Morgunblaðið - 10.07.1998, Qupperneq 48
48 FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BB - - HH
m-Æ Á %'■ 1 v-#, 7
ELFA H. Haraldsdóttir tekur við ferðavinningi til Rimini á Italíu úr
höndum Helga Péturssonar (til hægri), markaðsstjóra Samvinnuferða-
Landsýnar, og Guðna Chr. Andreassen (til vinstri), formanns Lands-
sambands bakarameistara.
Heppinn vinningshafi
í Italíanó-leiknum
LANDSSAMBAND bakarameist-
ara og Samtök iðnaðarins geng-
ust fyrir kynningu á ítölskum
brauðum undir yfirskriftinni
ítalskir dagar frá 2. til 12. maí sl.
Á ítölskum dögum buðu félags-
menn í Landssambandi bakara-
meistara ítölsk brauð og fleira
ítalsk góðgæti í bakaríum um
land allt undir kjörorðinu „Við
bökum Ítalíanó". Einnig var við-
skiptavinum boðið að taka þátt í
léttum spui-ningaleik en verðlaun-
in voru ferð fyrir fjóra til Rimini
til Italíu í boðið Samvinnuferða-
Landsýnar.
Góð þátttaka var í Italíanó-Ieik
bakarameistara og Samvinnu-
ferða-Landsýnar og bárust um tíu
þúsund þátttökuseðlar í pottinn.
títdráttur hefur nú farið fram og
er heppinn vinningshafi Elfa H.
Haraldsdóttir. Hún er ein fjöl-
margra sem fékk sér ftölsk brauð
á ftölskum dögum og er nú fyrir
vikið á leið til Rimini á Ítalíu.
Rannsóknarstyrk
ir Atlantshafs-
bandalagsins
„MANNLEG virðing og stjórnmála-
umræða er viðfangsefni doktorsrit-
gerðar Svanborgar Sigmarsdóttur
við Háskólann í Essex og var henni
veittur styrkur Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) í ár. Ólöf Björg
Steinþórsdóttir hlaut styrk tO að
vinna að rannsókn um stærðfræði-
nám barna og unglinga.
Auk Svanborgar og Ólafar Bjarg-
ar hlutu ellefu Islendingar NATÖ-
styrk í ár, þar af tveir, Karl Skírnis-
son og Viðar Guðmundsson, vegna
vísindasamtarfs við Austur-Evrópu-
búa.
í ritgerð Svanborgar er leitast við
að þróa kenningu um algOdi mann-
legrar virðingar. Mannréttindi voru
löngum talin algild en aukinna efa-
semda gætir meðal fræðimanna og
stjórnmálamanna um að hugtakið
þjóni þeim tilgangi að vera forsenda
fyrir hugmyndum okkar um rétt
einstaklingsins. Mannréttindakenn-
ingar ber að skOja í samhengi við
þróun og uppbyggingu ríkisvaldsins
og í því Ijósi er hæpið að fallast á al-
gildi þeirra. Mannleg virðing er aft-
ur á móti ekki afstæð og getur orðið
grundvöllur að algildum rétti.
Ólöf Björg hyggst rannsaka
stærðfræðinám barna og unglinga
með sérstaka áherslu á ólíkar þarfir
kynjanna. Rannsóknar hafa sýnt að
drengir eiga auðveldara með að til-
einka sér hlutfallahugsun en stúlk-
ur. Skilningur á hlutföllum er talinn
erfiður og þroskast seint en er jafn-
framt nauðsynlegur vegna áfram-
haldandi stærðfræðináms. Ólöf
Björg, sem er í doktorsnámi við
Wisconsinháskóla í Bandaríkjunum,
ætlar að greina vandann með tilliti
til vitsmunaþroska og félagslegi-a
þátta. Á þeim grunni mun vera hægt
að leggja kennurum til aðferðir til
að mæta ólíkum þörfum stúlkna og
drengja í stærðfræðinámi," segir í
fréttatilkynningu frá Rannsóknar-
ráði Islands.
„Rannsóknarstyrk NATO er út-
hlutað árlega og annast Rannsókn-
arráð Islands úthlutunina. I ár bár-
ust alls 32 umsóknir en tO ráðstöfun-
ar voru 4,3 milljónir króna. Við mat
á forgangsröðun er fyrst og fremst
tekið mið af náms- og starfsferli um-
sækjenda, rökstuðningi umsækj-
enda vegna núverandi náms og/eða
lokaritgerðar, meðmælum og hag-
nýtri eða fræðilegri þýðingu verk-
efnisins. Styrkir til ungra vísinda-
manna er lokið hafa meistaraprófi
njóta að jafnaði forgangs," segir
ennfremur.
