Morgunblaðið - 10.07.1998, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998 29
Sumardagskrá Norræna hússins
Ur lífí verkakonu
í Reykjavík 1919
í FUNDARSAL Norræna hússins
á sunnudaginn kl. 16.00 verður
dagskrá, þar sem Margrét Helga
Jóhannsdóttir leikkona les brot úr
dagbókum Elku Björnsdóttur
verkakonu í Reykjavík. Margrét
Guðmundsdóttir sagnfræðingur
hefur valið efnið til flutnings. Dag-
bókarbrotin eru frá 1919 og lýsa
vel lífsbaráttunni í Reykjavík á
þeim tíma.
í kynningu segir: „Elka Bjöms-
dóttir fæddist á Reykjum í Lund-
arreykjadal 1881. Hún flutti ásamt
foreldram sínum að Skálabrekku í
Þingvallasveit tveimur árum síðar.
Arið 1906 flutti Elka til Reykja-
víkur og bjó þar þar til hún lést ár-
ið 1924. Elka var í vist fyrstu fimm
árin í bænum, en gerðist lausakona
eftir það. Þá starfaði hún m.a. við
saltfískverkun, síldarsöltun,
þvotta, heimilishjálp og aðra dag-
launavinnu. Hún vann síðustu ævi-
ár sín við ræstingar á skrifstofu
borgarstjórans og Slökkvistöðinni í
Tjarnargötu 12. Hún giftist aldrei
og átti ekki böm.
Fyrsta dagbók Elku hefst á
sumardaginn fyrsta 22. apríl 1915
og hélt hún dagbók til ársins 1923.
Dagbækurnar era varðveittar í
handritadeild Landsbókasafnsins.
Elka Bjömsdóttir hafði mikinn
áhuga á myndlist og sótti myndlist-
arsýningar í Reykjavík frá því
fyrsta sýningin var haldin haustið
1900, þegar Þórarinn B. Þorláks-
son hélt sýningu á málverkum.
Hún komst í kynni við nokkra upp-
rennandi myndlistarmenn þjóðar-
innar og studdi við bakið á þeim.“
Margrét Helga Jóhannsdóttir
útskrifaðist úr Leiklistarskóla
Þjóðleikhússins 1967. Hún starfaði
þar um fimm ára skeið og lék mörg
veigamikil hlutverk, m.a. ekkjuna í
Zorba.
1972 hóf hún að leika hjá Leik-
félagi Reykavíkur, og hefur verið
fastráðin þar frá 1977. Fyrsta
hlutverk hennar hjá Leikfélagi
Reykjavíkur var Ugla í Atómstöð-
inni eftir Halldór Laxness. Mar-
grét Helga hefur leikið flest
stærstu kvenhlutverk í leikverk-
um Laxness og má nefna Sigur-
línu í Sölku Völku, Gæju Kaldan í
Straumrofi og í kvikmyndum t.d.
hlutverk Úu í Kristnihaldi undir
Jökli, matseljuna í Atómstöðinni
og í Brekkukotsannál.
Margi-ét Helga hefur leikið í
mörgum nýjum íslenskum leikrit-
um, m.a. í leikriti Árna Ibsens
Elínu Helenu og tveimur leikritum
eftir Björn Th. Björnsson; Ljóni á
síðbuxum og Dunganon. Þá hefur
hún leikið í leikritum Kjartans
Ragnarssonar, t.d. Saumastofunni,
Ofvitanum og Landi míns fóður.
Margrét Helga hefur leikið í út-
varpsleikritum og í sjónvarpi.
Einnig hefur hún lesið skáldsögur í
útvarpi, m.a. sögur eftir Jakobínu
Sigurðardóttur.
Sýningar í galleríkeðj-
unni Sýnirými í júlí
NÚ stendur yfir sýning Hildar
Bjarnadóttur í galleríi Sýniboxi á
Vatnsstíg 3. Verk hennar er unnið
með prjónum og er úr girni.
Hildur stundaði nám í textíldeild
Myndlista- og handíðaskóla Is-
lands árin 1989-92 og nam við ný-
listadeild Pratt Institute í Banda-
ríkjunum 1998-97.
I gallerí Barmi sýnir Erna G.
Sigurðardóttir verk sitt: „Fáðu þér
bita með mér.“ Berendur sýningar-
innar og þar með gallerísins í mán-
uðinum era þau Ari Gísli Bragason
og Sigríður Hjaltested.
Símsvaragalleríið Hlust hefur nú
verið hertekið af áróðursmaskín-
unni og hryðjuverkasamtökunum
RelaxFax.
RelaxFax sendir út tilkynningar
og áróður til stuðnings málefna-
baráttu sinni. Síminn í galleríi
Hlust er 551 4348.
I sýningarrýminu 20m2 við vest-
urgötu lOa fer nú fram „Söng-
skemmtun“. Hún er haldin á mið-
vikudögum, fimmtudögum, föstu-
dögum, laugardögum og sunnudög-
um milli klukkan 15 og 18. Söng-
skemmtun þessari lýkur sunnu-
daginn 26. júlí og að henni standa
Vasaleikhúsið og Þorvaldur Þor-
steinsson.
Þakrennur
og rör
úr Plastisol-
vörðu stáli.
Heildarlausn á
þakrennuvörnum
í mörgum litum.
*
SB'
BLIKKAS hf
Símar 557 2000 og 557 7100
Skemmuvegi 36 Bleik gata
Kópavogi
Súrefnfsvörúr frá
Karin
Herzog
• enduruppbyggja luíðina
• vinna á aþpelsínuhúð
og sliti
• vinna á unglingabúluin
■ V
• viðhelclur ferskleika Jiúð-
ariimar
Férskir vtndar í
umhirdu húðar
Ráðgjöf og kynning í
Háaleitisapóteki
í dag og á rhorgun
kl 16-18.
