Morgunblaðið - 10.07.1998, Side 38
38 FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
-----------------------
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi og langafi,
BALDUR BJARNASON
bóndi,
Vigur,
andaðist miðvikudaginn 8. júlí.
Sigrtður Salvarsdóttir,
Björg Baldursdóttir, Jónas Eyjólfsson,
Ragnheiður Baldursdóttir, Óskar Óskarsson,
Bjarni Baldursson,
Salvar Baldursson, Hugrún Magnúsdóttir,
Björn Baldursson, Ingunn Sturludóttir,
Hafsteinn Hafliðason, Iðunn Óskarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Okkar ástkæra móðir, amma og langamma,
ÁSTA STRANDBERG,
Fannborg 8,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn 8. júlí.
Fyrir hönd aðstandenda,
Halldór Jónsson,
Ásta Óla Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móöir og amma,
MAGGÝ ELÍSA JÓNSDÓTTIR,
Fjarðargötu 17,
Hafnarfirði,
lést á Vífilsstaðaspítala að kvöldi þriðjudags-
' ins 7. júlí.
Gunnar Loftsson,
Anna Lísa Gunnarsdóttir, Kristján Sigurbjörnsson,
Guðrún Gunnarsdóttir, Jónas Ágústsson
og barnabörn.
+
Móðir okkar,
SÓLEY SESSELÍA MAGNÚSDÓTTIR,
Hvolsvegi 26,
Hvolsvelli,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 7. júlí.
Sjöfn H. Jónsdóttir,
Einar Jónsson,
Guðrún Jónsdóttir.
+
Við þökkum samúð og vinarhug við andlát og
útför
HALLGRÍMS ELÍASAR MÁRUSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar í Kópavogi.
Hermfna Sigurbjörnsdóttir
og fjölskylda.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS ÞORVARÐARSONAR,
Nökkvavogi 15.
Guðmundur Jónsson, Ólína Melsted,
Rósa Bachmann Jónsdóttir, Jóhann Jónsson,
Friðgeir Jónsson, Árný Valgerður Steingrímsdóttir,
Sigríður Helga Jónsdóttir, Bjarni Helgason,
Bryndís Ingibjörg Jónsdóttir, Árni Björnsson,
Helgi Jónsson, Sigurlaug Gréta Skaptadóttir,
Hallfríður Jóna Jónsdóttir, Ingvar Árni Óskarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
ÞÓRKELL G.
BJÖRGVINSSON
+ Þórkell Gunnar
Björgvinsson
fæddist í Reykjavík
19. júní 1932. Hann
lést á heimili sínu
30. júní síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Björgvin Þor-
steinsson, f. 15.
september 1901, d.
29 mars 1968, og
Sigríður Þórðar-
dóttir, f. 30 júní
1907. Þau bjuggu
öll sín hjúskaparár í
Hamri á Selfossi.
Bróðir Þórkels er
Sigurður Björgvin Björgvins-
son, f. 5. maí 1939.
Eftirlifandi eiginkona Þór-
kels er Friðsemd Eiríksdóttir
frá Vorsabæ á Skeiðum, f. 22.
apríl 1932. Þau bjuggu öll sín
hjúskaparár á Eyravegi 5, Sel-
fossi. Börn þeirra eru: 1) Þórð-
ur, læknir, f. 3. nóvember 1954.
Eiginkona hans er Lilja Hjart-
ardóttir. Börn þeirra eru Edda
Björk, f. 18. júní 1980, Þórkell,
f. 27. maí 1984 og Þórður
Björgvin, f. 16. september 1995.
2) Sigurvin, f. 2. september
1956. Sonur hans er Davíð
Freyr, f. 3. deseinber 1980. 3)
Sveinbjörn, kennari, f. 27. des-
ember 1959. Eiginkona hans er
Halla Torlacius. Börn þeirra
eru Hrafnkell, f. 7. desember
1982, og Anna, f. 10. apríl 1987.
4) Eiríkur, líffræðingur og bú-
fræðingur, f. 11. mars 1963.
Eiginkona hans er Unnur Lísa
Schram. Börn
þeirra eru Jakob
Þór, f. 21. júlí 1993,
og Baldvin Ari, f.
28. júní 1996. 5)
Kristrún, hjúkrun-
arfræðingur, f. 27.
ágúst 1971. Unnusti
hennar er Anton
Orn Schmidhauser.
Dóttir þeirra er
Emma Rún, f. 14.
júlí 1994. 6) Helga,
nemi í Kennarahá-
skóla Islands, f. 5
nóvember 1973.
Unnusti hennar er
Arnar Halldórsson.
Þórkell ólst upp á Selfossi.
