Morgunblaðið - 09.10.1998, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMIB691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Varðskip
dregur
- „drauga-
skip“ í land
VARÐSKIPIÐ Ægir tók í gær í
tog skipsflak sem var á reki
norðaustur af Glettingi og hélt
með það til Seyðisfjarðar. Sfld-
veiðiskip á svæðinu höfðu látið
vita af flakinu en ekki er vitað
hvaða skip er um að ræða.
Varðskipið var nærstatt og
tók flakið í tog í gær. Var það
væntanlegt til Seyðisfjarðar eft-
ir miðnætti síðastliðna nótt.
Helgi Hallvarðsson, yfirmaður
esluframkvæmda, upplýsti
orgunblaðið í gær um að úti-
lokað væri að greina hvaða skip
væri um að ræða. Aðeins stefnið
er upp úr og hluti af brúnni og
mikill gróður er kominn á skipið.
Engar merkingar sjást og erfitt
er að meta stærð skipsins. Helgi
segir Landhelgisgæsluna hafa
gert Siglingastofnun og rann-
sóknamefnd sjóslysa viðvart og
verður flakið rannsakað strax í
dag. Komi í ljós hvert skipið er
verður metið hvort haft verður
-samband við eigendur og hvort
rannsaka þarf með hvaða hætti
það kann að hafa farist. Helgi
telur hugsanlegt að skipið geti
hafa rekið hingað langt að. Svo
virðist sem loft í lestum eða íbúð-
um haldi flakinu uppi.
—gæi
',-llMo:
Kári Stefánsson um gagnagrunn á heilbrigðissviði
Aðgangur í gegnum
ráðgj afarþj ónustu
FÁI íslensk erfðagreining einka-
leyfi til að reka miðlægan gagna-
grunn gæti aðgangur að grunnin-
um fyrir aðra en fyrirtækið sjálft
m-ðið í gegnum ráðgjafarþjónustu
IE. „I gagnagrunninum verða ýmis
frumgögn, það þarf ákveðinn hug-
búnað til að lesa úr þeim og einnig
þekkingu, sem Islensk erfðagrein-
ing býr yfir,“ segir Kári Stefáns-
son. „Okkar hugmynd er því sú, að
viðskiptavinir, læknar og aðrir vís-
indamenn sem vinna að rannsókn-
um, geti fengið aðgang með því að
leggja fram spurningar, almennar
eða sértækar. Ráðgjafarþjónustan
myndi leita svara við þeim og af-
henda viðskiptavinum. Þannig er
persónuverndin enn betur tryggð
en ella.“
Kári segir að sérleyfishafi myndi
að sjálfsögðu hvetja íslensk heil-
brigðisyfírvöld og vísindamenn til
að nota gagnagrunninn.
Kári segir að íslensk erfða-
greining sé dótturfyrirtæki
deCode Genetics í Bandaríkjunum
af þeirri ástæðu að íslensk hlutafé-
lagalög hafi komið í veg fyrir að
hægt væri að stofna félagið hér.
Lögin setji þau skilyrði, að óháðir
matsmenn skuli meta verðmæti,
önnur en fé, sem lögð eru fram við
stofnun félags og slíkum skilyrðum
hafi hann ekki getað sætt. Hann
hafi fengið erlenda fjárfesta til að
leggja fram áhættufé, en sjálfur
lagt fram hugvitið, ásamt öðrum
vísindamönnum, og samningsstað-
an gagnvart fjárfestunum hefði að
sjálfsögðu orðið önnur og verri, ef
matsmenn hefðu verið búnir að
ákveða, hversu verðmætt hugvitið
væri.
íslensk erfðagreining hefur sótt
um einkaleyfi hjá einkaleyfisskrif-
stofum í Evrópu og Bandaríkjunum
vegna uppgötvana á sviði erfða-
fræði.
■ Rúðgjafarþjónusta/26
Verkalýðs-
félög undir-
búa mál
RAFIÐNAÐARSAMBAND ís-
lands og Félag járniðnaðarmanna
hafa að undanfömu safnað umboð-
um starfsmanna til málsóknar gegn
nissneska verktakafyrirtækinu
Technopromexport standi það ekki
að fullu við launagreiðslur til þeirra.
Yfirmenn Technopromexport
hafa heitið Páli Péturssyni félags-
málaráðherra að þeir muni sýna
honum launaseðla allra starfsmanna
í dag til að hægt verði að sannreyna
að þeim hafi verið greitt fyrir alla
unna yfirvinnutíma.
Andrei R. Yankilevsky, einn
framkvæmdastjóra Technopromex-
port, segist sannfærður um að þótt
fyrirtækið veiti allar upplýsingar
um launagreiðslurnar í dag muni
verkalýðsfélögin finna nýjar átyllm-
til að vinna gegn því.
■ Umboðum safnað/4
-
ÆGIR á leið í land með skipsflakið óþekkta. Á innfelldu myndinni sést að flakið er í kafi
nema stefnið og hluti yfirbyggingar. Flakið verður rannsakað í dag.
