Morgunblaðið - 10.07.1998, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
MORGUNB LAÐIÐ
FRÉTTIR
Varaformaður BHM
Smáleið-
rétting á
samkeppn-
isstöðu
UNNUR Steingrímsdóttir, varafor-
maður Bandalags háskólamanna,
segir að 50% hækkun á grunnlaun-
um til háskólaprófessora feli í sér
smáleiðréttingu á samkeppnisstöðu
háskólans í erfiðri baráttu um hæf-
ustu starfskraftana.
Unnur sagðist ekki hafa séð úr-
skurðinn og ekki vita annað um mál-
ið en það sem hún hefði séð í fjöl-
miðlum. „En sem háskólamaður veit
ég að háskólinn er langt frá því að
vera samkeppnisfær um hæft fólk á
vísindasviði í raun og veru þótt þar
vinni vissulega hæft fólk fyrir sult-
arlaun," sagði Unnur.
Hún sagði að íslenskt menntafólk
sem ákvæði að koma heim til starfa
við háskólann færði miklar fórnir í
launum því að þetta fólk væri gjald-
gengt til starfa við erlenda háskóla
þar sem miklu betri laun væru í
boði.
Háskólinn nálgast
að vera samkeppnisfær
Hún sagði að eftir þessa hækkun
nálgaðist háskólinn það að vera
samkeppnisfær í bili þótt enn vant-
aði mikið á að hann og íslenskt at-
vinnulíf almennt mætu þekkingu að
verðleikum og væru samkeppnisfær
í alþjóðlegri samkeppni þar sem
þekkingarþjóðfélög á upplýsingaöld
borguðu góð laun fyrir þekkingu.
Unnur sagði einnig að sér fyndist
fáránlegt að háskólaprófessorar
væru sviptir rétti til að semja um
kaup sitt og kjör og bundnir við úr-
skurð stofnunar eins og Kjaranefnd-
ar.
Um fordæmisgildi hækkunarinn-
ar fyrir aðra hópa háskólamanna
sagði Unnur að hækkunin hefði
áreiðanlega visst fordæmisgildi en
samningar væru ekki lausir fyrr en í
lok ársins 2000 og engar aðgerðir
yrðu fyrr en þá nema það sem ein-
staklingsbundnar kynnu að ákveða
hver fyrir sig.
Andlát
BALDUR
BJARNASON
í VIGUR
BALDUR Bjarnason, bóndi í Vigur í
ísafjarðardjúpi, lést á miðvikudag,
79 ára að aldri.
Baldur var fæddur 9. nóvember
árið 1918. Hann starfaði mikið að fé-
lagsmálum í sinni sveit; var oddviti
og sýslunefndarmaður og virkur í fé-
lagsmálum síns héraðs.
Árið 1953 tók Baldur við búi í Vig-
ur af foreldrum sínum, Bjarna Sig-
urðssyni og Björgu Björnsdóttur,
ásamt eiginkonu sinni, Sigríði Sal-
varsdóttur og bróður sínum, Birni.
Arið 1985 hætti hann búskap í Vigur
og synir þeirra Baldurs og Sigríðar
tóku þá við.
Baldur kvæntist eftirlifandi konu
sinni 14. júlí 1951 og eignuðust þau
fimm börn og lifa þau fóður sinn.
ASÍ og VSÍ um 50% hækkun grunnlauna prófessora
Áhyggjur af hækkunum
í opinbera geiranum
FORSVARSMENN aðila vinnu-
markaðarins segjast hafa áhyggjur
af því að opinberir starfsmenn fái
mun meiri hækkanh- en samið var
um í almennum kjarasamningum.
Þetta kom fram í viðbrögðum fram-
kvæmdastjóra ASÍ og VSÍ við
fregnum af úrskurði kjaranefndar
um hækkanir á launum prófessora.
„Eg hef ekki séð þennan úr-
skurð. Ég veit ekki hvað er að
ganga inn í þetta eða hvaða hækk-
unaráhrif þetta hefur og hef raunar
ekki yfirlit yfir það hvað hefur verið
að gerast í háskólanum þannig að
ég get ómögulega tjáð mig um
það,“ sagði Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambands Islands.
„Ég hef hins vegar áhyggjur af
því að mér sýnist að launahækkanir
í opinbera kerfinu séu mjög miklar
bæði samkvæmt lögmætum
ákvörðunarferlum, eins og hér er
um að tefla, og þá ekki síður niður-
stöður út úr ólöglegum aðgerðum á
borð við þær sem hjúkrunarfræð-
ingar hafa staðið fyrir og fleiri
stéttir hafa boðað að þær hyggist
grípa til. Það er mér mikið
áhyggjuefni,“ sagði Þórarinn.
Ari Skúlason, framkvæmdastjóri
Alþýðusambands Islands, sagðist
ekki hafa séð og kynnt sér úrskurð
Kjaranefndar, aðeins heyrt af hon-
um í fjölmiðlum. „Þar af leiðandi
finnst mér erfitt að segja til um
þetta,“ sagði Ari. Hann sagði að
einnig virtist sér sem niðurstöðu í
þessu máli hefði verið beðið í eitt og
hálft ár og það vekti sig til umhugs-
unar um hve hentugur aðili kjara-
nefnd væri til að úrskurða í svona
málum.
„Ég veit að prófessorar hafa beð-
ið eftir niðurstöðu í óralangan tíma.
Það flækir málið. Svo er greinilegt
af því sem ég hef heyrt úr fréttum
að þarna er verið að gera breyting-
ar á vinnufyrirkomulagi; yfirvinnu-
greiðslum og slíku," sagði hann.
