Morgunblaðið - 10.07.1998, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998 21
Sprengju-
tilræði í
Alsír
TIU manns létust og 21 særð-
ist alvarlega í sprengjutilræði
í fátækum hluta Algeirsborg-
ar í Alsír í gær. Sprakk
sprengjan á flóamarkaði þar
sem urmull var af fólki en ís-
lamskir uppreisnannenn í
landinu hafa áður gert slíkar
samkomur að skotmarki sínu.
Stjórn landsins skýrði enn-
fremur frá því að leiðtogi upp-
reisnarhreyfingarinnar GIA,
Khalifi Athmane, hefði fallið í
bardaga nálægt höfuðborg-
inni.
Eldgos í
Indónesíu?
INDÓNESÍSK stjórnvöld
sögðu í gær íbúum í nágrenni
eldfjallsins Merapi að vera
reiðubúnir til að yfirgefa
svæðið en hraun hefur tekið
að vella upp úr fjallinu, sem er
virkast allra eldfjalla í
Indónesíu.
Svíar keyptu
„gyðingagull“
í SKÝRSLU sænskrar rann-
sóknamefndar, sem birt var í
gær, kom fram að næstum
helmingur þess gulls sem Sví-
þjóð keypti af Þýskalandi
Hitlers kunni að hafa verið
svokallað „gyðingagull". Fram
kom einnig að bankastjóri
sænska seðlabankans hafi vit-
að um uppruna gullsins og var
gagnrýnt í skýrslunni að sið-
ferðileg hlið málsins skyldi
ekki þá hafa verið íhuguð.
Dýrkeypt
lestarslys
LESTARSLYSIÐ mikla í
Eschede, nærri Hannover í
Þýskalandi, í síðasta mánuði
þar sem meira en 100 manns
létu líf sitt mun kosta þýska
lestarfyrirtækið Deutsche
Bahn um þrjá og hálfan millj-
arð íslenskra króna þegar
tekið hefur verið tillit til allra
þátta, bóta til fórnarlamba
slyssins og þess háttar. Talið
er að bilun í hjólabúnaði hafi
verið orsök slyssins.
Akrópólis
brennur
KJARRELDUR kviknaði í
hinni fornu Agóru við rætur
Akrópólis í Aþenu í gær og
ógnaði hinum tvö þúsund og
fimm hundruð ára gömlu
minjum áður en slökkviliðs-
mönnum tókst að vinna bug á
eldinum. Mikill hiti og vinda-
söm tíð hafa valdið fjölda
skógarelda á Grikklandi und-
anfamar vikur.
Karbaschi aft-
ur fyrir rett
BORGARSTJÓRINN í
Teheran, Gholamhossein Kar-
baschi, kom fyrir rétt í gær að
nýju sakaður um spillingu og
fjárdrátt. Karbaschi er einn
umbótasinna í írönskum
stjórnmálum og telur ásakan-
ir á hendur sér runnar undan
rifjum íhaldsmanna í landinu
sem vilja ekki hverfa frá bók-
stafstrú.
Tony Blair hitti fulltrúa Óraníureglunnar á N-írlandi
_ ^ Reuters
EINN meðlima Óraníureglunnar horfir á breska hermenn styrkja varnarvegg sinn en umsátur Óraníu-
manna við Drumcree er nú á fimmta degi.
Fleiri
farast í
flóðum
Peking. Reuters.
ALLS hafa nær fjögur hundruð
manns farist af völdum flóða sem
gengið hafa yfir í suðurhluta Kína
undanfarinn mánuð, samkvæmt
fréttum kínverskra ríkisfjölmiðla í
gær.
Yfirvöld í Sichuan-héraði, sem
liggur við ofanvert Jangtze-fljót,
tilkynntu í gær að þar hefðu að
minnsta kosti 170 manns farist og
nær 2 þúsund slasast. Mikið tjón
hefur orðið á mannvirkjum og nær
milljón hektarar ræktarlands hafa
farið undir vatn.
Óttast frekari skaða af
völdum rigninga
Þrátt fyrir að flóðin virðist nú
vera í rénun í þeim héruðum sem
verst hafa orðið úti, hafa yfirvöld
áhyggjur af frekari skaða í kjölfar
mikilla rigninga á upptakasvæðum
Jangtze-fljóts. Veðurfræðingar
vara einnig við hættu á flóðum í
norðurhluta Kína, en það er afar
sjaldgæft.
Enginn ár-
angur af
fundinum
London, Belfast. Reuters.
ENGINN árangur varð af fundi
Óraníumanna í gær með Tony Bla-
ir, forsætisráðherra Bretlands, í
London en nú eru fimm dagar síð-
an umsátrið við Drumcree-kirkju í
Portadown á N-írlandi hófst vegna
umdeildrar göngu Óraníumanna,
sem eru mótmælendatrúar, niður
Garvaghy-veg þar sem búa kaþ-
ólikkar.
