Morgunblaðið - 10.07.1998, Side 26
MORGUNBLAÐIÐ
26 FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
NAROK
Glæsilegur vefur þar sem þú getur tekió
þátt í leik, skoöað niyndskeið, myndir og
kynnt þér allt um stórmyndina Armageddon
sem verður frumsýnd í dag.
Ein spurning á dag birtist í Morgunblaðinu í fimm daga en einnig verða
spurningamar lesnar upp á FM 957. Þú tekur þátt í leiknum með |iví að
beimsækja vefinn Ragnarök á www.mbl.is og svara léttum spurningum.
Vinningai:
♦ Tag Hetiei úr fiá Leonartl í Kringlunni.
♦ 2 Motorola SlimLite GSM-simar ásamt Tal-símakorti frá BT
♦ 5 Armagedflon-jakkar.
♦ 14 Armageildon-liakpokar.
♦ 8 Arinagetldon-pennar.
♦ Miðar á myndina.
Þii getm skoðað myndir af vinninguiuim um leið og |iii svarar
LISTIR
Ljósmynd/Bragi Asgeirsson
SVEINBJÖRG Hallgrímsdóttir, „Fuglar“.
Tólf í grafík
MYIVPLIST
Listaskálinn
Hveragerði
MIÐSUMARSÝNING
12 GRAFÍKLISTAMENN
Opið alla daga frá kl. 13-18. Til 12.
júlí. Aðgangur 300 krónur.
ALLAJAFNA er áhugavert að
fylgjast með athöfnum íslenzkra
grafíklistamanna, sem eru orðnir
allfjölmenn stétt, sem bætist í ár-
lega, þótt svo maður sé ekki með
öllu samþykkur þróuninni síðustu
árin. Þróun sem ekki hefur orðið til
hér frekar en margt annað sem of-
arlega er á baugi, sem segir okkur
að hefðin á afar erfitt uppdráttar í
listum eins og raunar í öðrum at-
höfnum landsmanna. Eru höfuðein-
kenni þjóðfélags sem ekki hefur náð
áttum, enn í hraðri en brotkenndri
mótun.
Sýning tólfmenninganna er fjöl-
þætt og um margt áhugaverð, en
vekur helst upp ýmsar vangaveltur
um stöðuna í dag. Svo viðkomandi,
og grafík listamenn almennt skilji
þetta, en hlaupi ekki upp til handa
og fóta, er rétt að víkja aðeins að
upphafmu.
Löngum var listgrafík settur
mjög þröngur og fastskorðaður
rammi, en innan ákaflega marg-
þætts og víðfeðms tæknisviðs, sem
átti meira og minna við hvern ein-
stakan geira hennar. Menn voru hér
afar strangir og höfnuðu alfarið
hvers konar viðbót til hliðar við
sjálft þrykkið og í ljósi langrar sögu
er lygilega stutt síðan menn fóru í
einhverjum mæli að handlita grafík-
blöð, það þótti vera að vinna sér
hlutina létt, svíkja lit og af mörgum
rakið svindl. Svo strangir voru
menn að jafnvel einþrykkið var ekki
viðurkennt á alþjóðlegum sýningum
vegna hinna miklu möguleika á til-
viljunum, tæknilegum blekkingum
og hundakúnstum, menn efuðust
jafnvel mjög um sáldþrykkið vegna
hins ákveðna iðnaðarbragðs sem
þótti vera af því.
Margur grafíklistamaðurinn
gerði það sér þó til dundurs að
handlita blöð, einkum ef þau komu
gölluð úr þrykkpressunni og senni-
lega hefur enginn gert meira af því
en Edvard Munch. Hann gerði þó
um leið enhverja glæsilegustu graf-
ík í hreinni tækni sem sést hafði
lengi og endurreisti tréristuna þar
sem hann viðhafði á stundum afar
einföld og þó margslungin vinnu-
brögð. Lítið sást þó til þessara
mynda sem hann hafði krukkað í
eins og það var lengstum nefnt í
niðrandi merkingu, og þær vel varð-
veittar í kjallarasölum Munch-
safnsins. En í ljósi breyttra viðhorfa
og viðurkenningar einþrykksins
sem fullgilds miðils voru þessar
myndir teknar fram og sett upp sér-
sýning á þeim í sölum safnsins að
mig minnir 1978, einmitt á þeim
tíma er ég bjó í gestaíbúð þess.
Skemmst frá að segja var þetta ein
áhrifamesta sýning sem ég hefi aug-
um litið á list Munchs og það sem
einkenndi vinnubrögðin var hve
hrein og opin þau voru, hér þurfti
enga vankunnáttu að fela, enda
stórmeistari að baki þeirra. Munch
var að þessu leyti langt á undan
samtíð sinni um útvíkkun tæknis-
viðsins, en þetta var ekki gert til að
vera, in, í sínum tíma heldur útrás
upprunalegrar og mótaðrar sköpun-
arþarfar.
Það eru þannig ekki meira en
tuttugu ár síðan menn þurftu ekki
lengur að fara í felur með slík
vinnubrögð, viðhafa þau bak við
byrgða glugga eins og réttast væri
að orða það. Þetta opnaði fyrir allar
flóðgáttir vinnubragða til hliðar við
sígildu tæknina og þar fyrir utan
höfðu framúrstefnulistamenn lengi
verið með hvers konar uppstokkan-
ir á listhugtakinu. Postmódernism-
inn í hröðum uppgangi með and-
listar hugtök sín, fullkomið frelsi en
um leið úrkynjun og tilvistar-
kreppu. Eins og pop-listin losaði
póstmódernisminn um hugmyndir
sem aldrei fyrr og báðar stefnunar
opnuðu hugmyndafræði og listheim-
speki allar gáttir.
Þetta er sem sagt staðan í dag, og
sýningin í Listaskálanum er nokkuð
Sumar
á Héraði
GERÐUR Guð-
mundsdóttir segir
sögur af fuglum í
textflverkum, sem
sýnd verða á Hótel
Héraði, Egilsstöðum,
dagana 11. júlí til 12.
desember.
Fuglamir hafa
ekki sést fyrr og þeir
koma og fara eins og
aðrir gestir hótelsins.
Verkin eru öll unn-
in á þessu ári með
blandaðri tækni á
bómull, einkum silki-
þrykki.
Gerður nam í
Myndlistaskólanum í
Reykjavík 1983-84 og
útskrifaðist úr textíl-
deild Myndlista- og
handfðaskóla íslands
1991.
m\í
GERÐUR Guðmundsdóttir segir sögur af
fuglum f textflverkum sem sýnd verða á Hótel
Héraði, dagana 11. júlítil 12. september.