Morgunblaðið - 10.07.1998, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998 19
SAS ræður 1.000
manns til starfa
SAS, skandinavíska flugfélagið,
mun 'ráða yfir eitt þúsund flugmenn
og flugfreyjur auk -þjóna á næstu
þremur árum samkvæmt frétt frá
félaginu.
Fyrir þremur árum var 3.000
starfsmönnum flugfélagsins sagt
upp störfum.
Skortur er á flugmönnum hjá
SAS eins og öðrum stórum flugfé-
lögum í heiminum. Umsvif SAS
hafa aukizt og það sem af er þessu
ári hefur félagið ráðið 200 flugmenn
til starfa. AIls eru flugmenn félags-
insum 2.300.
A næsta ári er talið að þörf verði
á 200-250 flugmönnum og 200 til
viðbótar ári síðar að sögn talsmanns
SAS.
Þar sem erfitt hefur verið að ráða
flugmenn hefur félagið giúpið til
þess ráðs að standa undir helmingi
kostnaðar við þjálfun SAS-flug-
manna. Alls kostar 700.000 sænskar
ki-ónur að mennta SAS-flugmann.
Byrjunarlaun flugmanna hjá SAS
eru 12-25.000 sænskar krónur á
mánuði og hæst komast launin í um
70.000 s.kr.
Þörf á flugfreyjum og -þjónum
hefur einnig aukizt. Síðan í fyrra-
haust hefur verið ráðið í 500 slíkar
stöður hjá SAS og á næsta ári þarf
að ráða í um 300 stöður.
VIÐSKIPTI
Umdeildur ritstjóri
New Yorker segir af sér
New York. Reuters.
TINA BROWN, umdeildur ritstjóri
tímaritsins New Yorker, hefur óvænt
sagt af sér til að koma á fót sam-
starfsfyrirtæki ásamt Miramax
Films.
Brown, sem hefur verið ritstjóri
síðan 1992, verður í samstarfi með
Ron Galotti, sem lét af starfi útgef-
anda Vogue. Galotti var útgefandi
Vanity Fair þegar Brown var rit-
stjóri þess blaðs. Öll tímaritin þrjú
eru í eigu Advance Publications Inc.
Hið nýja samstarfsfyrirtæki í New
York verður í eigu Browns, Galottis
og Miramax. Það mun gefa út bækur
og fréttatímarit og framleiða kvik-
myndir og sjónvarpsefni.
Búizt er við að fjárfesting
Miramax, hinnar listrænu kvik-
myndadeildar Walt Disney Co., verði
veruleg. Brown verður stjórnarfor-
maður og Galotti forstjóri.
Skilaði ekki hagnaði
Brown reyndi að aug-
lýsa blaðið í slúðurdálk-
um og reyndi að koma
greinahöfundum þess á
framfæri í spjallþætti í
sjónvarpi.
Advance Publications
er í eigu Newhouse-ijöl-
skyldunnar, sem á dag-
blöð, stundar rekstur
kapalsjónvarpsrása og
gefur út 16 tímarit undir
Conde Nast-merkinu,
þar á meðal Conde Nast
Traveller og Vanity Fa-
ir, og þar til nú fyrir
skömmu Random House
Inc., stærsta bókaút-
gáfufyrirtæki Bandaríkjanna.
Advance seldi nýlega Random
House, stærsta fjölmiðlafyrirtæki
Evrópu, Bertelsmann AG og var
samningurinn talinn um 1,3 milljarða
dollara virði.
Brezkur eiginmaður
Brown, Harry Evans,
lét af starfi forstjóra og
útgefanda Random
House í nóvember til að
starfa fyrir fasteigna-
og útgáfuforstjórann
Mort Zuckerman. Síðan
hefur Evans haft um-
sjón með blöðum og
tímaritum, sem
Zuckerman á, þar á
meðal U.S. News &
World Report og New
York Daily News.
Tina, sem er 44 ára
og fædd í Bretlandi, var
ritstjóri brezka tíma-
ritsins Tatler áður en hún fluttist
vestur um haf 1984 og þrefaldaði út-
breiðslu þess á fjórum árum. Evans
var áður ritstjóri Sunday Times í
Bretlandi og samstarfsmaður
Ruperts Murdochs.
Tina Brown
AT&T ber sögusagnir til baka
Washington. Reuters.
New Yorker skilaði ekki hagnaði
undir stjórn Browns þótt ritstjómin
hefði úr 35 milljónum dollara að spila
samkvæmt fjái-hagsáætlun. Á rit-
stjórnarferli Bi’owns hefur birzt auk-
ið efni um fjölmiðlafólk, skemmti-
krafta og kaupsýslumenn og sérstök
tölublöð hafa verið tileinkuð skáld-
sögum, blökkumönnum í Bandaríkj-
unum, stjórnmálum, Evrópu, teikni-
myndum, Kaliforníu og konum.
Möi’gum reyndum starfsmönnum
og kunnum höfundum hins gamal-
gróna New Yorker var sagt upp.
C. MICHAEL Armstrong, stjórnar-
formaður AT&T, hefur sagt einni
nefnd öldungadeildarinnar að ekkert
sé hæft í sögusögnum um að nýjar
samningaviðræður fari fram um fyr-
irhugaðan samruna fyrirtækisins og
Tele-Communications Inc. vegna
lækkandi gengis hlutabréfa í
símarisanum.
Armstrong sagði að samningar
hefðu náðst og aðeins væri eftir að fá
samþykki hluthafa.
Armstrong kvaðst telja að gengi
hlutabréfanna mundi hækka á ný og
rakti lækkun þeirra að undanförnu
til stofnanafjárfesta, sem hefðu fjár-
fest í AT&T í hagnaðarskyni. Hluta-
bréf í AT&T seldust á 56,19 dollara
og lækkaði verð þeirra úr 68,50 doll-
urum, hinu hæsta í 52 vikur.
Fáanlegt í
hvítu,
svörtu,
kopar,
stál og
grænu
Dagana 9-11 júli
Blöndunartæki sem hjálpa þér
að hafa eldhúsið þitt aðeins
öðruvísi - Gæðatæki - Fáguð
hönnun
veröur hjá okkur
val á eldhústækjum
Gessi blöndunartæki
sem og Airone
eldhúsháfa
Fáanlegt í
hvítu,
svörtu,
kopar og
stál
Wð erum í n*sta
-ANNO 1929-
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
Staxrsta heimills-og raft®k|averelunarke6ja í Evrópu
VERIÐ VELKOMIN I VERSLUN OKKAR
Blöndunartæki
Eldhúsháfar
Traust
1 W 'Æki.
INARDI
Ofnar og helluborð
NARDI