Morgunblaðið - 21.05.1998, Síða 24

Morgunblaðið - 21.05.1998, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Góðar dýnur - tilvaldar á heimilið, í bústaðinn eða tjaldvagninn. Lystadún-Snæland býður upp á fjölbreytilegt úrval dýna af öllum stærðum og gerðum sem henta mjög vel fyrir heimilið, sumarbústaðinn eða útileguna í sumar. Þú lætur okkur vita hvað þig vantar og við eigum það til eða sníðum það fyrir þig. af eggjabakkadýnum Gestadýnur 190x70x9 m/ákiæði Nokkur dæmi um tiiboðsverð á svampdýnum Höfum auk þess frábært úrval af Latex- Pocket-og Bonnelfjaðradýnum og heilsu koddum. SKÚTUVOGUR hös*s«ibjm* sæbr^ut Njóttu sumarsins á góðri dýnu Sumartilboð 200 x 75 x 12 m/veri 7.500 kr.l 200 x 80 x 12 m/veri 7.900 kr. I 200 x 90 x 12 m/veri 8.500 kr. ÚR VERINU Skrifað undir nýjan ioðnusamning milli íslands, Noregs og Grænlands Hlutur Islands eykst á kostnað Norðmanna ÍSLAND fær 81% í sinn hlut sam- kvæmt heildarsamkomulagi sem tókst í gær milli samninganefnda Islands, Noregs og Grænlands um skiptingu loðnustofnsins, en sam- kvæmt þeim samningi sem gilti til 30. apríl síðastliðins fengu Islend- ingar 78% í sinn hlut. Samkvæmt nýja samningnum fá Grænlending- ar 11% eins og áður, en Norðmenn fá 8% í stað 11% áður. Jafnhliða heildarsamningnum voru gerðir tvíhliða samningar um aðgang að lögsögum landanna, en áður var kveðið á um aðganginn í heildarsamningi um stjórnun veiða úr loðnustofninum. I samn- ingi Islands og Noregs er kveðið á um að norsk skip geti veitt allt að 35% af heildarkvóta sínum í ís- lenskri lögsögu norðan 64°30‘N eða fyrir 15. febrúar, og er hliðstætt ákvæði um veiðar ís- lenskra skipa í lögsögu Jan Mayens, en í eldra samningi var Norðmönnum heimilt að veiða 60% af aflaheimildum sínum innan fískveiðilögsögu Islands. I samningi Islands og Græn- lands er kveðið á um að íslensk skip geti stundað loðnuveiðar í lögsögu Grænlands og jafnframt eru grænlenskum skipum heim- ilaðar veiðar í fískveiðilandhelgi ís- lands, en þó með þeirri takmörkun að þeim er aðeins heimilt að veiða 23.000 lestir eftir 15. febrúar og sunnan 64°30‘N. Þá var gert gagn- kvæmt samkomulag við Grænlend- inga um veiðar á úthafskarfa, og samkvæmt því er hvorum aðila um sig heimilt að veiða 50% af úthlut- uðum veiðiheimildum sínum í út- hafskarfa innan fiskveiðilandhelgi hins aðilans. Samningurinn gildir til næstu þriggja ára og er hann með mögu- leika á framlengingu um tvö ár til viðbótar segi engin þjóðanna sem að honum standa samningnum upp. Mikilvægir tvíhliðasamningar við Grænland Jóhann Sigurjónsson, formaður íslensku samninganefndarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að íslendingar hefðu lagt áherslu á það í samningaviðræðunum að reyna að tryggja raunaflahlutdeild Islands sem verið hefði liðlega 86% á undanfórnum tíu árum frá því þríhliða samningar milli þjóðanna hófust. „Við þykjumst alltént hafa náð vel á veg með það, en þarna hækk- um við samningsbundna hlutdeild okkar og höldum öllum helstu at- riðum í fyrra samningi. Síðan telj- um við okkur hafa gert mjög mikil- væga tvíhliðasamninga við Græn- land um loðnu- og karfaveiðar, en í gamla samningnum var ekki um að ræða tvíhliða samninga um aðgang eins og er í þessum samningi og var þetta önnur aðalkrafan okkar. Það mikilvægasta í þessu er þó að við höfum tryggt áframhaldandi örugga stjórn og vemd þessa stofns sem er sennilega einn sá mikilvægasti á íslandsmiðum," sagði Jóhann. Hann sagði að í samkomulaginu væri gert ráð Jyrir að hert yrði á eftirliti með loðnuveiðum þjóðanna þriggja og m.a. væri gert ráð fyrir því að gervitunglaeftirlit með skip- um verði tekið í notkun og það eigi að auka traust og trúnað samn- ingsaðila. Þá séu ýmsar áréttingar um upplýsingagjöf og miðlun upp- lýsinga milli þjóðanna þannig að sátt og traust ætti að geta ríkt um veiðamar. „Þetta er viðunandi niðurstaða, en þetta vom mjög erfiðar samn- ingaviðræður enda mikið í húfí fyr- ir alla aðila. Okkur finnst ánægju- legt að hafa náð tvíhliðasamning- um við Grænlendinga sem em okk- ar næstu nágrannar, en þeir em að þróa sína starfsemi á fískveiði- sviðinu sem við viljum gjarnan taka þátt í,“ sagði Jóhann. Fyrst og fremst hagstætt fyrir loðnustofninn Dag Erling Stai, formaður norsku samninganefndarinnar, sagði samkomulagið fyrst og fremst vera hagstætt fyrir loðnu- stofninn, og þá væri það ekki síður mikilvægt að þessar þrjár nágrannaþjóðir hefðu getað náð samkomulagi í mjög erfíðum samn- ingaviðræðum. „I okkar hlut kemur ný pró- sentutala sem sjómenn okkar verða ekki stórhrifnir af, en aðalat- riðið er að það náðist þríhliðasamn- ingur sem hefur í för með sér stjórnun á nýtingu loðnustofnsins og það er mikilvægt íyrir Noreg,“ sagði hann. Einar Lenke, formaður græn- lensku samninganefndarinnar, sagði að viðræðumar hefðu verið mjög erfiðar, en aðaltriðið væri að tekist hefði að ná samkomulagi sem hefði stöðugleika í för með sér að minnsta kosti næstu þrjú árin. „Þar að auki held ég að græn- lenskir stjórnmálamenn meti það að þessar þrjár nágrannaþjóðir hafi getað náð samkomulagi í ei-fíð- um samningum. Það undirstrikar að strandþjóðir gæta ábyrgðar í fískveiðistjórnun og það er gott að geta sýnt umheiminum fram á það,“ sagði hann. Þetta var fimmti formlegi fund- urinn sem haldinn hefur verið um nýjan loðnusamning frá því Islend- ingar sögðu samningnum alfarið upp síðastliðið haust og Grænlend- ingar sögðu samningnum upp að hluta til. ábært verð! 15 ára reynsla á íslandi Vinsælu sænsku KWA garðhúsgögnin eru komin aftur. Gegnvarin fura. Gæði og ending Ármúla 8-108 Reykjavík Sími 581-2275 «568-5375 «Fax 568-5275
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.