Styrkþegarnir eru: Oddný Mjöll
Arnardóttir, stjórnmálafræði, fyrir
verkefnið jafnrétti fyrir lögum; Ölöf
Björg Steinþórsdóttir, stærð-
fræði/menntun, fyrir verkefnið
stærðfræðinám barna og unglinga;
Svanborg Sigmarsdóttir, stjórn-
málafræði, fyrir verkefnið mannleg
virðing og stjórnmálakenningar;
Bolli Bjamason, læknisfræði, fyrh’
verkefnið þróun mats á áhættu of-
næmismyndunar; Oddur Þór Vil-
helmsson, lífefnafræði, fyrir verk-
efnið áhrif rakastillandi efna á Stap-
hylococcus aureus; Þórarinn Guð-
jónsson, sameindalíffræði, fyrir
verkefnið sérkenni og ákvörðun sér-
hæfingar í brjóstakirtli; Birgir Öm
Arnarsson, verkfræði, fyrir verkefn-
ið fræðileg og hagnýt aflfræði;
Bjarni Gautason, jarðefnafræði, fyr-
ir verkefnið hlutföll vetnissamsætna
í eldfjallagleri frá virkum gosbeltum
á Islandi; Einar Grétarsson, jarð-
fræði, fyrir verkefnið landaupplýs-
ingakerfi og fjarkönnun; Erpur
Snær Hansen, vistfræði, fyrir verk-
efnið orkubúskapur álkuforeldra og
Una Strand Viðarsdóttir, líffræði,
fyrir verkefnið kynþáttagreining á
hauskúpum barna.
Karl Skírnisson fékk styrk til
verkefnis í samstarfi við rússneskan
vísindamann um leit og greiningu
lirfustiga ögðu í íslenskum fjöm- og
grunnsævissniglum. Viðar Guð-
mundsson fékk styrk til verkefnis
um áhrif spuna og skiptakerfis á raf-
segulbylgjuís og mótaðs tvívíðs raf-
eindakerfis. Samstarfsmaður er
rúmenskur vísindamaður.
VELVAKAM>I
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Vantar verð-
merkingar
EFTIR að strikamerking-
ar komu til sögunnar i
matvöruverslunum hefur
það verið vaxandi vanda-
mál fyrir viðskiptavinina
að sjá svo ekki verður um
villst hvert er raunvem-
legt verð á þeim vömm
sem til sölu em. Mér hefur
skilist að kaupmönnum
beri skylda til að verð-
merkja vömr sínar greini-
lega með krónutölu en
ekki veit ég hver á að hafa
eftirlit með því að svo sé
gert eða hvert neytandinn
getur snúið sér ef mis-
brestur er á (þrátt fyrir ít-
rekaðar ábendingar við af-
greiðslufólk í viðkomandi
verslun).
Mér skilst að Neytenda-
samtökin skipti sér ekki af
öðram málum en þeim
þegar varan er gölluð eða
svikin og þá aðeins ef
kaupandinn er félagsmað-
ur í samtökunum. Hvernig
í ósköpunum er hægt að
gera verðsamanburð þegar
flestar verðmerkingar
vantar? Mér er spurn. Og
hvert er hægt að snúa sér
til að fá úr þessu bætt? Til
hvers era þessi Neytenda-
samtök ef ekki til að
vernda hagsmuni neyt-
enda?
Neytandi.
Herbalife ekkert
undralyf
LESANDI vill þakka
Ólafi G. Sæmundssyni
fyrir skrif hans um Her-
balife í sunnudagsblaði
Morgunblaðsins 5. júlí sl.
og segir að þar séu orð í
tíma töluð og vill benda á
að fólk sé að kasta pen-
ingum á glæ. Það segi sig
sjálft að ef fólk borðar
bara eina máltíð á dag þá
að sjálfsögðu grennist
það. Áð fenginni reynslu
segist lesandi ekki hafa
losnað við hungurtilfinn-
ingu en hafi gi'ennst af
minna mataráti og þurfi
ekki að borga offjár fyrir
Herbalife. Lausnin sé að
borða minna.
Umtalaðar samlokur
í Flókalundi
SUNNUDAGINN 5. júlí
sl. var ég á ferð með þrjá
útlendinga frá Isafirði, á
leið suður Vestfirðina, í dá-
samlegu veðri. Stoppað
var í Hótel Flókalundi og
af matseðlinum vora pant-
aðar heitar osta- og
skinkusamlokur, sem svo
vora kallaðar. Skinku-
sneiðin var á þykkt við 90
gr blaðsnepil og osturinn
eftir því og urðum við að
biðja afgreiðslufólkið um
smjörklípu sem aukaviðbit.
