Morgunblaðið - 10.07.1998, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
EINS og margir höfðu spáð er Galsi frá Sauðárkróki efst-
ur eftir forkeppnina en ekkert er tryggt og vísast þurfa
þeir félagar Galsi og Baldvin Ari að hafa fyrir hlutunum
þegar í fullnaðardóminn kemur.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
PRINS frá Hörgshóli og Sigurður Sigurðarson hafa verið
að hnika sér hægft og bítandi upp á toppinn og nú er
spurningin hvort þeir nái upp í sfðasta þrepið.
HJÖRVAR frá Ketilsstöðum virkaði ekki eins sannfær-
andi og búast mátti við en náði góðri hylli dómara og
vermir þriðja sætið ásamt eiganda sínum og knapa, Bergi
Jónssyni og tveimur öðrum stórgæðingum.
A-flokkur gæðinga
Galsi hafði
vitininginii í
forkeppninni
Brúnin hefur lyfst á forráðamönnum
landsmótsins sem og mótsgestum þegar
veðrið breyttist heldur til hins betra á Mel-
gerðismelum í gær. Hátt í fímm þúsund
manns voru komin á mótssvæðið í gær-
kvöldi og fylgdist fjöldi manns með for-
----------------jp----
keppni í tölti í fögru kvöldveðri. Asdís Har-
aldsdóttir og Valdimar Kristinsson fylgd-
ust með keppninni ásamt Asdísi Asgeirs-
dóttur ljósmyndara.
GALSI FRÁ Sauðárkróki sem Bald-
vin Ari Guðlaugsson sýndi hafði bet-
ur í upphafsrimmu A-floks gæðing-
anna á landsmótinu í gær. Þeir höfðu
örlítið forskot á þann sem næstur
kemur, sem er Prins frá Hörgshóli
sem Sigurður Sigurðarson sat. Galsi
hlaut 8,809 en Prins er með 8,758.
Galsi sýndi afbragðs brokk og skeið
og fékk gott fyrir vilja en Prins er
hinsvegar sterkastur í tölti og fegurð
í reið. Keppnin var æsispennandi og
ljóst að hart verður barist á laugar-
dag þegar 20 efstu hestamir mætast
í fullnaðardóm þar sem bætist inn í
fet og stökk.
Þótt muni nokkru í næstu hesta
þykir víst að þessir tveir efstu verða
ekki einir um hituna í fullnaðardómi.
Þrír næstu hestar eru hnífjafnir með
8,647, en þeir eru Hjörvar frá Ketils-
stöðum og Bergur Jónsson, Ormur
frá Dallandi og Atli Guðmundsson og
Geysir frá Dalsmynni og Sigurður V.
Matthíasson og gætu allir þessir
hestar blandað sér í baráttuna um
sigursætið eftirsótta. Þá er Sjóli írá
Þverá og Ragnar Hinriksson ekki
langt undan og eftir fylgja stór-
kanónur á borð við Skafl frá Norður-
hvammi, Baldur frá Bakka, Kolbein
frá Vallanesi, Kolfinn frá Kvíarhóli,
Prins frá Hvítárbakka, Reyk frá
Hoftúni, Gamm frá Hreiðurborg, Ás
frá Háholti, Elra frá Heiði, Stjörnu-
blæ frá Hofsstöðum, Vála frá Nýja-
bæ, Nasa frá Bjamarhöfn, Hlekk frá
Hofi og Guma frá Þóroddsstöðum.
Ógerlegt er að spá hvaða hróker-
ingar muni eiga sér stað í fullnaðar-
dómi. Gera má þó ráð fyrir að fimm
til sex efstu hestamir tryggi í sér
sæti úrslitum. Athygli vekur að
helmingur þessara tuttugu hesta em
stóðhestar og verður að teljast eðli-
legt að þeir hestar sem valdir em til
að bæta kynið séu aðsópsmiklir í
keppni sem þessari.
GEYSIR frá Dalsmynni hefur aldrei verið sterkari en nú og eru hann
og knapinn Sigurður V. Matthíasson í þriðja til fimmta sæti.
KOLFINNUR frá Kjarnholtum og Þorvaldur Þorvaldsson em númer
tíu og nú er að sjá hvoru megin hryggjar þeir lenda á laugardag.
PRINS frá Hvítárbakka er í 11. sæti og til að ná settu marki þarf Við-
ar Halldórsson að hifa sig og hest sinn upp eitt sæti í fullnaðardómi.
KÁTUR lét sig ekki vanta
á landsmótið og flaðraði
upp um börnin.
Ingunn
Birna efst
unglinga
INGUNN Bima Ingólfsdóttir,
Andvara, varð hlutskörpust í
forkeppni unglinga í gær á
Sprengju frá Kálfholti með
8,58. Karen L. Marteinsdóttir,
Dreyra, á Manna frá Leirár-
görðum varð önnur með 8,54
og Þórdís Erla Gunnarsdóttir,
Fáki, á Stirni frá Kvíarhóli
varð þriðja með 8,52. Hinrik Þ.
