Morgunblaðið - 10.07.1998, Side 42
^2 FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
MORGUNB LAÐIÐ
MINNINGAR
HÖRÐUR BJARNASON
+ Hörður Bjarna-
son fæddist í
Höfðahúsum á Fá-
skrúðsfirði 18. júní
1924. Hann andað-
ist á Hjúkrunar-
heimilinu Skjóli 17.
júní siðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Bjarni Antoní-
usson, f. 17.8. 1888,
d. 27.5. 1975, og
María Bjarnadóttir,
f. 7.6. 1896, d. 11.3.
1976. Hörður átti
7 þijú systkini, sem
eru, Flosi, f. 20.9.
1917, Auður f. 25.6.
1926, og Nanna f.
13.4. 1940.
Árið 1965 hóf Hörð-
ur sambúð með Mar-
gréti Hjálmarsdótt-
ur, f. 30.8. 1918 á
Blönduósi. Bjuggu
þau öll sín búskapar-
ár í Reykjavík, síðast
í Furugerði 1, en
hann var síðustu tvö
árin á Hjúkrunar-
heimilinu Skjóli.
Hörður stundaði sjó
frá Austfjöröum frá því fyrir
fermingu og fram um 1960.
Fluttist hann þá til Reykjavíkur
og stundaði ýmis verslunar-
störf, en starfaði síðast í Búnað-
arbanka Islands í Austurstræti.
Útför Harðar fór fram frá
Kristkirkju í Landakoti 26. júní.
Margar minningar vöknuðu þeg-
ar við systurnar fréttum lát Harð-
ar, sem reyndist okkur sem besti
afí frá íyrstu kynnum.
Hörður hafði sterka skapgerð og
ákveðnar skoðanir á lífinu og tilver-
unni. Hann var alltaf sá sem hægt
var að treysta á, kletturinn sem
ávallt stóð óbifanlegur. Fátt var
skemmtilegra en að vera á ferð
með Herði og ömmu Grétu. Hann
var mjög fróður um landið og sögu
þess. Sterkur þáttur í lífi þeirra
beggja var kveðskapur, og þótti
okkur alltaf jafn þægilegt að hlusta
á þau söngla og kveða.
Okkur systrunum er það mjög
minnisstætt að það var alveg sama
hversu snemma við fórum á fætur á
morgnana, alltaf var Hörður vakn-
aður, búinn að hita kaffí, taka til
morgunmat og jafnvel búinn að
fara út og þvo bflinn. Ef Hörður var
spurður hvort hann væri ekki
þreyttur svaraði hann jafnan, að
það væri nógur tími til að hvfla sig
þegar hann væri kominn í holuna
sína. Með því átti hann við að hvfld-
ina fengi hann þegar hann færi á vit
feðranna.
Það var alveg sama hversu mikið
var að gera hjá honum, alltaf gat
hann bætt á sig meira, ef hann var
beðinn.
Erfitt var að horfa á þennan
sterka mann verða fanga í eigin
líkama af völdum sjúkdómsins
sem herjaði á hann síðustu æviár-
in. Við erum sannfærðar um að
þar sem hann er núna, þar líður
honum vel.
Með Herði er genginn maður
sem við teljum okkur ríkari að hafa
kynnst og biðjum við Guð að blessa
minningu hans.
Margrét, Kristín og Anna
Halldóra Sigtryggsdætur.
ATVINIMU-
AUGLÝSINGAR
Viðskiptasambönd
óskast til að kynna fjölmargar vörutegundir
4frá Kanada og Bandaríkjunum.
Vinsamlega hafið samband við Lorne Urqu-
hart, netfang: cxna@netcom.ca eða skrifið á
heimilisfang 12 Dawn Drive, Dartmouth,
Nova Scotia, Canada B3B 1H9.
2. stýrimann
vantar á línufrystiskipið Tjald. Skipið fer til
veiða á mánudag.
**^)pplýsingar í síma 897 0949.
TILK YNNINGAR
IHAFNARFJARÐARBÆR
Skipuiagsstjóri
Hafnarfjörður
^Hvaleyrarholt — Iðnaðarsvæði
Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar
1995-2015
IMýtt deiliskipulag
í samræmi við 21. og 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýstir
til kynningar uppdrættir bæjarskipulags dag-
settir 19. maí 1998 að breytingu á aðalskipulagi
Hafnarfjarðar 1995—2015 og uppdráttur bæjar-
skipulags s.d að nýju deiliskipulagi fyrir iðnað
og þjónustu á svæði milli Suðurbrautar og
Hvaleyrarbrautar í Hafnarfirði. Breyting á aðal-
skipulagi fellst í að landnotkun á lóðunum
Melabraut 27 og 29 breytist úr iðnaði í verslun
og þjónustu. Ennig breytist almenn lóðarnýt-
*^ing úr 0,4 í 0,5 og verður allt að 0,6 á Mela-
braut 21 og 0,7 á Melabraut 17.
