Morgunblaðið - 21.05.1998, Page 14

Morgunblaðið - 21.05.1998, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Hrannar skilaði ekki upplýsingum Skattstjórinn í Reykjavík Eyþór Björnsson Tryggvagötu 19 150 Reykjavik Ágæti Eyþór ! Reykjavík, 06.01.1997. Meðfylgjandi eru umbeðin gögn sbr. bréf yðar frá 19.12 '96 er varða Alfheiði Eygló Andrésdóttur. Ekki var um það að ræða að Álfheiður Eygló afhenti reikninga vegna starfsemi sinnar heldur var henni greidd þóknun i samræmi Vlð , ’it,re-Lknin9a Sem fram koma á meðfylgjandi uppggörseyðublöðum. J Ég vona að þar með hafi þér fengið fullnægjandi svör við óskaðSPUrn yðar en veiti f^sle9S frekari upplýsingar sé þeirra F.h. Markaðsmanna ehf. y/w/r Hrannar B. Arnarsson MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi yfirlýsing frá Álf- hildi Andrésdóttur: „í viðtali við Dag 19. maí 1998 fullyrðir Hrannar B. Arnarsson eftirfarandi varðandi launa- og skattauppgjör mitt hjá Markaðsmönnum ehf.: (Spurning blaðamanns) „Skilaðir þú upplýsingum um hennar tekjur til skattsins - fórstu að lögum í málinu? (Svar Hrannars) „Mér bar að skila skattinum upplýsingum um tekjur hennar. Það gerði ég.“ Ennfremur segir hann: „Þar er ekki við mig að sakast.“ Samkvæmt upplýsingum sem ég hef aflað mér í dag frá skatt- stjóranum í Reykjavík bárust skattstofunni ekki launamiðar vegna vinnu minnar fyrir Markaðsmenn ehf. árið 1994. Það er því rangt hjá Hrannari að hann hafi skilað skattinum upplýsing- um um tekjur mínar. Þetta er lykilatriði í gagnrýni minni á vinnubrögð þau sem Hrannar viðhafði meðan ég starfaði fyrir Markaðsmenn ehf. á árinu 1994. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir mínar fékk ég aldrei á hreint frá Hrannari með hvaða hætti launa- og skattauppgjör mitt ætti að vera. Ég kvittaði aðeins fyrir móttöku á greiðslum. Með réttu hefði ég átt að framvísa vsk-reikningi vegna vinnu minnar en Hrannar óskaði ekki eftir því og fullyrti að tekjur mínar væru ekki nógu háar til að þess þyrfti með. Það var rangt hjá honum. Það var ekki fyrr en við rannsókn á Markaðsmönnum ehf. síðla árs 1996 að skattstofan fékk upplýsingar um þær tekjur sem ég hafði þar 1994. Ég fékk álagn- ingu á þessar tekjur á miðju ári 1997. Alagningin ásamt dráttar- vöxtum frá 1994 og innheimtu- kostnaði nemur nú nálægt 270 þús. kr. af 320 þús. kr. tekjum sem ég hafði hjá fyrirtæki Hrannars B. Arnarssonar. Ég er þess fullviss að ef Hrann- ar hefði veitt réttar upplýsingar og meðferð launagreiðslna og skattupplýsinga hefði verið með eðlilegum hætti meðan ég starfaði hjá honum, þá hefði skattameð- ferð bæði mín og hans verið eins og skylda ber til. Álfhildur Andrésdóttir kt. 050763-4639.“ Frá Reykjavíkurlistanum MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Reykjavíkurlistanum: „Vigfús Eiríksson, Hraunteigi 22, Reykjavík, hefur greint Reykjavík- urlistanum frá eftirfarandi mála- vöxtum og það hefur orðið að sam- komulagi milli hans og kosninga- miðstöðvar listans að koma þessari frásögn á framfæri við fjölmiðla: „í gær hafði við mig samband kunningi sem einu sinni vann í lausamennsku hjá Hrannari B. Am- arssyni og sagði að Magnús Óskars- son hefði mikinn áhuga á að ræða við mig um sölumennsku mína fyrir Hrannar Björn. Sjálfur sagðist hann hafa í undirbúningi greinar- skrif í Morgunblaðið en Magnús væri „tengiliður milli stjórnmála og fjölmiðla“. Ég hafði samband við Magnús í uppgefinn síma, .... Þetta reyndist vera Magnús Óskarsson fyrrverandi borgarlögmaður, og 23. maður á D-listanum. Ræddi hann við mig í 40 mínútur. Vildi hann vita allt um vinnu mína og annarra hjá Arnarsson og Hjörvar um hálfs árs skeið árið 1991 og hvernig kringum- stæður allar hefðu verið. Ég sagði honum eins og rétt var að ég hefði hætt hjá Hrannari Birni vegna launadeilu. í lok samtalsins bauð hann mér að skrifa gagnrýna grein í Morgunblaðið eða DV og lét einnig í það skína að hann gæti með hraði útvegað viðtal á Stöð 2. Mér kom ekki til hugar að þiggja milligöngu Magnúsar Óskarssonar vegna þess að mér þykja þessar að- ferðir ógeðfelldar og vegna þess að deila okkar Hrannars B. Arnars- sonar fyrir sjö árum snerist um launakröfur en ekki um neinskonar saknæmt athæfi. Ég lét hinsvegar Hrannar vita um þetta og hann benti mér á að tala við starfsmenn á kosningamiðstöð R-listans.