Morgunblaðið - 10.07.1998, Blaðsíða 40
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+ Aðalheiður Sig-
urðardóttir
fæddist á Hvítár-
bakka í Borgarfirði
6. desember 1915.
Hún andaðist á
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 29. júní síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Sigurð-
ur Þórólfsson, skóla-
stjóri á Hvítárbakka,
og kona hans, Ásdís
M. Þorgrúnsdóttir.
Af systkinum henn-
ar eru á lífí: Mar-
grét, f. 1914, Áslaug,
f. 1919, og Valborg, f. 1922. Lát-
in eru: Kristín, f. 1898, d. 1971,
Margrét, f. 1901, d. 1901, Þor-
grímur, f. 1905, d. 1983, Hrefna,
f. 1907, d. 1908, Anna, f. 1908, d.
1996, Guðmundur, f. 1911, d.
1931, Guðrún, f. 1912, d. 1995, og
Ásberg, f. 1917, d. 1990.
Fyrri maður Aðalheiðar var Jón
G. Sigurgeirsson stýrimaður, f.
9. nóvember 1912, d. 11. janúar
1944. Börn þeirra eru: 1) Sigrún
Margar góðar minningar á ég um
-* elskulega mágkonu mína, Aðalheiði
Sigurðardóttur.
Fyrstu kynni mín af Öddu, eins
og hún var ávallt kölluð af vinum og
skyldfólki, eru óljós fyrir mér í dag,
því ég var á Vífilsstöðum og svo
Reykjalundi fyrstu hjúskaparár
hennar með bróður mínum. Eftir
1956 hófst gott samband okkar á
milli og fljótlega vinatengsl sem
entust til síðasta dags.
Ég átti þó eftir að fara á Vífils-
staði eftir það, tvisvar sinnum, og
—ai.egi ég frá því vegna þess að í bæði
skiptin bauðst hún til að vera mín
hjálparhella. Hún tók dóttur mína
eins árs gamla og fóstraði í sex
mánuði. Eg var henni og bróður
mínum Skazphéðni mikið þakklát
því ekki gat ég fengið betri stað íyr-
ir hana. Adda var mikil húsmóðir og
reglusöm með allt. Hjá henni var
mikill gestagangur á þessum árum,
á Ásvallagötunni, en þar ólust öll
bömin hennar upp og hún leit til
með móður sinni aldraðri.
Ég man hvað ég var hissa þegar
dóttir mín kom aftur til mín, í peysu
sem Ásdís móðir Öddu hafði prjón-
að á bamið, og hvílíkt handbragð
sem á henni var og hvað hún var fal-
^ leg er mér minnisstætt.
Skarphéðinn vai- á sjó um þetta
leyti svo Adda var oft ein með börn-
in og móður sína og allan gesta-
ganginn, þetta var eins og miðstöð
fyrir vini og vandamenn, fannst
mér.
Adda var létt og drífandi, hún
Kristjana, f. 14. nóv-
ember 1938, var gift
Omer B. Kundak
sem er látinn, börn
þeirra eru Adda
Catherine og Jón
Ali. 2) Sigurður Æg-
ir, f. 20. mars 1943,
d. 10. september
1987, eftirlifandi
kona hans er Helga
Guðmundsdóttir,
sonur þeirra er
Benedikt Bjarki.
Seinni maður Aðal-
heiðar var Skarp-
héðinn Magnússon
stýrimaður, f. 16. febrúar 1921,
d. 26. júlí 1984. Synir þeirra: 1)
Magnús, f. 6. ágúst 1949, kona
hans var Jessica Corolina Wil-
brennick, böm þeirra eru Yrsa
Rut og Stefán Karl. 2) Reynir, f.
10. desember 1952, ókvæntur og
barnlaus. Barnabamabörnin em
fimtn talsins.
Utför Aðalheiðar verður gerð
frá Áskirkju í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
mátti stundum ekki vera að þvi að
borða eða var hlaupin í uppvask um
leið og síðasti maður hafði þurrkað
sér um munn. Hún var létt á fæti út
í búð og hvarvetna sem maður sá
hana, alltaf eins og hún þyrfti að
flýta sér.
