Morgunblaðið - 10.07.1998, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Úrskurður Samkeppnisráðs um Breiðbandið
Verði opið öllum sjón-
varp sfy rirtækj um
SAMKEPPNISRAÐ hefur úr-
skurðað að Landssíminn hf. skuli
veita öllum sjónvarpsfyrirtækjum
aðgang að dreifikerfi sínu á sam-
bærilegum kjörum. Jafnframt mæl-
ir ráðið fyrir um fjárhagslegan og
stjórnunarlegan aðskilnað sjón-
varpsrekstrar Landssímans, Breið-
bandsins, frá öðrum rekstri.
Útsendingum Ríkisútvarpsins
hefur hingað til verið dreift stofn-
unni að kostnaðarlausu á breið-
bandi. í desember síðastliðnum
sendi Fjölmiðlun hf., eigandi ís-
lenska útvarpsfélagsins, Samkeppn-
isstofnun kvörtun vegna þessa og
taldi sér mismunað.
I rökstuðningi fyrir úrskurðinum
segir að í áætlunum Landssímans
sé gert ráð fyrir að Breiðbandið
verði allsráðandi í flutningi fjar-
skipta innan örfárra ára. Sam-
keppnisráð telur að hugsanlega
muni þá hluti neytenda leggja af
loftnetstengingu og því ekki verða
fær um að taka á móti útvarpsmerki
Fjölmiðlunar.
Ónákvæmni í kynningu
Breiðbandsins
Fjölmiðlun hf. hefur einnig gert
athugasemdir við kynningu Lands-
símans á Breiðbandinu og telur
heiti þess villandi. Samkeppnisráð
gerir ekki athugasemd við notkun
orðsins breiðband en tekur undir að
ónákvæmni hafi gætt í kynningu
hinnar nýju tækni. Þeim fyrirmæl-
um er því beint til Landssímans að
gæta ýtrustu nákvæmni í þeim efn-
um í framtíðinni. I úrskurði Sam-
keppnisráðs kemur einnig fram að
það telur að núverandi staða á fjar-
skiptamarkaðnum stríði gegn því
markmiði samkeppnis- og fjar-
skiptalaga að komið verði á sam-
keppni í fjarskiptum. Ráðið bendir
á tvær leiðir til að bæta úr þessu.
Önnur þeirra er að Landssímanum
verði skipt upp í tvö fyrirtæki, ann-
að þeirra reki grunnkerfi en hitt
sinni almennri síma- og fjarskipta-
þjónustu. Hin leiðin er að rekstur
Breiðbandsins verði aðskilinn frá
annarri starfsemi Breiðbandsins,
helst með því að Landssímanum
verði gert að selja Breiðbandið.
Samkeppnisráð ákvað þó að grípa
ekki til slíkra aðgerða að svo
stöddu.
50 laxar á eina stöng á bremur dögum
Morgunblaðið/Jón Svavarsaon
STARFSMAÐUR Blaðadreifingar með fyrstu blöðin sem komu til
landsins.
Ágústhefti Playboy var leyst
úr tolli í gærmorgun
3.000 eintök til
landsins í stað 300
Metveiði í
Norðurá
MIKIL veiði hefur verið í Norð-
urá í Borgarfirði síðustu daga. Á
þremur dögum veiddust þar 202
laxar á 12 stangir. Þórarinn Sig-
þórsson og Ingólfur Ásgeirsson
settu nýtt veiðimet í ánni. Þeir
feng^u 50 Iaxa á eina stöng á þess-
um þremur dögum en gamla
metið var 48 laxar.
Þeir komu til Reykjavíkur í
gær með veiðina og voru að von-
um hinir ánægðustu, ekki síst í
ljósi þess að óveiðandi var í ánni
seinnipart þriðjudags vegna stór-
rigningar, „áin var eins og kókó“.
Þeir veiddu 34 laxa á flugu en
16 á maðk. „Það kom á óvart því
yfirleitt er maðkurinn sterkari
en nú kom flugan betur út,“ seg-
ir Þórarinn. Hann segir aflann að
megninu til þokkalega vænan
smálax. Tveir stærstu laxarnir
sem veiddust þessa daga voru 14
pund og fengu Þórarinn og
Ingólfur annan þeirra. Þórarinn
segir þá félaga byrja að veiða
klukkan 7 á morgnana og ekki
fari mínúta til spillis. „Enda er-
um við þreyttir og sæíir eftir
þessa ánægjulegu veiðiferð,"
segir Þórarinn.
Samkvæmt upplýsingum frá
Guðmundi Viðarssyni, veitinga-
manni við Norðurá, glæddist
veiðin þar mjög eftir að fór að
rigna og auk þess séu göngur
góðar. Veiðin hafi verið dræm
fram eftir sumri en nú séu bestu
skilyrði, stórstreymt og gott vatn.
Hann segir síðasta hóp hafa
veitt 133 fiska á þremur dögum
og það hafí þótt mjög gott. Fyrir
hádegi í fyrradag veiddust í
Norðurá 47 laxar á 12 stangir og
veiddu Þórarinn og Ingólfur þar
af 16 laxa.
ÞÓRARINN og Ingólfur með morgunveiði miðvikudagsins, 16 laxa.
