Morgunblaðið - 10.07.1998, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tryg-gvi Árnason, fram-
kvæmdastjóri Jöklaferða
Veðurhæð ekki
orsök hrakn-
inganna
Morgunblaðið/RAX
TRYGGVI Árnason, framkvæmdastjóri Jöklaferða, sem stendur fyrir
vélsleða- og snjóbflaferðum yfir Vatnajökul.
TRYGGVI Árnason, framkvæmda-
stjóri Jöklaferða, segir veðurhæð-
ina ekki hafa verið orsök hrakning-
anna sem hópur Norðmanna og Is-
lendinga lentu í á miðvikudags-
kvöld og aðfaranótt flmmtudags.
Hann segir þoku og slæmt
skyggni, sem hann hafi ekki gert
ráð fyrir þegar hópurinn lagði af
stað, vera orsökina, og það hafí
valdið því að annar þeirra sem
leiddi vélsleðahópinn varð viðskila
við hann.
„Veðrið var ekkert verra en við
bjuggumst við og þegar við lögð-
um upp var veðrið ekki slæmt. Það
var þó nokkuð kaldara í veðri en
við bjuggumst við, en við vissum af
5 til 6 vindstiga strekkingi. Það
var ekki veðurhæðin sem olli
óhöppunum. Hún hafði áhrif á
hvernig fór, en var ekki orsökin.
Við höfum margsinnis farið þessa
leið yfíi- jökulinn í svipuðu veðri og
ekkert hefur komið uppá. Við höf-
um langa reynslu af þessum ferð-
um, höfum verið að síðan 1985 og
oftsinnis í veðri sem slíku,“ sagði
Tryggvi í samtali við Morgunblað-
ið í gær.
Þrátt fyrir viðvaranir Veðurstofu
íslands ákvað Tryggvi að hópurinn
skyldi halda yfír jökulinn. Hann
segist hafa skoðað spár annarra
veðurstofa sem og veðurspá á net-
inu og ekkert hafí gefið ástæðu til
að halda ekki af stað.
Fínt veður
sunnan megin
„Eftir nákvæma skoðun á veður-
spám mat ég stöðuna svo að við
skyldum ekki hætta við ferð yfir
jökulinn. Það var fínt veður sunnan
megin þegar lagt var af stað, en
það hafði e.t.v. einhver áhrif að við
lögðum af stað svolítið seinna en
vanalega."
Tryggvi kvað þéttleika þokunnar
hafa komið þeim nokkuð á óvart.
Hann sagði að farið væri eftir mjög
ákveðnum reglum sem væru
brýndar fyrir ferðamönnunum áð-
ur en lagt væri upp. Farið væri í
einfaldri röð, starfsmenn Jökla-
ferða væru fremst og aftast og ef
menn töpuðu sleðanum á undan þá
ætti að stoppa.
Reglum var fylgt
„Reglunum var fylgt í þessu til-
viki eins og öðrum, en það sem brá
útaf í þetta skiptið var að þegar sá
fremsti fór til baka til að leita
hinna, missti hann af þeim og fór
framhjá. Þetta leiddi til þess að
hópurinn tvístraðist sem er jafn-
framt orsök atburðarásarinnar.
Þar að auki var fjarskiptasamband
slæmt og það var meginorsök þess
að svo fór sem fór. Það þarf að
setja upp annan endurvarpa fyrir
VHS-talstöðvasamband þarna
uppi. Það er aðalvandamál allra
sem ferðast á jöklinum hvað fjar-
skiptasamband þar er léiegt, og
sumstaðar ekkert. Þetta er eitt-
hvert brýnasta verkefnið fyrir alla
aðila að bæta úr. Þetta er ófremd-
arástand," sagði Tryggvi
Alþýðubandalagið
*
Ursagnir á
Akureyri,
Egilsstöð-
um og
Raufarhöfn
FJÓRTÁN af sautján félögum
í Alþýðubandalagsfélagi Rauf-
arhafnar sögðu sig úr flokkn-
um á félagsfundi í gærkvöldi.
Fundurinn samþykkti ein-
róma ályktun þar sem lýst var
stuðningi við sjónarmið Stein-
gríms J. Sigfússonar varðandi
samfylkingarmál félagshyggju-
flokkanna en ályktun auka-
landsfundar flokksins um sam-
eiginlegt framboð flokkanna
var gagnrýnd.
Þrír af fímm stjórnarmeð-
limum í Alþýðubandalagsfélagi
Akureyrar og sjö aðrir félags-
menn hafa gengið úr flokknum.
Fyrir úrsagnirnar var 81 mað-
ur í félaginu.
