Morgunblaðið - 11.11.1998, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1998 11
FRETTIR
Könnun menntamálaráðuneytis á starfstíma í framhaldsskólum skólaárið 1997-1998
Færri kennslu-
dagar í 21 skóla
en lög kveða á um
Reglulegir kennsludagar yfir lágmarksstarfstíma í einum skóla
✓
I einum framhaldsskóla af alls 31 skóla
voru reglulegir kennsludagar á seinasta
skólaári fleiri en kveðið er á um í lögum að
skuli vera lágmarksfjöldi kennsludaga,
skv. könnun menntamálaráðuneytisins. Ef
skertum kennsludögum er bætt við náðu
níu skólar til viðbótar lögbundnum lág-
marksfjölda kennsludaga. Ómar Friðriks-
son kynnti sér niðurstöður könnunarinnar.
Menntamálaráðuneytið
hefur birt upplýsingar
um nýtingu árlegs
starfstíma í framhalds-
skólum fyrir skólaárið 1997-1998.
Eru þær byggðar á svörum 31
framhaldsskóla við spurningalista
sem ráðuneytið sendi skólunum í
lok maímánaðar sl.
Meðalfjöldi
kennsludaga 143
Skv. framhaldsskólalögunum
skulu kennsludagar ekki vera færri
en 145 á hverju skólaári. Niður-
stöður könnunarinnar leiddu hins
vegar í ljós að talsverður
munur er á fjölda starfs-
daga á milli skóla og
skorti verulega á að flest-
ir skólar uppfylltu lög-
bundnar kröfur um fjölda
kennsludaga á síðasta
skólaári. I aðeins einum .....
skóla af 31, Hússtjórnar-
skólanum á Hallormsstað, voru
reglulegir kennsludagar fleiri en
kveðið er á um í framhaldsskóla-
lögum að skuli vera lágmarksfjöldi
kennsludaga, eða 149 alls. Því til
viðbótar voru svokallaðir skertir
kennsludagar flestir í Hússtjórnar-
skólanum eða níu alls.
Reglulegir kennsludagar í fram-
haldsskólum eru dagar þar sem
nemendur sækja skóla samkvæmt
stundaskrá og vinna undir skipu-
legri leiðsögn kennara. Skertir
kennsludagar eru hins vegar dagar
þar sem nemendur sækja skóla, en
stundafjöldi samkvæmt stundaskrá
er skertur og/eða reglubundin
kennsla fer ekki fram. Skv. upplýs-
ingum Maríu Þ. Gunn-
laugsdóttur í mennta-
málaráðuneytinu hefur
ekki verið skilgreint
hvort skertir kennslu-
dagar teljast til lág-
marksfjölda kennsludaga
samkvæmt framhalds- ———
skólalögunum. Hins veg-
ar sagði hún að gera mætti ráð fyr-
ir að skólarnir gætu reiknað sér að
einhverju leyti skerta kennsludaga
í starfstíma skólanna.
Ef skertum kennsludögum í
skólunum er bætt við reglulega
kennsludaga kemur í ljós sam-
kvæmt könnuninni að þriðjungur
skólanna eða samtals tíu fram-
haldsskólar náðu lögbundnum lág-
marksfjölda kennsludaga á síðasta
skólaári. Fjöldi reglulegra
kennsludaga í öllum skólunum var
að meðaltali 139 dagar og skertir
kennsludagar að meðaltali fjórir.
Flestir
kennsludagar i
Hússtjórnar-
skólanum á
Hallormsstað
Vinnudagar
kennara undir
ákvæðum
samninga í 8
skólum
Fæstir kennslu-
dagar í MH
I Menntaskólanum við Hamra-
hlíð voru fæstir reglulegir kennslu-
dagar á seinasta skólaári skv.
könnuninni eða 128. í MH voru
hins vegar skertir kennsludagar
nokkru fleiri en í flestum hinna
skólanna eða sjö alls.
I 3. grein laga um framhalds-
skóla nr. 80/1996 er kveðið á um að
árlegur starfstími framhaldsskóla
skuli ekki vera skemmri en níu
mánuðir og að þar af skuli kennslu-
dagar eigi vera færri en 145. Gild-
andi kjarasamningar
framhaldsskólakennara
og fjármálaráðuneytis-
ins gera ráð fyrir 175
vinnudögum kennara á
árlegum starfstíma
skóla og auk þess fjór-
______ um vinnudögum fyrir
upphaf eða eftir lok
hvers skólaárs. Auk þess binda
ákvæði fyrrgreindra kjarasamn-
inga lengd prófatíma við sex vikur
á hverju skólaári.
I niðurstöðum könnunar
menntamálaráðuneytisins kemur
m.a. fram að í tæpum 60% skól-
anna var fjöldi reglulegra kennslu-
daga á bilinu 139-142. Fjöldi
skertra kennsludaga á skólaárinu
vai’ á bilinu 0-9 en algengast var að
skertir kennsludagar væru 4-6
talsins. Reglulegir prófdagar voru
frá 12 til 31 eða 20 dagar að meðal-
tali. Sker Menntaskólinn í Reykja-
vík sig nokkuð úr hvað þetta varð-
ar þar sem reglulegir prófdagar í
MR voru flestir skv. kþnnuninni
eða 31 alls. í tveimur
þriðju hluta skólanna
var fjöldi reglulegra
prófdaga 16-20.
Fjöldi vinnudaga
kennara á níu mánaða
starfstíma skólanna var
mestur 177 dagar í
Framhaldsskólanum í
Vestmannaeyjum en fæstir voru
þeir í Flensborgarskólanum og
Iðnskólanum í Hafnarfirði eða
165. Algengast var að vinnudagar
væru 174 eða 175. Samtals vora
vinnudagar kennara á árlegum
skólatíma í samræmi við kjara-
samninga í átta skólum af heild-
inni.