Skarphéðinn hætti á sjónum og
setti upp fiskbúð á Víðimelnum, þá
var stutt á milli og strákarnir meira
í tengslum við fóður sinn. Alla tíð
frá fæðingu dóttur minnar var mik-
ið um heimsóknir, til mín og öfugt
og ekki máttu líða nokkrir dagar án
hringinga eftir að þau fluttust á
Melhaga og svo í Árbæ. Öddu þótti
gaman að ferðast og kom stundum
með mér í stuttar ferðir eftir að
Skarphéðinn lést. Einu sinni fórum
við til Akureyrar og gistum þar en
þá langaði hana til Húsavíkur þar
sem hún þekkti einhvern, og þá
munaði ekki um að fara að Mývatni
og í Dimmuborgir. Það verð ég að
segja að betri ferðafélaga hef ég
ekki átt því þá sá ég hana glaða og
ánægða. Þegar dóttir mín var lítil
og ég bíllaus var okkur boðið með
þeim. Einu sinni vorum við að koma
úr Hveragerði á sendiferðabíl minn-
ir mig þegar stýrið fór úr sambandi
og sveigði til vinstri í öfuga átt og
bíllinn útaf niður brekku og lenti
rétt fyrir framan háan klett. Meðan
bíllinn rann niður brekkuna voru
allir hljóðir nema Adda, sem sagði
lágt: Guð hjálpi okkur. Svo sannar-
lega gerði hann það, því enginn
haggaðist úr sætum, við vorum sjö í
bílnum, hjónin, þrír drengir og telp-
an mín fimm ára. Adda hugsaði
fyrst um okkur mæðgurnar og
sagði mér að fara strax upp á veg
og húkka far í bæinn, en margir bíl-
ar stoppuðu til að athuga hvort ein-
hver hefði meiðst. Svona var Adda
mín. Seinna fór hún nokkrar ferðir
til Ameríku að heimsækja börnin
sín tvö ,Sigrínu og Reyni, sem hafa
búið þar í tugi ára. Adda var fróð
um marga hluti, enda las hún mikið.
Þess vegna var gaman að hlusta á
hana þegar hún sagði frá, en hún
átti til að segja: „Án þess ég viti
það“, en hún vissi það. Þetta var
eins konar hæverska, því hún var
minnisgóð með eindæmum að mér
fannst.
Adda var orðin þjáð löngu áður
en hún fór á spítalann í myndatöku,
en var þá lögð inn samstundis. Hún
mátti þola þrjá uppskurði á rúmum
tveimur vikum. Fyrir þremur árum
fór hún í uppskurð og þá var tekið
stórt æxli. Hún varð aldrei söm eftir
það. Nú er þessu lokið og ástvinir
hennar sem á undan eru gengnir
taka örugglega vel á móti henni.
Ég bið Guð að varðveita hana og
aðra látna að fylgja henni.
Innilegar samúðarkveðjur til Sig-
rúnar, Magnúsar, Reynis, barna-
barna og htlu langömmubamanna,
Guð styrki ykkur öll.
Pálína Magnúsdóttir.
