Morgunblaðið - 10.07.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
SIGRÍÐUR ÞÓRDÍS
BERGSDÓTTIR
+ Sigríður Þórdís
Bergsdóttir
fæddist í Reykjavík
19. desember 1924.
Hún andaðist á St.
Jósepsspítala í Hafn-
arfirði 3. júlí síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Bergur
Jónsson, alþingis-
maður og sýslumað-
ur í Barðastrandar-
sýslu, f. 24. septem-
ber 1898, d. 18. októ-
ber 1953, og fyrri
kona hans, Guðbjörg
Lilja Jónsdóttir, hús-
freyja í Reykjavík og á Patreks-
firði, f. 10. júlí 1903, d. 18. mars
1932. Bræður Sigríðar: Jón, f.
16. nóvember 1927, og Þórir, f.
2. júlí 1929, d. 7. mars 1987.
Seinni kona Bergs og sljúpmóð-
ir Sigríðar var Ólafía Valde-
marsdóttir, f. 8. febrúar 1906, d.
26. febrúar 1981.
Eiginmaður Sigríðar var Oli-
ver Steinn Jóhannesson, bóka-
útgefandi og bóksali og bæjar-
fulltrúi í Hafnarfirði, f. 23. maí
1920, d. 15. apríl 1985. Foreidr-
ar hans voru Jóhannes Magnús-
son, sjómaður í Ólafsvík, síðar í
Hafnarfirði, f. 10. apríl 1887, d.
9. ágúst 1936, og kona hans
Guðbjörg Olivers-
dóttir, húsfreyja í
Ólafsvík, síðar í
Hafnarfirði, f. 24.
mars 1890, d. 8. apr-
íl 1962. Börn þeirra
eru: Guðbjörg Lilja,
f. 2. apríl 1948 í
Reykjavík, var gift
Sævari Stefánssyni;
Jóhannes Örn, f. 8.
júh' 1950 í Reykja-
vík; Bergur Sigurð-
ur, f. 26. spetember
1951 í Reykjavík,
maki Sigríður Inga
Brandsdóttir.
Barnabörnin eru átta.
Sigríður ólst upp í Reykjavik,
á Patreksfirði og í Hafnarfírði.
Hún lauk gagnfræðaprófi frá
Flensborgarskóla í Hafnarfirði,
og síðar var hún húsfreyja,
fyrst í Reykjavík og síðan í
Hafnarfírði. Sigríður starfaði
mikið með Kvenfélagi Hafnar-
fjarðarkirkju og hún var í mörg
ár formaður Barnauppeldis-
sjóðs Thorvaldsensfélagsins, en
því félagi helgaði hún krafta
sína allt frá árinu 1963.
Sigríður Þórdís verður jarð-
sungin frá Hafnarfjarðarkirkju
í dag og hefst athöfnin klukkan
15.
Hinn 3. júlí síðastliðinn lést ást-
kær amma mín eftir skamma en
erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm.
Við fjölskyldan bjuggum á Arn-
arhrauninu í mörg ár áður en við
fluttum í Kópvoginn og það var því
stutt að hlaupa niður brekkuna í
heimsókn til ömmu Siddý. Ekki
voru það bara við systkinin sem
fórum til hennar, því ég man greini-
lega að þau voru ófá skiptin sem ég
bauð vinkonum mínum með í heim-
sókn til ömmu. Þá ríkti mikil og góð
stemmning á Arnarhrauni 44, því
amma átti gamlar upptökur af Evr-
óvisjón-söngvakeppninni og
skemmtum við vinkonurnar okkur
mjög vel við að horfa á þær meðan
amma hlóð í okkur kexi og kókó-
mjólk.
Amma var einstaklega hjartahlý
manneskja og ekki var hægt að
segja að gjafmildina vantaði hjá
henni. Alltaf var hún tilbúin að að-
stoða mann ef þess þurfti með og
sjálf veit ég að það var einna helst
henni að þakka að ég komst í út-
skriftarferðina mína í sumar.
Eg er alnafna ömmu og er ég
mjög stolt af þvi að bera þetta fal-
lega nafn. Oft hefur þó komið upp
smámisskilningur varðandi nöfnin,
en þá var bara farið að kalla okkur
Siddý eldri og Siddý yngri.
Elsku amma mín, þín er sárt
saknað, en ég er fegin að hafa náð
að kveðja þig áður en þú yfirgafst
þennan heim. Eg veit að þér líður
vel núna og þú hefur öðlast hinn
eiginlega frið. Hugsunin um það að
þú ert komin til afa eftir öll þessi ár
er einnig viss huggun.
Elsku amma, megir þú hvíla í
friði og ég veit að minningin um
yndislega ömmu mun lifa í hjarta
mínu um alla ævi.
Þín
Sigríður Þórdís.
