Morgunblaðið - 10.07.1998, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ
56 FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998
*
HASKO
Hagatorgi, simi 552 2140
TILBOÐ KR. 400 A ALLAR MYNDIR KL. 5 OG 7.
blues
brothers
2000
BLUSBRÆÐUR ERU
KOMNIR AFTUR..
FRUMSÝND
FÖSTUD. 17. JÚLÍ.
Sjáið brons- og úrslitaleikinn, á stóru tjaldi, í beinni. jL'ifrT LLl.
Takið þátt i HM getraun. Glæsileg verðlaun: HM bolti, skór o.fl.
20 ARA
AFMÆLI
ENDURHLJOÐ-
BLONDUÐf
DIGITAL
E O
kl. 4.40, 6.50,
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. b. i. 12.
Frábærlega
vel leikin
spennu-
mynd í
Film Noir
stíl.
má
NYTT 0G BETRA
SACÁ:
BiónöL
Alfjb.iii.Ka S, simi 5S7 S900 03 5S7 S905
ENDALOKIN ERU NÆR
EN ÞIG GRUNAR
Synd kl. 2.45, 5.30, 9 og 12 a miðn.
Synd kl. 2, 5, 7, 8 og 11. shdigítal
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.05
BBHDtQTTAL
Sýnd kl. 6.45
Sýnd kl. 5,9 og 11
Sýnd kl. 6.45. B.i. 14
DENNIS QUAID
DANNY GLOVER
SWITCHBACK
Sýnd kl.11.B.i. 14
■HDIGrrAL Sýnd kl. 3. Sýnd kl. 3 og 5. Isl. tal. Sýnd kl. 3 og 5. Isl. tal
www.samfilm.is
KYIKMYNDIR/Sambíóin taka í dag til sýninga myndina Armageddon með Bruce Willis, Billy Bob Thornton,
Ben Afleck og Liv Tyler í aðalhlutverkum. Þetta er ein af stórmyndum ársins.
Heimsendir í nánd
Frumsýning
LOFTSTEINN á stærð við
Texas er á ferð um geiminn
og stefnir á jörðina með
38.000 kílómetra hraða á
klukkustund. Hve alvarlegt verður
ástandið ef hann lendir á jörðinni, er
spurning sem beint er til forstjóra
geimferðastofnunarinnar NASA. „í
raun og veru er þetta eins og versti
heimsendaspádómur úr Biblíunni,“
svarar Dan Truman (Billy Bob
Thornton).
Eina ráðið sem Truman sér er að
senda hóp geimfara út í gufuhvolfið
til þess að eyðileggja loftsteininn.
Harry S. Stamper (Bruce Willis),
fremsti sérfræðingur heimsins í ol-
íuborunum, er settur um borð í
geimskutlu ásamt hópi af harðjöxl-
um úr olíu- og námubransanum.
Þeir eiga að lenda á loftsteininum,
bora ofan í yfirborð hans og koma
kjarnorkusprengju fyrir í kjarnan-
um.
Meðal þeirra sem fara með Harry
er A.J. (Ben Afleck) sem er kærasti
dóttur Harrys, sem Liv Tyler leikur.
Armageddon er ein af stórmynd-
um sumarsins. Hún var frumsýnd í
Bandaríkjunum um síðustu helgi og
þrátt fyrir að þá væri þjóðhátíðar-
helgin þegar fáir fara i bíð tók hún
inn um 34 milljónir dala og virðist
ætla að fá gífurlega aðsókn.
Hún er frumsýnd á Islandi í dag
og er Island eitt fyrsta landið utan
Bandaríkjanna þar sem myndin er
tekin til sýninga. Auk þess að vera
sýnd í sjö sölum i Sambíóunum er
myndin sýnd í Borgarbíói á Akur-
eyri.
Það var Jonathan Hensleigh,
handritshöfundur Die Hard mynd-
anna sem er upphafsmaður að gerð
Armageddon ásamt leikstjóranum
Michael Bay. Bay hefur áður gert
myndirnar Bad Boys og The Rock.
Hensleigh og Bay fóru með hug-
mynd að myndinni til Jerrys Bruck-
heimers, framleiðanda mynda á
borð við Crimson Tide og Top Gun.
Jerry hefur aldrei verið hrifinn af
geimferðum. „Ég hef aldrei hugsað
út í það að fara út í geiminn, það ser
svo margt sem ég á eftir að upp-
götva hér á jörðinni," segir Bruck-
heimer. „En ég verð að segja að
þessi saga heillaði mig.“
Bruekheimer fékk Joe Roth, for-
stjóra Disney, til þess að fjármagna
með sér dæmið og útkoman er
dýrasta mynd sem Disney hefur
tekið þátt í að gera en Armageddon
kostaði 140 milljónir dala í fram-
leiðslu.
Michael Bay, sem er 34 ára, er
BRUCE Wiilis, Will Patton og Ben Afleck halda út í geim til að
sprengja upp risastóran Ioftstein.
A.J. (Ben Afleck) og Grace (Liv
Tyler) kveðjast áður en hann
fer út í geiminn.
einn heitasti ungi leikstjórinn í
Hollywood eftir tvær stórmyndirn-
ar; Bad Boys og The Rock. Aður en
hann gerði þær vann hann við að
gera auglýsingar fyrir fyrirtæki eins
og Coca Cola og Nike og tónlistar-
myndbönd fyrir Propaganda Films.
Bay er stoltur af bakgrunni sínum
úr auglýsingagerðinni og segir í ný-
legu viðtali við USA Today að sá
bakgrunnur og þekkingin úr auglýs-
ingaheiminum sé lykillinn að sínum
stíl og auglýsingagerð hafi verið sér
meiri áhrifavaldur en hefðbundin
kvikmyndagerð. Bay telur óþolin-
mæði auglýsingamannsins sem vill
hraðar klippingar og mörg sjónar-
horn fram yfir langar senur með
mikilli yfirlegu listræns kvikmynda-
gerðarmanns.
Kvikmyndaferill Bay hófst þegar
hann var 13 ára og fékk lánaða 8
millímetra kvikmyndatökuvél móður
sinnar. Hann kveikti síðan í leik-
fangalestinni sinni og kvikmyndaði
brunann. Þetta upphaf er að ýmsu
leyti einkennandi fyrir feril hans,
því að hraði, spenna og glæfraatriði
eru hans aðal.
Bruce Willis leikur aðalhlutverkið
í myndinni, stórstjarna úr Die Hard-
myndunum, Fifth Element, 12 mon-
keys og ótal öðrum vinsælum mynd-
um. Billy Bob Thornton leikur for-
stjóra Nasa en hans minnast menn
úr hinni frábæru mynd Sling Blade
þar sem hann lék, leikstýrði og fékk
óskarsverðlaun fyrir handrit.
Liv Tyler úr Stealing Beauty leik-
ur dóttur Harrys og kærastann
hennar, A.J. Frost sem fer út í
geiminn með Harry, leikur Ben
Afleck, sem fékk í vor óskarsverð-
laun fyrir handrit myndarinnar
Good Will Hunting.
Meðal annarra leikara má nefna
Will Patton, Steve Buscemi Keith
David og Lawrence Tierney.