“„ Aths. ritslj.: Vegna ofangreinds skal tekið fram, að ákvarðanir um birtingu greina í Morgunblaðinu eru teknar á ritstjórn blaðsins og hvergi ann- ars staðar. Umrædd greinaskrif eru Morgunblaðinu með öllu óviðkom- andi. Ritstj. „Hart er orðið um skít“ „Reyna að gera eðlileg viðskipti tortryggileg“ MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Einari Erni Stefánssyni^ vegna fréttar í hádegisfréttum RUV í gær: „Undirritaður hefur frá 1992 rekið fyrirtæki undir nafninu Helst, sem sérhæfir sig í almannatengsl- um, útgáfustarfsemi og textagerð. Fyrirtækið er rekið á kennitölu minni, eins og algengt er um einka- fyrirtæki. í nóvember 1994 leitaði Reykja- víkurborg tilboða í útgáfu Borgar- frétta (umsjón, prentvinnslu og dreifingu) og reyndist Helst með lægsta tilboðið. I framhaldi af því var gengið til samninga við fyrir- tækið um þetta verkefni. Fyrsta blaðið samkvæmt þessum samningi var gefið út í febrúar 1995. Helst var heildarverktaki samkvæmt þessum samningi og því fóru allar greiðslur í gegnum fyrirtækið. Póst- dreifing í hvert hús í borginni og prentun í 44.000 eintökum voru langstærstu kostnaðarliðirnir. Um- brot og hönnun keypti Helst af öðru fyrirtæki, þannig að eftir stóðu um 5% kostnaðar við hvert blað, sem var greiðsla fyrir efnisöflun, skrif, prófarkalestur og prentumsjón. Borgarfréttir komu að jafnaði út þrisvar á ári 1995-1997. Reikningar voru sundurliðaðh' og sendir borg- inni á reikningseyðublöðum fyrir- tækisins. Þær 5 milljónir króna, sem undirrituðum eru ranglega eignaðar í yfirliti borgarbókhalds, eru því að mestu leyti tilkomnar með þeim hætti sem að framan greinir. Helst hefur á þeim fjórum árum, sem yfirlitið nær til, fengið samtals um 260 þúsund krónur í sinn hlut. Þessam upplýsingum er hér með komið á framfæri í trausti þess, að fjölmiðlar og almenningur vilji hafa það sem sannara reynist, þótt erfitt kunni að vera að ná áttum í því fjölmiðlafári, sem nú gengur yfir vegna komandi borgarstjórnarkosn- inga. Það vekur nokkra furðu, að Sjálfstæðisflokkurinn skuli leggjast svo lágt að reyna að gera eðlileg viðskipti tortryggileg. Hitt vekur þó meiri furðu, að borgarbókhaldið skuli taka þátt í þessum leik með svo stórlega villandi upplýsingum, þar sem nafn mitt er birt í stað nafns fyrirtækis míns, Helst, og greiðslur, sem að 95% runnu beint til annarra fyrirtækja (undirverk- taka), eru sagðar hafa runnið til mín persónulega. Virðingarfyllst, Einar Örn Stefánsson.“ Upplýsing’um um greiðslur haldið leyndum MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi frá borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna: „Borgarstjórnarflokkur sjálf- stæðismanna krefst þess að Ingi- björg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri svari tafarlaust fyrir tvö tilvik þar sem augljós tengsl eru á milli starfa einstaklinga og fyrirtækja fyrir R- listann og greiðslna til þeirra úr borgarsjóði. Ennfremur verður borgarstjóri að skýi-a hvers vegna upplýsingum um samskipti borgar- sjóðs og fyrirtækisins Markaðs- manna ehf. var haldið leyndum í svari til borgarráðs. Upplýsingar um þessi tilvik koma fram í svari sem borgarbókhald veitti 19. maí við fyrirspurn borgar- fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í borg- arráði hinn 2. apríl 1998. Spurt var um verkefni og greiðslur vegna út- gáfu-, auglýsinga- og kynningarmála á kjörtímabilinu. 