Morgunblaðið - 10.07.1998, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
Frönsk hafnar-
stemmning við
Gömlu höfnina
„UM ÞESSA helgi lýkur sýning-
unni Á slóð saltsins sem hefur ver-
ið á Miðbakkanum í sex vikur.
Þessi sýning kemur frá heiráðinu
Charente-Maritime í Frakklandi
og lýsir því hvernig salt er unnið
og notað. Fyrr á öldum var salt oft
kallað „hvíta gullið“ vegna þess hve
mikilvægt það var og verðmætt.
Sýningin gefur okkur einnig
skemmtilega mynd af menningu
Frakka eins og hún tengist neyslu
sjávarfangs og lífinu í kringum
saltvinnslu," segir í fréttatilkynn-
ingu frá Reykjavíkurhöfn.
„Sýningin var sett upp í sam-
vinnu við Franska sendiráðið á Is-
landi og héraðsstjórn Char-
ente-Martime og er sýningin m.a.
sett upp nú til þess að minnast
þess að árið 1998 er ár hafsins.
Laugardaginn 11. júlí verður svo
enn frekar minnt á hafið, með því
að á Miðbakkanum verður sýning
á helstu nytjafiskum sem veiðast
við Islandsstrendur. Sigurður
Hall mun einnig kynna og gefa
gestum og gangandi að smakka á
saltfiski matreiddum á franskan
máta. Ómissandi með saltfiskinum
eru frönsk brauð, en La Bagette
verslunin mun selja brauð á staðn-
um.
Fyrir þá sem kjósa ferskan fisk
mun fisksali sjá um fisksölu á Mið-
bakkanum og verður framboð af
fiski fjölbreytt. Þar verður meðal
annars hægt að kaupa lifandi hum-
ar, sem fiuttur er inn frá Boston í
Ameríku.
Ef veður leyfir verður vinnsluað-
ferð við þurrkun saltfisks sérstak-
lega kynnt og einnig saltfiskafurð-
ir,“ segir ennfremur.
Heyrnarlausir
geta nú tekið þátt
í AA-fundum
„TÚLKUN íyrir heymarlausa
verður tekin upp 12. júlí í til-
raunaskyni í AA-deildinni, sem
hittist í Seljakirkju á sunnudags-
kvöldum kl. 21. Sú deild er opin
öllum sem áhuga hafa á áfengis-
vandamálinu.
Þar með fá heyrnarlausir
langþráðan aðgang að þeirri að-
ferð, sem víða um heim hefur
reynst virkust til að halda alkó-
hólistum frá áfengi árum saman
og ævilangt. Þessi aðferð er
langmest notuð hér á landi," seg-
ir í fréttatilkynningu frá AA-
samtökunum.
„Ein erfiðasta fötlun fólks er
heyrnarleysi, af því að það veld-
ur félagslegii einangrun þeirra,
sem þjást af henni. Gengi AA-að-
ferðarinnar við að hjálpa alkó-
hólistum byggist einmitt á fé-
lagslegu sambandi fólks, sem á
við sama vanda að stríða. Með
túlkun fyrir heyrnarlausa á AA-
fundunum er rofið skarð í ein-
angrun þeirra á þessu sviði.
Gífurleg útþensla hefur orðið á
starfsemi AA-samtakanna á síð-
asta áratug. Nú eru starfandi
277 AA-deildir í landinu, 129 á
Reykjavíkursvæðinu og 148 utan
þess. Reikna má með að samtals
mæti 5-6.000 manns vikulega á
fundi í þessum deildum.
Innan skamms hefjast íslensk-
ir AA-fundir á Netinu. Þeir
munu einkum henta alkóhólist-
um í strjálbýli, sem annars
þyrftu um langan veg að sækja
venjulega fundi,“ segir ennfrem-
ur.
veiðikeppni
Daiwa
GÆÐAMERKI V EIÐIM A N N SI N S
daiwa dasurinn
O
á morgun laugardag
við Reynisvatn
Daiwa
Frábœr
dagur
mm.
fyrír alla
fjölskylduna
Reynisvatn
1 og
Veiðitími: kl. 09 - 18
Veiðikeppni:
Ýmis vegleg verðlaun!
