Morgunblaðið - 09.10.1998, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1998 39
HUS Geðhjálpar að Túngötu 7.
Það sem
ekki sést
K-DAGUR Kiwanis-
hreyfíngarinnar á Is-
landi er á morgun, 10.
október. Á nýafstöðnu
umdæmisþingi Kiwan-
isfólks var samhljóða
ákveðið að verja söfn-
unarfé K-dagsins til
Félagasamtakanna
Geðhjálpar.
K-dagur
Fyrsti K-dagurinn
var haldinn 1974 undir
kjörorðinu „Gleymum
ekki geðsjúkum“. Þá
gengu Kiwanismenn og
aðstoðarfólk þeirra á
fund landsmanna og
seldu K-lykilinn í íyrsta sinn, sem í
táknrænni merkingu er lykill að
betra lífi fyrir þá sem eru með geð-
sjúkdóma. K-dagurinn hefur síðan
verið haldinn þriðja hvert ár og er
nú komið að þeim níunda.
Allir þurfa þak yfír höfuðið
Félagasamtökin Geðhjálp hafa
allt frá stofnun 1979 verið á hrak-
K-dagur Kiwanishreyf-
ingarinnar er á morg-
un, laugardag. Ragnar
Valdimarsson hvetur
landsmenn til að gera
K-lykilinn að lykli að
framtíð geðhjálpar.
hólum og orðið að leigja húsnæði
undir starfsemi sína. Það var því
mikil gleðistund hjá forsvarsmönn-
um Geðhjálpar sl. mánudag þegar
þrír af ráðherrum þjóðarinnar af-
hendu samtökunum húsið Túngötu
7 í Reykjavík til eignar. Þetta er
gamalt og virðulegt hús í miðbæ
Reykjavíkur sem fær nú nýtt og
þarft hlutverk. Vissulega þurfa allir
þak yfír höfuðið en meira þarf til
svo Túngata 7 geti þjónað málefn-
um Geðhjálpar. Miklar endurbætur
og breytingar þarf að gera á öllum
innviðum hússins svo að það geti
hýst starfsemi samtakanna.
Leggjum
geðsjúkum lið
Á Túngötu 7 ætlar
Geðhjálp að koma á fót
öflugri starfsemi í þágu
geðsjúki’a. Þar verður
rekin vinnustofa og
framhaldið stuðnings-
þjónustu við langveika
sem starfrækt hefur
verið af samtökunum
frá 1994. Öll aðstaða til
félags- og íræðslu-
staifs batnar til muna
og gefur möguleika á
betri upplýsingastarf-
semi og fjölbreyttari
þjónustu. Til að fram-
kvæmdir gangi hratt fyrir sig þurfa
landsmenn að leggja átakinu lið,
taka vel á móti sölufólki Kiwanis og
kaupa K-lykilinn.
Það sem ekki sést
Á undanförnum misserum hafa
geðverndarmál verið talsvert í um-
ræðunni. Margar fróðlegar greinar
hafa verið skrifaðar í blöð og einnig
hafa sjónvarpsstöðvar birt þætti um
málefni geðsjúkra. Sl. þriðjudags-
kvöld sýndi Ríkissjónvarpið mynd-
ina „Það sem ekki sést“. Myndin
var að mínu mati mjög vel unnin og
sagði sögu ungrar konu sem átt hefí
ur við geðræn vandamál að stríða. í
myndinni sagði frá því sem almennt
ekki sést og lítið er talað um, en því
miður mjög margir vita um. Rann-
sóknir sýna nefnilega að fimmti
hver einstaklingur þarf einhvem
tíma á ævinni að leita sér hjálpar
vegna veikinda af geðrænum toga.
Vonandi hefur þessi mynd opnað
augu og aukið skilning einhverra á
geðverndarmálum.
Margar hendur vinna létt verk
K-daginn ber að þessu sinni upp
á Alþjóðageðheilbrigðisdaginn. Fé-
lagar í Kiwanishreyfingunni reiða
sig á góðan vilja þjóðarinnar til þess
að taka höndum saman og leggjast
á eitt við að bæta samfélagsaðstæð-
ur þeirra íslendinga sem geðsjúk-
dómar herja á.