Var ég í mestu vandræð-
um með að útskýra þetta
fyrirbrigði fyrir samferða-
fólkinu og þegar ég sagði
að samlokan kostaði 370
kr. var þeim nóg boðið.
Eg get því miður ekki
mælt með svona veitinga-
rekstri og hafa samlokurn-
ar í Flókalundi valdið
hneykslan.
Torfi Þ. Ólafsson
Merkja ber styttu
Jóns Sigurðssonar
Styttur Reykjavíkur era
allar vel merktar og þvi
kemur það lesanda á óvart
að Jón Sigurðsson á Aust-
urvelli skuli ekki vera
merktur eins og aðrar
styttur borgarinnar.
Hraðkassar Ikea
ekki virtir
UM kaffileytið þriðjudag-
inn 7. júlí vora þrír mann-
aðir afgreiðslukassar af
sex í Ikea. Sjö til tíu manns
biðu við hvern kassa. Þar
sem ég var aðeins með
fjóra hluti valdi ég strax að
bíða þar sem stóð:
Hraðkassi, hámark fimm
hlutir. Framai- í röðinni var
par með fulla kerra af vör-
um. Innan stundar heyri
ég konuna segja við mann-
inn: Heyrðu, þetta er
hraðkassi, við megum bara
vera með fimm hluti. Síðan
komu þau sér saman um að
það væri allt í lagi, þau
myndu bara láta sem það
væru fimm hlutir í körf-
unni. Og þau hlógu dátt.
Og viti menn. Upp úr
kerranni komu milli 15 og
20 vörutegundir sem voru
afgreiddar athugasemda-
laust. Aðspurð um þennan
afgreiðslumáta sagði af-
greiðslustúlkan að þetta
væri gert þegar mikið væri
að gera! Sem sagt: þegar
þörfin á hraðkassanum er
mest er hann ekki notaður
sem slíkur. Daman af-
greiddi síðan konuna næst
á eftir mér, sem beið með
einn munnþurrkupakka, og
lokaði svo á röðina. Hún
var farin í kaffi!
Stjórnendur Ikea ættu
að sjá sóma sinn í að nota
hraðkassann eins og aðrar
stórverslanir gera eða taka
niður tilkynningu um
hraðkassa og hætta að
hafa viðskiptavini sína að
fíflum.
Óánægður viðskiptavinur.
Ljóð í strætisvagnana
LESANDI tekur undir
með Víkverja 26. júní og
telrn- tilvalið að hafa ljóð
fyrir farþegana í strætis-
vögnunum, þeim til afþrey-
ingar og ánægju.
Tapað/fundið
Tjaldsúlur týndust
TJALDSÚLUR í gráum
gerviefnapoka týndust í
Vesturbænum þriðjudag-
inn 30. júní, milli Eggerts-
götu og Tjarnarinnar eða
þaðan að Dunhaga.
Finnandi er góðfúslega
beðinn að hafa samband
við Súsönnu Ernst, Dun-
haga 15, í síma 5515011
eða 515 9274 vinnusíma frá
kl. 8-17.
Gullarmband
tapaðist
BREITT gullai-mband
tapaðist í byrjun júlí,
sennilega í Garðabæ,
merkt ÞH inni í lásnum
auk dagsetningar. Finn-
andi vinsamlega hafi sam-
band í síma 565 6206 eða
898 3231.
Kvenskór teknir
í misgripum í sund-
iaug Mosfellsbæjar
NÝLEGIR kvenskór, svartir
og þykkbotna, voru teknir í
Sundlaug Mosfellsbæjar mið-
vikudagskvöldið 8. júlí í mis-
gripum. Skildir voru eftir
svipaðir skór en mun meira
notaðir.
Sú sem tók skóna er vin-
samlegast beðin að koma
með þá í Sundlaug Mos-
fellsbæjar.
SKAK
llmsjún Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á
stórmótinu í Dortmund sem
lauk um síðustu helgi.
Rússinn Peter Svidler
(2.690) hafði hvítt og átti
leik gegn Úkraníu-
manninum Vasílí fvantsjúk
(2.740). Svidler hafði farið
nokkuð geyst í sóknina, en
Ivantsjúk var að enda við að
leika gróflega af sér með 32.
_ Kf8_g8, hefði fremur átt
að bæta úr skákinni með 32.
_ Hxh6! og staðan er óljós.