Metviðskipti
á Kvótaþingi
SAMTALS voru seld.262,5 tonn af
þorski á Kvótaþingi íslands í gær,
en það eru mestu viðskipti með
þorsk á einum degi frá því þingið
tók til starfa. Viðskiptaverð dagsins
var 88 kr. fyrir kílóið. Þá voru einnig
^.rnetviðskipti með ufsa þegar seld
voru samtals 124.863 tonn. Fyrir
daginn í gær höfðu aðeins verið seld
7 tonn af ufsa á Kvótaþingi.
Yfír 26 þúsund sektir fyrir umferðarlagabrot frá áramótum
Sektir innheimtar
með fulltingi dómara
RÚMLEGA 26 þúsund sektir fyrir umferðarlagabrot hafa verið gefnar út af
lögreglustjórum landsins á þessu ári og hafa um 74% þeirra þegar verið
greidd. Nú eru að hefjast harðari aðgerðir til innheimtu ógreiddra sekta.
Islendingar fari
ekki til Júgóslavíu
VEGNA aukins hættuástands í
Sambandslýðveldinu Júgóslavíu,
þ.e. Serbíu og Svartfjallalandi, vill
utanríkisráðuneytið ráða fólki frá
því að ferðast til landsins. Þá
verður reynt að koma boðum til
íslenskra ríkisborgara í landinu
um að þeir hugi að brottfór.
Hjálmar W. Hannesson, skrif-
stofustjóri alþjóðaskrifstofu ráðu-
neytisins, tjáði Morgunblaðinu að
ráðuneytið vissi í raun ekki
hversu margir íslendingar gætu
verið í landinu en þeir væru trú-
lega ekki margir. Sagði hann að
reynt yrði að hafa samband við
fólk, ættingjar beðnir að hafa
samband út og fólk búið undir að
þurfa að yfirgefið landið með
mjög stuttum fyrii-vara. Hjálmai-
sagði að menn vonuðust til þess
að ekki kæmi til frekari vopnaðra
átaka og að takast mætti að finna
pólitíska lausn á vandanum þar.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn hjá ríkislögreglustjóra,
tjáði Morgunblaðinu að með laga-
breytingu á liðnu vori geti lög-
reglustjórar nú falið dómurum að
fjalla um sektir sem ekki hafa verið
greiddar innan tilskilins frests.
Gangur mála er sá að við umferð-
arlagabrot gefur lögreglustjóri út
sektarboð.
Viðurkenni viðkomandi brotið og
fallist á greiðslu sektar getur hann
fengið 25% afslátt greiði hann inn-
an mánaðar. Sé það ekki gert fær
hann ítrekun og 30 daga frest en
afsláttarmöguleikinn fellur niður.
Nú á að hrinda í framkvæmd
næsta skrefi í innheimtu sekta
sem er það að lögreglustjóri feli
héraðsdómara málið. Dómarinn
fer yfir málið og getur án frekari
boðunar ákvarðað sekt og vara-
refsingu og jafnast þessi máls-
meðferð á við dóm. Skilyrðið er að
viðkomandi hafi sannanlega verið
sent sektarboðið, hann kvittað fyr-
ir móttöku þess en síðan ekki
greitt. Hörður segir að sé sekt
ekki greidd á þessu stigi fari hún í
innheimtu hjá lögfræðingum með
aukakostnaði.
10% draga úr hófí að greiða
Hörður Jóhannesson segir að til-
tölulega fáir, kannski um 10%,
þeirra sem brjóta af sér í umferð-
inni og fá sektir dragi úr hófi að
greiða. Nú verði hins vegar gengið
harðar eftir því að ná inn sektum
og komi því nú til meðferðarinnar
hjá héraðsdómara. Hún jafngildi
dómi og skráist á sakaskrá, sem
ekki gerist greiði menn sekt sína á
fyrri stigum.
Kristján í
Tannháuser
í Madrid
KRISTJÁN Jóhannsson óperu-
söngvari vinnm- um þessar mundir
að gerð geislaplötu með óperuaríum
undir stjórn ítalans Giovannis
Andreolis við undirleik tveggja
þýskra hljómsveita.
Verkið er langt komið og upptök-
um lýkur í nóvember. Japis gefur
diskinn út á Islandi en Philips á al-
þjóðamarkaði, að sögn Kristjáns. Á
plötunni verða ýmsar óperuaríur,
þar á meðal fimm sem hann hefur
ekki áður sungið inn á plötu.
Kristján, sem staddur er hér á
landi og heldur tónleika á Akureyri á
morgun, segir einnig frá því í samtali
við Morgunblaðið í dag að hann
syngur í fyrsta skipti titil- og aðal-
hlutverkið í óperunni Tannháuser
eftir Wagner í janúar, í Madrid á
Spáni. „Þetta verður fyrsti „stóri“
Wagnerinn sem ég tek.“
Hann upplýsir einnig að til stend-
ur að endurgera plötuna Með Krist-
jáni, sem kom út á vínil 1989, þar
sem „íslenskar perlur voru settar í
jólafötin11, eins og hann orðar það.
■ Öðruvísi spenna/30