Morgunblaðið - 10.07.1998, Side 50
MORGUNBLAÐIÐ
FOSTUDAGUR 10. JULI1998
ÍSLENSKA ÓPHttAN
~di'"Mi&asoh551 1475
Bizei/TroHet/McLtiod
,, Sýningor hefjast kl. 20.00. Ótóttor pontanir
I kvöld kl. 20 nokkur sæti laus • laugardag 11. júlí kl. 20 nokkur sæti laus
• föstudag 17. júlí kl. 20 • laugardag 18. júlí kl. 20
Miðasala simi 551 1475.
Opin alla daga kl. 15-19. Símapantanir frá kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar.
BORGARLEIKHÚSIÐ
sýnir í júlí og ágúst
á Stóra sviði kl. 20.00
eftir Jim Jacobs og Warren Casey.
í kvöld 10/7, uppseit,
lau. 11/7, uppsett,
fim. 16/7, uppseft,
fös. 17/7, uppselt,
lau. 18/7, uppseit,
fös. 24/7, lau. 25/7,
sun. 26/7, örfá sæb' laus.
Miðasalan er opin daglega
frá kl. 13—18 og fram að
sýningu sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000 fax 568 0383.
jjfÍlilalScj j J
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
lau. 11/7 kl. 23
fim. 16/7 kl. 21
Miöaverö kr. 1100 fyrir karla
kr. 1300 fýrir konur
Vörðufélagar LÍ fá 30% afslátt
Sýnt í íslensku óperunni
Miðasölusimi 551 1475
SUMARTÓNLEIKARÖÐ
KAFFILEIKHÚSSINS
„Sígild popplög"
Ingveldur Ýr Jónsdóttir syngur periur úr
poppinu fim. 16/7 kl. 21.00, laus sæti.
„Megasukk í Kaffileikhúsinu"
Hinn eini sanni Megas á tónleikum með
Súkkat fös. 17/7 kl, 22 til 2. laus sæti.
Matsedill sumartónleika
Indverskur grænmetisréttur að hætti
Lindu, borinn fram með ristuðum furu-
hnetum og fersku grænmeti og f eftirrétt:
,_______„Óvænt endalok".__,
Miöasalan opin alla virka daga
kl. 15—18. Miðap. allan sólarhringinn
í s. 551 9055.
Netfang: kaffileik@ isholf.is
ÞJÓNN
í s ú p u n n i
mið 15/7 Forsýning örfá sæti laus
fim 16/7 Frumsýning uppselt
lau 18/7 UPPSELT
sun 19/7 UPPSELT
fim 23/7 UPPSELT
fös 24/7 UPPSELT
lau 25/7 örfá sæti laus
Sýningamar hefjast kl. 20.00
Miðasaia opin Id. 12-18
Ósáttar pantanlr seldar daglega
Miðasölusími: 5 30 30 30
Tilkynning frá fógetanum í Nottingham
25.000 gullpeningar í hoði fyrir þann sem
handsamar útlagann I lróa hött
ilrói hönur cr i sirkust|aldinu í Húsdýraizarðinum
Sýnt miðv. - fóstud. kl. 14:30
Lau. - sun. kl.
Miðapantanir • Nótt&Dagur • 562 257C
Miðaverö: 790,- (640,- íyrir hópa)
Innifalið í verði er aogönguniim á Hróa hött,
aðgöngumiði í Fjölskyldu- og Hiísdýragarðinn
"________o.tz frítt i öll tieki í earðinum__
FÓLK í FRÉTTUM
ERLENDAR
Klara Sigurbjörnsdóttir
fjallar um nýjan
geisladisk Brandy
„Never say Never“.
Frábær
R&B tónlist
ÞEIR sem fylgjast með því sem
spilað er á útvarpsstöðvunum þessa
dagana hafa varla komist hjá því að
heyra lagið „The boy is mine“ af
plötunni „Never say never“ sem
söngkonan Brandy syngur í dúett
með Monicu, annarri góðri R&B
söngkonu. Þetta er fyrsta smá-
skífulag af annarri sólóplötu
Brandy, þessarar ungu efnilegu
stúlku. Hafa margir beðið þessarar
nýju plötu með mikilli eftirvænt-
ingu. Fyrri plata hennar „Brandy“
kom út árið 1994. Eru því liðin rúm
4 ár frá þeirri plötu sem hefur selst
í yfir 4 milljónum eintaka. Sú plata
varð mjög vinsæl um allan heim, þó
sérstaklega í Bandaríkjunum þar
sem R&B músík er í miklum met-
um, en við erum að ná þessu hér á
klakanum og má þá sérstaklega
þakka nokkrum góðum útvarps-
mönnum sem eru miklir R&B bolt-
ar, eins og ég, sem hafa verið dug-
legir að spila þessa tónlist.
Fyrir fyrri plötuna var Brandy
útnefnd sem besti nýliði Grammy
verðlaunahátíðarinnar árið 1996.
Síðan þá hefur hún samt ekki setið
aðgerðarlaus. Hún kláraði mennta-
skólann og byrjaði í háskóla. Auk
þess hefur hún leikið í hinni vinsælu
þáttaröð „Moesha" sem sýnd er á
Stöð 2 um þessar mundir.