Þegar mér var tilkynnt lát Aðal-
heiðar Sigurðardóttur þyrluðust
upp margar minningar frá löngu
liðnum tíma þegar við bjuggum í
nálægð hvor annarrar. Við urðum
brátt vinkonur og nánast heima-
gangar hvor hjá annarri. Það grípur
mig þægileg og innileg tilfinning
þegar ég rifja upp samverustundir
okkar í Vesturbænum. Af kynnum
okkar Öddu lærði ég margt, m.a. að
burðast ekki með óþægilega hluti
heldur h'ta „frarn á við“ eins og hún
orðaði það. Hún leiðbeindi mér með
ýmslegt tilheyrandi heimilishaldi,
en umræður okkar snerust þó frek-
ar um aðra hluti, enda var hún lífs-
reynd kona. Ég undraðist oft þann
lífskraft og alvöru sem hún bar með
sér. Adda var þeim eiginleikum bú-
in að ná vel til manna, var hleypi-
dómalaus í garð annarra og varð því
vinsæl meðal kunningja og starfsfé-
laga. Hún hafði létta lund sem létti
henni lífsbaráttuna. Hún hafði
ákveðnar skoðanir á hlutunum þó
að þær hafi oftar en ekki fengið að
hvíla undir yfirborðinu. Hún þoldi
ekki yfirborðsmennsku og höfð-
ingjatal. Þegar Adda barði að dyr-
um í bakgarði hússins sem við fjöl-
skyldan bjuggum í fylgdi henni
hressandi blær og oft stutt í hlátur-
inn. Hún átti til að segja að það
væri alltaf tilbreyting að koma í
annað eldhús en sitt eigið. Svo hlóg-
um við saman þreytuna úr okkur
eftir annir dagsins.
Adda giftist Skarphéðni Magnús-
syni, stýrimanni, mannkosta- og
gæðamanni. Hann var lengst af til
sjós en hin síðari ár rak hann fisk-
verslun. Hann lést í júlí 1984, þegar
þau hjónin voru í sumarleyfisferð á
Laugarvatni. Adda var tvígift, fyrri
eiginmaður hennar var Jón G. Sig-
urgeirsson, stýrimaður á Max Pem-
berton sem fórst með allri áhöfn
hinn 15. janúar 1944. Það dylst eng-
um sem þetta les hvílíkir erfiðleikar
blöstu við 27 ára konu, að takast á
við lífið með tvö lítil börn, Sigrúnu á
sjötta ári og Ægi tíu mánaða, þótt
ekki sé minnst á hina djúpstæðu
sorg sem hún hefur borið í brjósti.
Saman eignuðust þau Héðinn og
Adda tvo syni, Magnús og Reyni.
Héðinn reyndist öllum börnunum
góður faðir og talaði aldrei um börn
Öddu sem stjúpböm, heldur voru
þau börnin hennar og hans. Það var
gott að heimsækja þau hjón, enda
var gestrisni höfð í hávegum á
heimili þeirra. Því má bæta við að
þau voru sérstaklega bamgóð.
Þremur árum eftir lát Héðins
andaðist Ægir úr krabbameini, að-
eins 44 ára að aldri. Hann lét eftir
sig eiginkonu og son. Enn sótti
dauðinn að fjölskyldu Öddu er
tengdasonur hennar, Omar
Kundak, féll frá 21. mars 1997 eftir
langvarandi veikindi.
Það sem einkenndi Öddu öðru
t
Systir okkar,
KRISTÍN JÓNASDÓTTIR,
Aðallandi 3,
Reykjavík,
lést á Landakoti miðvikudaginn 8. júlí.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 16. júlí kl. 15.00.
Hallgrímur Jónasson,
Auður Jónasdóttir.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR GUÐJÓNSSON
bóndi,
Vesturholtum,
Þykkvabæ,
verður jarðsunginn frá Þykkvabæjarkirkju
laugardaginn 11. júlí kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Klukknasjóð Þykkvabæjarkirkju.
Anna Markúsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
AÐALHEIÐ UR
, SIG URÐARDÓTTIR
fremur var umhyggjusemi, hjálp-
semi og greiðvikni. Þessir þættir í
fari hennar komu engu síður fram
við aðra en hennar nánustu. Alltaf
þegar hún kom í heimsókn til okkar
þegar við vorum flutt í Austurbæ-
inn átti hún það til að víkja ein-
hverju að börnum okkar. Árið 1959
fór Adda að vinna utan heimilisins,
lengst af í Hagkaupi. Þar vann hún
þar til hún lét af störfum fyrir ald-
urs sakir. Hún kom oft við hjá okk-
ur að loknum vinnudegi til að færa
okkur fréttir að utan, af fjölskyldu
Sigrúnar, sem hefur verið búsett í
Texas, síðan hún giftist, um miðja
öldina. Þess má geta að Sigrún
gætti stundum dætra okkar, þegar
við hjónin brugðum okkur af bæ.
