Morgunblaðið - 10.07.1998, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998 17
LANDIÐ
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
NOKKRIR íbúa í íbúðum aldraðra setjast að borði
í nýrri aðstöðu í fyrsta sinn.
Ba'jarstjóri
ráðinn á
Húsavfk
Húsavík - A fundi bæjarstjómar
Húsavíkur hinn 6. júlí var endan-
lega gengið frá ráðningarsamningi
við Reynhard Reynisson, fyrrver-
andi sveitarstjóra á Þórshöfn, sem
nýjan bæjarstjóra á Húsavík.
Hann tekur við starfinu 17.
þessa mánaðar. Tólf sóttu um
starfið.
Á myndinni er nýja bæjarstjómin
á Húsavík. Fremri röð skipar
meirihlutann, með forseta bæjar-
stjómar fyrir miðju.
Morgunblaðið/Silli
Aukin
þjónusta
við aldraða
Þorlákshöfn - Það eru ekki
nema tíu ár síðan uppbygging
á þjónustu við aldraða hófst í
Þorlákshöfn. Þá var byggð
íbúðarlengja með átta íbúðum
og sal til sameiginlegra þarfa,
samkomuhalds, tómstunda og
fleira. Fyrir tveimur árum var
ein íbúðin tekin undir dagdvöl
og mötuneyti fyrir eldri borg-
araq sem þess óskuðu, en sú
íbúð hafði staðið ónotuð um
tíma. Nú hefur eftirspurn eft-
ir íbúðum aukist aftur og varð
því að færa dagdvölina og
mötuneytisaðstöðina í salinn.
Heimilishjálp við aldraða
hefur stóraukist á þessum ár-
um og fá allir sem búa í eigin
húsnæði aðstoð einu sinni til
tvisvar í viku auk þess nýta
nokkrir íbúanna sér mötuneyt-
isaðstöðuna. Nú er í gangi und-
irbúningur að nýrri byggingu
við íbúðir aldraðra en þar er
fyrirhugað að verði þjónustu-
aðstaða og íbúðarálma. Fyrir-
hugað er að heija framkvæmd-
ir á næsta ári.
Aurskriða
lokaði
Norður-
landsvegi
AURSKRIÐA féll á miðviku-
dag í Botnastaðabrekku fyrir
ofan Húnaver. Jarðvegur lok-
aði veginum á nokkurra metra
kafla, einhverjar tafir urðu á
umferð en engin slys. Fljótt
var brugðist við og jarðvegin-
um mokað af veginum með
gröfu og telur lögreglan á
Blönduósi að vegurinn hafi
verið lokaður í um hálftíma.
Að sögn lögreglu virðist sem
stór torfa hafi losnað vegna
mikilla rigninga síðustu daga
eftir langa þurrkatíð.
Bflvelta
í Ölfusi
BÍLALEIGUBÍLL tveggja
erlendra ferðamanna valt á
Krýsuvíkurvegi skammt frá
Þrengslavegi á miðvikudag.
Að sögn lögreglunnar á Sel-
fossi var ekkert vitað um að-
draganda slyssins. Kona slas-
aðist á höfði og var flutt með
sjúkrabíl á slysadeild í
Reykjavík. Bíllinn skemmdist
töluvert og var fluttur burt
með krana.
Mf * A,
Lúxussigling fyrir Far- og GuILkorthafa VISA
ogVildarkorthafa ViSA og Flugleiða
Kóngalíf í Karíbahafi
Vikusigling með Camival Cruise Line á skemmtiferðaskipinu Destiny
4, —1-—-*>.
Verðfrá
144.500
ll.-21.september 1998
Fararstjóri: Kristján Sigurjónsson
ámannítvíbýli.
Takmarkað
sætairamboð
Greiða skal inn á ferðina við bókun
og eigi síðar en 11. júlí.
FAKKORT TST
Flogið verður til Orlando og dvalist þar í tvær nætur. Þá er lagt í sjö
daga siglingu um Karíbahaf á glæsilegasta skipinu í flota Camival
Craise, Destiny. Allir klefar era rúmgóðir og með góðu útsýni yfir
sjóinn. Meðan á ferðinni stendur er komið við í San Juan á Puerto
Rico, St. Croix, sem er stærst Jómfrúreyja, og loks á St. Thomas þar
sem sjórinn er einstaklega tær og verðlag með afbrigðum hagstætt.
Síðan er siglt til Miami, ekið þaðan til Orlando þar sem gist er eina
nótt og flogið heim að kvöldi næsta dags.
‘ Innifalið:
Flug og flugvallarskattar, ferðir fll og frá flugveUi erlendls og til og ífá
hóteli og skipshlið. Skemmtisigling í eina viku með fullu fæði og
skemmtidagskrá. gisting í þijár nætur á Hotel Radisson Plaza í Orlando,
íslenskur fararstjóri, hafnargjöld, rikisskattar og þjórfé um borð.
Vefiir Flugleiða í Inlemetínu: www.icelandair.is
Netfang fyrir almennar upplýsingar. info@icelandair.is
Vefiir Camival Cruise: www.camival.com/
Munlð raðgreiðslur VISA í allt að 24 mánuði.
Ferðimar eru eingöngu seldar á söluskrifstofu Flugleiða í Kringlunni.
Viusamlega hafið samband við Helgu Eglu, Dóm eða Birgittu 1 slma S050 700.
Opið mán. - fös. 10-18.30 oglaugard. 10-16.
FLUGLEIDIR
Traustur tslenskur ferðafélagi