Morgunblaðið - 21.05.1998, Síða 36

Morgunblaðið - 21.05.1998, Síða 36
36 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Nýja lífíð hennar Irinu Sænski leikhópurinn Unga Klara kemur á Listahátíð með leikritið Nýja lífíð hennar Irinu.Oddný Eir Ævarsdóttir kynnti sér verkið og talaði við leikstjórann og höfundinn. „IRINAS nya liv“ í leikgerð Nils Gredeby hefur verið sýnt fyrir fullu húsi hjá Borgarleikhúsinu í Stokk- hólmi í tvö leikár. Leikritið er byggt á skáldsögu Irinu von Martins, sem er 34 ára og með Down-heilkenni, og fjallar um sögupersónur Astridar Lindgren í heimi skáldkonunnar; heimi þeirra sem eru „öðruvísi“. Leikritið vai' upphaflega sýnt eftir hlé á sýningu með „Syréner 1914“ eftir Evu Ström, verki, sem fjallaði um hæli íyrr á öldinni þar sem allh- sem voru „afbrigðilegir" voru geymdir. Leiktjöldin voru grá og nið- urdrepandi svo það var ekki laust við að áhorfendum létti þegar þeir gengu inn í sólgult herbergi eftir hlé, inn á sambýli fyrir fatlaða í samtím- anum. Sýningin hefst raunar baksviðs þar sem leikaramir taka á sig gervin; setja á sig aukakíló úr púðum og skakkar tennur. Aðalpersónan Irina gengur á milli og býður nammi úr skál. Þegar þau fara inn á svið er það svo hún, sem er leikstjórinn í leikrit- inu, sem þau eru að setja upp á sam- býlinu. Leikritið er um Ronju ræn- ingjadóttur, Birki kærasta hennar, mömmu hennar og pabba. Þau eru öll fötluð að leika „eðlilegt líf‘. Þungamiðjan er Ronja, sem er að reyna að verða fullorðin. Hana lang- ar til að eignast bam með Birki, en er bæði hrædd við að þurfa þá að yf- irgefa móður sína, sem hún elskar svo heitt, og að fæða bam, sem hún ekki þekkir. Birkir stingur þá upp á að hún eignist aðra Ronju. Svo Ronja fæðist aftur, verður aftur lítil og í þetta sinn alvarlega fótluð. Þroska hennar seinkar og hún getur verið áfram hjá mömmu sinni. Og Birkir fær að fylgjast með, þegar skipt er á kæmstimni hans! Móðirin, Lena, segir Birki að þau geti þvi miður ekki gifst því þau séu svo alvarlega fótluð. Hann heldur samt áfram að bíða eftir henni. Ronja gengur nú í gegnum erfiðleika við að komast frá foreldr- um sínum, henni er illa við fóður sinn og myrðir hann með hjálp mömmu sinnar. En hann kemur aftur, drepur Lenu og þykist svo vera hún. Ronja skilur ekkert í hvers vegna hún er orðin afhuga móður sinni, heldur að gleraugun sín séu skítug. Hún fer að spila á trompet í leiðindum sínum en þegar hún fær svo ástarbréf fra mömmu sinni tekur hún gleði sína á ný og endurfæðist. Giftist svo loks Birki og þau fara í brúðkaupsferð til New York. Persónumai- em ýmist þær sjálfar að leika sér eða að leika leikritið og Irina er bæði hún sjálf að leikstýra og þátttakandi i atburðarásinni sem hún sjálf eða Lína Langsokkur. Omögulegt er að átta sig á hvar leiknum sleppir, hvað er raunvem- leiki og hvað leikur. Og þar sem áhorfendur sitja inni á sviðinu og em hluti af leiknum eiga þeir ei’fiðara með að dæma um það. Þeim er ekki stillt upp sem „eðlilegum" and- stæðingum, heldur era þeir teknir með í leikinn sem leikfélagar. Þeir fara út af sviðinu eftir sýninguna með tárin í augunum eftir óvenjulega fyndinn og skemmtilegan, en um leið erfiðan leik. Ljósmynd:Lesley Leslie-Spinks LEIKENDUR