Morgunblaðið - 21.05.1998, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1998 71
verustundir í kirkjunni á fimmtu-
dagskvöldum. Margoft létu þau
heiðurshjónin sig ekki muna um að
skutla okkur heim. Þær ferðir voru
oft mjög skemmtilegar, því Einar
munaði ekki um að kitla hláturtaug-
ar okkar bræðra, og bætti við ýms-
urn fróðleik.
A þessum tíma ók Einai- um á átta
strokka stórum amerískum bfl.
Kenndi hann okkur ráð til að halda
niðri kostnaðinum. Sagði hann okk-
ur að hann blandaði bara steinolíu
út í bensínið og þannig nýttist það
betur og var einnig ódýrara. Svo
sagði hann eitthvað á þessa leið,
sposkur eins og honum var einum
lagið: Já, strákar, sjáið þið bara, það
er samt nógur ki-aftur. Um leið gaf
hann í upp Ártúnsbrekkuna þannig
að við þrýstumst aftur í sætin.
Aidrei talaði hann um að þetta væri
sér dýrt, þótt allir viti að ekkert sé
ókeypis. Eins man ég eftir því að
hann ráðlagði okkur í einni slíkrí
ferð að kaupa okkur Citroen-bfl þeg-
ar við hefðum aldur til að fara að
kaupa okkur bíla. Sagði þá svo fína í
hálkunni og að á Cítroén kæmumst
við allt í snjó því hann væri fram-
drifinn.
Mér þykir vænt um þessar ferðir
og þennan tíma sem maður átti með
Einari. Persónuleiki hans, eins um-
deildm' og hann kann að vera, hafði
áhrif á mann. Hann hvatti mann til
að taka afstöðu og standa við hana
hvað sem öðrum kynni að finnast.
Hann kenndi manni að gefast ekki
upp þótt allir hefðu ekki sömu sýn.
Fyrir það er maður þakklátur.
Skemmtisögurnar af honum Einari
gætu verið miklu fleiri en þær verða
ekki sagðar hér. En fyrir efniviðinn í
þær sögur þakka ég af einlægni.
Sem unglingur leit maður upp til
Einars og leyfði sér að vona að ein-
hvern daginn yrði maður jafnfróður,
víðlesinn og skjótur til svars og sá
gamli. í dag lítur maður til baka og
efast um að svo verði nokkru sinni.
A tímabili var ég farinn að halda að
hann hefði sjálfur samið blessaða
Passíusálmana svo lipurlega runnu
þeir fram af vörum hans ásamt vís-
um, hendingum og sögum af fólki
sem áheyrendur og viðmælendur
hverju sinni þekktu til. Stundum
velti ég því fyrir mér hvort hann
þekkti bara alla íslendinga. Eitt er
það vers í Passíusálmunum (sálmur
nr. 4, vers 22), sem stendur hvað
efst í minningunni. Einar fór oft
með þetta vers til að brýna sitt fólk
til bæna:
Bænin má aldrei bresta þig
búin er freisting ýmislig.
Þá líf og sál er lúð og þjáð
lykill er hún aó Drottins náð.
Með Einari er farinn trúmaður
mikill. Skönmgur sem gekk fram af
eldmóði í þau verk sem vinna þurfti.
Kraftmikill maður sem kunni að fá
aðra með sér. Köllun hans var
ósvikin og hlýðni hans við hana
þannig að til eftirbreytni og lær-
dóms er öllum ungum mönnum.
Ég bið Guð að blessa hana Línu
og alla aðra aðstandendur.
Kristinn P. Birgisson, Isafirði.
í dag er kvaddur hinstu kveðju
Einar J. Gíslaspn. Einar var sannur
vinur í raun. Ég sem þetta rita á
honum ómetanlega mikið að þakka.
Þegar ég missti fótanna í lífinu var
Einar mér sem besti faðir. Svo ótelj-
andi margar voru þær ferðir sem
hann lagði á sig til mín, að ég hef
ekki tölu yfir þær. En ég veit það
líka að hann taldi þær ekki eftir sér.
Án Einars hefði þetta ekki verið
eins auðvelt. Það var hann, með all-
ar sínar hlýju bænir og umhyggju,
sem vildi allt fyrir mig gera svo mér
liði sem best.
Ég kveð Einar með þakklæti fyrir
góðu stundirnar sem voru mér mik-
ils virði.
Elsku Lína, Guðrún, Guðni,
Simmi og Guðný. Guð blessi ykkur
öll og fjölskyldur ykkar og gefi ykk-
ur styrk á stundu sem þessari.
Kveðja.
Björg Benjammsdóttir.
