Morgunblaðið - 17.10.1998, Qupperneq 14
GSP
14
H
LAUGARDAGUR 17. OKTOBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Veiðist mest við sunnan- og vestanvert landið.
Nýting: Ýsan er seld innanlands. Ný eða fryst
ýsa er ýmist flutt út fryst í flökum, blokk, ísuð heil eða
flökuð.
Leyfilegur heildarafli: 35.000 lestir.
Þorskígildi: 1,05
Með stjóm fiskveiða vilja íslendingar hindra ofveiði og reka sjávarútveginn á
sem hagkvæmastan hátt. Fiskveiðistjómunin hefur skilað árangri en ekki má
þó gleymast að náttúrulegar aðstæður ráða miklu um lífnkið í hafinu.
Þegar líður á vertíð getur útgerð þurft á því að halda að fá auknar veiðiheimildir
í einstökum fisktegundum ef ekki á að leggja bátum og segja upp fólki. Af
ýmsum ástæðum getur reynst hagkvæmara að láta annan nýta veiðiheimild
í stað þess að skipta um veiðarfæri og senda skip á önnur mið. Einnig getur
þurft að útvega auknar veiðiheimildir af þeirri einföldu ástæðu að þorskurinn
syndir líka í vörpu eða net hjá þeim sem er á ufsaveiðum. Enginn vill henda
fiski sem hann hefur ekki heimild til að veiða.
Þannig kalla takmörkun á veiðiheimildum og náttúmlegar aðstæður á
hagræðingu. Til þess að hægt sé að hagræða verða að gefast möguleikar á
frjálsum viðskiptum.
Út vegsf yrirtæki
Fiskistof a
Þjóðhagsstofnun
Aðrar stofnanir
Verðlagsstofa
Hlutverk Verðlagsstofu er að
fylgjast með fiskverði og
uppgjöri á aflahlut sjómanna.
Stofnunin getur krafið útgerðir,
sjómenn, kaupendur afla,
flutningsaðila, flskmarkaði og
aðra sem koma nálægt sölu á
afla um upplýsingar.
Úrskurðar-
nefnd
Sjómenn og útvegsmenn fella
úrskurð í deilumálum um
fiskverð. Upplýsingar og
úrvinnsla koma frá Verðlagsstofu.
Maigir eiga hagsmuna að gæta í sjávarútvegi og oft hefur verið deilt um verð á afla. Skipti á veiðiheimildum, sem
útvegsíyrirtæki hta á sem hagræðingartæki, gagnrýndu sjómenn áður mii. vegna skorts á eftirliti. Með maigvíslegum
hætti hafa stjómvöld nú séð til þess að verðmyndun sé öllum ljós. Verðlagsstofa sem tók til starfa þann 1. júlí sl.
er dæmi um það.
Samkvæmt skýrslu OECD um fiskveiðistjómun má gera ráð fyrir lægri rekstrarkostnaði en ella, bættri nýtingu fiskistofna og betra fjárfestingarumhverfi ef veiðiheimildir eru framseljanlegar. íslenska fiskveiðistjómunaikerfið er aflamarkskerfi
með framseljanlegum veiðiheimildum. Eftirtaldar tegundir eru bundnar aflamarki: Þorskur, ýsa, ufsi, karfí, grálúða, rækja, skarkoli, sandkoli, humar, hörpudiskur, loðna, sfld, steinbítur, skrápflúra og langlúra. Úthlutað aflamark fyrir fiskveiði-
árið 1998 - 1999 er um 460 þúsund þorskígildistonn. Fiskveiðiárið hefst 1. september.