Morgunblaðið - 21.05.1998, Síða 62
62 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUAUGLÝSINGAR
rm SECURITAS
SECURITAS
Securitas er leiðandi fyrirtœki
hérlendis á sviði öryggisgæslu,
öryggiskeifa og rœstinga, með
alls um 550 starfsmenn
Hjá tœknideild starfa um 30 starfsmenn við hönnun, uppsetningu og þjónustu við öryggiskerfi og tæknibúnað.
Securitas hefur nýlega haslað sér völl í hússtjórnarkerfum og býður nú fýrirtœkjum og heimilum heildarlausnir
í tœknivœddri öryggisgœslu og tœknikerfum bygginga og mannvirkja.
Rafeindavirkjar / Rafvirkjar
Vegna aukinna umsvifa tæknideildar Securitas óskum við eftir að ráða nú þegar rafeindavirkja eða
rafvirkja til starfa við hönnun, uppsetningu og þjónustu við öryggiskerfi.
I boði en
Fjölbreytt starf hjá leiðandi fyrirtæki, í samhentum hópi, með aðgangi að mikilli vinnu.
Kjör eru samkvæmt kjarasamningum Rafiðnaðarsambands íslands.
Hæfniskröfur:
Við ieitum að rafeindavirkjum / rafvirkjum með sveinsréttindi og helst með starfsreynslu.
Hreint sakavottorð, snyrtimennska og góð þjónustulund er skilyrði.
Umsóknir:
Ef þú ert að leita að skemmtilegu framtíðarstarfi, þá vinsamlegast skilaðu umsókn inn til afgreiðslu
Securitas, Síðumúla 23. Umsóknir þurfa að innihalda upplýsingar um aldur, menntun, réttindi og
starfsreynslu. Nánari upplýsingar veitir Erna Guðmundsdóttir starfsmannastjóri í síma 533 5000,
netfang erna@securitas.is Skrifstofan er opin frá kl. 9.00 til kl. 17.00.
FRÓDI
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA
Útgáfufyrirtœkið Fróði óskar eftir að ráða til
starfa ritstjóra bókarinnar ÍSLENSK FYRIRTÆKI
í starfinu felst meðal annars;
yfirumsjón með allri vinnslu, skráninga- og
auglýsingasölu, ráðningu starfsmanna,
umbroti, útliti og þróun bókarinnar.
Viðkomandi þarf að;
Vera sjálfstœður í starfi og skipulagður í
öllum vinnubrögðum, hafa góða
tölvuþekkingu og eiga auðvelt með
mannleg samskipti
Umsóknarfrestur er til og með 26. maí n.k.
Upplýsingar veittar á skrifstofu frá 13-15.
Einnig er hœgt að skoða auglýsingar og
sœkja um störf á http://www.lidsauki.is.
Fó/fc og fjekking
Udsauki ©
Skipholt 50c, 105 Reykjavík slmi 562 1355, fax 562 3767
Netfang: www.lidsauki.is
Tölvupóstur: lidsauki@knowledge.is
„Au-pair" Noregi
Norska fjölskyldu, sem býr um 20 km vestur
af Osló, vantar „au-pair", 20 ára eða eldri, til
að gæta tveggja barna, 9 mán. og 7 ára (í
skóla). Þarf að byrja í lok ágúst. Góð skilyrði
í boði. Vinsamlegast sendið uppl. á ensku um
fyrri störf, meðmæli og mynd til: Gro Lagesen,
Hildertunet 26, 1312 Slependen, Noregi.
Starfsmaður í
auglýsingasafn
Auglýsingadeild Morgunblaðsins óskar
eftir að ráða starfsmann í auglýsingasafn
hið fyrsta.
Um er að ræða tímabundið starf frá
júní 1998 til mars 1999.
Gerðar eru kröfur um þekkingu í Windows
og hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsóknum skal skilað til afgreiðslu
► Morgunblaðsins, merkum:
„Auglýsingasafn — Mbl.“, fyrir þriðju-
daginn 26. maí nk.
Morgunblaðið leggur'áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á ísiandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 52.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru hátt
í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Blaðberar
Blaðbera vantar í Heima-, Voga- og
Sundahverfi.
► I Upplýsingar í síma 569 1114 á
I föstudag.