• Fleiri minningargreinar um
Einar J. Gíslason bíða biiiingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
EINAR
JÓHANNESSON
+ Einar Jóhannes-
son fæddist í
Illiðskjálf við Pat-
reksfjörð 15. apríl
1926. Hann lést á
Vífilsstaðaspítala
12. maí síðastliðinn.
Foreldrar lians
voru Jóhannes Þór-
arinsson, verkstjóri,
og Estíva Sigríður
Jakobsdóttir. Einar
var yngstur systk-
ina sinna. Þau
systkini Einars sem
eru látin eru Þórar-
inn, Jakob og
Jóhann, eftirlifandi eru Andrea,
búsett í Bandaríkjunum, og
Theodór Guðjón, búsettur í
Reykjavík.
Éinar giftist Ólafíu Þórunni
Theodórsdóttur 16. júní 1962,
þau slitu sambúð 1983. Börn
þeirra eru: 1) Edda Sólrún, f. 13.
feb. 1956, gift Viðari Oddgeirs-
syni, synir þeirra eru Davíð og
Þórir. 2) ÓIi Þór, f. 27. jan. 1960,
ókvæntur, dætur hans eru Edna
Elsku pabbi, nú ert þú farinn frá
okkur og ég veit að þér líður miklu
betur núna, ég sá það á þér þegar
við systurnar komum til að kveðja
þig í hinsta sinn. Ég er svo fegin að
hafa komið til þín kvöldinu áður og
þú varst bara nokkuð hress, þú
varst að leggja spilakapal og að
rifja upp prakkarastrik bræðra
þinna þegar þið voruð litlir peyjar.
Það var gott að sjá að þér liði
aðeins betur í þínum miklu veik-
indum.
Þú komst inn í líf mitt þegar ég
var lítil, ljóshærð hnáta og fölleit,
þú tókst mér strax sem litlu
stúlkunni þinni. í þá daga varst þú
alltaf svo lengi á sjónum, allavega
fyrir litla stúlku sem beið spennt
heima eftir því að pabbi kæmi heim
af sjónum. Sjórinn var þinn vinnu-
staður, en við börnin gerðum okk-
ur ekki grein fyrir hættunni sem
því fylgdi. Það var erfitt fyrir þig
að taka þátt í uppeldinu á okkur
börnunum þar sem þú varst allt
upp í 3 til 4 vikur úti á sjó en
kannski 2 til 4 daga í landi, þú
varst eins og gestur sem komst
með útlenskt sælgæti og fallega
pakka handa okkur. Ég man vel
eftir gula bangsanum sem var
miklu stærri en ég sjálf og
brúðunni sem gat gengið og ég
gleymi aldrei gula kjólnum sem þú
keyptir á mig úti í Englandi, þú
sagðir að þetta væri prinsessukjól-
inn minn, hann var með sjö skjört
og allur í hvítum blúndum, mér
fannst þetta vera fallegasti kjól í
heiminum. Það var alltaf viss til-
hlökkun þegar von var á þér í land,
þá þreif mamma allt húsið extra
vel og okkur börnin líka, þó svo að
það væri alltaf allt fínt og þrifalegt
hjá henni þá var einhver sérstakur
ilmur í loftinnu, hún bakaði pönnu-
Dóra og Katrín
Fjóla. 3) Estíva Jón-
anna, f. 27. apríl
1962, gift Sæmundi
Gunnarsyni, börn
þeirra eru Eyþór og
Sæunn. Uppeldis-
börn Einars eru
Soffi'a Kragan,
Helga Soffía og
Kristinn Jósef.
Einar fluttist ung-
ur til Reykjavíkur
með móður sinni og
byijaði að stunda
sjóinn 14 ára gamall
og 16 ára var hann
orðinn fyrsti kokkur á togara.
Hann var _ formaður Mat-
sveinafélags Islands í nokkur ár.
Hann vann lengst af hjá Haf-
rannsóknastofnuninni sem
fyrsti matsveinn á Árna
Friðrikssyni og síðast bryti á
Bjarna Sæmundssyni.
Utför Einars fer fram frá
Fella- og Hólakirkju föstudag-
inn 22. maí og hefst athöfnin
klukkan 15.
kökur og stundum brúnköku
(brúnku). Þú vissir hvað mér þótti
svona kaka góð, og eftir að ég fór
að heiman sagðir þú við hana
mömmu: Það þarf að baka brúnku,
hún Edda er að koma í heimsókn.
