Morgunblaðið - 21.05.1998, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998 45
Hvalreki
Hannover. Morgunblaðið.
í NÝJASTA tölublaði Der Spiegel
sem kom út 18. maí er að finna ít-
arlega umfjöllun um þýska
þýðingu Angeliku Gundlach á
Englum alheimsins eftir Einar Má
Guðmundsson.
Gagnrýnandi tímaritsins segir
frá innihaldi bókarinnar á einstak-
lega hnyttinn hátt og gefur Einari
háa einkunn fyrir skrifin. „Guð-
mundsson býður upp á allt sem er
stranglega bannað í nútíma bók-
menntum," segir gagnrýnandi.
„Sögumanninn sem kjaftar frá úr
gröfinni, Island sem svífur yfir
vötnunum í framandi norrænu
samfélagi trölla og svo er bókin
full af brjálæðingum: Alveg
handónýtt listaverk.“
Gagnrýnandi segir leitun að
annarri eins bók og Englar al-
heimsins, „þar sem brjálæðingar
öðlast frið“ en kemur samt
„martröðum fuglanna og pæling-
um fiskanna" til skila.
„Þrátt fyrir lyfjaskýið sem svíf-
ur yfir deyfðum sjúklingunum,
þrátt fyrir óhóf geðlyfjanna, þrátt
fyrir örvæntinguna sem knýr
suma til sjálfsmorðs eru Englar
alheimsins drepfyndin og glaðleg
bók.“ Engla alheimsins segir Der
Spiegel vera „hvalreka frá ís-
landi“.
2 NÝR SENDIBÍLL
Fyrsta
skref
bænalífsins
IM-kllt
Bænabók
VEF MIG VÆNGJUM ÞÍNUM
eftir Sigurbjörn Þorkelsson. Út-
gefandi er höfundur, 1998. Stærð:
100 blaðsíður, innbundin.
Sigurbjörn
Þorkelsson
VEF mig vængjum þínum er
íramlag áhugamanns um heimilis-
guðrækni. Hann vill stuðla að eflingu
hennar og hjálpa fólki til að biðja
reglulega kvölds,
morgna og um
miðjan dag.
Bókin hefst með
tveimur bæna-
versum og tveim-
ur þekktum bæna-
sálmum, „Bæn er
máttur f
magnþrota hönd-
um“ og „Góði Guð,
er ég bið“.
Meginefni bókarinnar er hins veg-
ar daglegar bænir, að morgni og
kveldi, fyrir 31 dag. Hver bæn er ein
blaðsíða, svo að einn dagur fyllir
opnu. Yfirskriftirnar eru 1. dagur, 2.
dagur o.s.frv. þannig að þær eru
ekki bundnar við ákveðinn viku- eða
mánaðardag. Það er því hægt að
nota bókina aftur og aftur sem
stuðning við bænalífíð þó að búið sé
að fara einu sinni í gegnum hana. A
undan hverri bæn er stutt vers úr
Biblíunni til hvatningar, en síðan
kemur bæn samin af bókarhöfundi.
Hann á þó ekki von á að bænirnar
taki með allt sem hvílir á hjarta les-
andans en vonast til að þær hjálpi
honum af stað til að biðja.
í bókarlok er signingin, Faðir
vor, postulleg blessun og blessunar-
orðin. Síðan eru ýmis bænavers sem
foreldrar höfundar kenndu honum í
bemsku, t.d. „Nú er ég klæddur og
kominn á ról“, „Vertu Guð faðir fað-
ir minn“ og „Leiddu mína litlu
hendi“. Þá eru borðbænir og kvöld-
bænir eins og t.d. „Láttu nú Ijósið
þitt“, „Kristur minn ég kalla á þig“
o.fl. Að lokum er samtíningur af
ýmsu góðu, svo sem trúarjátningin,
boðorðin 10, litla Biblían, gullna
reglan, tvöfalda kærleiksboðorðið,
óðurinn um kærleikann í 1. Korintu-
bréfi 13. kafla og nokkrir bæna-
sálmar eins og „Ó Jesús bróðir
besti“, Astarfaðir himin hæða“ og
„Enginn þarf að óttast síður“.
Biblíulestrarskrá fyrir fjórar vik-
ur er í eins konar viðauka.
Vef mig vængjum þínum er
fjórða bók höfundar á jafn mörgum
árum. Útlit hennar og hönnun er
svipuð og hinna. Einkenni bókar-
innar er mikill einfaldleiki og því
ætti hún að nýtast fólki sem er að
stíga sín fyrstu skref í ástundun
reglulegs bænalífs. Hún er hins
vegar of einföld fyrir þá sem eru
lengra komnir.
Höfundurinn er framkvæmda-
stjóri Gídeonfélagsins.
Kjartan Jónsson