Morgunblaðið - 10.07.1998, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ
,52 FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
Stóra bláa
tíu ára
SAUTJÁNDA júní sl. hófust endur-
sýningar í Frakklandi á kvikmynd-
inni „Le Grand Bleu“ eftir Luc Bes-
son í tilefni þess að 10 ára eru liðin
frá frumsýningu hennar. Myndin
varð mjög vinsæl um allan heim, og
urðu aðalleikaramir tveir heims-
frægir upp frá því. Það eru Amerík-
aninn Jean-Marc Barr og Spánverj-
inn Don Juan Moreno Herrera y
Gimenez, öðru nafni Jean Réno.
Þeir félagar hafa haldið sambandi
öll þessi ár, og hittust eina ferðina
enn í viðtali hjá franska Premiere
blaðinu til að tala um „Le Grand
Bleu“, árin sem liðin eru, og þær
ólíku brautir sem þessir tveir ólíku
leikarar hafa kosið sér.
Luc Besson
Við lestur viðtalsins virðist ein-
hver kergja ríkja á milli þeirra
tveggja. Réno lætur sem hann sé
eldri bróðirinn að gefa þeim yngri
góð ráð, en Barr lætur sig ekki;
hann hefur sínar skoðanir og er
fastur á þeim.
Þeir eru fyrst spurðir um Luc
Besson og hvað þeim fínnist um
hann í dag. Barr hefur eitthvað
orðið sundurorða við hann og þeir
hafa ekki talast við í mörg ár.
Hann segir Besson tala niður til
fólks sem sé óþolandi til lengdar.
Réno viðurkennir að Besson þurfí
meira pláss en flest fólk, og sé ein-
staklega afskiptasamur og stjórn-
samur en þeir séu enn bestu vinir.
Besson hafí virkilega stóra galla
líka en líka marga kosti.
Lífsviðhorf
Barr er greinilega mun við-
kvæmari mannvera en Réno sem
er meira með fætuma á jörðinni.
Barr talar mikið um hversu ást-
fanginn hann sé af sinni stórkost-
legu konu, og hversu mikils virði
það sé að vinna með góðu fólki og
að einlægum myndum eins og Br-
eaking the Waves með Lars von
Trier, en hann virðist hafa haft
mjög djúp áhrif á Barr. Þegar
hann vann með honum að Europa
skildi hann að hin sönnu verðmæti
kvikmyndaiðnaðarins eru ekki fjár-
hagsleg heldur siðferðisleg og
mannleg. Hann talar illa um kvik-
myndahátíðina í Cannes sem hann
segir full yfirborðslegan markað og
að allir leikarar selji sig og séu
þess vegna hórur. Þegar hér kem-
ur er Réno orðinn frekar þreyttur
og leiður á neikvæðninni og róman-
tíkinni í drengnum: „Ég skil ekki
að þótt starf okkar sé opinbert að
við séum að „selja okkur“. Allt
kostar eitthvað. Skinka kostar eitt-
hvað, það þýðir ekki að svínið sé að
„selja sig“.“
Hlutverkin
I Cannes var Réno að kynna
Godzillu en það fínnst Barr heldur
ómerkileg mynd. „Hvernig nennir
þú að standa í því á fimmtugsaldri
að koma barnalegum skilaboðum
á framfæri? Er þig ekki farið að
langa til að segja eitthvað af viti?
Eitthvað þýðingarmikið fyrir
áhorfandann? Láta honum líða vel
eins og þegar maður horfir á
mynd eftir Tarkovski, Mikhalkov
eða Kusturica?" En Réno er sama
hvernig mynd leikur í ef honum
líkar hlutverkið sitt. Hann fer t.d.
ekki eftir fjárhæðunum sem hon-
um eru boðnar.
Honum finnst hins vegar að
Barr hefði átt að taka að sér aðal-
FOLK I FRETTUM
JEAN-MARC Barr á Hótel Martinez í Cannes. JEAN Réno við kynningu á „Godzillu" í Cannes.
hlutverk unga, fallega mannsins
sem bjargar öllum. I staðinn sé
hann endalaust að leika hlutverk
þar sem persónan engist af tilvist-
arlegum þjáningum. En Barr seg-
ist ekki vilja leika fallegan og
heimskan gæja sem verður ást-
fanginn. „Er það sem er fallegt
endilega heimskulegt?" spyr
Réno þá.