Foreldrar hans hófu búskap þar
árið 1932, en faðir hans fluttist
þangað þremur árum áður. Ár-
ið 1949 hóf Þórkell nám í hús-
gagnasmíði í Reykjavík og lauk
því námi nokkrum árum síðar.
Á námsárunum tók hann virkan
þátt í félagsmálum og var um
tíma formaður Iðnnemasam-
bands íslands. Að námi loknu
vann hann um tíma við húsa- og
húsgagnasmíðar, en varð að
hverfa frá þeim störfum sökum
heilsubrests. Árið 1954 stofnaði
hann verslunina Olfusá á Sel-
fossi og starfaði hann upp frá
því við ýmiss konar verslunar-
rekstur. Síðustu árin rak hann
reiðhjólaverslun og viðgerðir
ásamt Sigurði bróður sínum.
Þórkell verður jarðsunginn
frá Selfosskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Þórkell G. Björgvinsson, tengda-
faðir minn, var að mörgu leyti
þversagnakenndur maður, oftast
úthugsaði hann og skeggræddi
hvert mál, velti fyrir sér og greindi
hverja stöðu en um leið átti hann
það til að taka skyndiákvarðanir og
þá var ekki verið að hika við neitt.
Hann var einn sá hjartahlýjasti og
gjafmildasti maður sem ég hef
kynnst. Ef einhver átti undir högg
að sækja var hugur hans hjá lítil-
magnanum. Hann lét ekki sitja við
orðin tóm heldur rétti óboðinn
fram hjálparhönd og sá sem að-
stoðina fékk vissi jafnvel ekki að
Þórkell hefði komið þar nærri. Þar
sem hann var aldrei með neitt hálf-
kák í þessum efnum frekar en öðr-
um gat hann stundum gengið full-
nærri sjálfum sér þegar hann var
að liðsinna fólki, en í hans huga var
slíkt algjört aukaatriði. Hann átti
Fríðu sína, Sigurð bróður sinn og 6
börn. Meira var ekki hægt að biðja
um.
Á árum áður horfði hann á og tók
þátt í baráttu verkalýðsins og því
var eðlilegt að hann íylgdist vel með
baráttu hinna vinnandi stétta alla
sína tíð. Alltaf tók hann málstað
þeirra sem börðust fyrir réttindum
sínum, þótt honum fyndist á stund-
um að menn gerðu sér ekki grein
fyrir því að til þess að ná fram sann-
gjömum kröfum þarf oft að fóma
einhverju um stundarsakir.
Hann var þess fullviss að líf væri
að þessu loknu og sú sannfæring
mótaði mjög lífsviðhorf hans og
gerði hann um leið að fyrirtaks
huggara fyrir okkur sem hugsum
eins og efasemdarmaðurinn Tómas
forðum.
Þórkell var afskaplega hrein-
skiptinn, átti auðvelt með að sjá
kjama málsins, tjá skoðanir sínar á
hnitmiðaðan hátt og var ákaflega
næmur á líðan og tilfinningar ann-
ama. Ef eitthvað bjátaði á var hann
r Blómabúáin >
öa^ðskom
. v/ FossvogskrrUjwgarð ,
V Sími: 554 0500
vakinn og sofinn í umhyggju sinni.
Hann hikaði ekki við að sýna til-
finningar sínar og trúlega er það
ástæðan fyrir því hve létt og sjálf-
sagt var að deila með honum sorg
og gleði, áhyggjum og ánægju. það
hef ég persónulega upplifað mörg-
um sinnum í þau rúm 16 ár sem ég
þekkti hann.
Eg kveð tengdaföður minn með
virðingu og djúpu þakklæti fyrir
samfylgdina sem því miður var
alltof stutt.
Halla Thorlacius.
Á slíkri kveðjustund sækja
minningarnar á hugann sem aldrei
fyrr og því fegurri sem minningin
er, þeim mun sárari er söknuður-
inn. Margs er að minnast þegar lit-
ið er til baka og rifjaðar eru upp
samverustundir með jafn ástríkum
föður og þú varst.
Það eru viss forréttindi að fá að
fylgjast með fóður sínum í starfi og
amstri hins daglega lífs. Minnist ég
mín fyrst sem strákhnokka sem
elti þig á röndum og vildi fá að
fylgjast með því sem þú hafðir fyr-
ir stafni og hjálpa eftir því sem
mér væri treystandi til. Fékk ég
fljótt verkefni við hæfi, því nóg var
að gera og ábyrgðin óx með vax-
andi getu og þroska. Sú ábyrgð og
starfsreynsla sem ég öðlaðist sem
unglingur í samstarfi við þig hefur
verið mér mikils virði á lífsleiðinni.
Þér var mjög annt um að við
systkinin gengjum menntaveginn
og lagðir allt sem þér var unnt af
mörkum til þess að svo gæti orðið.
