Morgunblaðið - 10.07.1998, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Samkeppnisráð um opinberan fjárstuðning bæjarins við Slippstöðina
Rekstur flot-
kvíar verði
Samnor hefur gjörbreytt Hafnarstræti 100 f miðbæ Akureyrar
boðinn út
SAMKEPPNISRÁÐ álítur að
bjóða hefði átt út rekstur flotkvíar
á Akureyri, en upptökumannvirkin
voru styrkt með framlögum úr rík-
issjóði. Beinir Samkeppnisráð því
til Akureyrarbæjar að flotkvíin
verði boðin til leigu með formleg-
um hætti í útboði þegar núgildandi
leigusamningur við Slippstöðina hf.
rennur út.
Samkeppnisráð birti í gær álit
sitt á kvörtun um opinberan stuðn-
ing Akureyrarbæjar til Slippstöðv-
arinnar, en síðasta haust barst
Samkeppnisstofnun erindi frá
Stálsmiðjunni, sem taldi að leigu-
kjör þau sem Slippstöðin nyti hjá
bænum vera opinberan fjárstuðn-
ing við fyrirtæki sem starfaði á
samkeppnismarkaði. Samkvæmt
lauslegum samanburði á leigukjör-
um Stálsmiðjunnar hjá Reykjavík-
urborg og Slippstöðvarinnar hjá
Akureyrarbæ væri verulegur mun-
ur á. I lágri leigu felist opinber fjár-
stuðningur, en öðrum fyrirtækjum
hafí ekki verið gefinn kostur á að
leigja þessi ríkisstyrktu mannvirki
bæjarins. Leigan raski samkeppn-
isstöðu og sé í andstöðu við mark-
mið samkeppnislaga. Þannig hafi
stöðinni verið veitt forréttindi og
vegna þess geti hún tekið að sér
stærri verkefni en önnur fyrirtæki í
skipasmíðaiðnaði ráði við.
Ekki leigð á kjörum undir
markaðsverði
Akureyrarbær fellst ekki á að
upptökumannvirkin séu leigð
Slippstöðinni á kjörum undir
markaðsverði né heldur að um op-
inbera ívilnun til samkeppnisaðila
sé að ræða. Aðstoð sú sem um ræð-
ir byggist á framlagi rikissjóðs og
sé veitt á grundvelli hafnalaga og
sé það heimilt samkvæmt niður-
stöðu Eftirlitsstofnunar EFTA á
grundvelli samnings um Evrópska
efnahagssvæðið. Utboðsleiðin hafi
ekki verið farin þar sem forsendur
hafi ekki verið til þess. Þá hafi eng-
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
GERT við skrúfu Brettings í flotkví Akureyrarbæjar í gærdag.
ar fyi-irspurnir né áskoranir borist
frá öðrum en Slippstöðinni um að
leigja flotkvína.
I áliti samkeppnisráðs kemur
fram að bjóða hefði átt út rekstur
upptökumannvirkjanna. „Það að
ganga til samninga við einn aðila á
samkeppnismarkaði í tilviki sem
þessu, án þess að hafa áður gefið
öðrum á sama markaði kost á að
leggja fram tilboð hvetur ekki til
samkeppni. Wert á móti má gera
ráð fyrir að slík ráðstöfun skerði
samkeppni á markaðnum þar sem
hún rýrir með ósanngjörnum hætti
samkeppnisstöðu annarra á mark-
aðnum og tryggir ekki jöfn sam-
keppnisskilyrði þeirra,“ segir í áliti
ráðsins. Það að nú sé starfrækt
önnur flotkví í landinu sem ekki
nýtur sams konar styrkja og kvíin
á Akureyri styðji það álit ráðsins
að bjóða hefði átt út reksturinn.
Beinir samkeppnisráð því til
Akureyrarbæjar með vísan til
markmiðs samkeppnislaga að þeg-
ar núgildandi samningur við Slipp-
stöðina rennur út verði upptöku-
mannvirkin boðin til leigu með
formlegum hætti í útboði.
Tólf nýj ar íbúðir
í hjarta bæjarins
MIKLAR endurbætur hafa verið
gerðar á húsinu númer 100 við
Hafnarstræti við göngugötuna í
miðbæ Akureyrar, en þar hafa
nú verið gerðar tólf íbúðir. Húsið
hefur tekið algerum stakkastipt-
um frá því þar var rekinn
skemmtistaðurinn H-100. Það er
fyrirtækið Samnor sem staðið
hefur að framkvæmdum, eigandi
þess er Reynald Jónsson.
„Ég keypti húsið í september á
síðasta ári og frá þeim tíma hafa
staðið yfir miklar framkvæmdir.
Það var nánast ekkert eftir af
húsinu nema útveggir og ein-
hverjir milliveggir héldu sér
einnig, alltannað er nýtt. „Þakið
á húsinu reyndist ónýtt þegar til
átti að taka, þannig að við rifum
það af og byggðum eina hæð of-
an á, sem nú er fimm hæðir,“
segir Reynald.
Opið hús á morgun
Fjöldi iðnaðarmanna hefur unn-
ið við breytingar á húsinu frá því
framkvæmdir hófust og var nú í
vikunni verið að leggja lokahönd
á verkið. Akureyringum og gest-
um gefst kostur á að skoða íbúð-
imar á morgun, laugardag, frá kl.
13 til 18, en þá verður opið hús.
Sem fyrr segir eru í húsinu
tólf íbúðir og eru fjórar þeirra
seldar. Starfsmannafélag Lands-
bankans sem á eina þeirra hefur
þegar tekið sína íbúð í notkun.
Fjórar íbúðir eru á hverri hæð,
tíu íbúðanna eru tveggja her-
bergja og um fímmtíu fer-
metrar að stærð, en á efstu
hæðinni eru tvær stærri íbúðir,
um 130 fermetrar, fjögurra til
fimm herbergja og á tveimur
hæðum.
