Morgunblaðið - 10.07.1998, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998 47
I
I
i
\
í
I
!
i
I
í
j
I
/ORaií
a io
ei
eru úrslitaleilár á HM sem enginn má missa af. Afjwí tilefni bjóðu m
scetin á leikina og senniJega pau ódýrustu. Njótið spennunnar í
JivíJÁarstólfrá Action Lane. ( VAJRIST ÐIÐRAÐIR )
Opið á lauqarAaqinn frá
U. ll-14fyrir
Unattspymuáhugamenn
'W'AmmaDOQ
Lane
Acteins ÓO
sœtí laus
Mörkinni 4 • 108 Reykjavík
Sími: 533 3500 • Fax: 533 3510 • www/marco.is
Við styðjum við bakið á þér
in að spila á fullu í 90 mín. og það er
einmitt það, sem áhorfendur vilja
sjá. En þau þurfa ekki að spila
lengur, hægja á sér og búa sig und-
ir framlengingu, sem jafnvel aldrei
kemur, því hún er ekki til. Pað er
þess vegna, sem liðin geta spilað á
fullu.
Ný tækni
Það er ekki nóg að eiga góða
knattspyrnumenn og láta þá keppa
í drengilegum leik, heldur þarf að
Breytingar á knattspyrnu
Frá Jóni Brynjólfssyni:
HM 98 í fullum gangi. Menn með
áhuga horfa hálfan daginn á knatt-
spyrnu, tvær veislur á dag. Allir
bestu leikmenn og lið mættir á
völlinn.
Síðasta keppni einkenndist af
leggjaspörkum, þegar reynt var að
ná boltanum af mótherja með
„leggjabrögðum", sem kallast „að
tækla“. Reglum var breytt og nú er
komin ný aðferð „peysutog". Ef
mótherji er innan seilingar, er tog-
að í peysuna svo dómari sjái ekki.
Strangari reglur gegn þessum vá-
gesti koma vonandi í næstu keppni.
Breyting á reglum felur í sér, að
knattspyrnan er í þróun. En það
þarf að laga meira en leggjaspörk
og peysutog. Það er ekki knatt-
spyrna. Enn stendur eftir, að leik-
maður getur hagnast á að brjóta.
Það er ekki réttlátt. Hér er tillaga
til úrbóta til umræðu fyrir þá inn-
vígðu.
Nýtt hugtak:
„ markamínútur “
Hraður leikur er mjög skemmti-
legur fyrir áhorfendur, en oft er
leikurinn það ekki. Svo er það víta-
spyrnukeppnin. Hana þarf að
leggja af. Hún er ekki „knatt-
spyrna", heldur neyðarráðstöfun
til að útkljá leik, vegna þess að
reglur eru lélegar. Vítaspyrnu-
keppni getur komið mjög illa við
menn og vegið að þeim, sem síst
skyldi. Mörg dæmi um það. Hér er
tillaga til að bæta úr því. Við búum
til nýtt hugtak „markamínútur" (e.
Goalminutes (gm)).
Dæmi a: Lið A og B keppa. Leik-
tími er 90 mín. A skorar eftir 5
mín. Fyrir þetta mark fær lið A 90-
5=85 „markamínútur" (gm). Lið B
skorar eftir 35 mín. og fær 55 gm.
Núverandi reglur segja: Jafntefli",
en nýja hugmyndin er, að láta
markamínútur ráða. Lið A hefur
85-55=30 gm umfram lið B og sigr-
ar. Engin vítakeppni og engin leið-
indi. Ef lið B skorar aftur eftir 85
mín., er staðan „lið A 1:2 lið B“ og
lið B sigrar á fleiri mörkum eins og
venjulega. Ekki reynir á
markamínútur.
í stað framlengingar og jafnvel
vítakeppni ráða „markamínútur"
úrslitum.
Reglan er þessi:
Það lið sigrar, sem skorar fleiri
mörk.
Ef mörk eru jafnmörg, sigrar
það lið, sem hefur skorað á undan,
hefur fleiri „markamínútur".
Ef ekkert mark er skorað, er
framlenging og síðan vítakeppni að
venju. Það gerist einu sinni á 100
árum á HM og er nóg.
Líka keppni við tímann
Tökum sama dæmi a og áður. A
skorar eftir 5 mín. og B eftir 35
mín. Á fýrsta markinu hefur A 30
gm yfir B. Nú skorar B annað
markið eftir 40 mín. og fær fyrir
það 50 gm og er í sigurstöðu, stað-
an 1:2, en A skorar svo annað mark
sitt eftir 50 mín. Þá er staðan 2:2,
en markamínútur segja: „Það er
ekki jafntefli 2:2.“ Lið Á hefur
85+40=125 gm, en lið B hefur
55+50=105 gm, og lið A sigrar á 20
gm. Úrslitin heita 2:2 125:105.
