Morgunblaðið - 10.07.1998, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ______________________
FÓLK í FRÉTTUM
FÖSTUDAGSMYNDIR SJÓNVARPSSTÖÐVANNA
Stöð ► 21.00 Matthildur
Mathilda, (‘96). Sjá umsögn í
ramma.
Sýn ► 21.00 Húsdraugurinn í
Draugahúsinu (The Changeling,
‘79), ágætri og ógnvekjandi
hrollvekju, er drengur sem
bjó þar sjötíu árum áður. Nýr
eigandi (George C. Scott), kemst í
tæri við hann er hann flytur inn, og
leysir gamla morðgátu. Margt
nógu vel gert til að koma
gæshúðinni af stað. Með Melvyn
Douglas og Trish Van Devere.
Peter Medak leikstýrir.
Stöð 2 ► 22.45 Álitlegur
leikhópur, (Kurt Russell, Robert-
De Niro, Scott Glenn, William
Baldwin, Rebecca De Mourney,
Jennifer Jason Leigh) og liðtækur
leikstjóri (Ron Howard), gera sitt
besta, en ótrúlega þunnildislegt
handrit dregur Eldhuga
(Backdraft, ‘91), ★★’/2 niður í
rösklegt meðallag. Sagan er
innantóm og væmin, um
metnaðarfulla bræður í
slökkviliðinu og óspennandi
ástamál annars þeirra. A meðan
ýfingum stendur leikur
brennuvargur lausum hala. De
Niro og magnaðar eldbrellur
bjarga sýningunni.
Sýn ► 22.40 Það er
sprengikraftur í spennumyndinni
Friðhelgin rofin (Unlawful
Entry,’92), þó róið sé á gömul mið.
I kjölfar innbrots kynnast hjónin
Kurt Russell og Madeleine Stowe,
einmanna löggæslumanni (Ray
Liotta) og vingast við hann. Kauði
reynist sálsjúkur og ástfanginn
uppíyrir haus af frúnni. Stowe er
heillandi, Russell pottþéttur að
vanda í klæðaskerasaumuðu
hlutverki heimilisföðui' sem verður
að bretta upp ermarnar. Liotta er
þó þeirra bestur sem
geðsjúklingurinn. ★★★
Sýn ► 24.55 Hrollvekjan Flugan
(The Fly, ‘58), er komin í hóp
sígildra mynda og hefur að auki
verið endurgerð af Cronenberg og
framhald þeirrar myndar fylgdi í
kjölfarið. Sagan er góð.
Vísindamaður sem gerir tilraunir
með líkamsflutninga verður
sambland manns og flugu.
Hryllingur og drama í fínum
pakkningum með hinum eina,
sanna Vincent Price. ★★★
Stöð 2 ► 1.00 Viðtal við
vampíruna (Interview with the
Vampire,), ★★★, er misjöfn en
viðamikil og óaðfinnanlega
útlítandi hrollur í stórmyndastíl.
Byggður á metsölubók
vampírudrottningarinnar Anne
Rice, sem skiifar vitsmunalegar
um þessar blóðþyrstu verur
næturinnar en aðrir. Fínn leikur
hjá Tom Cruise og Brad Pitt í
aðaihlutverkunum.
Stöð 2 ► 3.00 Tvær fársjúkar
konur gera afdrifaríkt samkomulag
í Svo gott sem dauð (As Good As
Dead, ‘95), er þær kynnast á
sjúkrahúsi. Með Crystal Bernard,
Traci Lord og einnig má sjá Judge
Reinhold, sem virðist fallinn úr
úrvalsdeildinni. AMG gefur ★★I/2.
Myndar-
stúlka
Matthildur
Stöð 2 ► 21.00 Hún er sér á
báti, bandaríska myndin
Matthildur (Matilda) og erfitt að
draga hana í ákveðinn dilk. Hún
er allt í senn, drama, gaman-
mynd og tragedia, einna helst
fellur hún undir kolsvarta
kómedíu. Aðalpersónan er telpan
Matthildur (Embeth Davidtz),
bráðskörp, klár og skemmtileg,
þó heimilisaðstæðurnar geti
tæpast talið þroskandi.
Foreldrar hennar (hjónin Danny
De Vito og Rhea Perlman), eru
nefnilega ómerkilegasta pakk.
Greindarvísitalan á svipuðu róli
og hitastigið á góðum sumardegi
á Suð-vesturhorninu. Segir
myndin á gráglettinn og
afdráttarlausan hátt af
heimiliaháttum þessara vits-
munavera. Sjaldan eða aldrei
höfum við fengið jafn ósvikna og
meinfyndna lýsingu á þvi sem
Bandaríkjamenn kalla „hvítt
hyski“ („white trash“). Engun er
betur treystandi til að túlka slíkar
manngerðir en hjónakornunum og
háðfuglunum De Vito og Perlman,
auk þess leikstýi-ir De Vito hreint
óaðfmnanlega. Mestan heiðurinn á
þó Davidtz í hlutverki hinnar
ólánsömu Matthildar, sem tekst
að lokun að bjargast úr
hremmingum heimilislífsins með
aðstoð kennarans síns (Pam
Ferris). Matthildur, er sú mynd
sem hvað mest kom á óvart 1996
og ég hvet fólk til að missa ekki af
henni. Hún er minniháttar perla.
★ ★★'A
Sæbjörn Valdimarsson
MATARLITIR
fyrir kökur, marsipan
og skreytingar.
15 mismunandi litir
Póstsendum
tjh PIPAROGSALT
|| J Klapparstíg 44
S: 562 3614
Sumartilboð frá
EAII DE TOILETTE
GIEFFEFFE
GIANFRANCO FERRE
Þegar þú kaupir tvo hluti að eigin vali frá
GIANFRANCO FERRE
færðu að gjöf glæsilega svarta FERRE hliðartösku.
Stór-Reykjavík: Libio Mjódd, Holtsapótek,
Snyrtivörud. Hagkaups Skeifunni og Kringlunni,
Bró Laugavegi, Sondrn Smáratorgi, Snyrtivörud.
Hagkaups Smáratorgi, Snyrtihöliin Garðabæ.
Landið: Gallery föðrun Keflavik,
Árnes apótek Selfossi, Miðbær Vestmannaeyjum,
Isold Sauðárkróki, Krisma Isafirði, Tara Akureyri,
Snyrlivörud. Hagkaups Akureyri, Húsavíkur apótek.
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998 51
barnaföt við hliðina á Hagkaup í Skeifunni,
Laugavegi 20 og Fjarðargötu 17 í Hafnarfirði