í Nýja lífinu hennar Irinu; Lennart Jahkel, Ann Petrén, Simon Norrthon, Sylvia Rauan og Cilla Thorell. EFTIR að hafa séð leikritið lék mér forvitni á að vita eitthvað um það leikhús, sem býr til svo stórkostlega magnaða sýningu að maður bæði grætur og hlær. Eg hitti leikstjórann og listrænan Ieiðbeinanda Unga Klara, Suzanne Osten í leik- húsinu, þar sem hún var að borða hádegismatinn, nýkomin af æfingu og rétt ófarin í Háskólann, þar sem hún er prófessor. Hún sagði mér frá tilurð „Ungu Klöru“ og stöðu leikhópsins og samstarfsfólk, hennar, sem sat um hana, lagði líka orð í belg. Osten, sem er meðal þekkt- ustu leikhúsmanna álfunnar, stofnaði „Ungu KIöru“, leikhús fyrir börn, árið 1975. Hópurinn starfar sjálfstætt innan Borg- arleikhússins í Stokkhólmi og hefur til umráða tvö svið. „Mig langaði til að segja eitthvað satt og frá sjónarhorni þeirra sem eru illa settir, fá ný sjón- armið inn í Ieikhúsið,“ segir hún. „Ég hafði áður gert leik- rit um konur en sá síðan að börn voru enn verr settur hóp- ur, útundan og einmana í sam- félagi okkar. - Var þá ekkert slflct leikhús í Svíþjóð? „Nei, ekki þá. En í Hollandi er sterk hefð fyrir bamaleik- húsi og ég lærði mikið af því.“ Orðin hundleið „elítunni“!“ - Hvernig voru viðbrögðin við þessu nýja leikhúsi? „Þegar við settum upp „Medeu“, sem fjallaðí um skilnaðarbörn, var fólk mjög reitt og taldi óhæft að sýna börnum slíkan hrylling. Full- orðnir fóru grátandi út af sýn- ingunni með nagandi sam- viskubit, en krakkarnir vom bara fegnir að það væri ekki verið að ljúga að þeim - þarna var veruleikinn sýndur frá þeirra sjónarhomi“, segir hún áköf, „og það er einmitt þetta Draumurinn er eitt gott leikhús fyrir alla sjónarhorn, sem við höf- um haldið okkur við, hvort svo sem leikritið fjallar um börn eða eitt- hvað annað.“ - Em það þá helst börn sem koma á sýning- ar? „Nei, það hefur orðið til fastur áhorfendahóp- ur í gegnum árin og það em mest fullorðnir. Það er auðvitað æðislegt að vita af slíkum hópi, sem kemur á allar okkar sýn- ingar, en ég er bara Suzanne Osten, orðin hundleið á þessari leikstjóri „elítu“ og vildi óska þess að einhveijir fleiri létu sjá sig.“ Algjört Irinu-æði Lotta Fristarp, sem sér um samskipti leikhópsins við fjölmiðla, segir að þau hafi lagt sig í líma við að ná til annars áhorfendahóps með því að setja auglýsingaspjöld á óvenjulega staði og ítreka í fjölmiðlum að leikhúsið þurfi ekki að vera þungmelt spek- ingahjal. „Það heppnaðist núna síðast,“ segir hún, „það varð algjört Irinu-æði og fólk, sem hafði aldrei farið í Ieikhús, upplifði eitthvað alveg nýtt,“ segir Lotta. „Leikhúsið á að vera vett- vangur þar sem hið óvænta og skemmtilega getur gerst; bæði tilraunastofa og skemmtistað- ur,“ segir Osten æst og bætir við að þau þurfí að fá þá, sem vilja taka þátt í rannsókn á möguleikum bamsins og leik- Nils Gredeby, höfundur leikgerðarinnar hússins, til liðs við sig. Anders Frennberg, sem sér um markaðssetningu, segir, að mjög snemma á æfingatíman- um fái þau bæði böm og sér- fræðinga til að gagnrýna starf- ið og vinni síðan með þeim allan tíman. Þegar þau vom að æfa „Irinu“ unnu þau með starfs- fólki á sambýlum fyrir fatlaða, fötluðum börnum og sál- fræðingum. En er ekki