Tökum dæmi b. Lið D skorar eft-
ir 5 mín. (85 gm) og 45 mín. (45
gm), og hefur því 130 gm, en lið E
skorar eftir 10 mín. (80 gm) og 15
mín. (75 gm) og hefur 155 gm og
sigrar. Staðan er 2:2 og 130:55 fyrir
E. Liðið, sem skoraði fyrsta mark-
ið, er orðið undir á markamínútum,
af því seinna markið kom svo seint.
Dæmið hefur snúist við.
„Markamínútur“ eru þannig mæli-
kvarði á, í hve margar mínútur liðið
hefur verið yfir í leiknum.
Þetta felur í sér, að liðin eru ekki
aðeins í keppni hvort við annað um
fjölda marka, heldur líka í keppni
við tímann um markamínútur.
Þessi regla hvetur til að skora
fyrsta markið og verðlaunar fyrir
það. Eftir að lið A hefur skorað sitt
1. mark og lið B sitt 1. mark, er lið
A í sigurstöðu. Lið B er með tapað-
an leik og verður að berjast fyrir
öðru marki. Skori lið B, og staðan
orðin 1:2, er lið A með tapaðan leik
og verður að berjast fyrir marki.
Skori lið A og staðan orðin 2:2, eru
markamínútur lagðar saman og það
lið sigrar, sem hefur fleiri
markamínútur. Um leið og mark
hefur verið skorað og markatala
orðin jöfn, liggja markamínútur
fyrir, og þá er ljóst, hvort liðið er
undir.
Ekkert jafntefli til
Eftir þessa breytingu er ekkert
til, sem heitir „að jafna leikinn". Til
að ,jafna leikinn", þarf bæði að
jafna markatöluna og tímann
(markamínúturnar) og það gerist
næstum aldrei. Tíminn verður
næstum alltaf annað hvort of eða
van.
Þessi regla útrýmir jafnteflum
næstum alveg, og hún útrýmir líka
framlengingum og vítaspyrnu-
keppnum. Leikur byrjar á fullu og
eftir fyrsta mark er aldrei jafn-
teflisstaða. Það verður liðin tíð, að
sætta sig við jafntefli, því jafntefli
er ekki til lengur.
Það er talað um, að 43. mínútan
sé „markamínútan“. Ástæðan er sú,
að þá geta keppendur lagt hart að
sér, því það er sutt í hlé og hvfld.
Með „markamínútum" verða lið-
gefa þeim réttlátar reglur til að
keppa eftir, þannig að góðir drengir
séu ekki sárir eftir, fyrir hreina til-
viljun. Þeir eiga það ekld skilið að
þurfa að ganga hálfgrátandi af velli,
eins og komið hefur íyrir.
Með þessari breytingu væri
æskilegt að hafa tímavörð og
klukku, sem allir sjá, en ekki fela
dómara tímavörslu. Dómari fær
flautu, sem tengd er klukkunni og
stoppar tímann sjálfkrafa. Tæknin
er til, en hún liggur ennþá ónotuð.
Því má breyta. Á tímatöflu eru
skráð mörk og markamínútur.
Markamínútum má einnig beita
til refsingar brotum. 10 markamín-
útur í sekt fyrir að snerta með sóla
og síðan, hvað menn vilja. Ætli
menn hætti ekki að brjóta, þegar
þeir sjá tölurnar breytast á skján-
um!
I handbolta eru tveir dómarar, í
knattspyrnu aðeins einn auk línu-
varða, sem nú heita aðstoðardóm-
arar. Tæknin býður upp á að end-
urskoða gerðir dómara samkvæmt
videómyndum jafnóðum og meta
brot og beita sektum. Ef menn vilja
útiloka brot, þá er þetta leiðin.
Þannig geta „markamínútur“
tekið af þá agnúa, sem enn eru á
knattspyrnu.
JÓN BRYNJÓLFSSON,
verkíræðingur,
Bárugötu 20, Reykjavík.
I
Númerabirtar
JHver er dð
hringjd?
Nú geturþú séð númerþess sem er að
hringja, áður enþú lyftir upp tólinu.
Tækið geymir síðustu so númersem
hringdu og virkarþannig sem símboði
á meðan þú ert ífríinu.
Maxima
IT 9310
y.+'
Logger II Plus
781,- stgr.)
Logger Mini
SÍHINN
Ármúla 27, sími 550 7800
Landssímahúsinu v/ Austurvöll, sími 800 7000
Afgreiðslustaðir islandspósts um land allt
Bang&Olufsen