Hann sagðist vel kunnugur
fyrir norðan, er fæddur og upp-
alinn á Dalvík, „þannig að ég
þekki vel til hér á svæðinu“,
sagði hann. Forsaga þess að
hann fór út í þetta ævintýri er sú
að fyrirtæki hans, Alno, hafði
gert tilboð í innréttingar vegna
íbúða sem annað fyrirtæki hugð-
ist gera í húsinu. Það gafst hins
vegar upp og afréð Reynald að
taka við verkinu. „Þetta er auð-
vitað afskaplega mikil áhætta, en
spennandi verkefni og það hefur
verið gaman að standa í þessu,
en ég hef haft einstaklega lag-
henta og góða menn með mér
héðan að norðan. Ég hef kapp-
kostað að vanda til verks,“ sagði
Reynald.
HÚSIÐ hefur tekið algjörum stakkaskiptum og er að því mikil prýði.
Fjórar myndlistar-
sýningar á Listasumri
FJÓRAR myndlistarsýningar
verða opnaðar á Akureyri í tengsl-
um við Listasumar, í dag, föstudag
og á morgun, laugardag. Þá var ein
sýning opnuð í gær.
Hestar
Baltasar opnar sýningu í Ketil-
húsinu kl. 18 í dag, en þar gefur að
líta 15 ný verk sem öll tengjast
hestum. Þema sýningarinnar eru
hestar í uppiifun listamannsins á
ferðalögum. Sýningin stendur til
26. júlí næstkomandi og er opin frá
14 til 18, en um helgina verður
einnig opið frá kl. 19 til 22.
Hausar
Hausar er yfirskrift samsýning-
ar 27 myndlistamanna á portrett-
myndum í víðasta skilningi hug-
taksins. Aðalsteinn Svanur Sigfús-
son á Akureyri er frumkvöðull sýn-
ingarinnar. Sýningin verður opnuð
í Deiglunni kl. 16 á laugardag, 11.
júlí en við það tækifæri mun hin
góðkunna hljómsveit Helgi og
hljóðfæraleikararnir gleðja eyru
gesta. Sýningin stendur til 26. júlí
og er opin daglega frá kl. 14 til 18.
Naflaskoðun
David Hebb opnar sýningu í
Ljósmyndakompunni kl. 14 á laug-
ardag, en hún ber yfirskriftina
„Naflaskoðun“. David dvaldi í
gestavinnustofu Gilfélagsins í vet-
ur og hefur verið að vinna að úti-
listaverki í Hrísey. Hann er Banda-
ríkjamaður og lærði kvikmynda-
gerð, en lauk námi í málara- og
skúlptúrdeild háskólans í Montana
í fyrra. Ljósmyndakompan er opin
þriðjudaga til laugardaga frá kl. 14
til 17.
Finna hlut
Joris Jóhannes Rademaker sýn-
ir ný verk í Gallerí-t- við Brekku-
götu 35, þrjár helgar í röð nú í júlí.
Sýningin er óvenjuleg að því leyti
að hún er þrískipt, en yfirskriftin
er „Finna hlut“. Fyrsta sýningin er
kölluð „Safnai-inn“ og verður hún
dagana 11. til 12. júlí, sú næsta er
„Ópið“ og síðasta sýningin heitir
„Leit að vatni“ en hún stendur 25.
og 26. júlí.
Galleríið er opið frá kl. 14 til 18
laugardaga og sunnudaga.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
REYNALD Jónsson í einni af íbúðunum sem gerðar hafa verið í húsinu
í Hafnarstræti 100, við göngugötuna í miðbæ Akureyrar.
Smygl
fannst í
Dettifossi
TOLLGÆSLAN á Akureyi-i
upplýsti á miðvikudag smygl á
253 flöskum af áfengi, 73
kartonum af sígarettum og 5
kössum af bjór.
Tollgæslan var við venju-
bundin eftirlitsstörf um borð í
Dettifossi, skipi Eimskipafé-
lagsins, á miðvikudagskvöld
þegar smyglvamingurinn
fannst þar. Að sögn tollgæsl-
unnar á Akureyi'i liggur játn-
ing nokkurra manna fyrir og
telst málið að fullu upplýst.
Amí sýnir á
veitingahúsinu
Yið Pollinn
ANNA María Guðmann, Amí,
opnar sýningur á verkum sín-
um á veitingahúsinu Við Poll-
inn á laugardagskvöld, 11. júlí,
kl. 21.
Þetta er fjórða einkasýning
Amíar. I sumar mun hún efna
til þriggja sýninga og er þetta
hin fyrsta í röðinni. Sýningin
stendur í fjórar vikur og er op-
ið frá kl. 20.
Rangt
nafn
ÞAU leiðu mistök voru gerð í
frétt af andláti Guðmundar
Sigurbjörnssonar hafnar-
stjóra á Akureyri sem birtist í
Morgunblaðinu í gær, að nafn
eftirlifandi eiginkonu hans
misritaðist. Hún heitir Bjarn-
ey S. Sigvaldadóttir. Beðist er
afsökunar á þessum mistök-
um.
Messur
Möðruvallaprestakall:
Guðsþjónusta verður í Glæsi-
bæjarkirkju næstkomandi
sunnudag, 12. júlí kl. 14 og í
Skjaldarvík kl. 15.30. Kór
kirkjunnar syngur, organisti
er Birgir Helgason. Skírt
verður í guðsþjónustunni í
Glæsibæ.
AKSJON
Föstudagur 10. júlí
21.00^-Sumarlandið Þáttur
fyrir ferðafólk á Akureyri og
Akureyringa í ferðahug.