Morgunblaðið - 09.10.1998, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1998 53
Kvikmyndin Vajið
sýnd í bíósal MÍR
VALIÐ eða „Vybor“ nefnist kvik-
mynd sem sýnd verður í bíósal
MIR, Vatnsstíg 10, sunnudaginn
11. október kl. 15. Mynd þessi var
gerð í samvinnu Mosfilm og banda-
rísks kvikmyndafélags á árinu 1989
og er nú í íyrsta sinn sýnd hér á
landi. Leikstjóri er Vladimir
Naumov en meðal leikara eru Mik-
haíl Uljanov, Natalja Belok-
hvostikovas og Algis Matulenis.
Kvikmyndin er byggð á skáld-
sögu eftir Júrí Bondarév. Þekktur
listmálari frá Moskvu, Valíliev, og
Masha, eiginkona hans, eru stödd
í Feneyjum á Italíu. Hann hefur
komið þangað áður og málverk
hans vakið athygli ítalskra sýning-
argesta. Málarinn hefur hrifist af
fegurð Feneyja og hlakkar til að
sýna konu sinni hallir borgarinn-
ar, síki og torg. En allt fer á ann-
an veg en til stóð er hann fær þær
fréttir að vinur hans úr skóla og
her, Ilja Ramzin, sem hann taldi
sig hafa séð deyja í stríðinu, sé á
lífi og vilji hitta listmálarann, seg-
ir í fréttatilkynningu. Það var
erfitt fyrir Vasiliev, nær ómögu-
legt, að þekkja aftur bernskuvin-
inn Ilja í þessum þyrrkingslega og
kaldlynda útlendingi. Hvað kom
fyrir Ilja á vígstöðvunum? Af
hverju þagði hann þunnu hljóði öll
þessi ár og skrifaði jafnvel aldrei
móður sinni? Svör fást ekki við
þessum spurningum nema horft sé
til fortíðar, þannig að í sögunni er
brugðið upp svipmyndum af þeim
félögum í Moskvu fyrir stríð og
árið 1941 og á vígstöðvunum.
Minningar frá æsku þeirra, húsa-
garðinum, skóla, einlægri vináttu,
tilfinningum þeirra til Moskvu,
vígvellinum.
Skýringar með myndinni eru á
ensku. Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill.
Athugasemd vegna
Viagra-fréttar í DV
HEILBRIGÐIS- og trygginga-
málaráðuneytið hefur beðið Morg-
unblaðið að birta eftirfarandi at-
hugasemd:
„í fréttum DV miðvikudaginn 7.
október er fjallað um innflutning
stinningarlyfsins Viagra. Fullyrt er
að Lyfjanefnd hafi veitt „læknum
undaþágu til að ávísa stinningar-
lyfi“. Þetta er rétt.
Læknar hafa á árinu sótt um
undanþágur fyrir tíu einstaklinga
til að fá lyfið afgreitt og fengið
hana.
Haft er eftir yfirmanni söludeild-
ar Pharmaco að fyrir liggi „bunki af
undanþágum" um afgreiðslu Vi-
agi-a. Þetta er rangt. Samkvæmt
upplýsingum fá Lyfjanefnd ríkisins
í dag liggja engar undanþágubeiðn-
ir hjá nefndinni. Ahuginn á lyfinu
er því hvorki almennur né skil-
gi-eindur og þess utan í engu sam-
ræmi við beinar og óbeinai- auglýs-
ingar á Viagi'a-stinningarlyfinu.
Rétt er að taka fram að Lyfja-
nefnd ríkisins hefur ekki veitt
markaðsleyfi fyrir Viagi-a. Ekki er
að vænta markaðsleyfis á þessu ári
að því best er vitað.
Það kemur ekki á óvart að sölu-
menn beiti vafasömum aðferðum til
að koma á framfæri auglýsingum
um lyf og vonist til að eftirspurnin
aukist. Undran vekur að lítt dul-
búnar lyfjaauglýsingar skuli eiga
gi-eiða leið inn í fréttadálka eða
fréttatíma fjölmiðils, og hann
þannig verða „varnarlaust fórnar-
dýr“ þeirra sem telja sig þurfa að
auglýsa lyf.