Kveðja frá
Thorvaldsensfélaginu.
Okkar kæra og góða Sigríður
Bergsdóttir hefur nú kvatt þetta
jarðlíf. Hún var ein af þessum
traustu konum, tilbúin að gefa tíma
sinn og vinnu svo emhverjum sem
átti erfitt liði betur. I félagsskap er
fengur að slíku fólki og naut Thor-
valdsensfélagið krafta hennar í 36
ár. Hún sagði stundum að hún væri
eiginlega alin upp í félaginu því
hún var mikið hjá ömmu sinni Sig-
ríði Hjaltadóttur Jensson, en hún
var mikil Thorvaldsenskona og ein
af stofnendum og fyrsti formaður
Barnauppeldissjóðsins. Hún
minntist ömmu sinnar oft og hlý-
lega, og gaf félaginu borðfána með
merki félagsins til minningar um
hana. Siðar fetaði hún í hennar
spor, var kosin í stjórn sjóðsins og
síðar formaður hans í tæp 20 ár.
Jólamerkjaútgáfan er eitt af verk-
efnum Barnauppeldissjóðsins og
þar var Sigríður öllum hnútum
kunnug og dæmalaust minnug á
allt sem þeim viðkom. Hún átti í
bréfaskriftum við frímerkjasafnara
og -kaupmenn víða um heim og
kom á viðskiptum sem standa enn í
dag. Þá kom hún því í kring að fé-
lagið fékk útgáfurétt, á Islandi, á
bókinni vinsælu Karíus og Baktus.
Og svo átti hún sína vinnudaga á
Bazarnum eins og allar aðrar fé-
lagskonur.
Thorvaldsensfélagið á henni svo
sannarlega mikið að þakka sem og
félagskonur. Á 120 ára afmæli fé-
lagsins var Sigríður heiðruð með
gullmerki félagsins. Ég varð þeirr-
ar gæfu aðnjótandi að fá að kynn-
ast henni bæði í félagsstarfinu og
þar fyrir utan. Hún leiddi mig mín
fyrstu spor í Barnauppeldissjóðn-
um, og henni á ég allt gott að
þakka. Hún var svo ráðagóð og
hvetjandi. Við félagskonur sjáum
nú á eftir góðum og traustum fé-
laga sem við söknum sárt úr hópn-
um. Við minnumst hennar með
þakklæti og virðingu.
Innilegar samúðarkveðjur til
barna og annarra ástvina.
Guðlaug Jónína
Aðalsteinsdóttir.
Kveðja frá Inner Wheel-konum
Hafnarfirði.
„Lífið er sjóferð þar sem við er-
um öll á sama skipi.“ (Tagore.) Nú
hefur einn af félögum okkar Siginð-
ur Þórdís Bergsdóttir yfírgefið skip
lífsins og flutt sig á skip sem siglir
á öðru tilverustigi.
Þegar Inner Wheel-klúbbur
Hafnarfjarðar var stofnaður 4. nóv-
ember 1976 var Sigríður ein af
stofnfélögum. Hún var strax kosin í
fyrstu stjórn félagsins og átti sinn
þátt í að móta félagsstarfið og
leggja grunn að því starfi sem unn-
ið hefur verið síðan. Ávallt bar hún
hag félagsins fyrir brjósti og vann
því af heilum hug. Þegar hún flutti
erindi eða fékk fyrirlesara á fundi
var efnið ávallt áhugavert og upp-
byggjandi. Allur málflutingur
hennar og framkoma einkenndist af
einlægni og hógværð.
Við kveðjum Sigríði Þórdísi
Bergsdóttur með söknuði og þökk-
um henni samfylgdina á lífsins sjó-
ferð.
Fjölskyldu hennar sendum við
innilegar samúðarkveðjur.
Alexía M. Gísladóttir, forseti
Inner Wheel, Hafnarfirði.
Kveðja
Nú hverfur sól í haf
og húmið kemur skjótt.
Eg lofa góðan Guð.
sem gefur dag og nótt,
minn vökudag,
minn draum og nótt.
Mvakir, faðirvor,
og vemdar bömin þín,
svo víð sem veröld er
ogvonarstjamaskín,
ein stjama hljóð á himni skín.
Lát daga nú í nótt
af nýrri von og trú
í myrkri hels og harms
og hvar sem gleymist þú
á jörð, sem átt og elskar þú.
Kom nótt með náð og frið,
kom nær, minn faðir hár,
og leggðu lyfstein þinn
við lífsins mein og sár,
allt mannsins böl,
hvert brot og sár.
(Sigurbjöm Einarsson)
Elsku amma, við biðjum góðan
guð að geyma þig og gefa þér frið
um leið og við þökkum þér alla þína
umhyggju. „Trú, von og kærleikur,
þetta þrennt, en þeirra er kærleik-
urinn mestur. Hann breiðir yfir
allt, trúir öllu, vonar allt, umber
allt.“
Tinna og Signý.