Á þessu nánast fullbyggða svæði hefur upp-
bygging einnar og tveggja hæða iðnaðarhúsa
miðast við skipulag, lóðaskiptingu og notkun,
sem hefur þó ekki fengið fullnaðarmeðferð
í samræmi við gildandi skipulagslöggjöf.
Liggur nú fyrir ofangreind tillaga að deiliskipu-
lagi. Tillögur þessar voru samþykktar af bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar 30. júní 1998 og liggja þær
frammi í afgreiðslu framkvæmda- og tækni-
sviðs á Strandgötu 6, þriðju hæð, frá 10. júlí
«~£il 7. ágúst 1998.
Ábendingum og athugasemdum skal skila
skriflega til bæjarstjórans í Hafnarfirði fyrir
21. ágúst 1998
Þeir, sem ekki gera athugasemd við tiilöguna,
teljast samþykkir henni.
2. júlí 1998.
|t Bæjarskipulag Hafnarfjarðar.
Garðbæingar
Umhverfismálanefnd Gardabæjar hyggst
veita viðurkenningarfyrir snyrtilegan frágang
lóða íbúðarhúsnæðis, fyrirtækis og einnig fyrir
opið svæði eða götu fyrir árið 1998.
Óskar nefndin eftir ábendingum bæjarbúa þar
að lútandi, og þurfa þær að berast fyrir 14. júlí
til garðyrkjustjóra Garðabæjar, Lyngási 18,
í síma 565 8532 og 525 8588.
Umhverfismálanefnd
Garðabæjar.
ATVINMUHÚSNÆÐI
Veitingasala
Sundakaffi í Sundahöfn ertil sölu eða leigu.
Áhugasamir leggi inn nafn og heimilisfang
á afgreiðslu Morgunblaðsinsfyrir 16. júlí nk.,
merkt: „E — 5296."
NAUOUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Laufhagi 15, Selfossi, þingl. eig. María Carmen Ólafsson, gerðarbeið-
endur db. Þórarins Guðnasonar, c/o Lögm. v/Austurv. og húsbréfa-
deild Húsnæðisstofnunar, fimmtudaginn 16. júlí 1998 kl. 10.00.
Þóristún 11, Selfossi, þingl. eig. Óskar Jónsson, gerðarbeiðendur
húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar, Lífeyrissjóðir Bankastræti 7, Sel-
fosskaupstaður, sýslumaðurinn í Kópavogi og sýslumaðurinn í Stykk-
ishólmi, fimmtudaginn 16. júli 1998 kl. 10.30.
SUMARHÚS/LÓOIR
Sumarbústaður
ásamt stórri eignarlóð í nágrenni Rvíkurtil
sölu. Heitt vatn og hitapottur, blómaskáli o.fl
Lóðin er umvafin trjágróðri og því skjólsæl.
Áhugasamir sendi upplýsingartil afgreiðslu
Mbl., merktar: „Friðsæll staður — 5306".
Sýslumaðurinn á Selfossi,
8. júlí 1998.
TIL SOLU
Handverksmarkaður
Handverksmarkaðurverðurá Garðatorgi laug-
ardaginn 11. júlí frá kl. 10.00—18.00.
Milli 40 og 50 aðilar sýna og selja muni sína.
Kvennfélagskonur sjá um kaffisölu.
S M Á A U G) (0 '>■ J N G A
FÉLAGSLÍF
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Nú er hver að verða síðastur
að fá miða í spennandi sum-
arleyfisferðir innanlands.
Ath.: Þeir, sem eiga pantað,
eiga að greiða farmiða strax,
eila er hætta á að far verði
selt öðrum!
Hér eru nokkrar ferðir:
1. 19.-21. júlí Austast á Aust-
fjörðum (Gerpissvæðið).
Spennandi ferð með Ferðafélagi
Fjarðamanna í Hellisfjörð, Við-
fjörð, Barðsnes og viðar. Gist í
húsum. Upplýsingablað á skrif-
stofu F.l.
2. 24.-30. júlí Norðurlands-
ferð. Farið á ýmsa góða staði,
t.d. í Drangey.
3. 4.-9. ágúst Borgarf jörður
eystrí — Víkur — Loðmund-
arfjörður — Seyðisfjörður.
Aukaferð.
4. 15.-21. ágúst Inndalir og
eyðibýli á Mið-Austurlandi.
M.a. farið um Fljótsdal, Hafra-
hvamma og viðar.
Minnum á sumardvöl í Þórs-
mörk. Margir möguleikar.
Kynnið ykkur úrval göngu-
ferða um „Laugaveginn" og
Kjalveg hinn forna.
17.-19. júlí Leitin að Stranda-
vfðinum. Upplýsingablað.
Brottför föstudag kl. 14.00.
Nánari upplýsingar og far-
miðar á skrifst., Mörkinni 6.