„Never say never“, nýja platan,
veldur ekki vonbrigðum. Frábær
R&B plata með mörgum lögum sem
ég spái að eigi eftir að verma vin-
sældarlista bæði hér heima og úti.
Hún hefur nú þegar komið fyrsta
smáskífulaginu á toppinn í Banda-
ríkjunum en að mínu mati er það
ekki besta lag plötunnar, svo ég
spái fleiri lögum velgengni. Ég vil
nefna sérstaklega nokkur lög af
þessari plötu. Að mínu mati er
besta iag plötunnar 6. lagið „Top of
the world“ sem er dúett með Mase
sem er flott danslag með góðum
takti. Önnur góð lög eru lag númer
2 „Angel in disguise", lag 5 „Aimost
doesn’t count“, lag númer 8 sem
jafnframt er titillag plötunnar
„Never say never“ og lag númer 7
„U don’t know me like U used to“.
Platan er í heild frekar í rólegri
kantinum þótt á henni séu nokkur
hress lög með flottum takti og hún
rennur ljúflega í gegn. Seinasta lag
plötunnar er fallega lagið hans
Bryans Adams „Everything I do I
do it for you“. Vel sungið, en hvort
fólk kann að meta ljúfa kvenmanns-
rödd í iagi Bryans Adams sem með
sinni rámu rödd gerir lögin svo sér-
stök verður hver og einn að meta
fyrir sig.
Fyrir alla þá sem eru fyrir R&B
músík mæli ég með þessari plötu og
hinir sem ekki eru R&B boltar ættu
að prófa að renna henni í gegn.
Klara Sigurbjörnsdóttir
Standa
saman í
sorginni
► SKILNUÐUM fræga og
ríka fólksins fylgir gjarn-
an opinber orðahríð og ill-
úð. Það verður enn ekki
sagt um skilnað leikar-
anna Bruce Willis og Demi
Moore og virðast þau stað-
ráðin í að halda honum
eins vinalegum og mögu-
legt er. Til að sanna það
flaug Willis til Moore um
síðustu helgi til New Mex-
ico til að veita henni
stuðning í sorginni vegna
dauða móður hennar,
Virginiu Guynes, sem lést
úr krabbameini á dögnn-
um.
Að sögn dagblaðsins
USA Today hélt Willis til
Moore og þriggja dætra
þeirra eftir að hafa verið
við forsýningu myndarinn-
ar Armageddon í Flórída í
síðustu viku. Hann hafði af-
boðað sig á forsýninguna
eftir að þau hjón tilkynntu
um væntanlegan skilnað
sinn en ákvað á síðustu
stundu að vera viðstaddur,
enda mikilvægt fyrir
myndina og framleiðendur
hennar.
Það kom mörgum á
óvart að Bruce Willis og
Demi Moore skyldu ákveða
að láta leiðir skiljast eftir
næstum 11 ára hjónaband,
en svo mörg ár saman telj-
ast til tiðinda í Hollywood.
Morgunblaðið/Halldór
REYNIR Sigurðsson, Gunnar Hrafnsson og Björn
Thoroddsen.
MÆÐGININ Hrafnkell Guðjónsson og Ragnheiður
Arnardóttir gerðu sér dagamun, fengu sér köku og
hlustuðu á djass.
► ÞRIÐJA sumarið í röð er
djass á Jómfrúartorginu á laug-
ardögum milli kl. 16 og 18. Að
sögn Jakobs Jakobssonar
„smurbrauðsdömu" og eiganda
Jómfrúarinnar í Lækjargötu,
koma bæði djassgeggjarar að
» hlusta á sína menn og annað
fólk sem vill koma inn í góða
stemmningu. „Það er gaman
þegar fólk rambar inn og djass-
inn kemur þeim skemmtilega á
óvart. Við á Jómfrúnni viljum
lífga upp á bæjarlífið, og reyn-
um að bjóða upp á vandaðan og
, mismunandi djass, og það hefur
Jómfrúar-
djass
mælst vel fyrir hjá bæjarbú-
um.“
Reynir Sigurðsson spilaði sl.
laugardag á víbrafón og hafði
fengið til liðs við sig þá Björn
Thoroddsen gítarleikara og
Gunnar Hrafnsson bassaleik-
ara. „Eg valdi lögin með tilliti
til þeirra hljóðfæraleikara sem
ég var að spila með, en þeir eru
mjög færir og ég vildi að við
næðum sérstaklega vel saman,“
sagði Reynir í viðtali við Fólk í
fréttum. „Fyrri helming tón-
leikanna spiluðum við djass-
standarda en kannski aðra en
þá sem er verið að spila að jafn-
aði. Seinni helminginn spilaði
ég á harmonikkuna og þá lék-
um við meira bossanova og
sambatónlist til að sjá hvernig
það kæmi út. Eg vildi fyrst og
fremst að þetta yrði hefðbundið
og huggulegt, og vona að svo
hafí verið.“
ÞEIM félögunuin Fróða Oddssyni og Þorkatli
Gunnarssyni fannst ágætt að fletta blöðunum við
ljúfan undirleik.
Vinkonurnar
Ólöf Vilhjálms-
dóttir, Ragna
Bjarnadóttir og
Elín Vilhjálms-
dóttir skemmtu
sér vel á laugar-
dagseftirmið-
degi á Jóm-
frúnni.