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 52.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru hátt
í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Arborg
Fræðslu- og menningarsvið
Umsóknir um áöur auglýstar kennarastöður
verða að berast fræðslustjóra, Ráðhúsi Selfoss,
Austurvegi 2, 800 Selfossi, fyrir 26. maí.
Nánari upplýsingar veita skólastjórar
grunnskólanna:
Oli Þ. Guðbjartsson, Sólvallaskóla, í síma
482 1256 eða 482 1178,
Páll Leó Jónsson, Sandvíkurskóla, í síma
482 2799 eða 482 1500 og
Arndís Harpa Einarsdóttir, Barnaskóla Eyrar-
bakka og Stokkseyrar, í síma 483 1141 eða
483 1538.
Fræðslustjóri.
Ertu kennari?
Langar þig í gefandi samstarf
í öflugum og lífsglöðum kennarahópi?
Hafðu þá samband því að okkur í Grunnskóla
Grindavíkur vantar kennara í almenna
kennslu t.d. í 1. bekk og á unglingastigi. Einnig
vantar okkur kennara í íþróttir pilta og stúlkna
og heimilisfræði.
Hafðu samband við skólastjóra (Önnu Lilju)
vs. 426 8020, hs. 551 3663 eða aðstoðarskóla-
stjóra (Stellu) vs. 426 8020, hs. 426 8363. Þær
gefa fúslega allar upplýsingar.
Umsóknir sendist skólastjóra Grunnskóla
Grindavíkur, Skólabraut 1, 240 Grindavík.
Umsóknarfrestur er til 28. maí.
í Grunnskólanum í Grindavík eru tæplega 400 nemendur i 1, —10.
bekk. Skólinn er tvísetinn en byggingaframkvæmdir standa yfir og
á næstu árum verður skólinn einsetinn í glæsilegu rúmgóðu húsnæði.
Grindavík er 2.200 manna bæjarfélag, staða í atvinnumálum góð
og öflugt íþróttastarf.
Grindavík, 18. maí 1998.
Bæjarstjóri.
Kleppjárnsreykjaskólahverfi
Borgarfirði
Andakílsskóli
— Hvanneyri
Kennara vantartil almennrar bekkjarkennslu,
sérkennslu og kennslu í handmennt.
Kleppjárnsreykjaskóli
Kennara vantar í almenna bekkjarkennslu í
3.-5. bekk, dönsku, heimilisfræði og tón-
mennt.
Umsóknarfrestur er framlengdur til og með
29. maí 1998.
Upplýsingar gefa Þórfríður Guðmundsdóttir,
skólastjóri Andakílsskóla í símum 437 0009
og 437 0033 (heima) og Guðlaugur Óskarsson
skólastjóri Kleppjárnsreykjaskóla í símum
435 1171 og 435 1170 (heima).
Reykjavík
Deildarstjóri 3
Vegna skipulagsbreytinga og bættrar þjónustu
við vistmenn auglýsir Hrafnista eftir hjúkrunar-
fræðingi í stöðu deildarstjóra 3 til að stjórna
hjúkrun á afmarkaðri einingu á hjúkrunarvakt
vistheimilis. Um er að ræða ögrandi verkefni
sem höfðartil framtíðar. Áhugi á hjúkrun
aldraðra þarf að vera fyrir hendi og ekki spillir
reynsla og meiri menntun á sviði öldrunarog/
eða stjórnun. Einngi eru aðrar stöður hjúkrun-
arfræðinga og sjúkraliða lausar á hjúkrun-
arvakt og hjúkrunardeildum.
Upplýsingar veita ída Atladóttir hjúkrunarfor-
stjóri og Þórun A. Sveinbjarnar hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri í símum 553 5262 og 568 9500.
Sumarstarf fyrir
fjölhæfan einstakling
Hérðassambandið Hrafna-Flóki auglýsir eftir
framkvæmdastjóra. Ráðningartími frá lokum
maí fram í miðjan ágúst.
Hrafna-Flóki er í Vestur-Barðastrandasýslu á sunnanverðum
Vestfjörðum. Starfið felur m.a. í sér að skipuleggja og sjá
um sumarstarf sambandsins. Afar nauðsynlegt er að viðkom-
andi geti unnið sjálfstætt.
Nánari upplýsingar gefa Helga í s. 456 2698
virka daga eða Stefán Jóhannes í s. 456 2595
á kvöldin og um helgar. Netfang fmt@isholf.is