Tveii' stjórnarmenn í Al-
þýðubandalagi Héraðsmanna
og níu aðrir félagsmenn gengu
einnig úr Alþýðubandalaginu á
félagsfundi í gærkvöldi. Einn
maður gekk í félagið. Að sögn
Sigurjóns Bjarnasonai', for-
manns félagsins, voru félags-
menn 26-27 fyrir fundinn.
Stjómaiinennirnii' sem hafa
yfirgefið Alþýðubandalagsfélag-
ið á Akureyri eru Ólafur Þ.
Jónsson varaformaðui', Kristín
Sigfúsdóttir ritari og Björn
Guðmundsson meðstjómandi. Á
Egilsstöðum gengu úr félaginu
Björn Vigfússon ritari og Þor-
steinn Bergsson meðstjórnandi.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hefur Áifheiðui'
Ingadóttir, fynverandi vara-
þingmáðui' Aiþýðubandalagsins
í Reykjavík, einnig sagt sig úr
flokknum.
Fundur á Kópaskeri
styður formanninn
Fundur Alþýðubandalags-
fólks á Kópaskeri samþykkti í
gær ályktun þar sem fagnað er
samþykkt landsfundar flokks-
ins um sameiginlegt framboð
stjórnarandstöðuflokkanna og
Margi'éti Frímannsdóttur for-
manni þökkuð vel unnin störf. í
ályktuninni er hörmuð sú
ákvörðun Steingríms J. Sigfús-
sonar að segja sig úr flokknum.
Ferðamenn í hrakningum árið 1995
FYRIR þremur árum lentu ísraelskir ferða-
menn í hrakningum á Vatnajökli og er eftirmál-
um þeirrar ferðar ekki lokið enn.
Hópur ísraelskra ferðamanna, sem var hér á
vegum Samvinnuferða-Landsýnar, lagði af stað í
ferð á Vatnajökul á vegum Jöklaferða hinn 20.
ágúst 1995, klukkan átta að morgni. Síðdegis
skall á ofsaveður, hríð og 10-12 vindstig. Björg-
unarsveitir voru kallaðar út þegar fólk skilaði
sér ekki til byggða og þegar ljóst var að ekki
treystu allir sér til að ganga niður af jöklinum
var kallað á þyrlu Landhelgisgæslunnar sem
flutti fólkið á sjúkrahús Akureyrar. ísraelsku
ferðamönnunum, sem ekki voi-u vanir jöklaferð-
um, var mörgum mjög brugðið eftir ferðina.
í fréttum Morgunblaðrins frá þessum tíma
kemur fram að Tryggvi Árnason hjá Jöklaferð-
um segist ekki hafa heyrt neina veðurspá sem
lýsti þessu veðri og svaraði Einar Sveinbjörns-
son því með því að spáð hefði verið 7-8 vindstig-
um á hálendinu og vanir fjallamenn vissu að
óhætt væri að bæta 1-2 vindstigum við þegar
farið væri á jökul.
Mál höfðað á hendur
Samvinnuferðum-Landsýn
Þau eftii-mál urðu af þessari för að tveir ferða-
langanna, Emanuel Blass og eiginkona hans, af-
réðu að leita réttar síns fyrir dómstólum. Blass
skrifaði samgöngumálaráðuneytinu bréf í nóv-
ember 1995 og krafðist þess að íslensk stjórn-
völd skipuðu rannsóknarnefnd til að kanna slysið
til hlítar. í apríl 1996 svaraði ráðuneytið bréfinu
þannig að eftir að hafa safnað upplýsingum hjá
viðkomandi aðilum væri ekki talin ástæða til
frekari rannsóknar.
Páll A. Pálsson sem er lögfræðingur Blass
hjónanna hér á landi segir að málið verði líklega
þingfest í haust, enn hafi ekki öll gögn sem talin
eru koma að gagni borist. „Blass og eiginkona
hans urðu fyrir miklu andlegu áfalli í ferðinni en
ekki var boðið upp á áfallahjálp að hrakningunum
loknum eins og hefði verið eðlilegt. Þau hyggjast
fara í mál við Samvinnuferðir-Landsýn sem
skipulagði ferð þein-a hér á landi,“ segir Páll.
Nauðsynlegt að skoða og túlka veðurspár út frá landslagi og vindstyrk
Eru veðurspár á vefn-
um áreiðanlegar?
S s
I kjölfar atburðanna á Vatnajökli og ummæla Tryggva Arnason-
ar, framkvæmdastjóra Jöklaferða, um að hann hefði metið veður-
spár sem hann skoðaði á vefnum þannig að óhætt væri að senda
fólk á jökulinn hafa vaknað upp spurningar um síkar veðurspár.
