Morgunblaðið - 24.10.1998, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998 6F
ixoryíML
INNLENT
Rannsóknir á reim-
leikum og svipsýnum
DR. William Roll pró-
fessor heldur fyrirlest-
ur í Non’æna húsinu
þriðjudaginn 27. októ-
ber kl. 20.30 um rann-
sóknir á reimleikum og
svipsýnum. Fyrirlest-
urinn er fluttur á
dönsku og nefnist:
„Min forskning af polt-
ergeister og
spogelser." Dr. William
Roll er þekktur um all-
an heim sem séi’fræð-
ingur og vísindamaður
á sviði dulsálarfræði,
segir í fréttatilkynn-
ingu frá Norræna hús-
inu.
„í fyrirlestrinum fjallar dr. Willi-
am Roll m.a. um atburði sem gerð-
ust að Saurum í marz 1964, en þá
vora miklir reimleikar á bænum.
Dr. William Roll kom hingað til
lands í maí það ár til að rannsaka
þetta fyrirbæri. Pegar slíkir atburð-
ir verða heyrast torkennileg hljóð,
svipir látinna birtast og þungir hlut-
ir færast úr stað. Dr. William Roll
mun í fyrirlestrinum kynna rann-
sóknir sínar sem beinast m.a. að
ýmsum svikakenningum, og að dul-
arfull fyrirbæri era sett á svið af
þeim sem eru lífs, einnig talar hann
um andakenninguna (ánde-teorien),
hvort demónar og illir andar hafl
áhrif á gang mála. Þá veltir hann
fyrir sér hvort orsakanna sé að leita
á sviði skjálftafræði
eða af öðram eðlis-
fræðilegum ki'öftum,"
segir ennfremur.
Dr. Roll lauk há-
skólaprófi frá Berkel-
ey-háskólanum í Kali-
forníu, og Oxford-há-
skóla. Doktorsgráðu
hlaut hann frá Háskól-
anum í Lundi. Hann
starfaði við Dulsálar-
fræðideildina við Du-
ke-háskólann og í sjö
ár starfaði hann með
dr. J.B. Rhine, sem er
höfundur að nútíma
dulsálarfræði. Arið
1986 varð dr. Roll pró-
fessor í sálfræði og sálkönnun
(physical research) við State Uni-
versity of West Georgia. William
Roll hefur skrifað yfir eitt hundrað
vísindagi'einar, hefur ritstýrt 10
bindum í röðinni „Research in
Parapsychology" og hefur ritstýrt
þremur verkum um „sálræn sam-
bönd“. Hann er formaður íyrir
Dulsálarfræðistofnunina (Parap-
sychological Services Institute),
hefur verið forseti fyrir „Oxford
University Society for Psychical
Research" og forseti Dulsálfræðifé-
lagsins. Dr. Roll stundar Zen íhug-
un. Hann kennir íhugun og sálþró-
un við Esalen Institut og víðar og
hann hefur staðið fyrir mörgum
verklegum námskeiðum.
Dr. William
Roll
Ríkisstjórnin leggur baráttu
Amnesty International lið
„ÉG ætla að gera allt sem í mínu
valdi stendur til að tryggja að rétt-
indin í Mannréttindayfirlýsingu Sa-
meinuðu þjóðanna verði að veru-
leika um víða veröld.“
,Á fundi íslensku ríkisstjómarinn-
ar 20. október sl. skráðu allir ráð-
herrar hennar nafn sitt við ofan-
gi’eint heit. íslandsdeild Amnesty
Intemational fagnar stuðningi ís-
lensku í-íldsstjómarinnar við baráttu
Amnesty Intemational um að ákvæði
Mannréttindayfirlýsingarinnai' nái
fram að ganga,“ segii' í fréttatilkynn-
ingu frá Amnesty International.
„Mannréttindasamtökin Amnesty
Intemational standa nú íyrir herferð
í tilefni 50 ára afmælis Mannrétt-
indayfirlýsingar Sameinuðu þjóð-
anna. Markmiðið með herferðinni er
að vekja athygli á yfirlýsingunni,
fræða almenning um innihald henn-
ar og efla starf í þágu mannréttinda.