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
STIKLUR nefnist yfirlitssýning á verkum Magnúsar Tómassonar
sl. áratug sem verður opnuð í Listasafni Árnesinga á laugardag.
Sumarsýning
Listasafns
s
Arnesinga
SUMARSÝNING Listasafns Ár-
nesinga á Selfossi verður opnuð
laugardaginn 11. júií. Stiklur
nefnist yfirlitssýning á verkum
Magnúsar Tómassonar síðasta
áratuginn auk þess sem opnuð
verður farandsýningin Handverk
og hönnun, sýning á 40 tillögum í
minjagripasamkeppni sem Hand-
verk efndi til í samvinnu við Átak
til atvinnusköpunar í vor sem leið.
Sýningarnar standa yfir til loka
júlímánaðar.
f fréttatilkynningu frá Lista-
safni Árnesinga segir að ein
ástæðan fyrir vali á sumargesti
safnsins sé sú að Magnús hafi
rækilega vakið fólk til umhugsun-
ar um útfærslu hugmynda yfír í
form eftir að frumgerð hans að
minnisvarða um Eyvind og Höllu
var sýnd. „Langt er síðan högg-
mynd eða listaverk hefur vakið
taugatitring eða umtal svo
nokkru nemi og hafa þó listamenn
oft reynt að þenja mörk hins við-
tekna ellegar bjóða smekk al-
mennings birginn á undanförnum
áratugum.“
Um þróun listferils Magnúsar
segir Olafur Gíslason í sýningar-
skrá frá 1995, „að í fyrstu beindi
hann kröftum sínum að olíulitnum
og síðar að öðrum efnum; málmi,
gpjóti, plasti, tré og fundnum
hlutum, sem hann notaði í frá-
sagnarverk sem hann kallaði ljóð-
myndir eða sýniljóð. Að lokum
þróaðist þessi árátta hans yfir í
gerð hreinna umhverfisverka sem
miðuðu að því að setja form og
fyrirbæri í nýtt samhengi við um-
hverfi sitt.“ Þremur höggmynd-
um á sýningunni verður komið
fyrir undir berum himni á lóð
Sundlaugar Selfossbæjar.
Á sýningunni Handverk og
hönnun verða sýndar tillögur sem
þóttu athyglisverðar eða hlutu
verðlaun í minjagripasamkeppni
Handverks og Átaks til atvinnu-
sköpunar.
Nýjar bækur
• TRÉSMIÐII eilífðinni - og
fleiri sögur er eftir Gyrði Elíasson.
Bókin hefur að geyma 37
smásögur - úrval úr þeim fimm
smásagnasöfnum sem Gyrðir
Elíasson hefur
gefið út s.l. tíu ár.
I kynningu segir:
,AHt frá því
Bréfbátarigningin
kom út árið 1988
hefur Gyrðir lagt
rækt við hið -
vandasama form
smásögunnar og
auðgað það með
sínum sérstaka frásagnarhætti og
fágaða stíl. Þessi bók endurspeglar
afar vel þróunina í smásagnagerð
Gyrðis og er því kjörin fyrir þá sem
vilja kynnast betur verkum hans.“
Bókinni fylgir ítarlegur eftirmáli
um Gyrði og verk hans eftir
Kristján B. Jónasson, sem valdi
sögumar í bókina ásamt Guðmundi
Andra Thorssyni og Páli Valssyni.
Mál og menning gefur út. Bókin
er 190 bls. ogprentuð í Norhaven í
Danmörku. Verð 999 kr.
• KVEIKISTEINAR er eftir
Aðalstein Svan Sigfússon.
í kynningu segir: „I bókinni eru
36 ljóð. Áberandi þáttur margra
þeirra er næm tilfinning fyrir
náttúrunni, ekki síst gróðri og
trjám sem höfundur nálgast af
auðmýkt og virðingu og glöggri
skynjun fyrir samspili manns og
náttúru. Jafnframt eru ljóðin oft
tengd atvinnulífi og
atvinnuháttum, til dæmis
sjómennsku og búskap. En um leið
og ljóð þessarar bókar hafa
óvenjulegt jarðsamband þá er
samspil þess og hugarflugsins oft
hárfínt og skýringin felst í fáguðu
og meitluðu myndmáli."
Aðalsteinn Svanur Sigfússon er
fæddur við Eyjafjörð árið 1960 og
er myndlistarmaður að mennt.
Kveikisteinar er fyrsta ljóðabók
hans, en áður hafa birst eftir hann
ljóð í tímaritum.
Mál og menning gefur út.
Kveikisteinar er 47 bls. prentuð í
Prentsmiðjunni Gafík. Verð 1.680
kr.
Gyrðir
Eini lífeyrissjóðurinn sem býður
allt þetta er ALVÍB:
• val um verðbréf til ávöxtunar.
• verðmæti inneignar uppfært daglega.
• upplýsingar um inneign á nóttu sem
degi á netinu.
Inneign í ALVÍB er þín séreign en jafn-
framt tryggir ALVÍB sjóðfélögum eftir-
laun til æviloka samkvæmt nýjum lögum
um lífeyrissjóði.
Um allt þetta ogfjölmargar tryggingar
sem í boði eru í gegnum ALVÍB færðu
allar upplýsingar í Litlu bókinni um
lífeyrismál hjá VÍB á Kirkjusandi eða í
útibúum íslandsbanka um allt land.
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Kirkjusandi • Sími 560 89 00 • Veffang: www.vib.is • Netfang: vib@vib.is