Morgunblaðið - 10.07.1998, Qupperneq 25
MORGUNB LAÐIÐ
HESTAR
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998 25
Hafði lengi leitað að
hesti eins og Galsa
Morgunblaðið/Ásdís
ANDREAS Trappe, eigandi gæðingsins og stóðhestsins
Galsa frá Sauðárkróki sem er langefstur í A-flokki gæðinga
eftir forkeppni á Landsmótinu á Melgerðismelum.
ANDREAS Trappe
frá Þýskalandi var að
vonum ánægður í
gær þegar ljóst var
að hestur hans, Galsi
frá Sauðárkróki, stóð
langefstur eftir for-
keppni í A-flokki
gæðinga. „Ég get
ekki verið annað en
nokkuð ánægður. í
forkeppninni fá hest-
arnir ekki að fara
nema einn skeið-
sprett og ef hann
tekst ekki er þetta
búið mál,“ sagði
hann.
Andreas Trappe á
hóp af íslenskuin
hestum í Þýskalandi
þar sem hann býr og
þar á meðal 10 hátt
dæmda 1. verðlauna
stóðhesta. Frægastur
þeirra er án efa Týr
frá Rappenhof. Hér á
landi á hann fimmtán hross, þar
á meðal hryssur sem hann fær
folöld undan, og er félagi í tveim-
ur íslenskum hestamannafélög-
um, Herði í Mosfellsbæ og Létti á
Akureyri.
Leist strax
vel á Galsa
„Ég var lengi búinn að leita að
góðum hesti út af Ófeigi frá
Flugumýri. Mér fannst mig vanta
þess konar hest vegna þess að ég
hef gaman af því að eiga hross af
ólíkum ættum sem búa yfir ólík-
um eiginleikum. Ég keypti einn
sem var undan Ófeigi og af
Kolkuóskyni í móðurætt, glæsi-
legan hest, en ekki nógu gang-
góðan. Þegar ég sá svo Galsa
tæplega fjögurra vetra gamlan
hjá Sveini Guðmundssyni leist
mér strax mjög vel á hann. Mér
sýndust ganghæfileikarnir og út-
litið vera einmitt það sem ég var
að leita að. Hann sigraði í flokki
fjögurra vetra stóðhesta á
Landsmótinu 1994 og hefur stað-
ið sig vel í sýningum og keppni
síðan.“ En hvers vegna að fara
með vinsælan stóðhest í gæðinga-
keppni?
„Það er ljóst að Galsi er einn
af bestu hestunum á íslandi. Ef
langur tími líður frá því að fólk
sér til slíkra hesta fer það oft að
velta því fyrir sér hversu góðir
þeir séu í raun og veru. Mér
fannst því sjálfsagt að taka þátt í
þessari keppni svo fólk gæti séð
hvað býr í hestinum
og hvernig hann hef-
ur breyst og
þroskast. Hann er
orðinn átta vetra og
auðvitað hefur hann
styrkst og eflst frá
því hann kom fyrst
fram.“
Engin ákvörðun
um útflutning
Andreas segist
ekkert hafa ákveðið
hvort hann selji hlut í
hestinum eða flytji
hann úr landi. Meðan
hesturinn er vinsæll
og fólk hér á landi
vill halda hryssum
sínum undir hann og
er ánægt með folöld-
in undan honum
finnst honum enginn
sérstök ástæða til að
flytja hann úr landi.
Ef vinsældir hans
sem stóðhests fara hins vegar að
dala gæti það allt eins komið til
greina. „Hann mundi örugglega
sóma sér vel innan um stóðhest-
ana mína í Þýskalandi, Tý og
fleiri.
Mér finnst gæðingarnir sem
keppa hér á Landsmótinu mjög
góðir. Margir þeirra eru glæsi-
Iegir, ganggóðir og með fallegar
hreyfingar. Ég neita því hins
vegar ekki að mér finnst Galsi
hafa svo margt; sérstakt við sig,
bæði útlitið og hreyfingarnar.
Eitthvað sem höfðar mjög sterkt
til mín. Hann gerir þetta allt með
svo glöðu geði, er ekki taugaó-
styrkur fyrir keppnina og virðist
hafa gaman af þessu,“ sagði
Andreas Trappe að lokum.
ÞAÐ verða rólegheit hjá Daníel Jóns-
syni á mótinu þar sem þijú af
fjórum hrossa hans hafa veikst.
GESTUM á Landsmóti fór fjölgandi eftir því sem á daginn leið.
Talið er að nokkuð á fimmta þúsund manns hafi verið komið á
Melgerðismela í gær.
HITASÓTTIN mallar í róleg-
heitum á mótssvæðinu og hafa
að minnsta kosti fjögur hross
fallið út úr keppni af þeim sök-
um. Þrjú af fjórum þeirra
hrossa sem Daníel Jónsson
hugðist mæta með í keppni og
sýningar eru orðin veik. Fjórði
hesturinn, Blær frá Kjarnholt-
um, sem á að fylgja móður
sinni, Kolbrá frá Kjarnholtum, í
afkvæmasýningu kemur af
svæði þar sem sóttin hefur
gengið yfir fyrir löngu og mun
væntanlega ekki sýkjast. Daníel
sýndi Glúm frá Reykjavík í B-
flokknum í fyrradag en hann
var kominn með hita um kvöld-
ið. Daníel sagði að þetta væri
svo sem það sem búast hefði
mátt við en þetta væri eigi að
síður svekkjandi, því segja má
að vetrarstarfið fari þarna að
Hitasóttin
setur
mark sitt
á mótið
hluta í súginn. Daníel hafði gert
sér góðar vonir með stóðhest-
inn Eril frá Kópavogi í B-
flokknum.
Sigríður Björnsdóttir dýra-
læknir hrossasjúkdóma sagði í
samtali við Morgunblaðið að
keppnishross úr Húnavatnssýsl-
um hefðu veikst í gær en hún
taldi að ekki hafi í neinum til-
vika verið um smit á mótsstað
að ræða heldur hafi þau hross
sem hafa veikst komið með smit
að heiman. Húnvetningar sam-
einuðust um flutning keppnis-
hrossa á mótsstað og kann að
vera að það hafi magnað upp
smit milli hrossanna. Hún sagði
engin alvarleg tilvik hafa komið
upp vegna hitasóttarinnar þótt
óneitanlega setti hún mark sitt
á inótið. Sigríður taldi litlar lík-
ur á að hross sem smitast héðan
af á mótssstað verði úr Ieik fyrr
en að móti loknu en erfitt væri
að átta sig á því hvaða hross
kunni að hafa smitast áður en
þau komu á mótið því sóttin er
lúmsk í byijun. „Það voru von-
brigði að sóttin skuli hafa kom-
ið upp í Eyjafirði áður en mótið
hófst,“ sagði Sigríður að end-
ingu.
Salatostur • Létt-Brie
Kastali
Bónda-Brie • Gráðaostur
Feta með tómötum og ólífum
Gouda 11% • Dala-Brie
Óðalsostur • Gouda 17%
Maribo
Gouda 26%
Stóri Dímon • Feta í kryddolíu
í salatið!
Kitlaðu bragðlaukana! Ferskt, nýsprottið
salat með grænmeti og osti er endurnærandi
sumarmáltíð sem þú setur saman á augabragði.
Taktu lífinu létt í sumar - og njóttu þess í botn!
Ostur í allt sumar
HAGKAUP
ÍSLENSKIR
OSTAIý
í AlLT SuMÁR
www.ostur.is