Við áttum okkar erfiðu og góðu
stundir, við fjarlægðumst þegar ég
var unglingur en náðum aftur bet-
ur saman með árunum, þér þótti
gaman að veiða lax og það finnst
mér líka, þú og Viðar fóruð stund-
um saman í laxveiðiferðir. Þú sagð-
ir mér einu sinni frá því hvað þér
þætti gott að vera einn með sjálf-
um þér út í á eldsnemma og horfa á
sólina koma upp yfir sjóndeildar-
hringinn. Ég man eftir því þegar
ég var 11 ára og við vorum að veiða
í Kleifarvatni, þá fékk ég minn
fyrsta lax en ég gat ekki landað
honum sjálf. Þá komst þú til min
og sagðir: Ég held að þú hafir veitt
hval! Ég trúði þér og henti frá mér
veiðistönginni en þú landaðir hon-
um fyrir mig, ég var mjög stolt af
fiskinum mínum. Þú byrjaðir ung-
ur að stunda sjóinn og 16 ára
varstu orðinn fyrsti kokkur á tog-
ara. Eldamennska var líf þitt og
yndi, þú gerðir venjulegan heimil-
ismat að veislumat og þegar ég
gifti mig þá galdraðir þú fram
stórglæsilegt veisluborð. Þú vildir
sjá um allan matinn, því það varð
allt að vera sem best fyrir dóttur
þína.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Þín dóttir,
Edda Sólrún, Viðar og synir.
+
: : :
•V ■ f
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og
afi,
EINAR J. GÍSLASON
fyrrverandi forstöðumaður
Fíladelfíusafnaðarins,
Snorrabraut 56,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hvítasunnukirkjunnni
Fíladelfíu, Hátúni 2, Reykjavík, föstudaginn
22. mai klukkan 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaöir.
Þeim, sem vildu minnast Einars, er bent á minningarkort Samhjálpar
hvítasunnumanna, Hverfisgötu 42, 101 Reykjavík, sími 561 1000.
Sigurlína Jóhannsdóttir,
Guðrún Margrét Einarsdóttir,
Guðni Einarsson,
Sigurmundur Gísli Einarsson,
Guðný Einarsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
+
Elskuleg dóttir mín,
VALGERÐUR GUÐLAUG SKAFTFELD
GUÐMUNDSDÓTTIR,
er látin. Jarðarförin hefur farið fram.
Mig langar að senda læknum og hjúkrunarfólki
Landspítalans þakkir og kveðjur fyrir hennar
hönd.
Guð blessi ykkur öll.
Helga Skaftfeld,
Valgeir Jónsson.
+
Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir,
afi, langafi og bróðir,
EINAR JÓHANNESSON
bryti,
Hábergi 3,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju
föstudaginn 22. mai kl. 15.00.
Edda Einarsdóttir,
Estiva Einarsdóttir,
Óli Þór Einarsson,
Soffía Kragan,
Helga Soffía Gísladóttir,
Kristinn Gíslason,
Theodór G. Jóhannesson,
Andrea Jóhannesdóttir,
Viðar Oddgeirsson,
Sæmundur Gunnarsson
Elís Heiðar Ragnarsson,
Elísabet Erlendsdóttir,
Steinunn Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför bróður okkar,
mágs og frænda,
KRISTJÁNS H. JÓNASSONAR,
Rifkelsstöðum II.
Marselina Jónasdóttir,
Gunnar Jónasson,
Hlynur Jónasson,
Héðinn Jónasson,
Sigurður Jónasson,
Steingrimur Ragnarsson,
Valgerður Schiöth,
Vilborg Gautadóttir,
Jóhanna Gunnarsdóttir,
Ellen Pétursdóttir
og fjölskyldur.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
virðingu við andlát og jarðarför föður okkar og
tengdaföður,
ÖGMUNDAR GUÐMUNDSSONAR
fyrrverandi yfirtollvörðar.
Fyrir hönd barna okkar og barnabarna,
Pálmar Ögmundsson,
Anna Margrét Ögmundsdóttir,
Ágúst Ögmundsson,
Jóhann Gunnar Ögmundsson,
Lárus Ögmundsson,
Sverrir Ögmundsson,
Þórunn Blöndal,
Ófeigur Geirmundsson,
Elínborg Kristjánsdóttir,
Ingibjörg Jónsdóttir,
Hildigunnur Sigurðardóttir,
Ásbjörg Magnúsdóttir.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
GÍSLA TÓMASSONAR.
Kristbjörg Sigjónsdóttir,
Sigrún Gísladóttir, Hörður Geirlaugsson,
Tómas Gíslason, Ingibjörg Magnúsdóttir,
Gísli Friðrik Gíslason, Birgit Wilster Hansen
og barnabörn.