Morgunblaðið - 10.07.1998, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998 23
ERLENT
Jeltsín segir að gengi
rúblunnar verði varið
Vaxandi áhyggjur af efnahags-
legu hruni í Rússlandi
BORIS Jeltsín segist ekki ætla að fella gengi rúblunnar
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands,
sagði í gær, að gengi rússnesku
rúblunnar yrði ekki fellt þrátt fyrir
fjármálakreppuna í landinu og
minnkandi gjaideyrisforða. Horfur
eru á, að Rússar fái á næstunni stór-
lán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og
hefur það orðið til að hækka nokkuð
gengi rússneskra hlutabréfa.
„Við getum og ætlum að koma í
veg fyrir gengisfellingu,“ sagði
Jeltsín á fundi með fréttamönnum í
gær og virtist hann við hestaheilsu
en orðrómur hefur verið um, að hann
væri veikur. Jeltsín nefndi þó ekki
hvernig ríkisstjórnin ætlaði að halda
genginu stöðugu en hagfræðingar
segja, að gengisfelling gæti alið af
sér verðbólgu og mikinn óróa í land-
inu.
Rússneski seðlabankinn tilkynnti í
gær, að gull- og gjaldeyrisbirgðir
hans hefðu minnkað frá 26 júní til 3.
júlí, farið úr 1.152 milljörðum ísl. kr.
í 1.087 milljarða, og bendir það til, að
ríkisstjórnin sé farin að ganga á
sjóðinn til að geta staðið í skilum á
næstu mánuðum.
Kolanámamenn hafa nú um nokk-
urt skeið komið í veg fyrir flutninga
með Síberíulestinni og krefjast þess
að fá launin sín greidd en í gær tókst
þó að fá ein samtök kolanámamanna
til að hætta aðgerðum.
Beðið eftir IMF-láni
Rússneska ríkisstjórnin bindur
vonir sínar við þær neyðarráðstafan-
ir, sem hún hefur gripið til, en þó
fyrst og fremst á aðstoð IMF, Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins. Anatolí
Tsjúbaís, sem staðið hefur í samning-
um við sjóðinn, sagði í gær, að John
Odling-Smee, háttsettur fulltrúi
IMF, kæmi til Moskvu í dag til við-
ræðna um nærri 1.100 milljarða ísl.
kr. lán og bjóst hann við niðurstöðu
um það fljótlega eftir helgi. Urðu
þessi ummæli til, að gengi rúss-
neskra hlutabréfa hækkaði nokkuð.
Auk alls þessa eru miklar vanga-
veltm’ um það hvort Jeltsín muni
bjóða sig fram í forsetakosningunum
árið 2000. Igor Shabdúrasúlov, einn
aðstoðarmanna Jeltsíns, sagði í við-
tali við dagblaðið Rússkí Telegraf, að
í Rreml væru skoðanir mjög skiptar
um þetta mál en sjálfur teldi hann,
að Jeltsín ætti að draga sig í hlé.
Astandið í rússneskum efnahags-
og fjármálum er ekki aðeins
áhyggjuefni fyrir hinn almenna
borgara, heldur óttast einnig hin
nýja stétt, fjármálamennirnir, sem
margir hafa auðgast mikið á hluta-
bréfaviðskiptum, mjög um sinn hag.
Yfírleitt eiga þeir í útistöðum hver
við annan en nú hafa þeir snúið bök-
um saman og myndað „samstarfs-
ráð“, sem er Sergei Kíi’íjenko for-
sætisráðherra til ráðuneytis. Jeltsín
hefur þó ekki lagt blessun sína yfir
þetta „skuggaráðuneyti".
Almenningur óttast
hið versta
Enn sem komið trúir rússneskur
almenningur bönkunum fyrir sparifé
sínu en ástæða er til að óttast hið
versta. Gengi hlutabréfa hefur fallið
um 63% frá því í janúar; opinberar
skuldir vegna útgáfu ríkisskulda-
bréfa eru orðnar geigvænlegar; al-
mennir vextir eru um 80% og þriðj-
ungur fjárlagaupphæðarinnar fer í
skuldagreiðslur. Nú í þessum mán-
uði gjaldfalla lán, sem nema meira
en helmingi gjaldeyrisforðans. Ríkið
er að komast í þrot með fjárútvegun
og hefur hætt við ráðgert skulda-
bréfaútboð. Flestir líta nú á bréfin
sem verðlausan pappír.
Tapast Rússland?
