Morgunblaðið - 10.07.1998, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998 2 7
gott dæmi um hræringar samtím-
ans, að því undanskiidu að minna
sést af hreinni grafík upp á gamla
mátann og kannski einnig hreinni
framúrstefnu, en æskilegt væri.
Arangurinn helgast ekki af tækn-
inni heldur ímyndunaraflinu, frjóu
hugarflugi og sköpunargleði, öllu
síður af að vinna úti í horni á ein-
hverju mjög afmörkuðu sviði sem
menn hafa tamið sér og endurtaka í
sífellu en loka um leið að sér djrrun-
um. Sterkur persónuleiki leitar
fanga í allar áttir, jafnvei þótt hann
noti sama myndefnið allt sitt líf,
mai’kast af því að hver ein mynd er
ný og fersk lifun í hámarki. það er
þetta með ferskleikann sem vekur
sterkustu viðbrögðin hjá þeim sem
hafa hjarta fyrir myndlist, ganga
ekki fyrir fjarstýrðum skoðunum.
Skiptir þá myndefnið engu máli né í
hvaða tækni og efnivið unnið er, ný-
tækni er góð og gild en hún kemur
ekki í staðinn fyrir sjálfa lifunina og
ei heldur nein tegund hugmynda-
fræði.
Það kemur að því hjá hverjum
sönnum listamanni, að augu hans
opnast fyrir því að veigurinn er
efniviðurinn handa á milli hverju
sinni. Minnumst þess að það voru
ekki impressjónistamir, málarar
áhrifastefnunnar, sem komu fram
með eitthvað alveg nýtt heldur
salonmálararnir! Menn hafa skil-
gi’eint það þannig, að hið viðurk-
endna salonmálverk var alveg nýtt í
listasögunni með yfirborði sínu og
dökkum smurningi, dimmumálverk-
inu, sem var á skjön við endurreisn-
ina og barrokkið. Hins vegar unnu
impressjónistai-nir í grunni sínum í
anda endurreisnarinnar, sem var
endurfæðing hinnar fornu hefðar
frá dögum Grikkja og Rómverja og
á eftir áhrifastefnunni fylgdi
módernisminn. Salonmálararnir
sem höfðu breytt listhugtakinu og
búið til eins konar, anti list tímanna,
börðust af mikilli heift gegn litunum
og ljósinu í dúkum áhrifastefnu-
manna sem væru þeir antikristur
endurborinn. Hafði tekist að hafa
endaskipti á listhugtakinu og slá í
þeim mæli ryki í augu fólks að það
var orðið ónæmt fyrir kjarna listar-
innar, sem er ljósið, birtingarki-aft-
urinn og lífíð sjálft.
Vonandi eru salonmálararnir
ekki að ná völdum aftur í nafni nýj-
unganna og, anti listar, um leið og
þeir vilja ómerkja og ryðja öllu
öðru út af sviðinu. Nei, uppruna-
lega tæknin deyr ekki þrátt fyrir
allar nýjungar og þó þetta sé falleg
sýning skortir hér eitthvað á renn-
andi blóð og svipmikil átök. Helst
fínnur maður tilfínningu íyrir þessu
hreir.a og tæra í grafíkinni í verk-
um Drafnar Friðfinnsdóttur, segi
þó ekki að það sé hið athyglisverð-
asta á sýningunni, margt er listi-
lega vel gert.
Hins vegar er þetta að öllu sam-
anlögðu meira en fullgild sýning,
mjög inni í samræðunni og að því
leyti listafólkinu og Listaskálanum
til sóma.
Bragi Ásgeirsson
Hrói höttur
í Húsdýra-
garðinum
NÓTT og dagur frumsýnir
Hróa hött í þýðingu og leikgerð
Gísla Arnar Garðarssonar í
sirkustjaldi í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum í dag, föstu-
dag, klukkan 14.30.
Leikstjóri er Þór Tulinius. Lög
og söngtextar eru eftir Björg-
vin Franz Gíslason, Gísla Örn
Garðarsson og Lindu Ásgeirs-
dóttur, Ieikmynd gerðu Jó-
hannes Níels Sigurðsson og
Stefán Boulter og búninga
Ragnheiður Gylfadóttir. Leik-
arar eru: Agnar Jón Egilsson,
Gottskálk Dagur Sigurðarson,
Gunnar Gunnsteinsson, Gunn-
ar Hansson, Hrefna Hall-
grímsdóttir, Linda Asgeirs-
dóttir, Marta Nordal, Richard
Kolnby og Sverrir Þór Sveins-
son.