Öllu er afmörkuð stund og sér-
hver hlutur undir himninum hefur
sinn tíma. Að fæðast hefur sinn
tíma og að deyja hefur sinn tíma. Á
þessi sannindi erum við minnt nú
þegar amma Siddý hefur verið burt
kvödd eftir erfið veikindi. Á slíkri
kveðjustund er margs að minnast,
margt er að þakka og um leið er
margs að sakna.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynn-
astþér.
(Ingibj. Sig.)
Við biðjum góðan guð að varð-
veita hana og biðjum henni bless-
unar á þeirri vegferð sem nú er haf-
in með innilegu þakklæti fyrir alla
þá umhyggju og hlýju er hún sýndi
okkur alla tíð.
Far þú í friði
friður guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Þín barnabörn,
Edda og Oliver Steinn.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Farþúífriði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku amma. Það er sárara en
orð fá lýst að hugsa til þess að þú
sért ekki lengur hér á meðal okkar.
Þetta gerðist allt svo snöggt - ekki
nema vika frá því að okkur var tjáð
að vágesturinn, sem engum hlífir,
væri til staðar. Ég þakka fyrir að
hafa fengið að sitja hjá þér og halda
í hönd þína síðastliðna viku. Á þess-
ari stundu hrannast upp minningar.
Þær eru ótalmargar. Efstar eru þó
sumarbústaðaferðirnar í bústaðinn
á Þingvöllum, þar sem þér leið vel.
Það var yndislegur tími þar sem við
sváfum saman í herbergi og ýmis-
legt var brallað. Þú barst alla tíð
hag annarra fyrir brjósti og vildir
allt íyrir aðra gera. Dyr þínar stóðu
ávallt opnar - það fann ég sérstak-
lega í janúar síðastliðnum, þegar
erfiðleikar stóðu yfir hjá mér. Þá
sagðir þú við mig: „Lóa mín, þú
veist að þú getur alltaf komið hing-
að.“ Það var mér mikils virði. Og
þegar þú lást veik á spítalanum var
þér efst í huga að okkur liði vel, þó
þú sjálf værir sárlasin.
Oft í gegnum tíðina kom ég til
þín og við sátum fram eftir kvöldi
og töluðum saman og oftar en ekki
hlógum við okkur máttlausar, það
var svo gaman hjá okkur. Síðastlið-
ið haust, þegar ég missti fóður-
ömmu mína, bjóst ég ekki við að áð-
ur en ár væri liðið værir þú farin
frá mér líka. Síðastliðin ár hafa ver-
ið erfið og erfiðleikar dunið yfir, en
í vor virtist allt stefna í bjartari átt,
en þá kemur þetta reiðarslag. I vet-
ur sýndir þú það mjög vel hversu
vel þú hugsaðir um aðra. Þegar
mamma var veik vildir þú allt gera
til að létta henni veikindin, þó að þá
þegar hafir þú sjálfsagt verið orðin
veik af þeim sjúkdómi sem að lok-
um tók völdin. Þar sýndir þú hvað
þú varst yndisleg manneskja og
hugsaðir fyrst og fremst um hag
annarra. Við fengum að finna það
alla tíð. Alltaf var gott að koma
heim á Amarhraunið, alltaf hlýjar
móttökur. Það fann ég sterkt fyrir
síðastliðið ár þegar ég og Sigurjón
komum til þín. Betri ömmu hefði ég
ekki getað hugsað mér. Ég efast
ekki um að vel hefur verið tekið á
móti þér af foreldrum þínum og afa
Oliver, sem þú saknaðir mjög mikið
þó þú talaðir ekki um það.
Elsku amma mín, ég kveð þig
með trega en með vissu um að við
munum hittast aftur.
Elsku mamma, Nanni, Bergur,
Inga og frændsystkin og aðrir ást-
vinir, megi guð styðja okkur og
hjálpa á þessum erfíðu tímum. Guð
blessi minningu ömmu.
Ólafía L. Sævarsdóttir (Lóa).
Elsku amma. Það er alltaf jafn
sárt að missa svona góða mann-
eskju eins og þig. Ég sat í stofunni
heima þegar mamma kom heim og
færði mér fréttimar. Það voru erf-
iðir tímar framundan og nóg hefur
nú verið af þeim síðastliðin 2-3 ár.
Ég vil þakka þér fyrir það, elsku
amma, hvað þú varst alltaf góð við
okkur og vildir allt fyrir okkur gera
og sérstaklega þegar mamma var
veik, þá gerðir þú allt sem þú gast
fyrir hana.