EINAR Sveinbjömsson, veður-
fræðingur á Veðurstofu Islands,
segir tölvuspár hafa ýmislegt til
síns ágætis en ekki sé hægt að
treysta þeim að öllu leyti.
,ýlilar þessar spár, sem em á
Netinu með flottri grafík og hönn-
un, eiga það sameiginlegt að þetta
eru bara hráar keyrslur úr tölvum.
Það er bara tekið veður úr þeim
punkti sem er næstur hverjum
stað. Þetta gengur oft ágætlega yf-
ir hafi og láglendi en það verða
alltaf vandræði þegar talað er um
fjöll og strandsvæði." Einar segir
nauðsynlegt að skoða spár út frá
fleiri þáttum eins og t.d. veðurmæl-
ingum og hvemig vindur hagar
sér.
Einar segir að þrátt fyrir að
tölvuspár verði sífellt áreiðanlegri
lendi líkön alltaf í vandræðum þar
sem er mishæðótt landslag og lík-
önin verða að líkja eftir landslagi.
„Það þarf alltaf að túlka spárnar
áfram. Landslagið eins og á Islandi,
allir þessir firðir, fjöll og dalir, hafa
gífurleg áhrif á gmnnvindinn og í
túlkuninni kemur til okkar kasta.
Við byggjum spár okkar á veðurat-
hugunum hér á landi, auk greining-
ar veðurkorta, þ.e.a.s. greiningar
veðursins eins og það er núna. Við
notum líka gervitunglamyndir,
tengjum þetta saman við tölvu-
spámar og okkar eigin reynslu.
Hér skiptir reynsla veðurfræðings-
ins og þekking á því hver áhrif
landsins eru á veðrið miklu máli.“
Spár á vefnum
misvandaðar
Björn Erlingsson forstöðumaður
haf- og lofthjúpsfræðistofunnar
Halo sem birtir veðurspár á vefn-
um segir það rétt að sumar spár á
vefnum séu mjög ónákvæmar, það
eigi hins vegar ekki við um spár
Halo og ekki sé réttmætt að setja
allar spár á vefnum undir einn
hatt. Bjöm segir líkanakerfið
sem Halo noti hannað hér og er-
lendis og ýmis gögn keyrð í gegn-
um kerfið til að fá sem nákvæmast-
ar spár. „Lýsing á lofthjúpnum
sem við vinnum út frá er byggð á
mælingum sem eru sendar frá ís-
landi í alþjóðlega gagnagranna.
Þegar þær upplýsingar berast era
þær settar inn í líkön og stilltar
saman við aðrar upplýsingar eins
og frá skipum og loftbelgjum og
fleira. Þegar við tökum við er búið
að vinna úr veðurathugunum en við
bætum sjávarhitamælingum frá
gervitunglum inn í veðurspárlíkön-
in og fáum þannig betri spár.“
Björn segir veðurlíkanagögn á
Netinu gjarnan byggð á líkana-
granni þar sem er 200 km bil á
milli punkta. „Það er auðvitað
meingallað vegna þess að það er
svo mikill munur frá strönd inn á
hálendi. Líkönin okkar era svo með
hærri upplausn í tíma og rúmi en
margar aðrar stöðvar á Netinu. Við
erum með hæðalínur sem eru ná-
kvæmari en þessi grannlíkön sem
við byrjum með. f stað 200 km á
milli punkta höfum við 20-30 km á
milli punkta. Svo setjum við okkar
gögn upp í eðlisfræðilíkan þar sem
varðveislulögmál eðlisfræðinnar
era tekin með þannig að gert er
ráð fyrir mishæðóttu landslagi."
Ekki aðgerða-
hvetjandi spár
Björn bendir á að spár þeirra
séu ekki aðgerðahvetjandi á neinn
hátt þannig að það velti á skoðand-
anum að lesa úr upplýsingunum.
„Við birtum t.d. alltaf spár sem
sýna hitastig, vindhraða og úr-
komu á sérkortum og það þarf auð-
vitað að lesa það saman. Það er
vandfundinn betri miðill til miðlun-
ar upplýsinga en vefurinn og við
veitum notendum okkar t.d. miklu
meira aðgengi að gögnum en Veð-
urstofan."
Tryggvi Árnason segir að hann
hafi skoðað margar spár á vefnum,
frá Veðurstofunni, Halo og ýmsum
erlendum aðilum og það sem hann
hafi lesið þar hafi nokkurn veginn
komið heim og saman við veðrið
sem var á jöklinum á miðvikudags-
kvöld. Það að ferðamennirnir hafi
lent í hrakningum eigi sér aðrar
skýringar.
\
I
t
I
t
I
:
L
I
I
I
!