Morgunblaðið - 09.10.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1998 23
Japanir
biðjast af-
sökunar
KEIZO Obuchi, forsætisráð-
herra Japans, bað S-Kóreubúa
afsökunar í gær á þrjátíu og
fimm ára grimmúðlegri ný-
lendustjórn Japana. Sagði í yf-
irlýsingu hans og Kim Dae-
Jungs, S-Kóreuforseta sem
var í heimsókn í Tókýó, að
Japanir „viðurkenndu auð-
mjúklegast þá sögulegu stað-
reynd að þeir hefðu valdið íbú-
um S-Kóreu skaða og sárs-
auka á meðan á nýlendustjórn
þeirra stóð.“ Er þetta fyi-sta
skipti sem Japanir biðja annað
ríki skriflega afsökunar á
framferði sínu fyrir og í seinni
heimsstyrjöldinni.
Netanyahu
fær viðvörun
HARÐLÍNUMENN meðal
stuðningsmanna Benjamins
Netanyahus, forsætisráð-
herra Israels, hótuðu í gær að
hætta stuðningi við stjórn
hans og valda þannig falli
hans úr embætti ef Netanya-
hu gefur Palestínumönnum
eftir landsvæði á fundi sem
haldinn verður í Bandaríkjun-
um í næstu viku til að reyna
að finna friðsamlega lausn á
deilunum í Mið-Austurlönd-
um.
Þjóðaratkvæði
um framtíð
Jeltsíns?
GENNADÍ Seleznyov, forseti
dúmunnar, neðri deildar rúss-
neska þingsins, sagðist í gær
hlynntur þjóðaratkvæða-
greiðslu um hvort Borís
Jeltsín, forseti Rússlands, ætti
að halda áfram í embætti eða
segja af sér. Sagði hann slíka
atkvæðagreiðslu eðlilega í ljósi
andófsins í fyrradag þegar
hundruð þúsunda Rússa mót-
mæltu slæmum lífsskilyrðum.
Kom Seleznyov á óvart með
því að lýsa þvi einnig yfir að
hann hefði ekkert á móti því
að verða sjálfur frambjóðandi í
næstu forsetakosningum.
Irakar gefa
ekkert eftir
ÍRAKAR lýstu því í gær yfir
að þeir myndu ekki afturkalla
bann sitt á frekara vopnaeftir-
lit á vegum Sameinuðu þjóð-
anna nema þeir hefðu fyrst
fengið fullvissu um að endur-
skoðun færi fram á samskipt-
um Iraks og SÞ. Halda þeir
því fram að vopnaeftirlitið sé
um of undir áhrifum Banda-
ríkjamanna og vilja þeir fá því
breytt.
Mikill skaði
vegna flóða
í Kína
KÍNVERSKA dagblaðið Xin-
min Evening News gi-eindi frá
því í gær að flóðin í september
sem lék hluta Kína afar grátt í
sumar hefðu kostað 3.656
manns lífíð og sagði jafnframt
að fjárhagslegur skaði vegna
flóðanna væri 2100 milljarðar
ísl. kr. Flóðin voru þau mestu í
Kína um árabil.
ERLENT
Cardoso endurkjörinn í Brasilíu
Boðar umbætur
en engar skyndi-
aðgerðir
Brasilíu. Reuters.
FERNANDO Henrique Cardoso,
sem var endm-kjörinn forseti Brasil-
íu á sunnudag, lofaði í fyrradag að
koma á efnahagslegum umbótum til
að afstýra hættu á fjármálakreppu í
landinu. Hann boðaði þó engar
skyndiaðgerðir til að minnka fjár-
lagahalla ríkisins og olli það mörg-
um fjáimálamönnum vonbrigðum.
„Eg fékk aftur stuðning þjóðar-
innar í kjörklefunum, sem veitir
mér nýtt umboð,“ sagði Cardoso
þegar hann lýsti yfir sigri í forseta-
kosningunum á fyrsta blaðamanna-
fundi sínum eftir kosningarnar.
Hann er fyrsti þjóðkjörni forsetinn
í sögu Brasilíu sem nær endurkjöri
með lýðræðislegum hætti.
Cardoso, sem er jafnaðarmaður,
virtist þó ekki í skapi til að fagna og
var þungbúinn á blaðamannafund-
inum. Hann sagði ljóst að Brasilíu-
menn stæðu frammi fyrir miklum
erfiðleikum og kvaðst ætla að knýja
fram efnahagsumbætur til að af-
stýra óðaverðbólgu og ringulreið í
brasilíska hagkerfinu, hinu níunda
stærsta í heiminum.
Forsetanum hefur tekist að halda
verðbólgunni í skefjum á fjögurra
ára valdatíma sínum en mistekist að
knýja fram breytingar á félagslega
öryggiskei’finu og fækka ríkisstarfs-
mönnum til að minnka fjárlagahall-
ann, sem nálgast nú 8% af vergii
landsframleiðslu.
Brasilíska hagkerfið er mjög háð
dollaranum og þótt seðlabankinn
hafi hækkað vexti sína í tæp 50% til
að styrkja gjaldmiðil landsins, real-
inn, hefur það ekki dugað til að
hindra gífurlegan fjármagnsflótbi úr
landinu. 30 milljarðar dala, andvirði
2.100 milljarða króna, hafa streymt
út úr hagkerfinu á einum mánuði.
