enn meira með því að setja á fót stjórn í hverjum skóla sem skipuð verði fulltrúum foreldra, starfsmanna og skólastjómenda. Sigrún Magnúsdóttir, fulltrúi R- listans í Fræðsluráði, segir að skólamálastefna borgarinnar hafi verið mótuð í samráði við skólana og á 20 opnum „hugarflugsfundum" með foreldrum. „Það hefur aldrei gerst áður að borgarstjómin hafi farið út til fólksins á þennan hátt og beðið um álit þess,“ segir Sigrún. Sigiaín segir að í engri nefnd borg- arinnar hafi verið minni deilur en í fræðsluráðinu. Sem dæmi um þá sátt sem ríkt hafi um stefnuna nefnir hún að í bæklingi sem ungir sjálfstæðis- menn gáfu út um meint svikin loforð R-listans hafi ekki verið minnst einu orði á fræðslumál. Sveigjanleiki aukinn Varðandi aukið sjálfstæði skóla bendir Sigrún á að á liðnu skólaári og því næsta hafi bæst við 2.000 svo- nefndar skiptistundir á viku, eða sem samsvarar 75 stöðugildum kennara, sem dreift er til skólanna til frjálsrar ráðstöfunar til að auka sveigjanleika í skólastarfi. „Skóla- stjórnendur segja mér að þetta sé það stórkostlegasta sem komið hafi fram í skólamálum um langt skeið,“ segir Sigrún. Skólunum verður í sjálfsvald sett hvort þeir nýta skiptistundirnar til að lengja skóladaginn, fækka í bekkjum eða koma á öðrum kennslu- bótum. Sigrún segir að R-listamenn hafí viljað fara þessa leið fremur en að setja fastar reglur um hámarks- fjölda nemenda í hverjum bekk eða lengd skóladagsins. Með þeirri leið sem valin hafi verið gefist hverjum skóla fyrir sig tækifæri til að laga sig að aðstæðum. R-listamenn stefna þó að því að árið 2001 verði vinnudagurinn í öll- um skólum Reykjavíkur orðinn að minnsta kosti einni stund lengri en það sem grunnskólalög tiltaka. „Til- raunaverkefni í þessa veru hefur þegar verið reynt í Engjaskóla og við erum að fara að byrja á því víðar. Við ætlum að hafa svonefnda næðis- stund í hádeginu þai- sem verður matartími, tími tU útiveru og ljúf stund með kennara." Sjálfstæðismenn vilja einnig leng- ingu skóladagsins. „Við vUjum að lenging skóladagsins verði sldpulögð í samstarfi við ýmis samtök sem sinna fræðslu og tómstundastarfi fyrir börn, til dæmis skátana, íþrótta- og bindindisfélög, kirkjuna og í tengslum við þá starfsemi sem borgin er með í íþrótta- og tóm- stundamálum," segir Inga Jóna. Sigrún lýsir ákveðnum efasemd- um um víðtækt fjárhagslegt sjálf- stæði skóla. „Hugmyndir um þetta koma fram á mörgum fundum í skól- um, en það er erfitt að fá fólk til að útskýra hvað það raunverulega á við með þessu sjálfstæði. Oftast kemur fram í leiðinni að það vUl í raun miðstýringu. Það verður að móta þessar hugmyndir nánar áður en þeim verður hrint í framkvæmd.“ Tíundi mánuðurinn eða sumarskóli Tíu mánaða skólaár er ný tillaga sjálfstæðismanna. I auglýsingum hafa þeir bent á að núverandi lengd skólaársins sé arfur frá þeim tíma þegar flest böra sinntu sveitastörf- um á sumrin og þurftu þess vegna að losna snemma úr skóla. „Við viljum að tíundi mánuðurinn verði nýttur tU dæmis til að auka þekkingu í raun- greinum og listum og samstarf við íþrótta- og æskulýðsfélög og við at- vinnulífið,“ segir Inga Jóna. Sigrún segist ekki skilja fullkom- lega út á hvað hugmynd sjálfstæðis- manna gangi en bendir á að svo- nefndur sumarskóli hafi verið starf- andi frá árinu 1995. Sigrún segir að stefnt sé að því að þróa sumarskól- ann meira og í skoðun sé að efla hann og láta hann einnig ná til eldri árganga. Tölvuvæðing á stefnuskrá beggja Báðh’ listarnir leggja áherslu á tölvu- og nettengingu skólanna á næstu árum. I auglýsingum Sjálf- stæðisflokks segir að nettengd tölva eigi að vera komin í hverja skóla- stofu á næstu tveimur árum. R-lista- menn ætla sér þrjú ár til verksins. Ákveðinn áherslumunur kemur þó fram í málflutningi listanna, þar sem sjálfstæðismenn leggja mesta áherslu á að tölvur séu í skólastofun- um, en R-listinn heldur opnum hug- myndum um tölvumiðstöðvar í tengslum við bókasöfn, sem eigi að vera eins konar „hjarta“ hvers skóla. Hæfileikar og sköpunargáfa nýtt H-listinn, listi húmanista, leggur áherslu á að menntastefna taki mið af grundvallarþörfum manna til að nýta hæfileika sína og sköpunargáfu en miði ekki fyrst og fremst að því að nemendur verði hagkvæm fram- leiðslueining fyrir viðskiptalífið. Á stefnuskrá listans er að laun starfs- fólks á sviði menntamála verði „líf- vænleg“. Það er skoðun húmanista að menntun á öllum stigum, allt frá leikskóla, eigi að vera ókeypis. Magnús Skarphéðinsson, efsti maður á Launalistanum, Framboði samtaka um jafnaðarstefnu, segir að stefnumál hans séu að flestu leyti þau sömu og hjá R-lista. Hann bend- ir þó á að frumforsenda þess að skólastarf geti verið árangursríkt sé að laun kennara, starfsfólks skólanna og barnafólks sé nógu há til að þeim, og bömum þeirra, geti liðið vel. Kœrar þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig á 90 ára afmæli mínu. Drottinn Jesús blessi ykkur öll. Kristín Jónína Þorsteinsdóttír, Faxastíg 2b, Vestmannaeyjum. AÐALFUNDUR ÞRÓUNARFÉLAGS REYKjAVÍKUR verður haldinn að Hótel Borg föstudaginn 5. )úní 1998 kl. 16:00 Dagskrá samlcvæmt samþykktum félagsins. Tillögur um breytingar á samþykktum féiagsins skulu berast stjórn þess eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Þróunarfélag Reykjavíkur Laugavegi 51 Miöa- og borðapantanir í síma 533 1100 fax 533 1110 Verð matur og sýning 4.900. Sýning 1.950. Dansleikur 950. Skoðaðu vefinn okkar, allar stúíkurnar í Fegurðarsamkeppni íslands, ABBA ofl.: www.broadway.is BRaAnwm Runar Cuðjonsson Siggi Johnnie Sigurtfór Sigurdórsson Skafli Ólalsson Stefán Jónsson Þorsleinn Eggertsson Þor Nielsen Hljómsveitarstjóri: Gunnar Þórðarson. SýllinyÍn liefSt Sviðssetning og leikstjórn: Egill Eðvarðsson. StUndVÍSleya 1(1. 21:45. T. SK Hljómsweit Geirmundar O Dansskóli Auðar Haralds ** leilíUf fyfir dailSI. rækilega i ge pn! .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.