Morgunblaðið - 10.07.1998, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
\J>OLQur, i>b LegpurofAart að ,
þ'er, M atUir qa slato. meiraa.
—prt.,^-7 Ha//aou þerafiura.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
RÍKISENDURSKOÐUN
Skúli|&tu 57,105 ReykjiTÍk IS-Icelind.
Dipttnlnt TlWiun
Þorsteinn Ingason, 9.júní 1998 B-727
Hátúni 6 LÖ/bb
105 REYKJAVÍK
í bréfi til ríkisendurskoðanda, dags. 6. mal s.l., bcrið þér þær sakir á
Stefán Pálsson, bankastjóra Ðúnaðarbanka íslands, að hann hafi beitt
bankanum til þess að koma þér og fyrirtaskjum þínum, Stokkfíski hf., öxnalæk
og Stokkfiski, Laugum, Reykjadal í þrot vegna persónulegrar óvildar i yöar
garö. Jafhframt ásakiö þér bankastjórann fyrir aö hafa „þvingað hæstaréttar-
lögmennina Baldvin Jónsson og Harald Blöndal til aö hafa samvinnu viö
framlengingu máls í Hæstarétti og lcyna Hæstarétt íslands þcim gögnum og þar
af leiðandi knúiö fram dóm scm vxri sér huganlegur" cins og orörétt segir i
erindi yðar.
Til svars erindi yðar er rétt að taka fram að ásakanir þessar eru þcss eðlis
að rannsókn á réttmæti þeirra verður einungis sinnt af lögregluyfirvöidum. Er
yður hér með bent á að snúa yður til þeirra með ofangreinda beiðni.
BRÉF til Þorsteins frá Ríkisendurskoðun.
Opið bréf til starfs-
manna Búnaðar-
banka Islands hf.
Frá Þorsteini Ingasyni:
HINN 6. maí sl. ritaði ég Ríkisend-
urskoðun bréf þar sem ég fór fram
á rannsókn á viðskiptum mínum og
fyrirtækja minna við Búnaðarbanka
Islands.
Svarbréf Ríkisendurskoðunar var
eftirfarandi (sjá mynd);
Þar sem ég veit að Ríkisendur-
skoðun skoðaði málið og tekur und-
ir ásakanir mínar tel ég nauðsyn-
legt að frekari rannsókn fari fram
hjá réttum yfirvöldum.
Mín trú er sú að hinn almenni
starfsmaður Búnaðarbankans sé
þeirrar skoðunar að ásakanir mínar
séu þess eðlis að það sé full ástæða
til að fram fari opinber rannsókn á
þessu máli.
Það er því beiðni mín með þessu
opna bréfi til starfsfólks bankans,
að það finni farveg til að rannsókn
geti farið fram. Eg tel mig ekki geta
leitað til ríkislögreglustjóra án þess
að málinu verði hugsanlega vísað
frá af tæknilegum ástæðum, t.d/
vegna aldurs.
Með fullu trausti og virðingu.
ÞORSTEINN INGASON,
Hátúni 6, Reykjavík.
Ferdinand
Smáfólk
I don't HAVE A D06
N0W, BUT I KNOU) l’LL
HAVE ONE 50MEPAY...
lífesa— I
Ég á ekki hund núna, en ég
veit að ég eignast hann ein-
hvern daginn...
I WAS WONDERINö IF YOU COULP 6IVE ME 50ME TIP5 ON HOW TO TRAIN A P06... ^
Ské
6-11
Ég var að velta því fyrir mér
hvort þú gætir gefið mér
einhveijar ábendingar um
hvernig á að venja hund...
Gefurðu ekki
ábendingar?
Þjófottir stöðumælar
Frá Guðmundi Jónssyni:
FLESTA daga á ég erindi víða um
borgina, og kemst þess vegna í
„kunningsskap“ við stöðumæla.
Yfirleitt staldra ég stutt við, svo
það var fyrir tilviljun að ég fór að
taka eftir því að sumir þeirra voru
skratti „hraðskreiðir“. Langvitlaus-
astir eru þeir sem mæla frá 100, og
gert er ráð fyrir að læðist niður á
núllið á 60 mínútum. En það er nú
öðru nær. Ef ég man rétt var það á
Frakkastígnum - milli Laugavegar
og Hverfisgötu - að ég lagði bíln-
um, greiddi gjaldið og skrapp frá.
Þegar ég kom aftur eftir níu mínút-
ur var mælirinn kominn niður í 55.
A örfáum dögum komst ég að því
að a.m.k. fímm mælar á þessum
speli voru hringlandi vitlausir. Einn
daginn þurfti konan mín að bregða
sér í verslun við Laugaveginn. Eg
beið í bílnum, greiddi stöðumæla-
gjaldið og fylgdist með klukkunni.
Eftir 30 mín. var mælirinn búinn að
afgreiða klukkustund.
Hraðskreiðasta dæmið er þó úr
Þingholtsstræti. Þar átti ég erindi.
Eftir 3 mínútur var mælirinn kom-
inn frá 100 niður í 48!
Ég leyfi mér að fullyrða að flestir
mælar af þessari tegund eru borg-
inni til skammar. Einstöku mælar
af þessari tegund gleypa 50 krón-
urnar, en haggast ekki - sitja fastir
á sömu núllunum.
Önnur mælategund - þessi sem
skilar miðum sem maður leggur við
framrúðu bílsins - er líka ósköp
skrítin. Á tveimur stöðum hefi ég
fengið 75 mín. fyrir 50 kr. en á öðr-
um stöðum 45 mín.!
Er þetta ekki rannsóknarverk-
efni fyrir FÍB eða Neytendasam-
tökin?
Það er fleira athugavert við
stöðumælana, en ég nenni ekki að
skrifa meira að sinni.
Eitt er þó ljóst: Það er með mæl-
ana eins og svo margt annað í líf-
inu, þeim gömlu er best treystandi.
GUÐMUNDUR JÓNSSON
söngvari.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.