Árið 1977 flutti Reynir í nálægð
systur sinnar og hefur búið í Texas
allar götur síðan og rekið sitt eigið
fyrirtæki í vöruflutningum. Adda og
Héðinn heimsóttu þau oftar en einu
sinni, en eftir að Héðinn lést fór hún
einsömul.
Eins og ég sagði í upphafi varð
okkur Öddu strax vel til vina. Sú
vinátta rofnaði aldrei þó að tímar
liðu án þess að við hittumst. Ég
kveð vinkonu mína með virðingu og
þakklæti fyrir að hafa kynnst henni.
Um leið votta ég börnum hennar og
barnabörnum og barnabarnabörn-
um mína dýpstu samúð.
Pálína Kjartansdóttir.
Þegar foreldrar mínir eignuðust
hús á Sólvöllum nokkrum árum fyr-
ir síðari heimsstyrjöldina, fékk
móðurbróðir minn, Jón G. Sigur-
geirsson, afnot af herbergi þar,
enda var hann þá að taka fiski-
manninn í Stýrimannaskólanum við
Öldugötuna og því skammt að fara.
Er líða tók á veturinn, var tekið eft-
ir því að hann stóð iðulega við hom-
gluggann og horfði skáhallt yfír göt-
una yfir á eina húsið sem var sjáan-
legt við Ásvallagötuna. Það kom
fram síðar hvert tilefnið var er hann
gekk að eiga aðra heimasætuna á
Asvallagötu 28. Aðalheiður Sigurð-
ardóttir var dóttir hjónanna Sigurð-
ar Þórólfssonar, skólastjóra Al-
þýðuskólans á Hvítárbakka, og Ás-
dísar Þorgrímsdóttur, sem var orð-
in ekkja. Aðalheiður var fædd 6.
desember 1915 á Hvítárbakka en
fluttist með foreldrum og systkin-
um til Reykjavíkur. Að prófi loknu
fór maður hennar aftur á sjóinn í
sama skiprúm og áður og varð síð-
ar 2. stýrimaður á Max Pem-
berton. Ungu hjónin hófu búskap
við Njálsgötu þar sem þeim fædd-
ist dóttir, sem skírð var Sigrún.
Fljótlega losnaði íbúð á Ásvalla-
götunni og fluttust þau þangað.
Hinn 20. mars 1943 eignuðust þau
dreng, sem síðar var gefið nafn
móðurafa síns og einnig örlaga-
valds fjölskyldunnar, Sigurður
Ægir. Síðar sama ár nokkrum dög-
um fyrir jól kom Max Pemberton
úr söluferð til Englands 22. des-
ember og var áhöfninni gefið leyfi
fram yfir jól og síðan haldið til
veiða á Halamiðum. Hinn 11. janú-
ar var skollið á norðaustan hvass-
viðri með fannkomu og kl. 7.30
settist Aðalheiður við útvarpið og
fann togarabylgjuna. Hún var að-
eins opin kl. 7.30 og kl. 23.30 sam-
kvæmt fyrirmælum breska flotans
og til mjög takmarkaðra nota. Frá
Max Pemberton komu þessi skila-
boð: Lónum undan Malarrifi.
Um kl. 16.30 kom ég frá skóla-
bókum niður því að við ætluðum
nokkrir bekkjarfélagar að fara í
Nýja bíó að sjá Svarta svaninn.
Þar var Aðalheiður komin í stutt
innlit og spurði föður minn, sem
var í jólaleyfi yfir einn túr á bv.
Júpíter, hve löng sigling væri frá
Snæfellsnesi til Reykjavíkur.
Svona 10-12 tímar, fer eftir veðri,
svaraði hann. Ekkert heyrðist
frekar frá Max Pemberton og var
hann talinn af eftir nokkra daga.