Míkhaíl Zadornov, fjármálaráð-
herra Rússlands, sagði fyrir
skömmu, að gengisfelling væri óhjá-
kvæmileg ef ekki tækist að auka
skattheimtuna í landinu um þriðj-
ung á næstu mánuðum. Engum
kemur til hugar, að það takist og
óttinn við yfirvofandi hrun gegnsýr-
ir samfélagið. Fulltrúar sumra er-
lendra fjármálastofnana hafa þó
kannski hæst þegar þeir tala um
„bjánana í Washington“, sem ein-
blíni á erfiðleikana í Asíu en hafi
gleymt Rússlandi. Segja þeir, að fari
allt á verra veg í Rússlandi muni þar
komast til valda önnur og óvinveitt-
ari stjórn.
Haft er eftir háttsettum manni hjá
IMF, að besta tryggingin fyrir Vest-
urlönd sé að leysa Rússa úr skulda-
kreppunni en það yrði óskaplega
dýrt. Gjaldþrot rússneska ríkisins
yrði líka dýrt og myndi hafa alvar-
legar afleiðingar í för með sér.
Utistandandi skuldh- þess eru um
5.200 milljarðar ísl. kr. og þar af að-
eins í þýskum bönkum um 2.200
milljarðar.
# (Heimild: Reuters, Time)
Nv stiórn
í Tékk-
landi
Prag. Reuters.
LEIÐTOGAR jafnaðarmanna í
Tékklandi og helsta keppinauts
þeirra, Borgaralega lýðræðis-
flokksins, skrifuðu í gær undir
samkomulag, sem gerir þeim íyrr-
nefndu kleift að mynda stjóm,
þremur vikum eftir kosningar í
landinu.
I samkomulaginu segh’, að jafn-
aðarmenn, sem unnu mestan sigur
í kosningunum án þess þó að fá
meirihluta á þingi, geti myndað
ríkisstjórn og leiðtogar Borgara-
lega lýðræðisflokksins heita að
leggja ekki fram tillögu um van-
traust á stjórnina út kjörtímabilið,
næstu fjögur ár.
Undir samninginn skrifuðu
Milos Zeman, leiðtogi jafnaðar-
manna, og Vaclav Klaus, lyrrver-
andi forsætisráðherra og leiðtogi
Borgaralega lýðræðisflokksins, en
ekki verður um að ræða neitt sam-
starf með flokkunum. Borgaralegi
lýðræðisflokkurinn fær hins vegar
í sinn hlut forseta þingsins, efri og
neðri deildar og einnig formennsku
í fjárlaganefnd neðri deildarinnar.
Ekki tjaldað til
einnar nætur
Zeman sagði á fréttamannafundi
í gær, að með samkomulaginu væri
hugsanlega ekki verið að tjalda til
einnar nætur, eins kjörtímabils,
heldur gæti það gilt áfram þótt
flokkarnir hefðu sætaskipti að
loknum kosningum árið 2002. Zem-
an ætlaði að leggja ráðherralista
sinn fyrir Vaclav Havel forseta síð-
ar í gær.
Clarke kyndir
undir EMU-
ágreiningfnum
Segir stefnu
Williams Hagues
hættulega Ihalds-
flokknum
London. Reuters.
KENNETH Clarke, fyrrverandi
fjármálaráðherra Bretlands, hefur
vakið upp ágreininginn innan
íhaldsflokksins um EMU, Evr-
ópska myntbandalagið, með útgáfu
bæklings þvert á flokkslínuna.
I bæklingnum, „EMU: Það, sem
máli skiptir fyrir
Breta“, er fyrir-
lestur, sem Clar-
ke flutti flokks-
bræðrum sínum í
mars sl. en þá
sagði hann, að
íhaldsflokkurinn
myndi ekki komast aftur til valda í
landinu fyrr en hann sameinaðist
um raunsæja stefnu í EMU-mál-
um. Fer hann hörðum orðum um
stefnu Williams Hagues, leiðtoga
fiokksins, og gagnrýnir þá fyrir-
ætlan að bera hana undir allar
stofnanir flokksins og flokksfélög.
Segir hann, að það muni aðeins
verða til að auka á ágreininginn
innan hans.
Clarke segist ekki vera að ýfa
upp gömul sár með útgáfu bæk-
lingsins, aðeins að koma af stað
umræðu um málið. Að útgáfunni
standa samtök íhaldsmanna, sem
hlynntir eru Evrópusamstarfinu,
en í þeim eru meðal annarra Mich-
ael Heseltine, fyrrverandi aðstoð-
arforsætisráðherra, og John
Gummer, fyrrverandi umhverfis-
ráðherra.