Báðir aðilar voru sammála um að
vera áfram í sambandi vegna máls-
ins en að fundinum loknum ítrekaði
Blair að hann gæti ekki breytt
ákvörðun „göngunefndarinnar"
sem hafði bannað göngu Óraníu-
manna. Hinir síðastnefndu kváðust
ætla að halda mótmælum sínum
áfram hvað sem tautaði og raulaði
og The Belfast Telegraph sagði frá
því í gær að sennilega hefðu um
tuttugu og fimm þúsund sam-
bandssinnar verið staddir við
Drumcree á miðvikudagskvöld til
að ljá Óraníumönnum stuðning
sinn.
Einn þeirra harmaði í gær hins
vegar óeirðirnar sem geisað hafa á
N-írlandi síðan á sunnudag. „Við
höfum miklar áhyggjur af öllu of-
beldinu. Það veikir málstað okkar,“
sagði séra William Bingham, með-
limur Óraníureglunnar í Armagh.
„Engin gata er virði mannslífs og
enginn hefur rétt til að skemma
eignir annarra. Við viljum aðeins
friðsamleg mótmæli.“
Óeirðir hafa samt sem áður brot-
ist út öll kvöld síðan Óraníumönn-
um var bannað að ganga niður
Garvaghy-veginn, enda fátt eins
vel til fallið að æsa upp tilfinningar
manna eins og hinar umdeildu
göngur Óraníumanna. Hefur gi’jóti
og bensínssprengjum verið kastað
að lögreglunni, bílum stolið og þeir
eyðilagðir. Jafnframt hafa öfga-
sinnaðir mótmælendur brennt
nokkur hýbýli kaþólikka sem lent
hafa á vergangi í kjölfarið. Eru
bæði lögregla og her í fullri við-
bragðsstöðu vegna ástandsins.
Vilhjálmur prins hittir
Kamillu í fyrsta sinn
London. Reuters.
í BRETLANDI velta menn nú
vöngum yfír því hvort samband
ríkisarfans Karls prins við Ka-
millu Parker Bowles verði senn
gert opinbert, eftir að fregnir
bárust af því að Kamilla og Vil-
hjálmur prins, eldri sonur Karls
og Díönu, hefðu hist í fyrsta
skipti í síðasta mánuði.
Talsmaður Karls staðfesti
fréttirnar, en tók fram að þetta
væri fjölskyldumál og lét í ljós
ósk um að einkalíf prinsins unga
yrði virt.
Bresku slúðurblöðin hafa engu
að síður gert málinu góð skil og
slegið því upp á forsíðum sinum.
„Kamilla var óskaplega tauga-
spennt... en mjög fegin að hafa
loks hitt Vilhjálm", segir meðal
annars í The Mirror. Blaðið segir
að þau hafi hist í fyrsta sinn fyrir
tilviljun í höll Karls í London 12.
júní síðastliðinn, en þar mun hún
vera tíður gestur. „Þetta er
fyrsta merki þess að Kamilla, sem
hefur verið náin Karli í 25 ár, sé
nú að koma fram á sjónarsviðið
sem fylgikona hans til frambúð-
ar“, segir í frétt blaðsins.
Veðbankar taka viðbragð
Breskir veðbankar fylgjast
jafnan grannt með stöðu mála
Yf irbm ríir i 20 ár til sjós og lumls.
r'^ MASTER ♦
háþrýstispil fyrir báta og vinnuvélar
, Mismunandi stæröir og geröir af PULLMASTER
háþrýstispilumtil aö mæta hverri þörf til sjós
og lands. Stiglaus hraðastýring, þægileg
spilstjórn. Togkraftur frá 500 kp (1,102 Ibjtil
22,680 kp (50,000 Ib). Sjálfvirkar diskabremsur.
Traust hönnun, öryggi og árei>anleiki hefur
gert PULLMASTER háþrýstispilin þekktum
allan heim.
Mikið úrval fyrirliggjandi.
Góð þjónusta og hagstætt verð.
VELASALAN
ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 552 6122.
hjá konungsfjölskyldunni. Eftir
að fréttir bárust af fundum Vil-
hjálms og Kamillu tilkynnti einn
helsti veðbankinn að líkurnar á
konunglegu brúðkaupi fyrir lok
næsta árs væru nú komnar úr sjö
á móti einum í þrjá á móti einum.
Karl og Kamilla kynntust árið
1970, en upprunalegu sambandi
þeirra lauk þremur árum síðar,
þegar hann gekk í sjóherinn og
hún giftist öðrum manni. Ástin
blómstraði þó á milli þeirra á ný
og Karl viðurkenndi í sjónvarps-
viðtali árið 1995 að þau hefðu átt
í framhjáhaldi eftir að brestir
komu upp í hjónabandi hans og
Díönu prinsessu. Svo virtist sem
breska þjóðin væri að taka Ka-
millu í sátt, en eftir lát Díönu á
síðasta ári hefur hún haldið sig
til hlés.
Hreinlætistæki
Glæsileg hreinlætistæki Ifö Cera.
Innbyggt frárennsli auðveldar þrif
Tvívirkur skolhnappur, hægt er
að velja um 3ja eða 6 lítra skol.
Ifö sænsk gæðavara.
Heildsöludreiflng:
Ti Smiðjuvegi 11,Kópavogi
Sími 564 1088.fax564 1889
Fæst í bygoingavdruverslunum um landallt.