1. Alvarlegasta tilvikið snertir greiðslur til Markaðsmanna ehf. árin 1994-1997. Fyrirtæki þetta, sem er í eigu Hrannars B. Arnarssonar fram- bjóðanda R-listans, starfar við út- gáfu-, auglýsinga- og kynningarmál. Þrátt fyrir að fyrirtækið hafi fengið greiddar 1.468.743 kr. úr borgarsjóði 1994-1997 vegna slíki-a verkefna var hvergi getið um þær í svari borgar- bókhalds vegna fyrirspurnar sjálf- stæðismanna. I ljósi þess að hér er um háar greiðslur að ræða krefst borgarstjórnarflokkur sjálfstæðis- manna skýringa á því hvers vegna þær voru teknar út úr svarinu. Hver er tilgangurinn með þessum felu- leik? 2. Beint samhengi er á milli þess að auglýsingastofan GSP-almanna- tengsl hefur störf við auglýsinga- og kynningarmál R-listans á sama tíma og fyrirtækið fer að fá háar greiðslur úr borgarsjóði. Það sem af er árinu 1998 hefur GSP-almannatengsl feng- ið greiddar 4.139.713 kr. vegna út- gáfu-, auglýsinga og/eða kynningar- mála. Árin þar á undan, 1994-1997, fékk fyrirtækið alls 293.260 kr. í greiðslur frá Reykjavíkurborg, eða 7% af því sem það er nú búið að fá á fjóram mánuðum. 3. Óeðlileg hagsmunatengsl felast í því að Einar Öm Stefánsson, kosn- ingastjóri R-listans árið 1994, hafi fengið greiddar 5.024.312 kr. á árun- um 1994-1997 vegna útgáfu-, auglýs- inga- og kynningarstarfa í þágu meirihluta R-listans. F.h. borgarstjórnarflokks sjálf- stæðismanna Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson." Félagið tekur ekki pólitíska afstöðu MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Magnúsi Óskarssyni: „Vegna einkennilegrar fréttatil- kynningar frá R-listanum þar sem ég er nefndur vil ég taka fram eftir- farandi: Mörg simtöl hef ég átt undan- farna daga, flest af því tilefni að ég hef tvisvar stungið niður penna, þannig að kunnugir sem ókunnugir hafa fundið ástæðu til að þakka fyr- ir það. Eitt símtalið var frá ungum manni sem ég þekki ekki neitt. Kvaðst hann hafa hug á að skrifa blaðagrein um samskipti sín við Hrannar B. Arn- arsson og Helga Hjörvar sem hann lýsti ekki fallega. Ovanur var hann blaðaskrifum og vissi ekki hvernig hann ætti að koma grein á framfæri. Gaf ég honum upp netfang ritstjóm- ar Morgunblaðsins og veit ekkert hvað varð um þessa grein. Þá nefndi hann kunningja sinn sem vissi miklu meira um starfsemi Helga og Hrannars og spurði hvort ég vildi tala við hann ef hann hringdi. Kvaðst ég myndu tala við manninn eins og ég geri við alla sem hringja í mig auk þess sem mér fannst áhugavert að fræðast frá fyrstu hendi um það mál sem er á allra vörum. Svo hringdi þessi maður og fór að tala um vinnu sína hjá Arnarssyni & Hjörvari sf. Mér fannst hann óskýr og hef sjálfsagt með spurningum reynt að fá botn í það sem hann var að segja. Benti ég honum á að fjölmiðlar væru núna opnir fyrir þessu máli ef hann vildi koma því á framfæri. Að öðru leyti rek ég ekki þetta samtal sem var langt og leiðinlegt en ég er óhræddur við allt sem ég sagði. Makalaust er af R-listanum að birta í fréttatilkynningu að tveir menn mér ókunnugir hafi talað um það sín á milli í síma að ég væri „tengiliður milli stjórnmála og fjölmiðla". „Þá er orðið hart um skít“, sagði Káinn í þekktri stöku. Hart er orðið um skít hjá R-listan- um að bera svona rugl á borð eftir ekki betri heimildum. Því miður hef ég ekki lagt mikið af mörkum í þessari kosninga- baráttu. Ég sé þó að ég hef komið við kaunin á R-listanum með nál- arstungum í Morgunblaðinu. Ég óska listanum til hamingju með Hrannar og Helga. Magnús Óskarsson." MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá stjórn Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Islandi: „Til að forðast misskilning vegna greinar eins starfsmanns Blindrafélagsins, er birtist í Morg- unblaðinu hinn 20. maí, vill stjórn Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á íslandi, koma því á framfæri að félagið tekur ekki pólitíska afstöðu með eða á móti stjórnmálaflokkum eða stjórnmála- samtökum. Innan félagsins er fólk er aðhyllist ólíkar stjómmálaskoðanir en hefur það sameiginlega markmið að vinna að hagsmunamálum síns hóps. Einstakir félagsmenn sem kjósa að tjá skoðanir sínar á mönn- um og málefnum á opinberum vett- vangi gera það sem einstaklingar en ekki sem talsmenn Blindrafélags- ins. Helgi Hjörvar formaður, Ómar Stefánsson varaformaður, Ágústa Eir Gunnarsdóttir ritari, Halldór S. Guðbergsson stjórnarmaður, Karen Friðriksdóttir stjórnarmaður.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.