Mér finnst ég hafa kynnst þér
betur meðan ég og mamma bjugg-
um hjá þér og við stöndum í mikilli
þakkarskuld fyrir það að fá að búa
hjá þér í rúmt ár og hvað þú gerðir
fyrir okkur þá. Ég man þegar þú
kenndir mér, þá var ég aðeins 6-7
ára, að draga frá í reikningi, þá var
ég svo stolt af mér í skólanum þeg-
ar það var svo kennt þar. Þú fylgd-
ist alltaf með hvernig okkur gengi í
skólanum og hvort nokkur væri
veikur.
Þær eru ógleymanlegar sumar-
bústaðaferðirnar með þér, því mér
þótti alltaf svo gaman að hafa þig
með, við spiluðum þá og fórum í fót-
bolta á pallinum en það er nú frek-
ar langt síðan og ekki verður gert
meira af því. Ég man líka eftir því
þegar ég var lítil og fékk að gista
hjá þér, þá þótti mér svo gaman, þá
var spilað fram á nótt eða gert eitt-
hvað annað. Og á jólunum þegar þú
og Nanni komuð í mat.
Mikið var nú gaman að sjá hvað
þú og Bubba skemmtuð ykkur vel
þegar þið fóruð í hennar bústað eða
í þinn og þegar þú fórst í þína síð-
ustu utanlandsferð, þá fórstu með
Nanna til Danmerkur og ég held að
þú hafir skemmt þér vel.
Þegar amma Lilja dó, hélt ég
eg myndi eiga þig að í að minnsta
kosti í nokkur ár í viðbót en það
varð nú ekki einu sinni eitt ár.
Aldrei bjóst ég við að þú færir ekki
aftur heim til þín þegar þú fórst í
allar þessar rannsóknir. En svo eft-
ir að þú vissir hvaða sjúkdóm þú
hefðir tók það nú bara viku hjá þér.
Ég mun alltaf muna eftir síðasta
brosinu sem ég sá hjá þér en það
var þegar þú brostir til mömmu
þegar ég kom með henni tveimur
dögum áður en þú fórst, en ég held
að þú hafir ekki þekkt mig þá, alla-
vega ekki strax. Þvi bæði varstS'"
svo veik og á miklum lyfjum. Ég er
fegin því að hafa komið til þín dag-
inn áður en þú fórst en það voru
líka erfið skref út af spítalanum og
heim.
Þegar ég kom til þín á spítalann
þegar þú varst dáin, ríkti mikil ró
yfir þér og loksins varstu komin til
afa Ölivers sem þér þótti svo vænt
um.
Það eru mjög margir sem eiga
góðar minningar um þig. Og að lok-
um vil ég þakka þér fyrir að ég
fékk að kynnast þér og eiga þig
sem ömmu. Því ekki eiga allir svona
góða ömmu eins og þig. Elsku
mamma, Nanni, Bergur og aðrii’j
aðstandendur, megi Guð vera með
okkur öllum í sorginni.
Hinlangaþrauterliðin
nú loksins hlaustu friðinn,
ogallterorðiðrótt,
núsællersigurunninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
Fyrst sorgar þraut er gengin,
Hvaðgeturgrættossþá?
Oss þykir þungt að skilja,
En það er Guðs að vilja,
Og gott er allt, sem Guði er frá.
(V. Briem.)
Steinunn Þórdís.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðarviðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Við lát ástvina er oft mikil tog-
streita innra með okkur. Þar takast
á tilfinningar sorgar og þakklætis.
Sorgar vegna þess missis sem við
höfum orðið fyrir og þakklætisx—
vegna þess sem við áttum. Þannig
er mér farið nú er ég kveð hinstu
kveðju ömmu mína, Sigríði Þórdísi
Bergsdóttur. Amma var einn af
þessum föstu punktum í lífinu, hlý,
umhyggjusöm og kímin. Þó ég hafi
dvalið erlendis um lengri eða
skemmri tíma þá var hún alltaf til
staðar á sínum stað þegar heim var
komið. En nú er hún farin og ekki
get ég séð í dag að hægt verði að
fylla í það skarð sem myndast við
brottfor hennar.
Amma trúði staðfastlega á að líf
væri að loknu þessu, rétt eins og afi
Oliver. Það er því ekki ólíklegt að
þau séu nú saman á ný, glöð yfir
endurfundunum eftir langan að-**
skilnað. Ég vona að svo sé.
Elsku amma Siddý, ég sakna þín
mikið, sakna þess að heyra röddina
þína, sakna umhyggju þinnar. Ég
veit að þar sem þú ert núna, þar líð-
ur þér vel.
Vertu sæl, amma mín, og hafðu
þökk fyrir allt.
Þín
Katrín Guðbjörg.
Formáli
minningargreina
ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um
hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dá-
inn, um foreldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar
komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinun-
um sjálfum.
í