Morgunblaðið - 21.05.1998, Side 28
28 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Stjórnarerindrekar vona að almenningur á N-frlandi komist að „réttri“ niðurstöðu á föstudag
Paisley sakar fjölmiðla og
stjórnvöld um hlutdrægni
✓
Ráðamenn á N-Irlandi segjast ekki vilja
hugleiða möguleikann á því að friðarsam-
komulaginu þar verði hafnað í þjóðarat-
kvæðagreiðslu á morgun. Davíð Logi Sig-
urðsson ræddi við fylgismenn og and-
stæðinga samningsins í Belfast.
PÓLITÍSKIR ráðamenn í Belfast
vilja helst ekki leiða hugann að því
hvað tekur við hafni almenningur á
N-írlandi friðarsamkomulaginu
sem kosið verður um í þjóðarat-
kvæðagreiðslu á morgun. Allen
McVeigh, deildarsérfræðingur í
ráðuneyti Norður-írlandsmála í
Stormont-kastala, sagðist í samtali
við Morgunblaðið ekki einu sinni
vilja hugleiða „þann hræðilega
möguleika", „forsætisráðherrann
Tony Blair gat ekki svarað því
hvernig þá mætti leysa úr vandræð-
um N-Irlands, hvað þá ég.“
Fylgismenn samkomulagsins
hafa á síðustu dögum lagt allt kapp
á að auka íylgi hans meðal sam-
bandssinna því svartsýnustu menn
telja jafnvel hættu á að meirihluti
sambandssinna snúist gegn samn-
ingnum. Hátt hlutfall óákveðinna
gefur til kynna að einhverjir muni
e.t.v. ekki gera upp hug sinn fyrr en
á kjörstað og McVeigh kvaðst óttast
mjög að kjósendur freistuðust til að
merkja við óbreytt ástand og höfn-
uðu samningnum.
McVeigh benti á að Ian Paisley,
sem fer fyrir andstæðingum samn-
ingsins, væri ávallt upp á sitt besta í
kosningum og að hann kynni sann-
arlega að þrýsta á réttu hnappana
til að fá tvístígandi sambandssinna
á sitt band. Paisley höfðaði til þeirra
sem ættu erfitt með að sætta sig við
að fangar úr röðum írska lýðveldis-
hersins (IRA) slyppu snemma úr
fangelsi og að fulltrúar Sinn Féin
fengju inni á þingi þótt IRA hefði
engin vopn látið af hendi o.s.frv.
Ekki er þverfótað fyrir blaða-
mönnum hvaðanæva í Belfast en
heimamaður, sem starfar á útvarps-
stöð í Belfast, sagði í samtali við
Morgunblaðið að jafnvel hann, sem
sannarlega ætlaði að samþykkja
þennan samning, ætti erfitt með að
sætta sig við þá tilhugsun að Gerry
Adams, leiðtogi Sinn Féin, yrði
jafnvel áður en sumarið væri úti
orðinn ráðherra í nýju ráðuneyti N-
írlands. Þess vegna mætti ekki
gera lítið úr andstöðu fólks eða
hafna henni sem óskynsamlegri.
„Það fyrsta sem utanaðkomandi
aðili þarf að gera þegar hann hefur
umfjöllun um N-írland er að hér
ræður skynsemin ekki ríkjum.“
Paisley stýrir andstöðunni gegn
samningnum
Segja má að allir helstu aðilar séu
fylgjandi samningnum, hvort sem
þar er um að ræða stjómmálamenn
eða fjölmiðlafólk. Það voru einnig
tveir leigubílstjórar, annar kaþólsk-
ur en hinn mótmælandi, sem
blaðamaður ræddi við en þeir lögðu
áherslu á vilja sinn til að búa böm-
um sínum bjartari framtíð. Með
samþykkt samningsins mætti
vænta aukinnar velmegunar og al-
mennrar farsældar en mest um vert
væri auðvitað að binda enda á of-
beldi síðustu áratuga.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, var á ferðinni í gær til
stuðnings samningnum, svo og
William Hague, leiðtogi stjómar-
andstöðunnar á breska þinginu.
Leiðtogi þriðja aflsins í breskum
stjómmálum var í Belfast í fyrra-
dag og lagði einnig samningnum lið
sitt.