Skynsamlegt að vera
„ávallt viðbúinn"
Stefna Hagues er sú, að hugsan-
leg EMU-aðild verði ekki tekin til
athugunar fyrr en að loknu næsta
kjörtímabili, eftir næstum níu ár,
og ætlar hann að bera hana undir
flokksfélögin fyrst. Clarke segir
hins vegar, að yfirlýsing af þessu
tagi sé ekki aðeins hlægileg, heldur
beinlínis hættuleg flokknum. I
næstu kosningum yrði hann bund-
inn af henni
hver sem þróun-
in hefði orðið.
Stefna Clar-
kes er sú, að
Bretar eigi að
vera tilbúnir til
að geta gerst að-
ilar að EMU til að þeir geti brugð-
ist rétt við ef þörf krefur. „Ein-
kunnarorð skátanna, „Ávallt viðbú-
inn“, eru skynsamleg pólitík," segir
Clarke.
Ríkisstjórn Verkamannaflokks-
ins gagnvart EMU er jákvæðari og
segist hún vera hlynnt aðild í
grundvallaratriðum en þó ekki á
þessu kjörtímabili og ekki nema
efnahagslegur ávinningur Breta sé
ótvíræður.
www.mbl.is
SPORTVORUR
WESSSB FERÐAVÖRUR
Tjald 2 manna í felulitum tilboð kr. 2.990
Tjald 2 manna kúlu verð kr. 3.900
Tjald 4 manna kúlu tvöfalt kr. 16.900
Tjald 5 manna ris tvöfalt kr. 16.900
Göngutjald eða hjólatjaid
Vandað 2 manna tvöfait aðeins 2 kg.
Verð aðeins kr. 8.900, stgr. 8.455
SALOMON
SALOMON GÖNGUSKÓR ”
Mjög vandtiðir gönguskór. Verð frá kr.
6.900, stgr. 6.555. Gore-Tex skór, tilboð
frá kr. 9.900, stgr. 9.405
ÚTIVISTARFATNAÐUR
Vandaður útivistarfatnaður frá SCANDA,
VANDER, OZON og fleimm. Fleece peys-
ur, nærföt, sokkar, hanskar, legghlífar o. fl.
Reiðhjól í miklu úrvali
SCOTT-GIANT-DIAMOND
BRONCO-EUROSTAR-VIVI
18 gíra verð frá kr. 17.800, stgr 16.910
Sportfatnaður - íþróttaskór
Sundfatnaður - Boltar - o.fl.
ADIDAS, NIKE, PUMA, FILA
ift
Utileiktæki og buslulaugar
Róla einföld, verð kr. 6.900, stgr. 6.555
Róla, sjá mynd, kr. 16.900, stgr. 16.055
Buslulaug, 120 x 1280, kr. 4.500
Buslulaug, 120 x 240, mynd, kr. 7.800
Svefnpokar margar gerðir
Verð frá kr. 3.900, stgr. 3.705
-10°C verð kr. 6.900;:stgr.' 6.555
-20°C verð kr. 9.200,;stgr. 8.740
Bakpokar, stórir og smáir
EURO 65 1. kr. 6.700, stgr. 6.365
EURO 75 1. kr. 7.500, stgr. 7.125
NEVIS 55 1. kr. 7.500, stgr. 7.125
ROCK 60 1. kr. 9.200, stgr. 8.740
Cover á bakpoka, kr. 1.200
Dýna svamp, verð frá kr. 990. stgr. 940
Vindsæng verð kr. 2.400, stgr. 2.280
Dýna, sjálfuppblásin, verð frá kr. 8.600,
stgr. 8.170. Pumpur verð frá kr. 560
Dagpokar og mittistöskur
Bakpoki TRAIL 18 1. kr. 1.990
Bakpoki EURO 25 1. kr. 2.260
Bakpoki EURO 35 1. kr. 2.950
Bakpoki ACTION 30 1. kr. 4.200
Mittistöskur verð frá kr. 590
Ein stærsta sportvöruverslun landsins
Golfvörur - Golffatnaður
Frábært verð á golfvörum
HIPPO - HOWSON
Golfsett 1/2 kr. 12.900, stgr. 12.255
Golfsett með poka og kerru
kr. 29.900, stgr. 28.405
Árniúla 40
Símar: 553 5320, 568 8860
Iferslunin
7M4RKID