Nýbúið að sleppa 100 löxum,
4-6 punda, ásamt
ógrynni af silungi.
í vatninu eru risalaxar,
20-60 punda, sem allir
hafa möguleika á að veiða!
Gjald:
5 fiska eignarkvóti er kr. 2.850.
Dæmi: Hjón með bðm ýen lóára
greiða samt. kr. 2.850.
,,f áaxx» ‘-'•Úu/., .
SEGLAGERÐIN
Eyjaslófi 7 Reykjavík sími 511 2200
FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998 43
*
iíÆJ&k,
ÓLYMPÍULIÐ íslands í stærðfræði: Aftari röð f.v.: Eygló Guðmundsdóttir fararstjóri, Stefán Ingi Valdimars-
son, MR, Marteinn Þór Harðarson, Flensborgarskólanum í Hafnarfirði, Björn Bennewitz, MR, Geir Agnars-
son dómnefndarfulltrúi. Fremri röð f.v.: Pawel Bartoszek, MR, Sveinn B. Sigurðsson, MR, Pétur Runólfsson,
. Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Olympíuleikar í stærðfræði 1998
ÓLYMPÍULEIKARNIR í stærðfræði
árið 1998 verða haldnir í Tæpei á
Tævan dagana 13.-21. júlí næstkom-
andi. Island sendir þangað lið sex
keppenda. Lið Islands er valið á
grundvelli frammistöðu í Stærð-
fræðikeppni framhaldsskólanema, en
alls tóku 779 framhaldsskólai'-nemar
þátt í henni, einnig voru höfð til hlið-
sjónar úrslit í Norrænu stærðfræði-
keppmnni. Landslið íslands skipa
þeir Bjöm Beimewitz, Pawel Bar-
toszek, Sveinn B. Sigurðsson og Stef-
án Ingi Valdimarsson, allir úr
Menntaskólanum í Iíeykjavi'k, Mar-
teinn Þór Harðarson, Flensborgar-
skólanum í Hafnarfírði, og Pétur
Runólfsson, Fjölbrautaskóla Suður-
Iands. í dómnefnd keppniimar er fyr-
ir íslands hönd Geir Agnai-sson,
Raunvísindastofnun Háskólans, og
fararstjóri er Eygló Guðmundsdóttir,
keimari við Menntaskólann við
Hamrahlíð.
Búist er við að yfir 80 þjóðir sendi
lið til keppiúnnar og í hveiju liði ei-u
allt að sex keppendur. Keppendur
eru framhaldsskólanemar og skilyrði
er að þeir hafi ekki hafið háskólanám
og séu ekki orðnir tvítugir. Keppnis-
dagamir em tveir: hvom daginn em
lögð fyrir keppendur þijú dæmi sem
þeir fá fjóra og hálfan tíma til að
leysa. Síðasta mánuðinn hefur liðið
verið í þjálfun við Háskóla íslands og
hafa nokkrir stærðfræðingar við Há-
skóla Islands og framhaldsskóla-
kennarar lagt fram viimu sína við
þjálfunina.
Keppnin er fyrst og fremst ein-
staklingskeppni, og í fyrra komst ís-
lenskur þátttakandi, Kári Ragnars-
son, í hóp þeirra er hlutu silfurviður-
kenningu, og er það besti árangur Is-
lendings síðan við hófum þátttöku ár-
ið 1985. Einnig er árangur liða bor-
inn saman Islenska stærðfræðafé-
lagið og Félag raungreinakennai-a í
framhaldsskólum standa að Stærð-
fræðikeppni framhaldsskólanema og
þátttöku Islands í fjölþjóðleguin
stærðfræðikeppnum. Þetta starf nýt-
ur stuðnings fjölmargra aðila:
Menntamálaráðuneytið greiðir
stærstan hluta ferðakostnaðar liðs-
ins, skólar keppenda og sveitarfélög
þeirra hafa veitt styrki, Seðlabanki
Islands styrkir Olympi'uliðið, og Há-
skóli Islands og Raunvísindastofnun
Háskólans leggja fram margvíslega
aðstöðu. Kaupþing hf. kostar Stærð-
fræðikeppni framhaldsskólanema og
gefur verðlaun.
HAGKAUP
Alltaf betri kaup