Ej5
^ Wi if.V/ Ej
Hallveigarstig 1 • simi 561 4330
Kvöldganga föstud. 10. júlf:
Leggjarbrjótur. Gengið frá
Botnsdal að Svartagili í Þing-
vallasveit. Komið til baka kl. 4.00
um nóttina. Góð byrjun á góðri
helgi. Brottför frá BSI kl. 20.00.
Verð 1.600/1.800. Fararstjóri:
Steinar Frímannsson.
Dagsferðir sunnudaginn
12. júlí:
Frá BSI kl. 10.30 Kóngsvegur-
inn 5. áfangi. Gengið frá Þing-
völlum að Laugarvatnsvöllum.
Komið við í Skógarkoti, Vellan-
kötlu, Stelpu(steins)helli, Tintron
og Laugarvatnshelli.
Frá Select Vesturlandsvegi kl. 9:
Hjólaferð, Vigdísarvellir, Djúpa-
vatn til Grindavíkur. Farið í Bláa
lónið og tekin rúta til Grindavík-
ur.
Hálendishringurinn.
25. júlí—2. ágúst. Skemmtileg
ferð um hálendið. Ekin Gæsa-
vatnaleið, farið í Herðubreiða-
lindir o.fl. Fararstjóri Ágúst Birg-
isson.
Spennandi sumarleyfisferðir
með jeppadeild Útivistar.
18.—25. júlí. Lónsöræfi. Ekið í
Lónsöræfi. Dvalið á öræfunum
nokkra daga og skoðaðir áhuga-
verðir staðir. Fararstjóri Erla
Guðmundsdóttir.
1.—8. ágúst. Gæsavötn. Ekið í
Nýjadal, Gæsavatnaleið, farið í
Kverkfjöll og að Snæfelli. Farar-
stjóri Haukur Parelíus Finnsson.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Laugardagur 11/7
Dagsferð á Árbókarslóðir
kl. 08.00:
Hagavatn — Mosaskarð.
Ökuferð og um 7 km skemmtileg
ganga frá Hagavatni að Mosa-
skarði við Línuveginn.
Verð 2.800 kr.
Sunnudagur 12/7 kl. 08.00
Þórsmörk, dagsferð eða til
lengri dvalar. Minnum einnig
á miðvikudagsferðirnar.
Kl. 10.30 Esja: Kistufell að
austan — Gunnlaugsskarð.
Kl. 13.00 Esjuhlíðar: Kögun-
arhóll — Mógilsá, fjölskyldu-
ganga.
Brottför frá BSÍ, austanmeg-
in og Mörkinni 6.
Helgarferðir: Þórsmörk 10.—
12/7 og Fimmvörðuháls
11.-12/7
Góð gistiaðstaða í Langadal, í
Skagf jörðsskála eða tjöldum.
Pantið og takið farmiða
strax
TILKYNNINGAR
Dagskrá helgarinnar
11.-12. júlí 1998
Laugardagur
Kl. 11.00 Leikur er barna
yndi
Barnastund fyrir alla krakka í
Hvannagjá. Sögur, leikir og helgi-
hald. Hefst við þjónustumiðstöð
og tekur 1 — Vh klst.
Munið að vera vel búin.
Kl. 14.00 Lögbergsganga
Gengið um hinn forna þingstað í
fylgd sr. Heimis Steinssonar.
Lagt verður upp frá hringsjá á
Haki, gengið um Almannagjá á
Lögberg og endað í Þingvalla-
kirkju. Gangan tekur um 1 klst.
Kl. 15.00 Skógarkot — Ijóð
og sögur frá Þingvöllum
Gengið verður inn í Skógarkot og
farið með sögur og Ijóð frá Þing-
völlum, auk þess sem spjallað
verður um það sem fyrir augu og
eyru ber. Þetta er létt ganga en
þó er gott að vera vel skóaður og
að taka með sér nestisbita. Gang-
an hefst við Flosagjá (Peninga-
gjá) og tekur u.þ.b. 3 klst.
Sunnudagur
Kl. 14 00 Guðsþjónusta
f Þingvallakirkju
Prestur sr. Heimir Steinsson,
sóknarprestur, organisti Ingunn
Hildur Hauksdóttir.
Kl. 14.30 Um gjárað
Öxarárfossi
Gengið verður frá þjónustu-
miðstöð um Tæpastíg í Snóku,
að Öxarárfossi og til baka um
Fögrubrekku. Á leiðinni verður
fjallað um náttúrufar og aðkom-
uleiðir til þingstaðarins forna.
Nauðsynlegt er að vera vel
skógaður og gjarnan má hafa
með sér nesti. Gangan tekur
2VÍ-3 klst.
Kl. 15.00 Litast um af
lýðveldisreit
Sr. Heimir Steinsson tekur á
móti gestum þjóðgarðsins á
grafreit að baki kirkju og fjallar
um náttúru og sögu Þingvalla.
Allar nánari upplýsingar
veita landverðir f þjónustu-
miðstöð þjóðgarðsins, sem
er opinn frá kl. 8.30—20.00,
sfmi 482 2660.