5 skólar undir lágmarksfjölda
vinnudaga utan skólatíma
I könnuninni kom einnig fram að
fjöldi vinnudaga kennara utan ár-
legs starfstíma framhaldsskóla var
að meðaltali þrír fyrir upphaf
haustannar og einn við lok vorann-
ar. Verzlunarskóli íslands skar sig
úr hópnum en í honum vora alls 17
vinnudagar kennara utan starfs-
tíma skólans. Alls vora fimm skólar
undir þeim lágmarksfjölda vinnu-
daga utan starfstíma sem samning-
ar kveða á um en í ljós koma að
fjöldi vinnudaga kennara utan
stai-fstíma skólanna var meiri en
samningar gera ráð fyrir í fjóram
skólum.
Menntamálaráðuneytið sendi
skólameisturum og rektorum allra
umræddra skóla niðurstöður þess-
arar könnunar 20. október sl. þar
sem tekið er fram að ráðuneytið
muni framvegis fylgja því eftir að
framhaldsskólar uppfylli ákvæði
framhaldsskólalaganna um árleg-
an starfstíma nemenda og lág-
marksfjölda kennsludaga. „Ráðu-
neytið telur hins vegar að líta
megi svo á að síðastliðið skólaár
hafi verið aðlögunartími fyrir
framkvæmd fyrrgreinds ákvæðis,
m.a. vegna þeirrar óvissu sem
ríkti um kjarasamninga kennara
þegar skólaárið 1997-1998 var
skipulagt í framhaldsskólum,"
segir i bréfinu.
Starfstími í framhaldsskólum skólaárið 1997 til 1998 Reglu- Skertir Reglu- Fj. vinnud. Fj. vinnud. legir kennslu- legir kennara kennara kennslu- dagar próf- ááriegum utanstarfst. dagar dagar starfst. skóla skóla
Borgarholtsskóli 140 4 17 174 4
Fjölbrautask. við Ármúla 142 2 22 173 4
Fjöibrautask. í Breiðholti 139 5 15 174 4
Fjöibrautask. í Garðabæ 142 3 20 174 1
Fjölbrautask. Norðurl. vestra 139 6 19 175 4
Fjölbrautask. Suðurlands 139 3 18 173 4
Fjölbrautask. Suðurnesja 136 4 18 173 4
Fjöibrautask. Vesturlands 138 5 21 174 4
Flensborgarskólinn 136 4 18 165 5
Framhaldssk. A-Skaftaf.sýslu 142 5 16 174 4
Framhaldssk. á Húsavík 138 4 18 172 3
Framhaldssk. í Skógum 140 0 17 168 6
Framhaldssk. i Vestm.eyjum 137 6 21 177 4
Framhaldssk. á Laugum 144 2 20 174 6
Hússtjórnarsk. á Hallormsstað 149 9 12 175 4
Framhaldsskóli Vestfjarða 139 4 16 175 4
Iðnskólinn í Hafnarfirði 140 1 17 165 4
Iðnskóiinn í Fteykjavík 138 0 20 172 4
Kvennaskólinn í Reykjavík 140 5 19 174 4
Menntaskólinn á Akureyri 136 6 17 171 2
Menntaskólinn á Egilsstöðum 139 6 20 175 4
Menntaskólinn við Hamrahlíð 128 7 20 166 4
Menntaskólinn í Kópavogi 140 5 22 174 4
Menntaskólinn að Laugarvatni 142 0 28 173 4
Menntaskólinn í Reykjavík 141 1 31 175 3
Menntaskólinn við Sund 137 6 24 174 4
Stýrimannaskólinn í Reykjavík 142 0 26 174 3
Verkmenntaskólinn á Akureyri 134 4 20 170 4
Verkmenntaskóli Austurlands 134 5 . 18 175 4
Verslunarskóli íslands 142 3 22 175 17
Vélskóli ísiands 141 5 16 170 4
Heimild: Menntamálaráöuneytid
Sjáðu inn í framtíðina
með Skin Imaging System
Skin Imaging- húðskanninn leiðir í Ijós
húðskaða af völdum sólar, fíngerðar línur og
hrukkur áður en þær sjást með berum
augum. Þú getur því byrjað að leysa
vandamálin áður en þau koma upp á
yfirborðið. Hvernig? Með því að skoða djúpt
niður í húðina þar sem allt á upptök sín.
Þegar þú sérð myndina, sem birtist á
skjánum, geturðu brugðist við fyrstu
aðvörunarmerkjum húðarinnar með réttri
húðumhirð frá Estée Lauder.
Komdu og skoðaðu Skin Imaging System frá
Estée Lauder.
Byltingarkennd innsýn.
Alger sérþjónusta, aðeins í boði
Estée Lauder, í eftirtöldum verslunum:
Gerið tímapantanir.
Miðvikudaginn 11. og fimmtudaginn 12. nóv.:
Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, s. 568 5170.
Föstudaginn 13. og laugardag 14. nóv.:
Hygea, Kringlunni, sími 533 4533.
Þriðjudaginn 17. nóv.:
Apótek Keflavíkur, sími 421 3200.
Miðvikudaginn 18. nóv.:
Lyfja, Lágmúla, sími 533 2300
Fimmtudaginn 19. nóv.:
Sara, Bankastræti, st'mi 551 3140.
Föstudaginn 20. nóv.:
Hygea, Laugavegi, sími 511 4533.