Ian Paisley gerði þessa breiðfylk-
ingu breskra stjómmálamanna að
umtalsefni á blaðamannafundi í
gærdag sem hann hélt í heimkynn-
um stjómmálaflokksins DUP, sem
hann stofhaði fyrir margt löngu, í
Austur-Belfast en beindi einnig
spjótum sínum að fjölmiðlum sem
allir hafa fylkt sér bak við samning-
inn.
Paisley, sem er stór og talsvert
yfirþyrmandi í framkomu, hafði í
Hlaupaskór, skokkskór, götuskór og hlaupafatnaður
Nike Air Max.
Loftpúði í sóla.
Oömustærðir37 -41
Herrastærðir41 - 46.
Nike AirTailwind
Air Max loftpúði í hæl, loftp. í tábergi.
Dömustærðir 36 - 40.
Herrastærðir40 - 49.
Nike Air Swift Triax
Zoom loftpúði í sóla.
Dömustærðir38-41.
Herrastærðir 42 - 46.
Adidas Falcon
EVA millisóli, Torslon system
Dömustærðir37 -41
Herrastærðir 41 - 46.
Puma Cell Endura
Cell system í sóla.
Dömustærðir 36 - 40
Herrastærðir 40 - 46.
Puma Cell Veliocity
Cell system í hæl. EVA millisóli.
Dömustærðir36-40
Herrastærðir40 - 46.
Nike Air Perseus
Loftpúði í hæl og Phylon millisóli.
Dömustærðir 37 - 41
Herrastærðir 41 - 49.
5 7Qf1 -
Götuskór
2.990,-
Adidas Lockout.
Stærðir 19 - 25.
L.A. Gear Flamethrower
Ljósaskór
Stærðir 21 - 27.
3.990,-
Nike Turf Shark Canvas
Stærðir 31 -38,5.
2.990,-
ÚTILÍF
GLÆSIBÆ *S: 581 2922
Adidas Tunnel Ram
Litir: Ljóst m. hvítu, grænt m. svörtu.
Stærðir 36 - 47.
Hugsaðu um heilsuna - Stundaðu útilíf.
LEIÐTOGAR sambands- og lýðveldissinna, John Hume, t.v., og David
Trimble, tóku í fyrrakvöld höndum saman við Bono, söngvara rokk-
hijómsveitarinnar U2 á tónleikum t' Belfast.
kringum sig hóp stuðningsmanna á
fundinum og einnig bar nokkuð á
luralegum kumpánum sem ekki
gátu verið neitt annað en lífverðir
stjómmálamannsins umdeilda.
Paisley lét móðan mása og hund-
skammaði t.d. viðstadda blaðamenn
fyrir „hlutdræga umfjöllun fjöl-
miðla.“
Hann átaldi David Trimble, leið-
toga UUP fyrir að hafa stigið á svið
Waterfront-hljómleikahallarinnar í
fyrrakvöld og fyrir að hafa tekið þar
höndum saman með manni (Bono,
söngvara U2) sem hefði ýmislegt á
samviskunni, m.a. að hafa eitt sinn
kveikt í breska þjóðfánanum á tón-
leikum. Reiði DUP-manna kom ber-
lega fram á þessum fundi og töldu
þeir tilraunir breskra stjómvalda
og fjölmiðlamanna til að mála and-
stæðinga samningsins neikvæðum
litum gagnrýni verðar. „Hvemig
voga menn sér að segja að þeir sem
hafni samningnum séu um leið að
lýsa því yfir að þeir séu andstæðing-
ar íriðar?“
Paisley hélt því fram að fulltrúar
í ráðuneyti N-Irlandsmála hefðu að
undanförnu framkvæmt fjölda
skoðanakannana en hefðu vísvit-
andi haldið leyndum upplýsingum
sem bentu til að fylgi „nei“-manna
færi vaxandi. „Þessi ríkisstjóm
leggst sífellt lægra, hvað heldur
hún að hún sé? Heldur hún að hægt
sé að pretta og blekkja kjósendur?