Eftir styrjöldina tilkynnti svo
þýska flotastjórnin að lögð hefðu
verið tundurdufl á siglingaleið við
Snæfellsnes. Aðalheiður stóð nú í
sömu sporum og tvær mágkonur
hennar höfðu staðið áður, er bv.
Apríl og bv. Sviði fórust. Hún
hvorki brotnaði né bognaði og ól
upp börn sín ein. Hún giftist síðan
Skarphéðni Magnússyni frá ísa-
firði og gekk hann börnum Aðal-
heiðar í föður stað. Saman eignuð-
ust þau tvo drengi, Magnús og
Reyni. Eftir skyndilegt fráfall
Skarphéðins í júlí 1984 starfaði
Aðalheiður um árabil hjá skyld-
fólki sínu í Hagkaupi. Börnum og
skyldfólki Aðalheiðar eru sendar
samúðar og hluttekningarkveðjur.
Sigurgeir.
KRISTJANA
ÞORKELSDÓTTIR
+ Kristjana Þor-
kelsdóttir var
fædd í Reykjavík
24. janúar 1924.
Hún andaðist á
Landsspitalanum 2.
júli síðastliðinn.
Faðir hennar var
Þorkell Ottesen,
prentari á Akur-
eyri, og móðir
Hólmfríður Krist-
jánsdóttir frá tílfs-
bæ í Bárðardal.
Þorkell átti níu önn-
ur börn en Hólm-
fríður hana eina, en
fékk henni fóstur hjá Sigríði
Margréti Sigurðardótttur föð-
ursystur sinni.
Kristjana gekk að eiga Einar
J. Skúlason, skriftvélavirkja,
22. maí 1943. Hann var fæddur
13. janúar 1918 á Söndum í Mið-
firði, sonur Salóme Jónsdóttur
og Jóns J. Skúlasonar, bónda
þar. Einar stofnaði fyrirtæki í
eigin nafni sem hann rak frá
1939 til 1985. Þau Kristjana
bjuggu lengi í
Bröttugötu 3a þar
sem fyrirtæki Ein-
ars var fyrst til
húsa en síðar í
Garðastræti 38.
Seinustu þrjú árin
hefur Kristjana bú-
ið á Vesturgötu 7.
Einar Iést 12. des-
ember 1990. Þau
Kristjana og Einar
eignuðust einn son
barna, Skúla, sem
er rafeindvirki.
Börn hans eru Ingi-
fríður Ragna, Árni
Einar og Einar Jón.
Kristjana var kostuð til náms
í Verslunarskóla íslands og út-
skrifaðist hún þaðan aðeins
sextán ára gömul. Hún starfaði
lengst af ævi á Landsíma fs-
lands, ritsímanum, eða frá 1942
til 1974, en frá 1987 til 1994 á
Listasafni Islands.
títför Kristjönu fer fram frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Fátt minnir jafn áþreifanlega á
hverfulleik alls lífs sem andann
dregur og að heyra dánartilkynn-
ingu góðra vina fyrirvaralaust. Við
síðustu samfundi var Kristjana vin-
kona okkar jafn skemmtileg og hún
var meðan við unnum saman í Lista-
safni Islands. Þar sem hún var,
eignuðumst við góða og trygga vin-
konu því að kringum hana var jafn-
an andrúmsloftið líkt og á vordegi.
Kristjana sagði skemmtilega frá
og var margfróð og hún naut þess
að vera innan um fólk. Nú er hún
horfin á braut og skarð fyrir skildi á
vinafundum þegar hana vantar. Kri-
stjana kunni vel að gleðjast með
glöðum. Því kveðjum við hana með
söknuði, en minningin um hana lifir
og vermir huga okkar i hvert skipti
sem mynd hennar kemur upp í hug-
ann. Þannig lifir hún áfram á meðal
okkar. Hafi hún kæra þökk fyrir
samveruna.
Sigríður Karlsdóttir,
Drífa Garðarsdóttir.