Gleymum ekki geðsjúkum. K-lyk-
illinn, lykill að framtíð geðhjálpar.
Höfundur er fjöhniöhifuUtrin
Kiwnnis.
Ragnar
Valdimarsson
ÞEGAR ég ræði við
fólk um málefnalega
umræðu með sérstöku
tilliti til fiskveiðistjórn-
unar, eins og ég hef
borið við undanfarið,
brýni ég fyrir því, að
skoðanir fólks eigum
við að virða. Jöfnum
höndum legg ég
áherslu á að menn
gæti þess, þegar ein-
hver ætlar að boða
þeim skoðanir, hver
það er, sem talar, hver
eru hans tengsl, ekki
síst við þá hagsmuni,
sem skoðanirnar
varða. Þegar Ki-istján Ragnarsson
og Brynjólfur Bjarnason grípa til
pennanna á síðum Mbl. í tilefni af
nýlegri grein minni um áróðurs-
herferð LÍÚ, þá eru þeir einungis
að vinna þá vinnu, sem þeir hafa,
vonandi með sæmilegum kjöram,
verið ráðnir til. Annar gætir hags-
muna eigenda Granda hf., en hinn
hagsmuna einhvers hluta útgerð-
arinnar. Og seinast af öllu mundi
ég setja út á að menn reyni að
sinna vinnunni sinni.
Sjálfur á ég engra hagsmuna að
gæta í sambandi við núverandi
fiskveiðistjórnunarkerfi. Ég hef
hins vegar með góðum rökum sýnt
fram á það í grein hér í Mbl. í maí-
mánuði sl., hvernig börn, barna-
böm mín og Islendinga endranær,
annarra en erfingja sæaðalsins,
munu líða fyrir það í afkomu sinni,
ef þetta fiskveiðistjórnunarkerfi
fær að ganga sína óheillabraut á
enda. En að svargreinunum tveim-
ur.
Grein Bi-ynjólfs þótti mér
æðilotleg. Hann kallar skrif mín
„regindellu“ án röksemdafærslu. í
staðinn ber hann fram staðhæf-
ingu um að ég skrökvi upp á Krist-
ján Ragnarsson. Þeirri staðhæf-
ingu vísa ég til manna, sem þekkja
betur til ferils Ki-istjáns í stjóm
Fiskveiðasjóðs en ég geri. I mig
hringdi maður, sem sagði, að þetta
væri „átakanlega satt“, svo að eitt-
hvað era skoðanir skiptar.
Að öðra leyti fjallar Brynjólfur
ekkert um skrif mín. Þar er ekki
reynt til við að hrekja eitt einasta
orð, svo ég hlýt að una vel við.
Hins vegar vitnar Brynjólfur i
gæðastimpil fyrir fiskveiðistjórn-
unarkerfið, sem hann telur sig
hafa frá forstjóra Þjóðhagsstofn-
unar. Leitt þykir mér,
að sá mæti maður
skuli blásaklaus dreg-
inn fram til vitnis-
burðar í báðum grein-
unum, Kristjáns og
Brynjólfs. Ég veit
hins vegar, að í um-
mæli hans hafa þeir
félagar lesið meira en
efni standa til.
Grein Kristjáns
Ragnarssonar olli
mér hins vegar furðu.
Hann ber mér á brýn
að ráðast að honum
persónulega, sem er
alrangt. Ég rakti
nokkur atriði, sem ég tel vera
sönn, eftir því sem ég hef getað
næst komist, um feril hans sem op-
inbers sýslunarmanns í stjórn
Fiskveiðasjóðs. Sé það persónuleg
ái’ás í huga Kristjáns Ragnarsson-
ar, skiljum við það hugtak sinn
með hvoram hætti.