Ýmsir fyrirvarar
„Þannig að það þarf að hafa
ýmsa fyrirvara en þegar maður
heyrir tölurnar lykta þær óneitan-
lega af því að þarna sé einn hópur-
inn enn í þjónustu ríkisins að fá
verulega umfram það sem aðrir
hafa fengið. Það verður náttúrlega
bara til þess að það, sem kraumar
ofan í pottinum, hitnar ennþá
meira.“ Hann sagði að nú þegar
þetta bættist við hækkanir til
lækna, hjúkrunarfræðinga og það
sem aðrir hópar hafa fengið um-
fram það sem samið var um í al-
mennu kjarasamningunum virðist
allt hníga í sömu áttina.
Ari sagði að málið liti þannig út
að ríkið, sem tók þátt í því fyrir
rúmu ári að sátt komst á um kjara-
stefnu, sé nú á góðri leið með að
koma málum þannig fyrir að flestir
eða allir séu orðnir ósáttir. „Það er
svo greinilegt að sumir fá miklu
meira en aðrir. Það verður til þess
að vandræðin verða miklu meiri
þegar lokinu verður lyft af pottin-
um, hvort sem það verður þegar
samningar renna út, eða hvort
þetta brýst út með einhverjum
hætti fyrr, sem er erfitt að segja til
um,“ sagði Ari Skúlason.
Hjálpar-
stofnunin
aðstoðar
í Suður-
Súdan
HJÁLPARSTOFNUN kirkjunnar
hefur sent sem svarar einni milljón
króna til hjálparstarfa í Suður-
Súdan. Jónas Þórisson, fram-
kvæmdastjóri stofnunarinnar, seg-
ir ástandið í landinu slæmt, hund-
ruðum þúsunda manna sé ógnað af
hungursneyð sem stafi af stríðsá-
tökum og þurrkum.
Alþjóðásamtök kirkjuhjálpar-
stofnana í Genf hafa beðið aðildar-
kirkjur um að bregðast skjótt við
með framlög en hjálparstarf í Suð-
ur-Súdan er þegar byrjað. Hjálp-
arstofnun kirkjunnar leitar nú
jafnframt til landsmanna um fram-
lög í verkefnið og verður söfnunar-
reikningur hjá SPRON opinn út
ágúst. Reikningsnúmerið er 1150-
26-9800.
„Neyðin fer ekki í frí og þess
vegna hvet ég landsmenn til að
bregðast við með framlögum og
þar skipta öll framlög máli þegar
þau safnast saman,“ sagði Jónas
Þórisson.
Morgunblaðið/Arnaldur
CHEN Yuao náði bestum árangri á Ólympíuleikunum í eðlisfræði.
Ólympfuleikarnir f eðlisfræði
Kínverjar sigursælir
JÓN Eyvindur Bjarnason var
hæstur fslensku keppendanna.
Þegar litið er á röð keppenda
virðast Norðurlandabúar al-
mennt raða sér í neðri sætin.
Fjórir Danir fengu viðurkenn-
ingu fyrir góðan árangur en
engin viðurkenning kom í hlut
norska, sænska og finnska liðs-
ins.
^ Viðar segir aðstandendum
Ólympíuleikana á íslandi mikið
hafa verið hrósað fyrir fram-
kvæmd og skipulagningu leik-
anna sem og fyrir verkefnin
sem lögð voru fyrir keppendur.
„Við erum vitaskuld ánægð með
það og þá vakningu sem orðið
hefur í eðlisfræðiheiminum á Is-
landi í tengslum við fram-
kvæmdina.“
VERÐLAUN á Ólympíuleikun-
um í eðlisfræði voru veitt við
hátíðlega athöfn í Háskólabíói í
gær. Chen Yuao frá Kína var
stigahæstur keppenda, hlaut
47,5 stig af 50 mögulegum.
Yuao hlaut sérstök verðlaun
fyrir þann árangur og gullverð-
laun. Þau eru veitt öllum kepp-
endum sem eru með yfír 90%
árangur miðað við meðaltal
þriggja efstu keppenda og voru
11 þátttakendur sem náðu þeim
árangri. Þar á meðal var allt
kínverska Iiðið, fimm manns,
tveir Rússar, einn Pólverji og
einn keppandi frá Iran.
Að sögn Viðars Ágústssonar
hafa Kínveijar staðið sig mjög
vel á undanfómum Ólympíuleik-
um. „Kínveijar hafa úr svo
mörgum að velja auk þess sem
þeir hefja þjálfun efnilegra eðl-
isfræðinema á unga aldri þannig
að þetta á sér sínar skýringar."
Ein viðurkenning
til íslendinga
Alls vora veitt 136 verðlaun
og viðurkenningar á Ólympíu-
leikunum en keppendur voru
BJÖRN Bjarnason menntamálaráðherra afhenti keppendum verð-
launin.
260. Fimmtán keppendur hlutu
silfurverðlaun sem veitt eru fyr-
ir yfir 78% árangur, 43 brons-
verðlaun sem veitt eru fyrir yfir
65% árangur og 67 hlutu viður-
kenningu fyrir yfír 50% árang-
ur miðað við meðaltal þriggja
efstu keppenda.
Einn Islendingur var í hópi
verðlaunahafa, Jón Eyvindur
Bjarnason. Jón var í 113.-114.
sæti keppninnar og hlaut viður-
kenningu fyrir árangurinn. Jón
hlaut einnig viðurkenningu á
Ólympíuleikunum í fyrra og
segir Viðar árangur íslensku
keppendanna svipaðan og und-
anfarin ár.