Sigurðsson, Sörla, varð fjórði
á Val frá Litla-Bergi með 8,52
og í fimmta sæti varð Guð-
björg Anna Bergsdóttir, Frey-
faxa, á Hugari frá Ketilsstöð-
um með 8,47.
Næst komu Berglind R.
Guðmundsdóttir, Gusti, á Maí-
stjörnu frá Svignaskarði, 8,46,
Sigurður S. Pálsson, Herði, á
Rimmu frá Ytri-Bægisá, 8,45,
Daníel I. Smárason, Sörla, á
Seiði frá Sigmundarstöðum,
8,45, Viðar Ingólfsson, Fáki, á
Grímu, 8,44 og Sylvía Sigur-
bjömsdóttir, Fáki, á Djákna
frá Litla-Dunhaga, 8,42.
Þessi tíu ásamt tíu næstu
mæta í fullnaðardóm í dag.
>
I
►
>
>
>
>
>
>
>
I
>
>
I
>
Otímabært að máta
bikarana í hillurnar
segir Kristinn Hugason, formaður dómnefndar kynbótahrossa
DÓMUM kynbótahrossa var lokið í
gær og urðu litlar breytingar á ein-
kunnum frá héraðssýningum í vor,
að sögn Kristins Hugasonar hrossa-
ræktarráðunautar. Dómar á hryss-
um hófust á fimmtudag og sagði
Kristinn að hrossin hefðu komið
heldur lakar fyrir þá en í gær þegar
lokið var dómum á hryssum og stóð-
hestar voru dæmdir. Á þriðjudag
rigndi mikið og var brautin ekki orð-
in vel þurr á miðvikudeginum auk
þess sem veður var mun óhagstæð-
ara en í gær.
í flokki stóðhesta sex vetra og
eldri stendur efstur Hamur frá Þór-
oddsstöðum, knapi Þórður Þorgeirs-
son, með 8,50, Skorri frá Gunnars-
holti sem Þórður sýndi einnig varð
annar með 8,36 og Eiður frá Oddhóli
sem Sigurbjörn Bárðarson sýndi
þriðji með 8,33.
Af fimm vetra hestum eru efstir
Númi frá Þóroddsstöðum, sem Þórð-
ur Þorgeirsson sýndi, með 8,30,
Frami frá Svanavatni annar með
8,22, Þórður einnig knapi. Markús
frá Langholtsparti varð þriðji, einnig
með 8,22.
Snerrir frá Bæ er efstur fjögurra
vetra hesta með 8,05 en Sigurður
Marínusson sýndi hann, Hrafn frá
Garðabæ er annar með 8,04, knapi á
honum var Atli Guðmundsson og í
þriðja sæti er Óskar frá Litladal sem
Sigurbjöm sýndi með 8,03.
Af sex vetra hryssum og eldri
stendur efst með 8,31 Vigdís frá Feti
sem Erlingur Erlingsson sýndi.
Lokkadís frá Feti sem Erlingur Erl-
ingsson sýndi og Hylling frá Korp-
úlfsstöðum sem Guðmundur Einars-
son sýndi urðu jafnar í öðru til þriðja
sæti með 8,29.
Af fimm vetra hryssum standa
efstar Ljónslöpp frá Ketilsstöðum,
sem Jakob Sigurðsson sýndi, með
8,08. Jafnar í öðru sæti eru Nótt frá
Grímsstöðum sem Hallgrímur Birk-
isson sýndi og Þoka frá Hólum, sem
Egill Þórarinsson sýndi, með 8,06.
Allar hækka þær frá forskoðun um
nokkrar kommur.
Bella frá Kirkjubæ sem Leó G.
Arnarsson sýndi stendur efst af fjög-
urra vetra hryssum með 7,99 en
Drottning frá Efri Rauðalæk sem
Baldvin A. Guðlaugsson sýndi kemur
fast á hæla hennar með 7,98 og Von
frá Bakkakoti sem Hafliði Halldórs-
son sýndi er þriðja með 7,92.
Kristinn kvaðst bjartsýnn á að
hrossin myndu bæta sig á yfirlits- )
sýningu sem fram fer í dag. Taldi
hann að ekki væru öll kurl komin til '
grafar hvað varðar getu hrossanna |
og alveg eins líklegt að breytingar
verði á röð efstu hrossa frá því sem
nú er. „Það er síður en svo að þeir
sem eru með efstu hrossin i dag geti
farið að máta bikarana í hillurnar,"
sagði Kristinn og kímdi.
Varðandi þá skoðun manna sem
komið hefur fram ítrekað í vor um að
dómarar væru óvenju harðir í ár sagði
Kristinn það ekki rétt því þeir væru á
mjög svipuðu róli og verið hefði und- i
anfarin ár, það sýndu útreikningar á )
meðltölum sýninganna í vor.