Stóra bláa
En til að komast að niðurstöðu,
hvað gerði Stóra bláa fyrir þá fé-
laga? „Ég er náttúrulega þekktur
alls staðar í heiminum," segir Je-
an-Marc Barr, „og þannig hef ég
getað látið drauminn minn rætast
um að hitta fólk eins og Lars von
Trier og það hefur gert mig miklu
sterkari.“ „Þessi mynd opnaði
heiminn fyrir mér, alla leið til
Hollywood," segir Jean Réno, og
það er ekki hægt að segja að þeir
félagar séu sammála um margt.
En þeir geta samt verið ágætis
vinir þrátt fyrir það.
MYNDBÖND
Herskarar
himnanna
Spádómurinn II
(Prophecy II)
U r a m a
★★
Framleiðendur: Joel Soisson. Leik-
stjóri: Greg Spence. Handritshöfund-
ar: Matt Greenberg, Greg Spence.
Kvikmyndataka: Richard Clabaugh.
Tónlist: David C. Williams. Aðalhlut-
verk: Christopher Walken, Russel
Wong, Jennifer Beals, Brittany
Murpliy, Eric Roberts, Glenn Danz-
ing. 97 mín. Bandaríkin. Skífan 1998.
Myndin er bönnuð börnum innan
16 ára.
Hilmar Sverrisson
heldur uppi léttri og góðri stemningu
á Mímisbar.
uepp««
-þín saga!
/r
O^lœiurgaíinn
Smiðjuvegi 14, Xppavogi, sími 587 6080
X
í kvöld leika hinir síungu
Lúdó og Stefán
í tilefni eins árs afmælis Næturgalans fá allir
gestir, sem koma fyrir kl. 24.00, óvæntan
glaðning í boði Næturgalans.
Sjáumst hress
NO NAME
—— COSMETICS-
‘Ifynmng
óiitía Hronn jonsdöttir silla páls förðunarfræöingur gefur
*»»«* • »•'.«•"'» raðleggingar i dag fra kl. 14-18
Sandra, Smáranum Kópavog
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
Vettvangur fólks í fasteignaleit
mbl.is/fasteignir
Rccboh
vandaðir
. skór y
pýmingarsala
verðhrun
bakvið Bónus, Faxafeni
■' y
hlaupaskór
gönguskór
alhliða íþróttaskór
Verðdæmi:
Vigor; 700 (áður 2.490)
Odyssey; 3.990 (áður 7.990)
Slice Canvas; 1.990 (áður 3.990)
fR0PHE
ERKIENGILLINN Gabriel
snýr aftur til jarðar til þess að
hindra að barn, sem er getið af
■hhh samruna engils
og mennskrar
konu, fæðist.
Munkur nokkur
hafði spáð fyrir
komu þessa
barns. Til þess að
hafa uppi á barn-
inu fær Gabriel
til liðs við sig
Izzy, sem stuttu
áður hafði framið
sjálfsmorð, og lætur hann hana
vera á lífí meðan á leitinni stendur.
Lokaátökin á milli Gabriels og
hinnar mennsku, Valerie, eiga sér
stað í aldingarðinum Eden, sem
hefur tekið á sig nýja mynd síðan
Biblían var skrifuð.
Christopher Walken er einn óg-
urlegasti leikari sem til er og í
þessari mynd nær hann að kreista
fram það sem hægt er úr illa skrif-
uðu hlutverki erkiengilsins. Nær-
vera Walkens er það sem heldur
myndinni fyrir
ofan meðalhroll-
vekju. Fyrri
myndin er miklu
betri á öllum
sviðum og þá
sérstaklega því
sjónræna en
hún var samt
sem áður stór-
gölluð. Þessi
mynd gerir
ekkert fyrir þá fyrri nema það að
benda frekar á það sem betur hefði
mátt fara. Af öðrum leikurum er
Brittany Murphy, (,,Clueless“),
best, en hún er í hinu skemmtilega
hlutverki Izzy, sem fær ekki að
deyja þótt hana dauðlangi til þess.
Tæknilega er myndin í meðallagi
en nokkrar senur standa upp úr, þá
sérstaklega senurnar á milli Izzy
og Gabriel, sem eru stórskemmti-
legar.
Ottó Geir Borg