Morgunblaðið - 09.10.1998, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1998 59 -
-------------------------V
KVIKMYNDIR/Sambíóin sýna sálfræðilega spennutryllinn A Perfect
Murder með þeim Michael Douglas, Gwyneth Paltrow og Viggo Mortensen
í aðalhlutverkum. Að gerð myndarinnar standa þeir sömu og gerðu metað-
_______________sóknarmyndina The Fugitive._______
Að fremja hið
fullkomna morð
STEVEN Taylor (Michael Douglas)
er forríkur iðnjöfur sem hlotnast
hefur allt sem hann þráir í lífínu,
nema ást og tryggð eiginkonu sinn-
ar. Steven á velgengni að fagna í
fjármálaheimi New York borgar og
telur hann Emily Bradford Taylor
(Gwyneth Paltrow) vera dýr-
mætasta feng sinn til þessa, en
þrátt íyrir kuldalegt viðmót elskar
hann hana og þarfnast hennar jafn-
vel þótt hann geti aldrei sagt henni
hve mikið. Emily hefur hins vegar
þörf fyrir að vera eitthvað meira en
aðeins ein af eignum eiginmanns
síns, en hún er sjálf afburðavel gef-
in og starfar sem túlkur og aðstoð-
armaður bandaríska sendiherrans
hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún hef-
ur átt í ástarsambandi með hæfí-
leikaríkan ungan listamann að nafni
David Shaw (Viggo Mortensen),
sem hefur veitt henni þá tilfínninga-
legu fullnægju sem hún þarfnast, en
Steven hefur hvorki getað né viljað
veita henni. Leynilegt samband
þeirra Emily og Davids stendur yfir
mánuðum saman og vonast David
til að hún slíti sambandinu við
Steven og hefji með sér nýtt líf. Pað
er aðeins tímaspursmál hvenær
Steven Taylor kemst að sannleikan-
um sem liggur að baki breyttri
framkomu eiginkonunnar í hans
garð, en þegar að því kemur er
hrundið að stað flókinni atburðarás
þar sem markmiðið er hið full-
komna morð og Emily á að vera
fórnarlambið.
Að gerð The Perfect Murder
standa þeir hinir sömu og stóðu að
gerð metaðsóknarmyndarinnar The
Fugitive, sem samtals hlaut sjö til-
nefningar til Óskarsverðlauna og
færði Tommy Lee Jones verðlaunin
fyrir annað aðalhlutverkið í mynd-
inni, en það eru framleiðendumir
Arnold Kopelson, Anne Kopelson
og Peter MacGregor-Scott, og leik-
stjórinn Andrew Davis. Hann hefur
síðan leikstýrt myndunum Chain
Reaction með Keanu Reeves og
Morgan Freeman í aðalhlutverkum
og Steal Big, Steal Little með Andy
Garcia í aðalhlutverki. Meðal ann-
arra mynda sem Andrew Davis hef-
ur leikstýrt eru Under Siege sem
Steven Seagal, Tommy Lee Jones
og Garey Busey léku aðalhlutverkin
í, The Package með Gene Hackman
og Tommy Lee Jones í aðalhlut-
verkum, Above the Law, sem var
frumraun Steven Seagal sem leik-
ara og Code of Silence með Chuck
Norris í aðalhlutverkinu.
Michael Douglas á orðið að baki
feril sem kvikmyndaframleiðandi
og leikari sem spannar rúmlega
tuttugu ár en kom fram á sjónar-
sviðið þegar hann framleiddi One
Flew Over the Cuckoo’s Nest árið
1975. Hann er sonur leikarans Kirk
Douglas og að loknu háskólaprófí
fluttist hann frá Kaliforníu til New
York þar sem hann lagði stund á
leiklistarnám. Að þvi loknu lék
hann í nokkrum kvikmyndum og
kom á fjalirnar leikritum þess á
milli, auk þess sem hann fór með
hlutverk í nokkrum sjónvarps-
myndum. Pá stofnaði hann eigið
fyrirtæki sem meðal annars hefur
IÐNJOFURINN Steven Taylor
(Michael Douglas) á mikilli vel-
gengni að fagna í ijármála-
heiminum.
framleitt nokkrar af þeim kvik-
myndum sem hann hefur sjálfur
leikið í, en meðal mynda sem hann
hefur leikið í eru Coma, A Chorus
Line, Romancing the Stone, The
jewel of the Nile, Fatal Attraction,
Wall Street, sem hann hlaut
Óskarsverðlaun fyrir sem besti
leikari, The War of the Roses,
Basic Instinct, Falling Down,
Disclosure, The American Pres-
ident og The Game.
Gw'yneth Paltrow vakti fyrst at-
hygli þegar hún lék með Meg Ryan
og Dennis Quaid í myndinni Flesh
and Bone, en síðan hefur hún m.a.
leikið í myndunum Seven, Emma,
Great Expectations og Sliding
Doors. Viggo Mortensen, sem á
danskan föður og bandaríska móð-
ur, hefur m.a. leikið í myndunum
Crimson Tide, G.I. Jane, Daylight
og The Portrait of a Lady.
FORSIÐA Entertainment Week-
ly sýnir leikkonuna brosa sínu
blíðasta.
Nýjasta
stórstjarnan
►í NÝJASTA hefti Entertain-
ment Weekly er mynd af leikkon-
unni Jennifer Lopez, sem tímarit-
ið krýnir sem nýjustu kvenstór-
stjörnuna í heimi hvíta tjaldsins.
Hin 28 ára Jennifer Lopez er
fædd í New York af foreldrum
frá Puerto Rico og vikublaðið
rekur feril hennar frá því hún
var efnileg leikkona á uppleið og
þar til hún hefur náð þeim heið-
urssessi að vera nefnd stór-
stjarna ársins 1998. Annars er
Lopez margt lagið og nýjustu
áform hennar eru að heíja söng-
feril.
Eflaust eru þeir fjölmörgu
Bandaríkjamenn sem rekja ættir
sinar til spænskumælandi landa
nú í essinu sínu að sjá konu úr
þeirra röðum ná æðstu metorð-
um í Hollywood.
t’ v~J U U
TONUSTARHELGI
OG 10. okt.J|
PAPAR spila bæði kvöldin grænir og glaðir humdídumdídei síTS .. /
■ TL
afnarstræti 4
STEVEN Taylor lítur á eiginkonu sina Emily (Gwyneth Paltrow) sem
dýrmætasta feng sinn en á erfitt með að tjá henni ást sína.
EMILY á í ástarsambandi við unga listamanninn David Shaw (Viggo
Mortensen), sem vill að þau hefji nýtt líf saman.
9[œturgalinn
Smiðjuvegi 14, Otfpavogi, sími 587 6080
Föstudags- og laugardagskvöld leika
Hilmar Sverrisson
og Anna Vilhjálms
Opið frá kl. 22-3
Borðapantanir í síma
557 9717
Munið hin frábæru
sunnudagskvöld með
Hjördísi
Geirs
Næturgalinn þar sem dansstuðið er
J
Humarveisla
á Kaffi
Beykjavík
Humarveisla á
Kaffi Reykjavík
í kvöld
fimmtudag, föstudag
og laugardag
(1 kg af grilluðum
humarhölum og freyði-
vínsflaska
máltíð fyrir tvo
kr. 4.800)
Borðapantanir
í síma 562 5530/40
v \ í <\ U k -> N r • k A k
Pantið tímanlega
Dansleikur með hljómsveitinni Hunang
Hin frábæra söngkona Margrét Eir
syngur með föstudags- og laugardagskvöld