I öðru lagi kom mér á óvart
Ég vil ekki að eftir-
komendur mínir lifi
í þjóðfélagi, sem veitir
einstökum mönnum og
afkomendum þeirra
efnahagslega aðalstign
með lögum, segir
Jón Sigurðsson, í svari.
til Kristjáns Ragnars-
sonar og Brynjólfs
Bjarnasonar.
hversu ærlega Kristján dró í land
frá staðhæfingunum í hinum
tveimur fyrstu, dæmalausu áróð-
ursauglýsingum LIÚ. Efnislega
samsinnir hann æðimörgum þeim
rökum, sem ég færði fram í gagn-
rýni minni á téðum auglýsingum.
Úm staðhæfingu hinnar fyrri aug-
lýsingar um hvaðan kaupmáttar-
aukning þessara missera sé runn-
in, leiðir Kristján ekki fram nein
rök, heldur vísar til orða forsætis-
ráðheira í stefnuræðu hans. Póli-
tískur málflutningur manns, sem
eðlilega er að gera sig góðan fyrir
þjóð sinni, er ekki góð rök fyrir
neinu. Mér þætti meira um vert að
fá mat Þjóðhagsstofnunar á ætt-
erni batans og mundi þá kjósa, að
happdrættisvinningum vegna
loðnuveiða og -vinnslu yrði haldið
sérgreindum.
Um aðra auglýsinguna gengur
skv. grein Kristjáns varla hnífur á
milli okkar, svo að undrum sætir,
að það skuli vera sami maður, sem
samið hefur áróður auglýsinganna
og grein Kristjáns.
Kristján Ragnarsson hvorki
þarf né getur kennt mér neitt um
mikilvægi sjávarútvegs á íslandi.
Aðstæður hafa gefið mér kost á að
sjá málefni sjávarútvegsins frá
öðram og víðari sjónarhornum en
Ki-istján hefur getað leyft sér í
hagsmunagæslu hans. Ég gef því
lítið fyrir klisjur hans um allan
þann árangur, sem núverandi fisk-
veiðistjórnarkerfí á að hafa náð.
Þar sér Kristján ekki eða kýs ekki
að sjá þá skelfilegu framtíð, sem
bæði bíður sjávarútvegsins og þar
með þjóðarinnar, vegna þess
hversu mikilvægur hann er, ef
þessi óheillabraut verður farin á
enda. Ég finn mig knúinn til að
semja langa yfirlitsgrein um málið,
svo að Kristján skilji, ef hann þá
kærir sig um það eða getur leyft
sér það starfs síns vegna.
Síðan ég skrifaði síðast hefur
birst þriðja áróðursauglýsing LÍ Ú.
Þar mun hafa verið mynd af fjór-
um bráðfallegum, ungum konum,
sem kváðust eiga kvótann. Þær
hljóta þess vegna að vera af sæað-
alsættum og full ástæða til að óska
þeim til hamingju með þá aðals-
tign. Þótt ég hafi margsinnis tekið
fram, að ég áfellist ekki fólk, sem
nýtir sér þá aðstöðu, sem því er
gefin, þykir mér nóg komið af svo
góðu. Ég vil ekki, að eftirkomend-
ur mínir lifi í þjóðfélagi, sem veitir
einstökum mönnum og afkomend-
um þeiiTa efnahagslega aðalstign
með lögum. Það gerir núgildandi
fiskveiðistjórnarkerfi.
Höfundur er fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri og stuðningsmaður
Samtakanna um þjóðurcign.
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaíi
Skólavöróuatíg 21, Heykjavík, síini 551 4050
Að gæta réttra
hagsmuna
Jón Sigurðsson
Sölusýning
á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum
á Grand Hótel, Reykjavík.
Föstudaginn 9. okt. kl. 13—19
Laugardaginn 10. okt. kl. 12—19
Sunnudaginn 11. okt. kl. 13—19
HÓTEL
REYKJAVIK
Úrval af renningum frá Afganistan og Pakistan á góóu verði.
10% staðgreiðslu-
afsláttur
E_ RADGREIÐSLUR
<^o\Tatepj5;^