ÁGÚSTHEFTI bandaríska karla-
tímaritsins Playboy var leyst úr
tolli í gær í tífalt meira magni en
venja er til. Kjartan Kjartansson
hjá Pennanum segir að 3.000
hefti hafi verið flutt til landsins
að þessu sinni en fjöldinn er að
jafnaði 300. Upplag tímaritsins
er miðað við pantanir að hans
sögn og því erfitt að fá fleiri ein-
tök bjóði kringumstæður upp á
það.
Segir Kjartan að tekist hafi
með ráðum og dáð að útvega
þennan aukna fjölda. Árangurinn
þakkar hann góðum samböndum
og segist telja að hægt hefði verið
að selja á annan tug þúsunda ein-
taka af ágústheftinu hérlendis.
í Eymundsson í Austurstræti
var búið að panta á íjórða tug
blaða í gærmorgun og sagði Kol-
brún Skaftadóttir að fólk væri
„alltaf að hringja" og spyrja um
blaðið. Einhverjir höfðu líka
mætt í verslunina strax við opn-
un í gærmorgun til þess að
kanna hvort Playboy væri komið.
Sagði Kolbrún að spurt hefði
verið eftir tímaritinu síðan í vor,
karlar jafnt sem konur.
Láta taka frá eintök
f Máli og menningu höfðu
margir látið taka frá eintak af
blaðinu í gær og sagði Gunnhild-
ur Kristjánsdóttir að verslunin
fengi um 80 stykki af Playboy að
þessu sinni í stað 10-20. „Það
hefur verið liringt og spurt eftir
blaðinu, eða fólk komið við í
versluninni, á hverjum degi í að
minnsta kosti tvær vikur,“ sagði
hún. Voru hinir áhugasömu af
báðum kynjum, ungar konur og
karlar á öllum aldri. Rosknar
konur höfðu ekki sýnt tímaritinu
mikinn áhuga að hennar sögn.
*
Osk Halldórs Guðbjarnason-
ar um rannsókn hafnað
BANKARÁÐ Landsbanka íslands
samþykkti í gær á fundi að hafna
óskum Halldórs Guðbjamasonar,
fyrrverandi bankastjóra, um að ráð-
ið láti fara fram frekari rannsókn á
því hvemig svarbréf bankans við
fyrirspurn á AJþingi um laxveiði-
ferðir urðu til.
Helgi S. Guðmundsson, formaður
bankaráðsins, sagði í samtali við
Morgunblaðið að lögmaður ráðsins,
Jón Steinar Gunnlaugsson, hefði
mætt á fundinn og lagt fram svar
sitt við greinargerð Halldórs Guð-
bjarnasonar og lögmanna hans en
sú greinargerð og svar Jóns Stein-
ars hefur áður birst í Morgunblað-
inu.
Helgi sagði að bankaróðið hefði
ákveðið að líta svo á að Halldór
hefði með bréfi sínu verið að biðja
um rannsókn á tilurð svarbréfanna
þrátt fyrir óljóst orðalag þar um í
greinargerð hans.
Vitum það sem
við getum vitað
„Niðurstaða bankaráðsins er sú
að við teljum ekki ástæðu til að gera
frekari athugun á því,“ sagði Helgi.
Hann sagði að bankaráðið hefði
sent Halldóri Guðbjarnasyni bókun
sem gerð var á fundinum. Hann vís-
aði því til Halldórs að gera efni bók-
unarinnar opinbert en sagði að þar
kæmi meðal annars fram að hvorki
bankaráðið né lögmaður þess hefðu
vefengt það sem Halldór hefur
haldið fram í málinu hvað hann
sjálfan varðar.
„Þannig að við sjáum ekki af
hverju hann er að biðja um þessa
athugun. Hann hefur útskýrt
hvemig hann kom að málinu. M.a.
að bankaráðið fékk hann sem
bankastjóra til þess að fara ásamt
tveimur öðmm ofan í þetta mál og
taka saman svar til viðskiptaráðu-
neytisins um það með hvaða hætti
þetta gerðist. Við teljum enga
ástæðu til að fara lengra í málinu.
Það hafí komið fram sem við teljum
að við getum vitað,“ sagði Helgi S.
Guðmundsson.
Morgunblaðið náði ekki tali af
Halldóri Guðbjarnasyni í gær-
kvöldi.
Ákært í
máli Galler-
ís Borgar
EMBÆTTI ríkislögreglustjóra gaf
1. júlí út ákæru á hendur Pétri Þ.
Gunnarssyni, forstöðumanni Gall-
erís Borgar. Verður hún þingfest í
Héraðsdómi Reykjavíkur 16. júlí
nk._
Ákæran er gefin út í framhaldi af
rannsókn ríkislögreglustjóra á
meintum málverkafölsunum og er
hér um að ræða hluta af því máli, að
sögn Þóris Oddssonar vararíkislög-
reglustjóra. Þórir vildi að öðru leyti
ekki tjá sig frekar um ákæruatriði.
Jón H. Snorrason, saksóknari í
efnahagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra, hefur stjórnað rannsókn
málsins og mun hann annast mál-
sóknina.
I
8 SÍDUR
Á FÖSTUDÖGUM
Bakarí fyrir Einkennis-
sælkera á m w 11 klædd með
flótta höfuðið hátt