Þess má geta að Lyfjaeftirlit
ríkisins hafnaði sl. þriðjudag
beiðni Pharmaco um heimild til að
senda öllum læknum auglýsingar
um lyfið.“
SMÁIR HERMENN
FRUMSÝND í KVÖLD
HÁSKÓLABÍÓ
FRÉTTIR
Opinber
fyrirlestur
við Háskóla
Islands
HAUKUR Einarsson, jarðeðlis-
fræðingur, flytur fyrirlestur fýr-
ir meistarapróf í umhverfis- og
byggingaverkfræði, sem ber
heitið: Olíuslys á hafi, í dag,
föstudaginn 9. október, kl. 15.30
í stofu 158 í VR-II, Hjarðarhaga
2-6.
I íyrirlestrinum verður fjallað
um umhverfisáhrif og mengun af
völdum mikils olíuleka, sem get-
ur orsakast við slys á hafi úti eða
í höfnum vegna óhapps við losun
olíufarma. Haukur mun gera
grein fyrir helstu umhverfisá-
hrifum og lýsa aðferðum til að
meta og reikna dreifingu olíu-
mengunar í sjó.
Fyrirlesturinn er lokaáfangi
meistaraprófsverkefnis Hauks í
umhverfisverkfræði, en aðalleið-
beinendur hafa verið: Júlíus Sól-
nes, prófessor, Jónas Elíasson,
prófessor og dr. Snorri Páll
Kjaran, verkfræðistofunni
Vatnaskil.
Margrét Eir og
Hunang á Kaffí
Reykjavík
HLJÓMSVEITIN Hunang leik-
ur föstudags- og laugardags-
kvöld á Kaffi Reykjavík. Hljóm-
sveitinni hefur bæst liðstyrkur
sem er Margrét Eir, söngkona.
Margrét Eir er stödd á land-
inu í þrjá daga,
en hún hefur
dvalist við nám
í Bandaríkjun-
um sl. þrjú og
hálft ár þar
sem hún út-
skrifaðist með
BFA-gráðu í
leikhúsmúsík
og leiklist frá
Emerson College í Boston í vor.
Hún hefur tekið þátt í mörgum
uppfærslum á vegum skólans og
á lokaönn í vor tók hún þátt í
tveimur stærstu uppfærslum
skólans.
Kaffi Reykjavík verður með
humarveislu fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagskvöld og
kostar t.d. 1 kg af humri og
flaska af freyðivíni 4.800 kr.
ELÍNBORG B. Benedikts-
dóttir hársnyrtimeistari.
■ NÝ HÁRSNYRTISTOFA,
Hár-Ellý, hefur verið opnuð að
Bröttukinn 1 í Hafnarfirði. Eig-
andi stofunnar er Elínborg
Birna Benediktsdóttir hár-
snyrtimeistari. Hársnyrtistofan
verður opin alla virka daga frá
kl. 13-18 og frá kl. 10-14 á laug-
ardögum. Veitt er öll almenn
hársnyrtiþjónusta. I tilefni af
opnun stofunnar verður veittur
15% afsláttur af allri vinnu í
október.
Athvarf fyr-
ir geðfatl-
aða opnað í
Kópavogi
DVÖL, athvarf fyrir geðfatlaða í
Kópavogi, verður opnað formlega í
dag, á alþjóðageðheilbrigðisdaginn,
10. október. Opið verður fyrir al-
menning frá kl. 10-15 en regluleg
stai-fsemi hefst mánudaginn 12.
október.
Athvarfið er til húsa að Reyni-
hvammi 43. Að því standa Kópa-
vogsbær, Rauði kross íslands, *
Kópavogsdeild og Svæðisskrifstofa
málefna fatlaðra á Reykjanesi.
Rauði kross íslands hefur ráðið
Sigi'íði Hrönn Bjarnadóttur, hjúki'-
unarfræðing, sem forstöðumann at-
hvarfsins og mun hún annast dag-
lega umsjón og rekstur.
I athvai-finu verður áhersla lögð
á rólegt umhverfi þar sem fólk
kemur til að njóta samvera við
aðra. I húsinu er aðstaða til að
leggja stund á myndlist, boðið verð-
ur upp á heita máltíð í hádeginu og
þvotta- og baðaðstaða er fyrir
hendi.
Fyrirmyndin að Dvöl er sótt í
Vin, athvarf Rauða kross íslands
fyrir geðfatlaða í Reykjavík.
-----------------
LEIÐRÉTT
Rangt föðurnafn
í FRÉTT um mótmæli Kvenfé-
lagasambands íslands gegn af-
námi orlofs húsmæðra í blaðinu í
gær var Drífa Hjartardótth’, for-
maður Kvenfélagasambands ís-
lands, sögð vera Sigfúsdóttir í
myndartexta. Beðist er velvirðing-
ar á mistökunum.
• Skeifunni f