Óttast er því að realinn fari sömu
leið og rússneska rúblan í ágúst og
gjaldmiðlar margra Asíuríkja síð-
ustu misseri. Gengishrun og óða-
verðbólga í Brasilíu gæti síðan leitt
til fjármálakreppu í öðrum löndum
Rómönsku Ameríku. Það gæti
skaðað efnahag Bandaríkjanna,
sem selja um 20% af útflutnings-
vörum sínum til Rómönsku Amer-
íku, auk þess sem fjárfestingar
bandarískra fyrirtækja í Brasilíu
nema 35 milljörðum dala, 2.500
milljörðum króna.
Reuters
FERNANDO Henrique Cardoso,
forseti Brasilíu, heldur á tilkynn-
ingu um nýjustu kjörtölur
forsetakosninganna á sunnudag.
Langtímamarkmiðin
duga ekki
Fjármálamenn út um allan heim
höfðu því vonast eftir því að Car-
doso myndi fylgja kosningasigidn-
um eftir með því að grípa strax til
sparnaðaraðgerða í því skyni að
minnka fjárlagahallann. Forsetinn
lýsti því hins vegar yfir að hann
hefði engar slíkar skyndiaðgerðir í
hyggju og olli það miklum von-
brigðum á fjármálamörkuðunum.
Gengi verðbréfa í kauphöllinni í
Sao Paulo lækkaði um 2,8% og fjár-
festar í New York sögðu að umbæt-
urnar, sem Cardoso boðaði, væru
langtímamarkmið og dygðu ekki til
að afstýra þeim hættum sem steðj-
uðu að efnahag Brasilíu.
Nokkrir sérfræðingar í stjórn-
málum landsins sögðu þó að forset-
inn kynni að hafa frestað því að til-
kynna sparnaðaraðgerðir til að
komast hjá því að minnka sigurlík-
ur stjórnarsinna í ríkisstjórakosn-
ingum sem fram fara í Brasilíu 25.
þessa mánaðar.
Þegar 90% atkvæðanna í forseta-
kosningunum höfðu verið talin var
Cardoso með 53% fylgi. Vinstri-
maðurinn Luiz Inacio Lula da Silva
fékk 32% atkvæðanna og tapaði þar
með í þriðju forsetakosningunum í
röð.
Reuters
KAFARAR kanna bátinn, sem sökk með 141 farþega um borð. Átti að
hífa hann á land með stórum krana.
20 lífeyrisþegar drukknuðu
Sökk nærri bryggju
Madrid. Reuters.
TUTTUGU franskir lífeyrisþegar
drukknuðu í gær og rúmlega 40
slösuðust þegar skemmtisiglinga-
bátur með 141 farþega sökk á
Banyoles-vatni á Norðaustur-
Spáni.
Sumir farþeganna lokuðust inni í
skipinu er það sökk en þá var það að
leggja upp í siglingu og aðeins í 25
metra fjarlægð frá bryggjunni.
Stukku flestir farþeganna í kalt
vatnið en sumir höfðu ekki þrek til
að synda í land. Þeir, sem létust,
voi-u franskir lífeyrisþegar frá hafn-
arborginni La Rochelle.
Joan Solana, bæjarstjóri í Banyo-
les, sagði í gær, að ekki væri vitað
hvað hefði komið fyrir. Hugsanlega
hefðu verið of mai-gir um borð eða
Náttúrlegt og
Sími 562 6950, fax 552 6666
20% lægra verð
V/tamín og steinefni
úr ríki náttúrunnar
um væri að kenna einhverjum galla
í bátnum, sem var rafdrifinn.
Vitni segja, að báturinn hafi farið
að síga í vatnið strax eftir að lagt
var frá bryggju og síðan sokkið eins
og steinn. Hafi áhöfnin reynt að
snúa við en ekki unnist tími til. Bát-
urinn var tekinn í notkun í sumar en
Banyoles-vatn er vinsæll áfanga-
staður ferðamanna.
Fæst í byggingauöruuerslunum umlandallt.
i mmmn BIÖ(ldlJil3rtSBkÍ
Moratemp High-Lux
blöndunartæki í eldhús hentar
sérlega vel þar sem koma þarf
háum ílátum undir kranann.
Mora sænsk gæðavara.
Heildsöludreifing:
veon , . Smiðjuvegi H.Kópavogi
Sími 5B4 1088.fax 564 1089
Heill gámur
af sparnaði!
Nú gefst viðskiptavinum okkar
kostur á aó gera reyfarakaup í
IBERNA kæliskápum, þvottavélum,
tauþurrkurum og uþþþvottavélum.
Athugið: Takmarkað magn.
Nú er að hrökkva eða stökkva, því
fyrstur kemur, fýrstur fær.
Hibemci
béES*
.«
mi
Kælir 249 I
Frystir 74 I
HxBxD: 163x60x60
Kr. 41.900 stgr.
Gerð ID-28
Gerð ID-24
Kælir 213 I
Frystir 67 I
HxBxD: 143x60x60
Kr. 37.400 stgr.
Kælir 181 I
Frystir 44 I
HxBxD: 142x54x56
Kr. 32.100 stgr.
Þvottavél LBI 2610 T
Tekur 5 kg
18 þvottakerfi
Frjálst kerfisval
Frjálst hitaval
Vinda 1000-400 sn.
Ryðfrí tromla
Ryðfrír belgur
HxBxD: 85x60x52
Kr. 42.000 stgr.
Þvottavél 800-400 sn. kr. 38.200
Tauþurrkari 4,5 kg m/barka kr. 24.700
Tauþurrkari 4,5 kg þarkalaus kr. 42.400
Uþþþvottavél 12 manna kr. 41.200
iberno rffQniX
Hátúni 6a, sími 552 4420.