Samtökin telja afar mikilvægt að
Ertu búinn að
skipta um bensínsíu?
Komdu í skoðun
TOYOTA Nýbýlavegi 4-8
QQQ2QSQ S. 563 4400
hver og einn sé sér meðvitandi um
efni Mannréttindayfirlýsingarinnar
og að hver einstaklingur leggi sitt af
mörkum til að réttindi þau, sem þar
era upp talin, verði virt.
Einnig er stór liður í þessu al-
þjóðlega átaki að safna nöfnum í
bækur þar sem fólk skrifar undir
heit þar sem það heitir því að gera
allt sem í þeirra valdi stendur til að
tryggja að réttindin í Mannrétt-
indayfirlýsingu Sameinuðu þjóð-
anna verði að veruleika um víða ver-
öld,“ segir enn fremur.
Hinn 10. desember nk. verður öll-
um undirskriftum safnað saman og
þær afhentar Kofi Annan fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna
við hátíðlega athöfn í París. Nú þeg-
ar hafa meira en 6 milljónir manna
og kvenna um heim allan skráð nafn
sitt við heitið.
Bókin liggur frammi á skrifstofu
íslandsdeildar Amnesty Internat-
ional. Einnig er hægt að skrá nafn
sitt á Netinu:
http://amnesty.excite.com
SIIICO
SagunA
Ertu með brjóstsviða?
Þá hjálpar SILICOL
Fæst í apótekum
Verkefnastyrkur Félags-
stofnunar stúdenta
VERKEFNASTYRKUR Félags-
stofnunar stúdenta var veittur í
fyrradag í Stúdentaheimilinu við
Hringbraut. Styrkinn hlýtur að
þessu sinni Signý Marta Böðvars-
dóttir fyrir kandídatsverkefni sitt í
viðskiptafræði, Mögulegur ávinn-
ingur túnfiskveiða, sem unnið var
undir leiðsögn dr. Runólfs Smára
Steinþórssonai', dósents. Signý
Marta lýkur námi frá Háskóla Is-
lands 24. október nk.
Verkefnastyrkur Félagsstofnun-
ar stúdenta er veittur þrisvar á ári.
Tveir við útskrift að vori, einn í
október og einn í febrúar. Nemend-
ur sem skráðir eru til útskriftar hjá
Háskóla Islands og þeir sem eru að
vinna verkefni sem veita 6 einingar
eða meira í greinum þar sem ekki
eru eiginleg lokaverkefni geta sótt
um styrkinn. Markmiðið með Verk-
efnastyrk FS er að hvetja stúdenta
til markvissari undirbúnings og
metnaðarfyllri lokaverkefna. Jafn-
framt að koma á framfæri og kynna
frambærileg verkefni. Styrkurinn
nemur 100.000 kr.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
GUÐJON Olafur Jónsson, stjórnarformaður, afhenti Signýju Mörtu
Böðvarsdóttur styrkinn í fyrradag.
Skeifunni 6 sími: 568 7733 www.epal.is
22 ný
gluggatjöld
frá Kvadrat.
Fjöldi lita!
Með þvífallegosta
sem Egjólfur hefur séð
og kallar liann ekki
allt ömmu sína íþeim
efnum!
Gott verð,
falleg hönnun
og sérviska Eyjólfs
Leyföu villtustu draumum bragblaukanna að rœtast
Villibráðarhlaðborð Vínsmökkuti
15. október - 8. nóvember Sérvalin Cótes du Rhone vín frá
öll kvöld, ffá fimmtudegi M. Chapoutier verða á villibráðar-
til sunnudags. Verð 4.590 kr. vínseðli okkar.
Gestum á hlaðborði gefst kostur á
WwUSTtfiW smökkun á þessum vínum fyrir matinn.
mánudags-, þriðjudags- og
miðtnkudagskvöld. Verð 3.990 kr.
Borðapantanir í síma 562 0200
ílígHÍHEK
ÍIMepll
W/ \ \\ \ ■ Ýlla la M . . H k wt - ÆmlK vi m -4ht.WL
m , \ j) 11 • ]
m. i i! eríimiiti j