hætta á að slík gagnrýni tmfli verkið þegar það er enn í geijun? Hvað er það að vera eðlilegur? „Við höfum alltaf eitthvert leiðarhnoð, sem við leikum okkur með í langan tíma, allir vita um hvað málið snýst svo við vinnum markvisst saman að sýningunni, leikmyndahönn- uðurinn og ljósamaðurinn t.d. em inni á öllum æfingum,“ segir Osten „og nærvera gagn- rýnenda gerir okkur bara meðvitaðri um að koma hugmyndinni sem best til skila“. - Hver var hugmyndin á bak við Nýja lífið henn- ar Irinu? „Við erum búin að vera að pæla í þessu af- brigðilega og hvað það eiginlega er að vera eðli- Iegur,“ segir hún bros- andi. „Irina íjallaði um fötluð börn sem þrá að vera „eðlileg"; stunda kynlíf, keyra bíl og eign- ast börn. Ronja og Birkir, sem em kærustupar í verkinu, vilja eignast barn saman, og það er auðvitað mjög sorglegt að þau skuli ekki geta það,“ segi hún alvarleg. „En textinn er fullur af fyndnum orðaleikjum og kímni og ég vildi leggja áherslu á þennan trúðagang í uppfærslunni,“ segir hún með fullan munninn af brauði. „Krökkunum fannst eðlilegt að Ronja væri alvarlega fötluð og Birkir í hjólastól! og fyrir vikið verður sýningin algjör __ farsi,“ segir hún hlæjandi. „Ég var hrædd um að það kæmi út eins og við værum að gera grín að fötluðum, en það tók því enginn svoleiðis. Sumir sögðust hafa skammast sín fyrir að hlæja en skynjað svo hlýjuna í trúðaleiknum og slakað á - og þeir fötluðu hlógu mest!“ Anders bætir við að í atriði þar sem er sungið og dansað hafi nokkrir fatlað- ir farið upp á svið og tekið undir. „Þegar maður horfði svo á þá sem sátu vandræða- legir eftir úti í sal spurði mað- ur sig hver væri „eðlilegur“ hér!“ - Hvernig fannst Irinu sýn- ingin? „Henni fannst hún mjög flott, kom oft á æfingarnar og fannst ekkert atugavert við að sjá sinn einkaheim kominn upp á svið,“ segir Nils Gredeby, sem skrifaði leikrit eftir bók- inni. „Hún breytti bara nöfnun- um á persónunum eftir nöfnum leikaranna, því nú var sá veru- leiki raunverulegri fyrir henni.“ „Já og talandi um raunveruleika,“ segir Osten, „krökkunum fannst eðlilegt að Ronja væri alvarlega fötluð og Birkir í hjólastól, þótt þau ættu allt öðru að venjast úr sagna- heimi Astridar Lindgren!" - Og nú farið þið með heim Irinu til íslands? „Já, við hlökkum rosalega mikið til að fara þangað, okkur finnst eins og það passi mjög vel að fara með þetta skrýtna gula herbergi til þessa skrýtna litla lands!“ segir Peter fram- kvæmdastjóri sýningarinnar og bætir við að hann voni bara að þau fái fullan sal, „því ann- ars er ekkert gaman“. Ég fullyrði að sýningin eigi fullt erindi vid íslendinga og að þeir hljóti að láta sjá sig. - En hversu lengi á slíkt leikhús erindi við okkur, spyr ég Osten að lokum, hversu lengi verður þetta nýja sjónar- horn í leikhúsinu nýtt? „Ég vona að starf mitt og okkar sem vinnum með þeim illa settu verði óþarft einn góð- an veðurdag. Að við þurfum ekki Iengur á leikhúsi með sér- sjónarmiðum að halda heldur verði bara til eitt gott leikhús fyrir alla. En það er því miður iangt þangað til, við eigum enn mikið verk fyrir höndum,“ segir Suzanne Osten og stekkur á fætur, grípur svörtu kápuna og flýgur af stað.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.