33. Hxc4!! og Ivantsjúk
gafst upp, því 33. _ Hxc4 er
svarað með 34. Hxd5! og
hvítur vinnur í öllum
tilvikum:
A) 34. _ Dxd5 35. Rxe7+ _
Hxe7 36. Dg4+ _ Rg5 37.
Dxg5+ _ Kh8 38. Dg7
mát.
B) 34. _ Dc7 35.
Rxe7+ _ Dxe7 36.
Dg4+ _ Rg5 37. Dxc4
með unnu tafli á
hvítt.
C) 34. _ Hcl+ 35.
Kh2 _ Dc7 36. Rxe7+
_ Dxe7 37. Bxcl og
hvítur vinnur.
HVÍTUR leikur
og vinnur.
Víkverji skrifar...
GÖMUL kona hringdi í fyrri viku
mjög hlessa yftr því að á þriðju-
degi hafði Víkverji amast við því hve
mikið væri um knattspymu á dagskrá
sjónvarpsins. Á miðvikudaginn hins
vegar, eða degi síðar, hældi Víkverji
sjónvarpinu á hvert reipi fyrir hve vel
það stæði sig í að sýna knattspymu-
leiki frá HM í Frakklandi. Gamla kon-
an skildi ekki málið, var hjartanlega
sammála Víkveija þriðjudagsins, en
skildi ekki umskiptin í miðvikudags-
blaðinu.
Þetta kemur lesendum vissulega
undarlega fyrir sjónir, en ástæðan
fyrir því hve mikill kleyfhugi Víkverji
er - hefur þessa skoðun í dag og aðra
á morgun - er sú að nokkrir starfs-
menn ritstjómar Morgunblaðsins
skrifa Víkverja til skiptis. Þannig geta
skoðanir Víkverja breytzt frá einum
degi til annars eins og dæmið um
knattspymuna sýnir.
Annars verður það að viðurkennast
að margt aldrað fólk, sem situr
daglangt við sjónvarp og notar miðil-
inn sér til dægrastyttingar, ef til vill í
einsemd sinni, á harla bágt þá daga,
sem slik íþróttaftm ganga yfir sem
HM í Frakklandi. Þessu fólki, hafi það
ekki áhuga á knattspymu, finnst það
vera svikið af sjónvarpinu, sem því er
gert að kaupa, og á stundum hefiir
þetta fólk hreinlega ekki ráð á að
kaupa fleiri stöðvar. Þetta fólk er líka
tryggustu áhorfendur sjónvarpsins.
Það er því kaldhæðnislegt, að einmitt
þessu fólki skuli finnast það svikið af
sjónvarpinu, tryggustu áhorfendun-
um.
xxx
FYRIR um það bil hálfum mánuði
spurðist Víkverji fyrir um
hvernig á því stæði að gosbrunnur-
inn í Tjörninni er ekki látinn blása.
Ólafur Jónsson, upplýsingafulltrúi
Reykjavíkurborgar, hefur nú út-
skýrt hvernig á þessu stendur. Hann
segir í orðsendingu til Víkverja, að
búnaðurinn sem drífur gosbmnninn
sé orðinn gamall og þurfi viðhald og
það sérhæft. í ljós kom síðla vetrar
að skipta þurfti um varahlut, sem
þurfti að fá írá Danmörku. Af-
greiðsla hans hefur hins vegar tafizt,
m.a. vegna verkfalla í Danmörku.
Hann er nú kominn og stendur við-
gerð yfir þegar orðsending Ólafs er
send og mun því verki senn fara að
ljúka. Gosið ætti því að geta farið í
loftið í næstu viku, ungum sem öldn-
um til ánægju.
x x x
EINS OG komið hefur fram í
fréttum og greinum í Morgun-
blaðinu ætla menn nú að reisa í
Landmannalaugum minnisvarða um
Fjalla-Eyvind og Höllu, einn frækn-
asta útilegumann sögunnar og konu
hans. Yfírleitt hafa ekki komið fram
gagnrýnisraddir við því að minnis-
varðinn verði reistur, en þegar menn
sáu á myndum, að Eyvindur og
Halla era innan rimla eins og fangar
í búri, fannst mönnum táknmynd úti-
legumannsins eitthvað brengluð.
Mönnum þótti skrítið að sjá þau inn-
an rimlanna - þau, sem kusu einmitt
hið gagnstæða, víðáttu íslenzkrar
náttúru til fjalla, langt frá byggðu
bóli. Einn gagnrýnendanna, Grétar
Haraldsson, sendi Víkverja eftirfar-
andi vísu:
Fyrirlönguseggursá
tílsakamargthérvann.
í moldu þegar lágt svo lá,
þeir létu fanga hann.