Heldur hún að hægt sé að hræða
fólk eða múta því til að samþykkja
þetta ómögulega plagg? Þessar
kosningar em svindl frá upphafi til
enda.“
Lögð var áhersla á það að barátt-
an gengi vel og að andstæðingar
samningsins væm sannfærðir um
að þeim tækist að fá meirihluta
sambandssinna á sitt band. Peter
Robinson, staðgengill Paisleys,
skoraði á Tony Blair að mæta and-
stæðingum samningsins opinber-
lega. „En ég efast sterklega um að
hann hafi hugrekki til þess.“
Fylgismenn enn á nálum
Allen McVeigh viðurkenndi í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins að fylgismenn samningsins
væm talsvert uggandi um sinn hag.
Ljóst væri að fylgi við samninginn
hefði dalað á síðustu dögum, eink-
um eftir fund Sinn Féin fyrir 10
dögum þar sem dæmdir morðingjar
létu öllum illum látum og fældu
margan sambandssinnann frá því að
segjajá.
McVeigh sagði bresku ríkis-
stjómina vonast eftir því að samn-
ingurinn yrði að minnsta kosti
samþykktur með 65% fylgi, minna
fylgi myndi gera framhaldið afar
erfitt. Ef allt gengi upp myndi hins
vegar verða boðað til kosninga til
væntanlegs þings 25. júní og síðan
myndi eins konar skuggaráðuneyti
starfa fram að áramótum til
reynslu.
Allt benti til þess að David
Trimble yrði þar forsætisráðherra
og John Hume, leiðtogi hófsamra
kaþólikka (SDLP), aðstoðarforsæt-
isráðherra. Ekki væri ólíklegt að
Gerry Adams tæki sæti við hlið
þeirra á ráðherrastóli og ef þetta
gengi eftir teldust það ekki svo lítil
tíðindi. „Við lifum sannarlega sögu-
lega tíma. Enginn átti von á því að
við kæmumst þetta langt og það
voru margar hindranir á leiðinni.
En viti menn! Við erum hingað
komin og höfum náð þessum
árangri. Nú getum við einungis
beðið og vonað að almenningur
komist að réttri niðurstöðu á fostu-
dag.“
Saka Bandarík-
m um „sál-
fræðilegt stríðu
Jerúsalem. Reuters.
ISRAELSKUR ráðherra sagði í
gær, að Bandaríkjastjórn stæði í
„sálfræðilegu stríði“ við ísraels-
stjóm til að fá hana til að afhenda
Palestínumönnum 13% lands á
Vesturbakkanum. Með því var hann
að svara þeirri yfirlýsingu tals-
manns bandaríska utanríkisráðu-
neytisins, að sá dagur væri „ekki
langt undan“, að Bandaríkjastjórn
gæfist upp við að miðla málum í
Miðausturlöndum.
Avigdor Kahalani, öryggismál-
aráðherra í ísraelsstjórn, sagði
augljóst, að Bandaríkjastjórn væri
að reyna að taka ísraelsstjóm á
taugum með það fyrir augum, að
hún samþykkti að afhenda Palestín-
umönnum 13% Vesturbakkans að
þessu sinni. Annar ráðherra, Moshe
Katzav ferðamálaráðherra, sakaði
Bandaríkjastjórn um að standa með
Palestínumönnum og sagði, að ef
hún hætti því, myndi Yasser Arafat,
leiðtogi Palestínumanna, taka því,
sem honum væri boðið.
James Rubin, talsmaður band-
ariska utanríkisráðuneytisins, sagði
í fyrradag, að Bandaríkjastjóm
væri að meta stöðuna eftir árang-
urslausa fundi Madeleine Albright
utanríkisráðherra með Benjamin
Netanyahu, forsætisráðherra ísra-
els, í Washington í síðustu viku og
með Arafat í London á mánudag.
ísraelsk dagblöð segja, að Band-
aríkjastjórn hafi hótað því mánuð-
um saman að skýra opinberlega frá
afstöðu sinni og gefa um leið í skyn,
að það sé ísraelska ríkisstjórn, sem
standi í vegi fyrir friði. Eins og lík-
legt er hafa Palestínumenn hvatt
Bandaríkjastjóm til gera einmitt
það.
I
í
i
f
►
\
i
l
l
i
I
!