Eg minnist þess hve vel þú fylgdist
með því hvernig okkur miðaði og
hvernig okkur gekk með einstaka
áfanga námsins. Hvatning þín var
okkur mikils virði.
Af þér lærði ég að meta góðar
bókmenntir. Þú varst snemma bók-
hneigður og ég minnist þess er
móðir mín rifjaði upp að fyrst eftir
að þið kynntust eyddir þú öllu þínu
sparifé í bækur. Þó svo að dregið
hafi úr bókakaupum er hjúskapar-
ár ykkar gengu í garð stóðstu
sjaldnast freistinguna ef áhuga-
verðar bækur voru annars vegar.
Geymir heimili ykkar ófáar perlur
bókmenntanna.
Þú hafðir mjög gott vald á ís-
lenskri tungu og vandaðir málfar
þitt í hvívetna. Lést þú okkur
systkinin strax heyra það ef þér
fannst málfar okkar ábótavant.
Unun var á að hlýða er þú last upp
ljóð eða góða sögu.
Þú varst einnig einstakur bróðir
og sonur. Engum sem kynntist
ykkur Sigga duldist hve samrýndir
þið bræðurnir voruð og hve gott
samstarf ykkar vai'. Með hjálp
móður minnar hlúðuð þið að aldr-
aðri móður ykkar eins vel og ykkur
var unnt. I þínum huga kom aldrei
annað til greina en að hún fengi að
eyða síðustu æviárunum á sínu
upprunalega heimili.
Kalhð er komið og þú ert horfinn
sjónum okkar, en eftir lifir minn-
ingin um besta föður sem nokkur
getur hugsað sér.
Þórður.
Elsku afi. Nú ert þú hjá guði. þú
getur hlaupið um og hvorki gigt,
hjartveiki eða neitt annað getur
stöðvað þig. Þú horfir á mig ofan
úr skýjunum og sérð hvað ég sakna
þín mikið. Þú varst hress og kátur
og vildir alltaf vera að gleðja mig.
Eg vildi að þú værir ekki dáinn en
kannski var best að fara svona
fyrst þú varst kominn með svona
veikt hjarta. En afi, þó þú sért dá-
inn verður minningin um þig alltaf
í hjarta mínu.
Vertu sæll afi minn.
Þín
Anna.
í sólhvítu ljósi
hinna síðhærðu daga
býr svipur þinn.
Eins og tálblátt regn
sé ég tár þín falla
yfir trega minn.
Og fjarlægð þín sefur
í faðmi mínum
í fyrsta sinn.
(Steinn Steinarr.)
Drengur góður er failinn frá.
Hans verður sárt saknað um
ókomna tíð. Ómæld elska hans og
umhyggja fyrir okkur öllum er
kært þökkuð. Hvíl í friði.
Lilja Hjartardóttir.
Elsku afi minn. það er erfitt að
þakka þér í fáum orðum fyrir allt
það sem þú hefur gefið mér og
sýna það hve þakklátt ég er fyrir
að hafa átt þig.
Ég man vel hve við þórkell,
Hrafnkell og Anna hlökkuðum til að
koma í heimsókn til ykkar ömmu og
fá að gista á Selfossi. AJltaf vai' nóg
að gera og mér leið hvergi betur en
hjá ykkur. það var svo spennandi að
leika sér í hjólabúðinni hjá ykkur
Sigga og fylgjast með ykkur við
vinnuna. Ég minnist þess einnig hve
mikið fjör það var hjá okkur þegar
við fórum í bfltúr með þér seint á
kvöldin í Fossnesti að kaupa ís.
þú hafðir heillandi persónutöfra
og hafðir óendanlega margt að
fræða okkur frændsystkinin um.
Þær eni óteljandi sögurnar sem þú
sagðir mér. Ég man sérstaklega vel
hve mér fannst álfasögurnar spenn-
andi. Margar af bestu æskuminn-
ingum mínum em frá Selfossi.
Síðan kom að mér að sýna þér og
segja frá í Cincinnati þegar þið
amma heimsóttuð okkur þangað.
Sögusafnið átti hug þinn og þangað
ætlaðir þú að koma aftur. En mest
af öllu var það mannlífið í sínum
mörgu og misfógra myndum sem
heihaði þig og þú veltir högum
fólksins mikið fyrir þér. Það var
yndislegt fyrir okkur Þórkel að
hafa ykkur ömmu með á fótbolta-
leikina og á ýmsar samkomur í
skólanum.
það verður erfitt að koma í heim-
sókn á Selfoss án þess að hitta þig.
En minningarnar sem við varðveit-
um um þig hjálpa okkur gegnum
þetta erfiða tímabil og það er
huggun að vita til þess að núna
ertu meðal engla Guðs.
Edda Björk.