LISTIR
Leikur
í fyrsta
sinn á Islandi
Ungir hljóðfæraleikarar Norrænu hljóm-
sveitarinnar, Orkester Norden, komu til
landsins í gærkvöld, en tónleikar hljóm-
sveitarinnar í Háskólabíói í kvöld marka
lok tónleikaferðar um Norðurlönd
sem hófst 4. júlí.
ETTA eru fyrstu tónleikar
hljómsveitarinnar hérlend-
is, en hún hefur verið
starfandi síðastliðin sex
sumur.
Norræna hljómsveitin er sam-
starfsverkefni sem sett var af stað
í þeim tilgangi að efla samskipti
Norðurlandanna á sviði tónlistar
og hafa ungmennin, sem eru yfir
eitt hundrað talsins á aldrinum
15-25 ára, verið á hljómsveitar-
námskeiði í Arvika í Svíþjóð í sum-
ar og æft efnisskrána sem sveitin
hefur leikið á tónleikaferðalaginu.
Á efnisskránni eru Sinfónía nr. 1
eftir Carl Nielsen, Millispil úr kan-
tötunni „Sángen" eftir Wilhelm
Steinhammar og Vorblót eftir
Stravinski. Sá hefur verið vaninn
að fá norræn tónskáld til að semja
nýtt verk sérstaklega ætlað til
flutnings á tónleikum hljómsveitar-
innar hvert sumar og hlotnaðist
Þorkatli Sigurbjörnssyni sá heiður
fyrsta starfssumar hljómsveitar-
innar árið 1993. í ár stóð til að
flytja verk eftir fínnska tónskáldið
Kaipanen, en ekki tókst að ljúka
verkinu í tæka tíð.
Góð vinátta
„Það verður leitt að enda þessa
miklu vinnuskorpu skyndilega þeg-
ar tónleikarnir í Háskólabíói verða
afstaðnir," segir Ilmari Hopkins,
21 árs sellóleikari í hljómsveitinni,
og skírskotar til þeirrar góðu vin-
áttu sem tekst með tónlistar-
nemunum hvert sumar þegar Nor-
ræna hljómsveitin tekur til starfa.
Umari leikur með hljómsveitinni
nú í fjórða skipti, en ár hvert er
valið úr mörgum umsækjendum og
þeir hæfustu valdir úr til að leika
með sveitinni. „Hljómsveitin verð-
ur sífellt betri með hverju árinu
sem líður og það er sérstaklega
ánægjulegt að starfa með fólki frá
nágrannalöndunum og komast að
því hvaða straumar eru helst ríkj-
andi utan eigin heimalands,“ segir
hann. Stefan Kindgren, básúnu-
leikari frá Svíþjóð, tekur undir orð
félaga síns og bætir því við að hlut-
verk Norrænu hljómsveitarinnar
sé ekki síst fólgið í því að sýna
fram á skapandi menningarlíf ungs
fólks, sem mótvægi við brenglaða
mynd sem gjarnan er dregin upp af
þessum aldurshópi. „Þessi vinna
gæti verið ein leiðin til að láta ungt
fólk njóta sannmælis í dag,“ segir
hann.
Henrik Skotte Larsen er 21 árs
óbóleikari frá Danmörku og leikur
með hljómsveitinni í fyrsta skipti
nú í sumar. Hann segir að nýjum
meðlimum sé afar vel tekið og jafn-
ingjareglan sé í hávegum höfð.
„Gæðastaðallinn í hljómsveitinni er
ótrúlega hár og jafnvel hærri en í
tónlistarskólanum mínum í Kaup-
mannahöfn," segir Henrik. „Tón-
verkin eru krefjandi og við höldum
okkur við stranga dagskrá meðan á
tónleikaferðinni stendur. Því er
ekki tími til æfínga í tónleikaferð-
I NORRÆNU hljomsveitmm eru yfir eitt hundrað hljóð-
færaleikarar um tvítugt, sem eru í tónlistarnámi á
Norðurlöndunum.
„ÉG held að að Norræna hljómsveitin gæti vel
þróast út í viðameiri menningarstofnun, sem
uppfóstraði kynslóð góðra listamanna frá
Norðurlöndunum," segir Paavo Járvi, stjórn-
andi Norrænu hljómsveitarinnar.
inni, en aftur á móti var heldur bet-
ur tekið á því meðan við dvöldum í
æfingabúðunum í Arvika áður en
ferðin hófst og þetta gefur góða
innsýn inn í hvernig unnið er í al-
vöruhljómsveitum. Það reynir
mjög mikið á stjórnandann að
halda utan um yfír hundrað hljóð-
færaleikara og vegna stærðar
hljómsveitarinnar og fjarlægðar
milli hljóðfæraleikaranna er eins
gott að fara eftir honum, því ætli
maður að fara að treysta eyranu er
maður kominn aftur úr fyrr en var-
ir,“ segir Henrik.
