Morgunblaðið - 10.07.1998, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
MORGUNBLjíÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Kvöld með rentu
*
I leikhúsum borgarinnar hefur hver sum-
arsmellurinn slegið í gegn af öðrum.
Grease og Þjónn ísúpunni eru tvö verk-
anna sem berjast um áhorfendurna þetta
sumar. Hildur Loftsdóttir fór út að borða á
Astró með leikurum úr báðum verkunum.
VEITINGA- og skemmti-
staðurinn Astró er ekki að
spara við sig þegar hann
tekur á móti gestum, held-
ur fór og sótti þá í limmósínu þetta
kvöld. I Borgarleikhúsinu var náð í
Eddu Björgu Eyjólfsdóttur og
Baldur Trausta Hreinsson sem voru
að ljúka við aðra sýningu á söng-
leiknum Grease þar sem þau leika
Jan og Kenickie. Iðnó er æfinga- og
sýningarstaður nýs leikrits, „Þjónn
í súpunni", eftir leikarana sjálfa en
áhorfendur eru stór hluti af verk-
inu. Margrét Vilhjálmsdóttir bíður
þar glæsileg í indverskum sarí,
vernduð af félögum sínum Kjartani
Guðjónssyni og Stefáni Karli Stef-
ánssyni.
Nammi namm
Hver slær hendinni á móti ljúf-
fengu Pommery-kampavíni í for-
drykk? Ekki við! Magnús Örn Guð-
marsson eldar ofan í mannskapinn
og segir eldamennskuna undir
sterkum áhrifum frá Kalifomíu-eld-
húsinu. Þegar maturinn er borinn á
borð fáum við vatn í munninn. For-
rétturinn er Quesedillas; einskonar
mexíkönsk hveitikökuumslög fyllt
með gráðaosti og villisveppum sem
bráðna þegar þeim er rennt
niður með Médoc ‘95-rauðvíni og
maður finnur mátulega mikið fyrir
tabasco-sósunni. Heimalagað tagli-
atelle með humar, kóríander og
hvítlauk i rjómasósu er án efa besti
pastaréttur sem ég hef smakkað.
Þegar maður er orðinn svona sadd-
ur er ljúft að fá eitthvað létt til að
hjálpa til við meltinguna. Canneloni
eru kakópönnukökur með ís, ávöxt-
um, hvítri og brúnni súkkulaðimús
og berja- og vanillusósu. Koníakið
með kaffínu er Rémy Martini
V.S.O.P. (ég sleiki út um!), og nú
held ég að það sé ekki hægt að setja
meira ofan í sig!
Leiklistin
Og um hvað var talað við matar-
borðið? Auðvitað sýningarnar, lífíð
og leiklist.
Kjartan hefur þónokki'a reynslu af
spunaverkefnum eins og „Þjónninn“
er. Hann segir að leikararnir sitji
saman, ryðji úr sér hugmyndum
sem er síðan komið á blað. „Það er
erfitt að æfa án áhorfenda, en við
fengum nokkra lánaða í gærkveldi,
og eftir það vitum við að sýningin er
skemmtileg. Mjög skemmtileg."
Edda Björg er að takast á við sitt
fyrsta verkefni
eftir nám í
Leiklistarskóla
íslands. „Mér
finnst mjög
skemmtilegt
að taka þátt í
„Grease"; að
syngja og
dansa, og
sérstaklega
vegna þess
að áhorf-
endur
Morgunblaðið/Halldór
UNGFRÚ Margrét fær fylgd lífvarða eftir æfíngu á „Þjóninum í súpunni“.
skemmta sér svo vel. Jan er hins
vegar ekki sérlega krefjandi hlut-
verk, en ég er nú líka bara rétt að
byrja.“
Stefán Karl á eitt ár eftir í Leik-
listarskólanum, og honum fínnst
„Þjónninn" mikil áskorun. „í svona
spunaverkum er ekki hægt að stóla
á neitt fyrr en áhorfendurnir era
komnir í salinn. Það er viss hnútur í
maganum og það verður gaman að
sjá hvernig leysist úr honum. Það er
virkilega skemmtilegt að fá að vinna
með þessum reyndu leikuram
einsog Bessa og Eddu, og líka í
þessu húsi.“
Baldur Trausti er ekki alveg
ókunnugur söngleikjaforminu, því
hefur leikið í Evitu og Gauragangi.
„Grease er eiginlega þriðji söngleik-
urinn minn á einu ári og mig er far-
ið að langa að reyna eitthvað annað.
Maður má ekki festast í þeim, en
það er hætta á því. Eg velti því fyrir
mér hvort ég ætti að taka þessu
hlutverki eða ekki. Maður þarf jú að
lifa og þetta er mjög skemmtilegt.
Dramatíkin kemur með haustinu."
Margrét hefur undanfarin ár ver-
ið ein vinsælasta leikkonan af yngri
kynslóðinni. „Það er mikil upplifun
að mæta áhorfendum. Við leikum
mest á þá en ekki á hvort annað.
Þótt við höfum ákveðna forskrift þá
era það áhorfendurnir sem gefa
boltann, og það virkar alltaf. Fólk
er búið að setja sig í þannig stelling-
ar áður en það kemur.“
Endalok
Það voru saddir og sælir leikarar
sem hurfu frá Astró seint á laugar-
dagsnóttu, eftir herramannsmat,
ljúffeng vín, dans og almennan gleð-
skap. Hvort þau verða strax hress
og til í næstu sýningu eða æfíngu er
hins vegar óvitað. En hvað er betra
en að borða góðan mat, drekka glas
af víni og spjalla við gott fólk? Góð
leiksýning?
Um það verður hver að dæma
fyrir sig.
Tílboðsréttir:
Tilboð öll kvöld
og um helgar.
Bamamatseðill
fyrir smáfólkið!
Grillaöur SKÖTUSELUR meö pemodsósu. AÐONSKR. 1590.* . Grilluð KJUKUNGABRINGA meö gljáöu grænmeti og paprikusósu. aðönskr.1590.-
Grillaður LAMBAVÖÐVI meö bakaðri kartöflu og Bernaisesósu. AÐSNSKR. 1590.' Ristaðar GELLUR meö Julian-grænmeti og hvítiaufcsrjóma AÐÐNSKR. 1.490.-
PASTA aö haetti kokksins, borið fram meö hvítlauksbrauði aððnskr.1.490- GRÍSAMEDALÍUR meö rauölauksmarmelaöi og madeirasósu AÐÐNSKR. 1590.-
HLAÐBORÐ
SÆLKERANS
Frjálst val:
Súpa, salatbar
og heitur matur,
margartegundir.
KR.790.-
22
-1690
öllum /n’Kiiurn jjómnœtu réttunv
brauóbut', salatbur <><j ítiliur.
cí^e/HÍi( ifkluu'
aÁtjótSttl
bifiótt/n
wSVésí.ii