Ósvikinn æskuþróttur
Stjórnandi Norrænu hljómsveit-
ai’innar er eistneski hljómsveitar-
stjórinn Paavo Járvi. Þetta er
þriðja árið sem hann stjórnar
hljómsveitinni, en
hann er aðalstjórn-
andi Sinfóníhljóm-
sveitarinnar í Malmö
og fyrsti gestastjórn-
andi hjá Konunglegu
Fflharmóníusveitinni í
Stokkhólmi og Sinfón-
íuhljómsveitinni í
Birmingham. „Það er
því líkast að ganga í
endurnýjun lífdaga að
vinna með unga fólk-
inu í Norrænu hljóm-
sveitinni því ýmis
vandamál sem óhjá-
kvæmilega fylgja at-
vinnuhljómsveitum
eni ekki til staðar
hér,“ segir Paavo.
„Þegar tónlistarnem-
ar eru búnir í námi og
komast í atvinnu-
mennsku læra þeir viss vinnubrögð
sem gera þeim kleift að stytta sér
leið að markmiðunum og listin get-
ur orðið að vana. í Norrænu hljóm-
sveitinni er engu slíku til að dreifa
því allir hafa nær ótakmarkaða
orku og spila á hljóðfæri sín af
miklum æskuþrótti. Þetta er ekki
síst sterkasta aðdráttaraflið fyi-ir
mig því ég kemst í samband við
þann tíma er ég var sjálfur nem-
andi í hljómsveit í Bandaríkjunum
ásamt félögum mínum og þá voru
engir fjárhagslegir hagsmunir eða
aðrar hliðarverkanir sem skyggðu á
aðalatriðið, sem var að spila frá
morgni til kvölds." Til marks um
það hversu ofarlega það er í huga
Paavo að hljóðfæraleikararnir ungu
fái notið sín til fullnustu hafa ekki
verið leiknir einleikskonsertar síð-
an hann tók við stjórninni. „Hug-
mynd mín var sú að nýta alla
hljómsveitina sem mest og reyna á
hæfni hljóðfæraleikaranna í stórum
og krefjandi hljómsveitarverkum.
Þótt það seljist betur inn á tónleika
þar sem einleikari er í aðalhlut-
verki, og það að vera í samstarfi við
þekktan einleikara sé eins og fjöður
í hatt hljómsveitarinnar, breytir
það því ekki að hljóðfæraleikararn-
ir þurfa að sitja af sér langar þagn-
ir á meðan einleikari tekur sínar
rispur. Kannski hljómar það
skringilega, en því ekki að setja tvö
stór hljómsveitarverk á efnisskrána
og láta sérhvem hljóðfæraleikara
mæta hámarksáskorun? Þetta er
sjaldan gert í atvinnuhljómsveitum
en hefur virkað mjög vel hjá okk-
ur.“
Paavo lýsir því sem skoðun sinni
að mikilvægt sé að halda áfram
stuðningi við Norrænu hljómsveit-
ina í framtíðinni og hvetja hana í
því þýðingarmikla starfi sem hún
vinnur, því í öðrum heimshlutum
séu starfræktar góðar ungliða-
hljómsveitir og svar úr Norðrinu
sé því nauðsynlegt til að taka þátt
á þessu sviði heimsmenningarinn-
ar. „Ég held að Norræna hljóm-
sveitin gæti vel þróast út í viða-
meiri menningarstofnun, sem upp-
fóstraði kynslóð góðra listamanna
frá Norðurlöndunum,“ segir
Paavo.
Tónleikar Norrænu hljómsveit-
arinnar hefjast kl. 19 í kvöld í Há-
skólabíói.
Viðskiptavinir athugið!
Næsti vöruvagn verður til afgreiðslu 23. júlí.
Síðasti móttökudagur pantana er 10. júlí.
freeMOMz
Sími 565 3900
Fax 565 2015
Sumartónleikar í Skálholtskirkju 1998
Önnur tónleikahelgi
Laugardagur 11. júlí, kl. 14:00
Erindi í Skálholtsskóla
Laugardagur 11. júlí kl. 15:00
Laugardagur ll.júlíkl. 17:00
Sunnudagur 12. júlíkl. 15:00
Sunnudagur 12. júlí messa kl. 17:00
Tónlistarflutningur hefst kl. 16:40
Erindi - Sr. Guðmundur Óli Ólafsson
- Skip Guðs og fiskivötn
Tónverk
eftir Hafliða Hallgrímsson og
Sófi'u Gubaidulinu
Flytjendur:
Khali-kvartettinn
Hafliði Hallgrímsson, selló
Guðrún Óskarsdóttir, semball
Dean Ferrell, kontrabassi
Aðgangur ókeypis - allir velkomnir